Morgunblaðið - 14.10.1989, Page 4
^-4............ .......——__________ _______________________________________________________________
FJARLOGIN 1990
Tekjur HHÍ til Þjóðarbókhlöðu:
Alþingi verður að
stöðva þessa ósvinnu
- segir Birgir ísleifur Gunnarsson,
fyrrverandi menntamálaráðherra
„ÞAÐ er margt einkennilegt í þessu fjárlagafrumvarpi, en sú
meðferð, sem Háskóli íslands fær þar er með olíkindum. Alþingi
verður að stöðva þessa ósvinnu og breyta Qárlagafrumvarpinu
að þessu leyti,“ sagði Birgir ísleifiir Gunnarsson, alþingismaður
og fyrrverandi menntamálaráðherra. í fjárlagafrumvarpinu er
gert ráð fyrir að 60 milljónir af tekjum Happdrættis Háskóla ís-
lands renni til framkvæmda við Þjóðarbókhlöðu.
Birgir ísleifur sagði að Háskól-
inn hefði um langt skeið ekki feng-
ið úr ríkissjóði annað fé til upp-
byggingar en sjálfsaflafé, það er
þær tekjur sem Happdrætti Há-
skóla íslands hefði gefíð. „Þessar
tekjur hafa verið misjafnar og voru
til dæmis mjög góðar síðastliðin
tvö ár vegna góðrar sölu í skaf-
miðurn," sagði hann. „Nú eru þess-
ar tekjur hins vegar á niðurleið og
sú staðreynd ein þýðir að það mun
hægja á uppbyggingu Háskólans.
Það sem þeir Olafur Ragnar og
Svavar Gestsson gera með þessu
fjárlagafrumvarpi er að hirða veru-
legan hluta af tekjum Happdrætt-
isins í annað. Þrátt fyrir Þjóðar-
bókhlöðuskatt ætla þeir að taka
60 milljónir af tekjum Happdrættis
Háskóla íslands í Þjóðarbókhlöð-
una. Mér sýnist að með þessu sé
algjörlega stöðvuð uppbygging
Háskóla íslands, þrátt fyrir að þar
sé búið við mjög mikil þrengsli
víða. Almenningur hefur haldið
tryggð við Happdrætti Háskólans,
af því að fólki þykir vænt um
Háskólann og vill stuðla að upp-
bygginu hans. Það er hætt við að
menn fari að líta öðrum augum á
happdrættið þegar það er farið að
taka tekjur þess í hít fjármálaráð-
herrans. Mér finnst að Alþingi
verði að stöðva þessa ósvinnu og
breyta fjárlagafrumvarpinu að
þessu leyti,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson.
Sala varnariiðs-
eigna 1990:
Kröfiir
umskilí
ríkissjóð
minnka
SÖLU varnarliðseigna er, sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpi, gert
að skila 35 milljónum í ríkissjóð
á næsta ári. I fjárlögum síðasta
árs var gert ráð fyrir að fyrir-
tækið skilaði 50 milljónum til
ríkissjóðs á þessu ári, eða yrði
lagt niður ella. Alfreð Þor-
steinsson, forstjóri, segir að
þær áætlanir halí verið algjör-
lega óraunhæfar og Iíklega
nemi skil fyrirtækisins 20 millj-
ónum á þessu ári, auk 20-25
milljón króna söluskatts.
í fjárlögum ársins 1989 sagði,
að næði Sala varnarliðseigna ekki
að skila þeim 50 milljóna lág-
marksarði, sem krafist væri, yrði
að' leggja starfsemina niður og
færa verkefni hennar annað. Al-
freð Þorsteinsson, forstjóri, sagði
að þessi áætlun hefði verið út í
hött og ekki í neinu samræmi við
rekstur fyrirtækisins. „Það er
greinilegt að fjárlaga- og hagsýslu-
deild hefur áttað sig á því hversu
óraunhæft þetta var, fyrst reiknað
er með 35 milljónum á næsta ári,“
sagði hann. „Skil í ríkissjóð af arði
ársins 1989 nema líklega um 20
milljónum, eins og við gerðum ráð
fyi’ir í áætlunum okkar. Það er að
vísu erfitt að gera slíkar áætlanir
því þessi starfsemi er algjörlega
háð framboði vara frá varnarliðinu
og við sjáum aldrei fyrirfram hveit
það verður. Það skal tekið fram,
að auk þessara 20 milljóna greiðir
Sala varnarliðseigna 20-25 milljón-
ir á árinu í söluskatt og því renna
í raun 40-45 milljónir frá fyrirtæk-
inu í ríkissjóð í ár.“
Alfreð sagði að ekki hefði verið
rætt við sig um að leggja starfsem-
ina niður. Það væri enda ekki gert
með einu pennastriki, því kveðið
væri á um hana í sérstökum samn-
ingum við Bandaríkjamenn.
Bygginga,sj óður:
Fjárveiting
lækkar um
milljarð
FJÁRVEITING til Byggingarsjóðs
rikisins lækkar á fjárlögum næsta
árs úr 1.050 milljónum I 150 millj-
ónir. Indriði Þorláksson hagsýslu-
stjóri segir að þrátt fyrir þetta
verði lán til íbúðabygginga og
kaupa 1990 svipuð að raungildi
og á þessu ári. Þetta stafl aðallega
af því að ráðstöfunarfé lífeyris-
sjóða hafi vaxið mjög og húsbréfa-
kerfið hafi einnig mikið að segja.
Indriði segir að Byggingarsjóður
ríkisins láni 8,63 milljarða í ár, en
gert sé ráð fyrir að lánin nemi 7,66
milljörðum næsta ár og að þá kaupi
lífeyrissjóðirnir húsbréf fyrir 2,41
milljarð. Þannig verði ríflega 10 mill-
jörðum króna varið til húsnæðisiána
á komandi ári.
„Byggingarsjóður hefur ekki þurft
ríkisframlagið sem veitt var í ár til
að standa undir þeim fjárveitingum
sem honum eru ætlaðar. Lækkunin
er þess vegna ekki eins mikil og
ætla mætti," segir Indriði.
„Húsbréfakerfið kemur til fram-
kvæmda á næsta ári og gert er ráð
fyrir að þá noti lífeyrissjóðirnir allt
að tíunda hluta ráðstöfunarfjár til
að kaupa húsbréf. Lánveitingar
Byggingarsjóðs dragast saman að
sama marki. Sé miðað við að lífeyris-
sjóðirnir kaupi skuldabréf fyrir 45%
af ráðstöfunarfé sínu, nægir Bygg-
ingarsjóði ríkisins að fá 150 miiljónir
á næsta ári til að geta lánað 7,66
milljarða til húsnæðismála.“
Síldarverksmiðjur
ríkisins:
380 milljónir til
tækjakaupa
ÁÆTLAÐ er að leggja 380 millj-
ónir á næsta ári til endurnýjunar
á tækjabúnaði fiskmjölsverksmiðj-
unnar á Seyðisfirði. Starfsleyfi
verksmiðjunnar rennur út á næsta
ári og fæst ekki endurnýjað nema
verulegar endurbætur verði gerð-
ar á tækjabúnaði.
í fjáriagafrumvarpinu kemur
fram, að á næstu árum er áformað
að Síldai-verksmiðjur ríkisins hefji
framleiðslu á svokölluðu gæðamjöli.
Framleiðsluverðmæti þess er mun
meiri og nýting hráefnis betri en
fæst með ■ framleiðslu á venjulegu
fiskimjöli, en þessi framleiðsla krefst
mikillar fjárfestingar í nýjum tækja-
búnaði. Áætlað er að hefja endurnýj-
un tækjabúnaðar á næsta ári í fisk-
mjölsverksmiðjunni á Seyðisfirði.
Fjárfestingin, samtals 380 milljónir,
verður fjármögnuð með erlendu láni
að upphæð 300 milljónir, auk fram-
lags úr rekstri fyrirtækisins.
767 millj. í út-
flutningsbætur
í FJÁRLAGAFRUMVARPINU er
gert ráð fyrir að heildarverðmæti
landbúnaðarafurða á verðlagsár-
inu 1989-1990 verði 15,346 millj-
arðar króna. Samkvæmt því séu
lögbundin framlög til gréiðslu út-
llutningsbóta allt að 767 milljónit*
og 614 milljónir til P’ramleiðni-
sjóðs landbúnaðarins, og er það
um 25% hækkun frá síðasta fjár-
lagafrumvarpi.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að íjái*veiting til útflutn-
ingsbóta sé notuð til að greiða bænd-
um umsamdar bætur fyrir ónotaðan
fullvirðisrétt og fyrir leigu fullvirðis-
réttar til lengri tíma, auk beinnar
niðurgreiðslu á útflútningi mjólkur-
afurða og kindakjöts. Þar segir að á
VEÐUR
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gaer)
VEÐURHORFUR I DAG, 14 OKTOBER:
YFIRLIT í GÆR: Yfir N-Grænlandi er 1.020 mb hæð, en 990 mb
lægð skammt austur af Færeyjum þokast austsuðaustur. Um 1.000
km suður af Hvarfi er 986 mb lægð á hreyfingu norður.
SPÁ: Norðaustan og austan gola og víðast léttskýjað. .Hiti 1-6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustlæg víndátt og
hlýnandi veður. Skýjað og dálítil rigning um sunnan- og austanvert
landið, én annars þurrt að mestu. \
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-JQ° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
» , ’ Súld
OO Mistur
- [- Skafrenningur
|~^ Þrumuveður
VEÐUR 1/ÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 skýjað Reykjavik S léttskýjað
Bergen 8 skúr
Helsinki 8 rigning
Kaupmannah. 11 rignlng
Narssarssuaq +2 heiðskírt
Nuuk vantar
Osló 13 léttskýjað
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 21 þrumuveður
Amsterdam 16 skúr
Barcelona 19 hálfskýjað
Berlín 16 alskýjað
Chicago 7 léttskýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 13 skýjað
Glasgow 11 skúr
Hamborg 14 rigning
Las Palmas 25 alskýjað
London 12 rigning
Los Angeles 16 místur
Lúxemborg 12 skýjað
Madrfd 19 skýjað
Malaga 22 skýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Montreal 7 hálfskýjað
New York 15 mlstur
Orlando 23 léttskýjað
Parls 18 léttskýjað
Róm 20 þokumóða
Vín 18 skýjað
Washington 14 þokumóða
Winnipeg 3 skýjað