Morgunblaðið - 14.10.1989, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
urvakin árið 1962 eftir að Haukar
og FH höfðu sent sameiginlegt lið
undir nafni KHR. FH-ingar tóku
þá stefnu að byggja upp fyrir
framtíðina og sú uppbygging skil-
aði sér tólf árum síðar en þá vann
FH sér sæti í fyrstu deild. Þá
voru í liðinu leikmenn á borð við
Viðar Halldórsson og Ólaf Dani-
valsson en þeir voru í hópi þeirra
fyrstu sem voru aldir upp hjá fé-
laginu.
Meistaraflokkur félagsins náði
besta árangri sínum í sumar er
liðið hafnaði í 2. sáeti í 1. deild.
Þá standa yngri flokkar félagsins
í blóma. „Við gerðum okkur grein
fyrir því að án góðs unglinga-
starfs myndum við aldrei ná langt.
Þá höfum við átt gott samstarf
við foreldra og þáttur þeirra er
ómetanlegur," sagði Ingvar
Viktorsson.
Handboltabærinn
Hafnaríjörður hefur verið kall-
aður handboltabærinn og er það
ekki að ástæðulausu. Ekkert félag
hefur oftar orðið Islandsmeistari
og FH er eina liðið sem alltaf
hefur átt lið í 1. deild. Líkt og í
knattspyrnunni er mikið lagt í
unglingastarf og það hefur skilað
sér ríkulega. Innfæddir Hafnfirð-
ingar hafa myndað lið FH og oft
verið kjarni landsliðsins. Margir
FH-ingar hafa gert garðinn fræg-
an með erlendum liðum og nægir
þar að nefna Geir Hallsteinsson,
Gunnar Einarsson og nú síðast
Kristján Arason.
I vetur er útlitið bjart enda á
FH frambærileg lið í öllum flokk-
um og er talið líklegt til sigurs í
meistaraflokki karla.
Gróska í frjálsum íþróttum
Skömmu eftir stofnun FH fóru
FH-ingar að taka þátt í fijálsum
íþróttum og náðu strax ágætum
árangri. Fyrir fimmtán árum var
deildin svo endurvakin og hefur
verið mikil gróska í starfi félags-
ins. Deildin hefur vaxið og FH
er nú eitt sterkasta félag landsins
í fijálsum íþróttum. Hæst ber sig-
ur í Bikarkeppni FRÍ í fyrra en
titillinn tapaðist naumlega í sum-
ar.
FIMLEIKAFÉLAG Ilafnarfjarðar heldur upp á sextugsaftnæli
sitt í dag. Stórhuga íþróttamenn stóðu að stolnun félagsins en
líklega hefði þá aldrei dreymt um aðstöðu líka því sem FH-
ingar eiga nú. Þrír til fjórir grasvellir, stórt íþróttahús og góð
aðstaða íyrir hinn félagslega þátt gera aðstöðu FH eins og
best gerist í íslenskum íþróttum og er vegleg aftnælisgjöf. Ar-
angurinn hefur ekki látið á sér standa, liðið náði sínum besta
árangri í knattspyrnu I sumar, ekki aðeins í meistaraflokki
heldur einnig í yngri flokkum. Sömu sögu er að segja af hand-
knattleiknum en þar hafa FH-ingar verið stórveldi undanfarin
ár. Loks ber að nefha frjálsíþróttadeild félagsins en þar hefiir
verið mikil gróska síðustu misseri.
Það sem hæst ber á þessum
tímamótum er að sjálfsögðu mikl-
ar framkvæmdir á svæði félagsins
í Kaplakrika. Þar hefur á rúmum
20 árum risið glæsilegt svæði og
punkturinn yfir i-ið er nýtt og
glæsilegt íþróttahús fyrir um
3.000 áhorfendur en það á að
verða tilbúið í febrúar.
Með járnkarla í hraunið
Það var 1967 sem FH var út-
hlutað íþróttasvæði í Kaplakrika.
FH-ingar höfðu reyndar áður
fengið svæði þar sem nú stendur
Fjarðarkaup en frá því var horfið.
Sama ár teiknaði Gísli Halldórs-
son heildarskipulag hins nýja
svæðis í Kaplarkrika og ári síðar
var ráðist í framkvæmdir.
Svæði FH var ekki mjög knatt-
spyrnulegt fyrsta árið. Hraun-
breiðan var ekki árennileg og
ekki laust við að mönnum féllust
hendur er komið var að enda-
lausri hraunbreiðunni. „En við
létum okkur hafa það og réðust
á hraunið með járnkarla að
vopni,“ sagði Arni Agústsson, for-
maður fulltrúaráðs FH, en hann
var einn af íjölmörgum sem lögðu
hönd á plóginn við byggingu vall-
arins. „Nú, þegar við byggjum
íþróttahúsið, eru notaðar stórvirk-
ar vinnuvélar og ýmiskonar tækni
sem ekki var til í þá daga. Við,
sem unnum við völlinn, gerum
hins vegar ekkert annað en að
taka við húsinu þegar það er til-
búið til afhendingar," sagði Berg-
þór Jónsson, förmaður FII.
Sumarið 1968 sprengdu FH-
ingar um 10.000 rúmmetra af
hrauni og tveimur árum síðar
hófst undirbúningur að byggingu
malarvallar og fijálsíþróttaað-
stöðu. Þremur árum síðar, árið
1973, var malarvöllurinn tekinn í
notkun, ásamt fijálsíþróttasvæði.
Síðan þá hafa FH-ingar leikið alla
heimaleiki sína á eigin knatt-
spyrnuvelli.
Arið 1976 var grasvöllur FH
vígður og að því loknu var gengið
frá æfingasvæði félagsins. Loks,
árið 19B6, var búningsaðstaða og
stúka við grasvöllinn tekin í notk-
un.
Síðasti hluti byggingasögu FH
hófst 11. febrúar sl. Þá var fyrsta
skóflustungan tekin að nýju
íþróttahúsi og áætlað er að FH-
ingar fái húsið afhent 15. febrúar
á næsta ári.
„Ætli við verðum ekki að safna
þreki eftir þetta stórátak," sagði
Iþróttasvæði FH í Kaplakrika.
Morgunblaðið/KAX
Fimleikafélag Hafiiaríjarðar 60 ára:
„Réðumst á hraunið
með járnkarla að vopni
Þrír forystumenn FH, talið frá vinstri: Ingvar Viktorsson í afmælisnefnd, Bergþór Jónsson formað-
ur og Árni Ágústsson formaður fulltrúaráðs FH.
Ingvar Viktorsson, sem sæti á í
afmælisnefnd FH. „En okkar bíða
mörg verkefni. FH er komið í
Evrópukeppni í knattspyrnu í
fyrsta sinn og líklega verðum við
að gera einhveijar breytingar á
vellinum. Ég held að við þurfum
ekki að kvíða verkefnaskorti,"
sagði Ingvar.
„FH-ingar eru um land
allt“
Það gefur auga leið að fram-
kvæmdir sem þessar kosta sitt.
Iþróttahúsið kostar 150 milljónir
og FH borgar fimmtung eða 30
milljónir. Margt hefur verið gert
til fjáröflunar og meðal annars
efnt til „stórátaks“. „FH-ingar eru
um land allt og við höfum fengið
ótrúlega góð viðbrögð við söfnun
okkar. Eins og staðan er í dag
náum við að borga okkar hluta
við afhendingu,“ sagði Bergþór
Jónsson.
Uppbygging
Knattspyrnudeild FH var end-
Framtíðin björt
„Félagið stendur í miklum
blóma og þessi aðstaða á eftir að
breyta miklu,“ sagði Bergþór
Jónsson, formaður FH. „Við höf-
um fengið mikinn stuðning og
áhugi á íþróttum vex jafnt og
þétt. Á meðan við leggjum rækt
við unglingastarfið og höldum
féiagsandanum þurfum við ekki
að hafa áhyggjur og ég held að
framtíð FH sé björt,“ sagði Berg-
þór. LBE