Morgunblaðið - 13.10.1989, Side 37

Morgunblaðið - 13.10.1989, Side 37
MORGUNBLAÐIS) FÖSTUDAGL'R 13.; OKTÓBLR l:?f)9 37 |=M3> VSRÖH L-^>Æfn2rt®-'SiL* SLir'S jr^ir-s sTóft oa- ~T~F?Kpi v/io r=»pq l hp^ftsvoi l CR» c íslenskt dilkakjöt: FAVISIEÐA FLAÐUR? Til Velvakanda. Landbúnaðarráðherra ræddi fyr- ir nokkru í fjölmiðlum um „hágæða- vöru“ og átti þá m.a. við íslenskt dilkakjöt. En hvers vegna skyldi þetta „hágæða" kjöt ekki vera skráð nema annars flokks á heims- markaði kindakjöts, þ.e. í London? En þar er nýsjálenskt dilkakjöt skráð fyrsta flokks. íslenskt dilka- kjöt á því ekki meiri vinsældum að fagna erlendis þrátt fyrir fagurgala þessa sauðvísa ráðherra. En hvað varðar dýrkendur íslenskra dilka um einhveija heims- markaði? Á síðari árum liafa þeir tekið að kalla þetta kjöt „fjalla- lamb“ (jafnvel villibráð!) enda þótt mæður sömu lamba séu aldar í húsi á ýmiss konar fóðri. Hin sanna villibráð er ekki að finna á íslandi heldur á Nýja-Sjálandi þar sem fé gengur sjálfala, kemur aldrei í hús og fær aldrei fóður af neinu tagi úr manna höndum. Hið íslenska „fjallalamb" hefur stundum náð eins til þriggja ára aldri („staðið uppi“ í frysti) áður en það gistir grandvaralaus innyfli neytenda sem aldrei hafa verið fræddir (hvorki af heilbrigðisyfir- völdum né öðrum) um óhollustu gamals kjöts úr frysti sem sífellt verður tormeltara og tormeltara með vaxandi aldri og reynist þá ærið strembið ekki síst öldnu fólki. (Sum elliheimili munu t.d. ala vist- menn sína á slíkum „krásum“ keyptum á hinum árvissu útsölum gamals kjöts.) Steingrímur óttast að inn yrði flutt „hormónakjöt", ef framleiðsla dilkakjöts legðist af á íslandi. Hér skýtur nokkuð skökku við: Auðvitað yrði flutt inn nýsjálenskt kjöt — án hormóna — enda það ódýrasta og besta (um 3-4 sinnum ódýrara en íslenskt) því að á Nýja-Sjálandi gengur fé sjálfala, sem fyrr segir. Steingrímur Sigfússon dásamar „hágæði“ íslensks dilkakjöts — rétt eins og nýsjálenskt kjöt væri ekki til, sem telst þó fyrsta flokks en íslenskt ekki nema annars flokks! Hvað stórnar svo „kindarlegum" orðum og athöfnum hans? Annað tveggja: Fávísi eða flaður. Og hvort sæmir þá betur landbúnaðarráð- herra Álþýðubandalagsins: Fávísi eða flaður? Lambi Símar 35408 og 83033 GRAFARVOGUR Miðhús og nágr. AUSTURBÆR Blesugróf Hjartans þakkir til ykkar allra, sem glödduö mig á 100 ára afmœli mínu. Guð blessi ykkur. Margrét Rögnvaldóttir. _ Æ m ^ BlOHOU HEILRÆÐI Passið ykkur á myrkrinu NOTUM ENDURSKINS- MERKI IHX XREYSTU \p.Ii IBANONJVIE iNOEMANTWAINw.«,íJOHNG,AVILDSENn. M0R6ANFREEMAN “LEANONME" OriginalScoreby /i\il ExecutiveProducer STWAIN Directedbv Sýnd kl. 5 - 7 - 9 - 11

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.