Morgunblaðið - 14.10.1989, Side 20
--MÖkétífMMöiö ÍL'ÁiiföÁ'áMGiik !i4!
Noregur:
Stórbankar
sameinast
Ósló. Frá Kune Timberlid, fréllaiitara
Morgunblaósins.
TVEIR af stærstu bönkum í Nor-
egi, Den norske Creditbank
(DnC) og Bergen Bank, hafa
ákveðið að sameinast 1. janúar á
næsta ári. Ársvelta nýja bankans
verður um 210 milljarðar n.kr.
(nær tvær billjónir isl.kr.) og
verður hann hinn sjöundi stærsti
á Norðurlöndum.
Talsmenn bankanna segja að
sameiningin sé gerð til að reyna
að styrkja stöðuna í aukinni sam-
keppni við aðra banka á Norður-
löndum og víðar í Evrópu.
Nýi bankinn á að heita Den
Norske Bank og verða starfsmenn
7.000 en búist er við því að smám
saman verði 1.000 - 1.500 manns
sagt upp. Væntanlegur aðalbanka-
stjóri segir að samruninn gei-i kleift
að spara sem svarar 6.600 milljón-
um ísl.kr. á ári í rekstrinum.
Grænland:
Tollgæsla
talin of dýr
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen
Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRATT fyrir að vörum sé í
vaxandi mæli smyglað til
Grænlands hefúr grænlenska
Iandsþingið tekið ákvörðun
um að ekki verði komið á fót
tollgæslu í landinu.
Annar stjórnarflokkanna,
Atassut, lagði fram tillögu um
stofnun tollgæslu en hún var
felld á landsþinginu með þeim
rökum að það yrði Grænlend-
ingum of kostnaðarsamt. Hins
vegar verður tekið upp nýtt
fyrirkomulag við grænlenskar
hafnir sem felst í því að skip-
stjórar verða að framvegis að
tilkynna um komu skipu sinna.
Við komu í höfn á að leggja
fram lista yfir tollskyldan varn-
ing skipveijanna.
Reuter
Stikað á fund Noregskonungs
Gro Hariem Brundtland, forsætisráðhen-a Noregs, gekk í gær á fund
Ólafs Noregskonungs og baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Mynd-
in var tekin er hún kom til konungshallarinnar í miðborg Ósló þar sem
fréttamenn freistuðu þess að ná af henni tali. Skömmu síðar hélt Jan
P. Syse, formaður Hægriflokksins, til hallarinnar þar sem konungur fól
honum að mynda ríkisstjórn. Gert er ráð fyrir því að nýja stjórnin, minni-
hlutastjórn Hæginflokksins, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokksins
taki við á mánudag. Ráðherralistinn hefur enn ekki verið birtur og heim-
ildir herma að enn sé deilt um skiptingu embætta. Þó liggur fyrir að Ján
P. Syse verður næsti forsætisráðherra Noregs en stjómin mun þurfa að
reiða sig á stuðning Framfaraflokksins á þingi.
Ungverskir harðlínumenn:
Bandaríkin:
Skipstjórinn á Fly-
ing Enterprise látimi
Henrick Carlsen varð heimsfrægur 1952
fyrir að neita að yfirgefa sökkvandi skip sitt
HENRICK Kurt Carlsen skipstjóri, sem varð heimsfrægur í árs-
byrjun 1952 fyrir að neita að yfirgefa sökkvandi skip sitt, Flying
Enterprise, lést í Bandaríkjunum í síðustu viku, 75 ára að áldri.
Skipstjórinn var danskfæddur en fluttist til Bandaríkjanna 1938. Gat
rifhaði á búk Flying Enterprise í ofsaveðri á Ermarsundi í lok desem-
ber 1951 og skipaði Carlsen 40 skipveijum og 10 farþegum að fara
frá borði. Carlsen var sjálfur áfram um borð en varð að gefast upp
eftir 14 daga vosbúð og horfði á fley sitt sökkva í sæ en bandariska
þingið sæmdi hann síðar orðu fyrir hreystina.
Carlsen vildi ekki sætta sig við
að skipið væri dauðadæmt. Það var
um 7.000 tonn og í eigu skipafé-
lagsins Export-Isbrandtsen er bað
skipstjóra árangurslaust að yfirgefa
skipið. Er aftur skall á stormur
varð Carlsen loks að gefast upp
ásamt öðmm manni, Dency stýri-
manni af dráttarbátnum Turmoil,
sem komið hafði um borð og stukku
þeir útbyrðis en var bjargað af
áhöfn Turmoils.
Hreysti Carlsens vakti heimsat-
hygli og var skýrt frá baráttu hans
við náttúruöflin á forsíðum dag-
blaða., þ. á m. Morgunblaðsins sem
sagði bardaganum hafa lokið með
„sigri beggja." Um hríð var óttast
um líf mannanna tveggja þar sem
þeir sáust ekki á flakinu. Aðfara-
nótt 9. janúar slitnaði taug milli
skipsins og Turmoils og tókst Carls-
en og Dency ekki að festa nýja
taug þótt henni væri komið um
borð til þeirra. Mennirnir reyndu
að þurrka föt sín við kertaljós og
Telja aðeins lítinn hluta gamla
flokksins ganga í þann nýja
Jusupov
vann sigur
á Karpov
London. Reutor.
ARTÚR Júsúpov vann óvæntan
sigur á Anatólíj Karpov í sjöttu
einvígisskák þeirra á fimmtudag
og tókst þar með að jafna metin
í áskorendaeinvíginu i London.
Karpov hafði aðeins tapað fyrir
Kasparov og Kortsjnoj í einvígis-
skákum frá 1973 þar til nú. Jon-
athan Speelman fékk sjöundu ein-
vígisskákinni frestað í einvíginu við
Jan Timman. Timman hefur nú for-
ystu í einvíginu með 3!ó vinning
gegn 254. Askorendaeinvígin eru
átta skákir en haldið verður áfram
ef jafnt er að þeim loknum.
Búdapest. Reuter.
Harðlínumenn í Ungveijalandi,
sem eru reiðir leiðtogum landsins
fyrir að leggja kommúnistaflokk-
inn niður, segja að flokkurinn sé
enn til og að sósíalistaflokkurinn,
sem stoftiaður var í hans stað,
verði aðeins skugginn af gamla
flokknum.
Samþykkt var með miklum meiri-
hluta á sögulegu flokksþingi um
.-fðustu helgi að leggja niður komm-
únistaflokk landsins sem hafði farið
með völdin í landinu í fjóra áratugi.
í hans stað var stofnaður sósíalista-
flokkur að vestrænni fyrirmynd, sem
stefnir að því að koma á fjölflokka-
lýðræði og fijálsu hagkerfi í landinu.
Félagar í kommúnistaflokknum
verða að skrá sig fyrir lok mánaðar-
ins vilji þeir ganga í nýja flokkinn.
Robert Ribanszki - fyrrum sendi-
herra í Kína og ritari Janos Kadars,
sem fór með völdin í landinu frá
1956 til 1988 - sagðist telja að að-
eins lítill hluti 725.000 félaga í gamla
flokknum myndi ganga í sósíalista-
flokkinn. „Leiðtogar sósíalistaflokks-
ins gætu gert sig ánægða með að
fá 100.000 félaga," sagði Ribanszki.
Hann er leiðtogi hreyfingar, sem
harðlínumenn hafa stofnað og heitir
Marxíski einingarflokkurinn. „Leið-
togar sósíalistaflokksins erú ekki
endilega arftakar gamla flokksins.
Kommúnistaflokkurinn er enn til,“
sagði Ribanszki. „Margir hafa fengið
nóg. Ég tel að nokkur hundruð þús-
und manna verði áfram í gamla
flokknum," bætti hann við.
Harðlínumenn hafa stofnað aðra
hreyfingu, Janos Kadar-félagið, sem
nefnd er eftir leiðtoganum fyrrver-
andi er lést í júlí. Talsmenn hennar
segja að hún sé eini hugmyndafræði-
legi arftaki gamla flokksins og taki
við hlutverki hans. „Við teljum að
600-700.000 kommúnistar séu í
Ungveijalandi," sagði leiðtogi hreyf-
ingarinnar, Roland Antoniewicz.
Þriðja hreyfing harðlínumanna heitir
Marxísk-leníniski verkamannaflokk-
urinn.
Grænland:
Þörf á nýrri rafstöð
við Syðri-Straumfjörð
Kaupmannahöfu. Frá Nils Jörgen Bruun,
GRÆNLENSKA ríkissímafélagið
þarfiiast sex miljóna danskra
króna, um 50 miljóna ísl. kr., til
að byggja nýja rafstöð við Syðri-
Straurnfjörð. *
Bandaríkjaher hefur lagt til raf-
orku á svæðinu vegna ratsjárstöðv-
ar þeirra við Holsteinsborg, sem
fyrirhugað er að leggja niður í vet-
ur, en í tengslum við hana hefur
fréttaritara Morgunblaúsins.
verið starfrækt rafveita.
Ratsjárstöðin hefur fram til þessa
séð um að veita rafmagni í byggð-
ina við Syðri-Straumfjörð en nú
verður ríkissímafélagið að byggja
nýja rafstöð til að ieysa hana af
hólmi.
Það er nú í höndum fulltrúa á
grænlenska landsþinginu að útvega
fjármuni til verkefnisins.
Leiftursókn í Póllandi:
Uppbygging kapítalísks hag-
kerfis og erfiðleikar boðaðir
London. Daily Telegraph.
PÓLSKA ríkisstjórnin hefur birt áætlun um miklar aðhaldsaðgerðir
í efnahagsmálum. Með þeim ætla stjórnvöld að koma böndum á óða-
verðbólguna í landinu, auka greiðslugetu ríkisins og vinna bráðan
bug á alvarlegum vöruskorti í Póllandi innan tveggja árá. I áætlun-
inni, sem á að hrinda í framkvæmd í tveimur áfóngum, er gert ráð
fyrir að gripið verði til róttækra aðgerða fram að jólum til að stöðva
verðbólgu sem nú nálgast að vera 1.000% á árL
Aðhaldsaðgerðir stjómvalda til má nefna niðurskurð á ijárveit-
byggjast á ráðleggingum banda-
rísku hagfræðinganna Jeffreys
Sachs og Davids Liptons. Prófessor
Sachs hefur meðal annars unnið
það til afreka að kveða niður óða-
verðbólgu í Bólivíu á ótrúlega
skömmum tíma. Grunnhugmynd
Sachs að efnahagsbata í Póllandi
er að jafnvægi verði náð í ríkis-
búskapnum og strangt aðhald haft
með lántökum.
Gjaldþrot leyfð
Meðal skammtímaaðgerða sem
pólska ríkisstjómin hyggst grípa
ingum til þeirra tveggja ráðuneyta
sem kommúnistar fara með, varn-
armála- og innanríkisráðuneytis,
og lækkun niðurgreiðslna á fram-
leiðsluvörum ríkisrekinna iðnfyrir-
tækja. Þá er ráðgert að leyfa illa
reknum fyrirtækjum að verða
gjaldþrota og að aðhalds verði
gætt í lánveitingum stjórnvalda.
Ríkisstjómin ætlar að haga vísi-
tölubindingu launa þannig launa-
hækkanir verði minni en verðbólg-
an.
Sú hliðarráðstöfun er óumflýjan-
leg, að mati pólskra stjómvalda,
Reutcr
Verkalýðssamtök pólskra kommúnista efndu nú I vikunni til mót-
mæla gegn stjórn landsins. Á myndinni strengja tvær konur borða
á milli sín sem á er letrað: „Mamma og pabbi vinna en börnin svelta."
að leitað verði eftir vestrænu láns-
fjármagni til kaupa á nauðsynleg-
um hráefnum, Iyfjum og tækjabún-
aði.
Kauphöll og einkabankar
Stjómvöld gera ráð fyrir því að
innlendur fjármagnsmarkaður og
einkabankar muni að lokum sann-
færa Pólveija um að skynsamlegra
sé að láta peningastofnanir ávaxta
gjaldeyrinn sem þeir hafa safnað
og talinn er nema nokkmm miljörð-
um Bandaríkjadala en geyma hann
undir koddanum.
Mikil efnahagsleg umskipti í
Póllandi eiga að hefjast á næsta
ári. Þá er gert ráð fyrir aukinni
einkavæðingu og að komið verði á
fót sjálfstæðu bankakerfi og kaup-
höll. Loks eru uppi áform um að
gera pólska slotíið að skiptanlegum
gjaldmiðli árið 1991. Rikisstjórnin
hyggst koma á skattakerfi með
nútímalegu sniði og innheimta
bæði tekju- og söluskatt. Eignar-
réttur verður lögvemdaður með
afdráttarlausum hætti.
Ríkisstjórnin ætlar að leggja nið-
ur skriffinnskubáknið sem hefur
átt að sjá um dreifingu á matvælum
en hefur kallað fæðuskort yfir þjóð-
ina alla. Hugmyndir um afnám
verðlagsákvæða til að ýta undir
landbúnaðarframleiðslu munu
einnig hafa í för með sér gjörbylt-
ingu á afkomu til sveita.
Ef neyðarráðstafanir pólsku
ríkisstjórnarinnar verða fram-
kvæmdar að fullu auka þær at-
vinnuleysi í landinu. Leszek Bal-
cerowicz fjármálaráðherra hefur
sagt að atvinnuleysi til skamms
tíma kunni að aukast um 10-20%.