Morgunblaðið - 14.10.1989, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ■ LAUGARDAGUR 14:\QKipgeRf989:'
cf
Vísitala fram-
færslukostnaðar:
Hækkun 3ja
mánaðajafti-
gildir 23,6%
verðbólgu
KAUPLAGSNEFND heftir reikn-
að vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í októberbyrj-
un 1989. Vísitalan í október
reyndist vera 133,7 stig eða 2,0%
hærri en í september.
Hækkun matvöruverðs hafði í för
með sér 0,6% vísitöluhækkun en
því til frádráttar kom lækkun á
mjólk og mjólkurvörum 21. septem-
ber sl. sem olli 0,1% lækkun vísi-
tölunnar. Húsnæðiskostnaður
hækkaði um 5,2% sem hafði í för
með sér 0,6% hækkun vísitölunnar
og má rekja það til hvors tveggja,
hækkunar á viðhaldskostnaði og
fjármagnskostnaði. Rafmagns-
kostnaður hækkaði um 9,0% og
húshitunarkostnaður um 3,7% og
leiddi það til um 0,2% hækkunar
vísitölunnar. Verðhækkun ýmissa
annarra vöru- og þjónustuliða olli
alls um 0,9% hækkun visitölunnar
en á móti kemur 3,4% verðlækkun
á bensíni l.október sl. sem olli um
0,2% lækkun vísitölunnar.
Sípasttiðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 21,1%. Undanfarna
þijá mánuði hefur vísitalan hækkað
um 5,4% og jafngildir sú hækkun
um 23,6% verðbólgu á heilu ári.
ísfiskútflutning-
urinn í september:
Verðáþorski
með allra
hæsta móti
SALA ísaðs lísk héðan á fisk-
mörkuðunum í Bretlandi og
Þýzkalandi nam 7.725 tonnum
að verðmæti 709 milljónir króna.
Meðalverð á kíló í Bretlandi var
um 107 krónur, en 71 í Þýzka-
landi. Þorskverð í Bretlandi var
um 1,13 pund á kíló og er það
næst hæsta meðalverð yfir einn
mánuð, sem fengizt hefur. Eldra
metið er frá árinu 1987.
Alls voru seld 3.415 tonn úrgám-
um í Bretlandi, þar af þorskur 1.824
tonn. Heildarverð var tæpar 370
milljónir króna. Meðalverð í pund-
um var 1,12 en 108,16 í krónum.
Fyrir þorskinn fengust að meðaltali
1,13 pund, 109,85 krónur.
Sala úr gámum í Þýzkalandi nam
1.217 tonnum að verðmæti 86 millj-
ónir króna. Meðalverð í mörkum
var 2,25, 71,21 króna. Hæst meðal-
verð í mörkum fékkst fyrir grálúðu
og þorsk, 3,14 mörk. Fyrir karfa
fengust 2,53 mörk að meðaltali og
hefur það oft verið hærra.
Landssamtök
heimavinnandi
fólks stofnuð
STOFNFUNDUR Landssamtaka
heimavinnandi fólks verður hald-
inn á Holiday-Inn, i dag, laugar-
dag, kl. 13.30.
I fréttatilkynningu frá undirbún-
ingsnefnd segir, að Landssamtök-
unum sé ætlað að veita stjórnvöld-
um aðhald og vinna að leiðréttingu
á kjörum og réttindum heimavinn-
andi fólks svo sem lífeyrissjóðsmál-
um, skattamálum, tryggingamálum
Og öðrum þeim sviðurn, þar sem
heimavinnandi fólk hefur ekki notið
réttar á við annað vinnandi fólk.
27áráíslandi
(U) PIOMEER
SYNING
ídag
frá kl. 10-16
Hlustaðu á hljóminn í tækjum,
samvöldum úr gullnu línunni
sem kosta kr. 419.441
og hlustaðu á hljóminn í samstæðu
sem kostar kr. 49.696
og spáðu í endalausa möguleikana
á samvali tækja á öllu þessu verðbili.
ER breytir liein
0g að sjálfsögðu sýnum við öll bíltækin líka, því
PIONEER breytir bilnmii í liljómleikaböll
Heitt á könnunni og kók í glasi fyrir sýningargesti
Á sýningunni bregður líka fyrir því nýjasta í SAL0RA-LUX0R
móttökubúnaði fyrir gervihnattasendingar og SHARP
sjónvarpstækjum, myndbandstækjum og tökuvélum.
HLJÓMBÆJARHÚSINU HVERFISGÖTU
SAMEINAÐA/SÍA