Morgunblaðið - 14.10.1989, Side 18
18
esei flaaor>io .n huoauhaouaj (huajímuohom
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
Kirkjuþing kemur
saman á þriðjudag
HÉR MEÐ tilkynnist að 20. Kirkjuþing hinnar íslensku Þjóðkirkju
kemur saman þriðjudaginn 17. október í Bústaðakirkju og stendur til
flmmtudagsins 26. okfóber. Það hefst með guðsþjónustu klukkan 14.
Þar mun séra Jónas Gíslason vígslubiskup predika en doktor Gunnar
Kristjánsson sóknarprestur og séra Einar Þór Þorstcinsson prófastur
annast altarisþjónustu.
Þetta er fyrsta kirkjuþing sem
herra Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, stýrir en biskup er foi-seti
kirkjuþings samkvæmt lögum. Nýr
kirkjumálaráðherra, Óli Þ. Guð-
bjartsson, ávarpar þingið við setn-
ingu þess.
Fullbúin málaskrá liggur ekki fyr-
ir en meðal mála sem ljóst er að
rædd verða á þinginu eru þessi:
Drög að reglugerð fyrir Jöfnunar-
sjóð sókna; Undirbúningur að kristni-
tökuafmæli árið 2000; Utgáfa sálma-
bókai-viðbætis; Safnaðaruppbygging;
Nefndarálit um úrskurð dauðastund-
ar og líffæraflutninga og Könnun
Félagsvísindastofnunar Háskólans
um kirkjusókn og æskilegan mess-
utíma.
Kirkjuþing er árleg samkunda
Þjóðkirkjunnar sem fyrst var haldið
1958. Þingið kom saman annað hveit
ár fram til 1981 en úr því á hveiju
ári. 20 kjörnir fulltrúar sækja þingið.
18 eru kjömir úr 8 kjördæmum
landsins, en að auki er einn fulltrúi
kjörinn af guðfræðideild HÍ og einn
af guðfræðingum er vinna að sér-
stökum verkefnum í þágu Þjóðkirkj-
unnar. Vígslubiskupar og kirkjuráðs-
menn eiga rétt á fundarsetu með
málfrelsi og tillögurétti en ekki at-
kvæðisrétti, nema þeir séu kjömir
fulltrúar. Sæti á kirkjuþingi eiga að
auki biskup og kirkjumálaráðherra,
eða fulltrúi hans.
(Úr frcttatilkynningu.)
Sögur Njarðar P.
Njarðvík þýddar
HIN sögulega skáldsaga Njarðar
P. Njarðvík, Dauðamenn, var á
síðasta ári gefin út í sænskri þýð-
ingu Inge Knutsson hjá Wahl-
ström & Widstrand í Stokkhólmi
undir heitinu Dödsomda og í
þýskri þýðingu Hartmut Mittel-
stadt hjá Aufbau Verlag í Austur-
Berlín með titlinum Manner des
Todes. Áður hafði hún verið gefin
út á finnsku hjá Otava í Helsinki,
í þýðingu Juha Peura og er vænt-
anleg í eistneskri þýðingu Arvo
Alas hjá Loomingu Raamatukogu
í Tallin.
Ritdómar hafa ekki borist frá
Þýskalandi, en í Svíþjóð var bókinni
vel tekið og margir jákvæði ritdómar
verið birtir. I febrúar sl. vom Dauða-
menn sérstaklega kynntir í Bonniers
Bokklubb sem „redaktionens val“,
en það þykir mikill heiður, þar sem
mjög er vandað til þess vals. Af því
tilefni skrifaði Jonas Bonnier í blað
bókaklúbbsins: „Sumar skáldsögur
sleppa mönnum ekki úr greip sinni.
Maður reynir að leggja þær frá sér
og horfa á sjónvarpið, en heyrir
hvorki né sér. Maður situr_ekki einu
sinni í stofusófanum, heldur er kyrr
í veröld bókarinnar. Slík bók er
Dauðamenn, og löngu eftir að ég
hafði lokið lestrinum var ég enn
staddur í löngu liðnum töfraheimi
íslands. Sá galdur sem geislaði af
blaðsíðum sögunnar var trúlega
miklu sterkari þeim galdri sem hinir
dauðadæmdu feðgar voru ákærðir
fyrir. Slík lestrarreynsla er því miður
alltof sjaldgæf og er þess vegna þeim
mun skemmtilegri. Látið heillast af
þessum töfrum!“
Njörður P. Njarðvík
Nýlega kom út á finnsku bók
Njarðar um íslenska' þjóðveldið, Is-
land i forntiden, sem hann skrifaði
upphaflega á sænsku, en hefur áður
verið þýdd á dönsku og ensku. Á
finnsku heitir bókin Muinainen Isl-
anti, þýðandi er Maija Itkonen-Kaila
og útgefandi Otava í Helsinki. Þá
hefur Otava þegar ákveðið að gefa
'út nýjustu bók Njarðar, í flæðarmál-
inu, og hefur Tuula Tuuva lokið við
að þýða hana.
Loks má nefna að Njörður hefur
fi’umsamið barnabók á sænsku eftir
pöntun frá hinu virta bókaforlagi í
Stokkhólmi Carlseti/if, og verður húri
myndskreýtt af hinum þekkta riiynd-
listarmanni og bamabókahöfundi Ulf
Löfgren. Sú bók verður samtímis
gefin út hér á íslandiög í fleiri lönd-
urri.
Morgunblaðið/Sverrir
Fjölmenni á útifundi fatlaðra
Öryrkjabandalag íslands og Landssamtökin
Þroskahjálp efndu til Dags fatlaðra í gær, og
var gengið í kröfiigöngu frá Hlemmi að Al-
þingishúsinu þar sem haldinn var útiftindur.
Mikið ljölmenni var á fimdinum, en þar var
meðal annars fjallað um um kröftir fatlaðra,
en tilgangur þessara aðgerða var krefjast þess
að stjórnvöld geri áætlun um lausn húsnæðis-
mála og umönnunar mikið fatlaðs fólks.
Ný plata Sykurmolanna:
Ríflega 500.000 ein-
tök seld um heim allan
Nýjasta plata Sykurmolanna, Here Today, Tomorrow, Next Week,
sem út kom í síðustu viku, hefúr færst úr 112. sæti upp í það 70. á
bandaríska breiðskífulistanum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa selst af plötunni rúm 200.000 eintök í Bandarikjunum og seljast
þar nú um 10.000 eintök á dag, sem er nokkuð minna en í síðustu viku
en þó talið allgott.
Talsmaður Smekkleysu, fyrir-
tækis Sykurmolanna á íslandi,
sagði plötuna hafa hlotið misjafnar
viðtökur í Bretlandi, en blaðadómar
hafa þó flestir verið jákvæðir og
nefndi sem dæmi einkar jákvæðan
dóm í tónlistartímaritinu Q og í
blöðunum Record Mirror og So-
unds. Platan fór í 15. sæti á Gallup-
listanum svokallaða sem er talinn
marktækasti breiðskífulisti Bret-
lands, en hún trónir í efsta sæti á
öllum listum yfir „sjálfstæðar“ út-
gáfur. Talsmaðurinn sagði menn
ytra vera ánægða með plötuna,
enda hefði fyrsta dreifing verið fer-
föld á við síðustu plötu. Um 50.000
eintök hafa selst í Bretlandi.
I Þýskalandi fór platan inn á
topp 50 á breiðskífulistanum þar í
landi í síðustu viku, en þýski hljóm-
plötumarkaðurinn er þriðji stærsti
markaður í heimi, á eftir Banda-
ríkjunum og Japan. Að sögn tals-
manns Smekkleysu hafa selst í
Þýskalandi um 40.000 eintök.
Á Spáni hafa selst af plötunni
um 30.000 eintök og um 20.000
eintök í Frakklandi, auk þess sem
platan hefur selst mjög vel í Japan,
en þar er platan í 76. sæti, og Ástr-
alíu. Alls sagði hann að um 500.000
eintök af plötunni hefðu nú selst
um heim allan.
Hér á landi hefur Here Today,
Tomorrow, Next Week selst í um
2.000 eintökum, en ef marka má
fyrirframpantanir á íslensku útgáfu
hennar, sem heitir 'Illur arfur og
væntanleg er á næstu dögum, nær
platan gullsölu, 3.000 eintökum, í
byijun næstu viku.
Sykurmolarnir eru nú á ferð um
Bretlandseyjar og léku á írlandi í
gærkvöldi, en í gær birtist í bresk-
um tónlistarblöðum fyrsta gagnrýni
á tónleika hljómsveitarinnar ytra í
þessari för. Byggðist sú gagnrýni
á hástemmdum lofsyrðum um
frammistöðu hljómsveitarinnar og
segir þar að í Glasgow hafi hljóm-
sveitin verið klöppuð upp sex sinn-
um hið minnsta.
Drög að frumvarpi um stjórnun fískveiða:
Vil að krókaveiðar
verði gefiiar frjálsar
Könnun félagsvísindastoftiunar:
Mest andstaða við ríkisstjórn-
ina meðal fólks undir fertugu
RÍKISSTJÓRNIN nýtur minni stuðnings kvenna en karla samkvæmt
þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans sem sagt var frá
í Morgunblaðinu í gær. Þar kom fram að einungis 26,4% aðspurðra
kváðust fylgjandi stjóminni. Mest er andstaðan við ríkisstjómina
meðal fólks á aldrinum 25 til 39 ára, en minnst hjá fólki á aldrinum 60
til 75 ára.
Tæp 30% karla sem rætt var við
sögðust fylgja ríkisstjóminni að
málum, en aðeins 23% kvennanna.
Hvað andstöðu við ríkisstjórnina
varðar var minni munur milli kynja;
50,5% kvenna voru andstæðingar
stjórnarinnar og 52,5% karla.
Mest andstaða gegn ríkisstjórn-
inni, 56%, var í aldurshópnum 25 til
39 ára. Hins vegar var andstaðan
minnst meðal elstu þátttakenda í
könnuninni og 41% aðspurðra á aldr-
inum 60 til 75 ára sögðust styðja
stjómina. Aðeins 14,5% yngsta
fólksins, 18 til 24 ára, kvaðst fylgja
stjórinni en 55% þess var á móti
henni. Hlutfall þeirra sem ekki tóku
afstöðu var hæst í þessum aldurs-
flokki, næstum 30%.
Andstæðingar stjórnarinar em
eftir konnuninni mun fleiri á höfuð-
borgarsvæðinu en landsbyggðinni.
Rúm 59% aðspurðra í Reykjavik og
á Reykjanesi vom á móti stjóminni
en 37% á landsbyggðinni. Hlutfall
fylgismanna stjórnarinna var hins
vegar svipað í Reykjavík og á lands-
byggðinni, ríflega 37%. A Reykja-
nesi naut stjórnin einungis stuðnings
meðal 19,8% þátttakenda í þjóð-
málakönnuninni.
Sé litið á fylgi flokkanna kemur
í ljós að í Reykjavík og á Reykja-
nesi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn
langmests fylgis eða 52,9% og
55,6%. Aðrir flokkar hafa þarna
minna en 15% fylgi samkvæmt
könnuninni, nema Kvennalisti sem
nýtur 18,8% fylgis Reykvikinga sem
spurðir voru.
Framsóknarflokkurinn er eini
flokkurinn sem hlaut áberandi meira
fylgi fólks af landsbyggðinni en höf-
uðborgarsvæðinu eða 64% á móti
19%. Fylgi Alþýðuflokksins dreifist
hvað jafnast á Reykjavík, Reykjanes
og landsbyggðina ef marka má nið-
urstöður könnunarinnar. Sjálfstæð-
isflokkurinn sækir 73% fylgis síns
til Reykjavíkur og Reykjaness, Al-
þýðubandalagið 65% og Kvennalist-
inn 64%.
• •
- segir Arthur Orn Bogason, formað-
ur Landsambands smábátaeigenda
„Landsamband smábátaeigenda hefur lengi barizt fyrir því að króka-
veiðar yrðu gefiiar frjálsar og þá fyrst veiðar á handfæri. Fyrir því
er ekki gert ráð í framkomnum frumvarpsdrögum, en þessari bar-
áttu munum við halda áfram. Þá skil ég ekki alveg hugmyndir um
svokallaða tómstundaveiði og í reynd er ég þeirra skoðunar að af-
nema eigi kvótann,“ sagði Arthur Orn Bogason, formaður LS, er
Morgunblaðið innti hann álits á drögum að frumvarpi til laga um
fiskveiðistjórnun og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu.
Arthur sagði að ýmislegt væri í
drögum þessum, sem honum litist
þokkalega á, en annað væri iniður.
„Það er tildæmis í þessu viður-
kenndur hlutur okkar í heildaraflan-
um með því að ætla hveijum og
einum báti kvóta og ekki reynt að
skera okkur niður við trog eins og
til þessa. Það eru komin inn atriði,
sem við hefðjum gjarnan viljað sá
fyrr, svo það er ljóst að boðskapur
okkar hefur á endanum komizt til
skila og má þar benda á bann við
fjölgun bátanna. Meðal annars þess
vegna sjáum við ekki af hveiju
krókaveiðar mega ekki vera fijáls-
ar. Þær ykju varla hlut okkar af
heildaraflanum því íslenzka veðr-
áttan felur í reynd í sér nægilega
sóknaitakmörkun. Tómstundaveiði-
leyfi skil ég ekki alveg og finnst
hálf hjákátlegt að banna sjálfvirkni
búnaðar þar sem hvort eð er er
bannað að nýta aflann. Hvað á ég
að gera við aflann ef hann verður
meiri en ég get torgað sjálfur? Má
ég gefa ömmu ýsu í bollur? Við
eigum eftir að sjá uppreiknuð dæmi
fyrir Þinstaka aðila í þessu öllu sam-
an svo ég get lítið tjáð mig mögu-
legar breytingar á þessari stjórnun.
Skoðun mín er reyndar sú að af-
nema eigi kvótakerfið, en þessir
samráðsnefndarfundir líkjast æ
meira kaþólskum messum," sagði
Arthur Örn.
í
i
i