Morgunblaðið - 14.10.1989, Síða 34

Morgunblaðið - 14.10.1989, Síða 34
(M0R9HNÖEAÐIÖ iLaBÖAfiaAfilfJ&IlfiiaKTSBSBíWSP <$4 fclk í fréttum M M\í rm í aaB \ f' Jj Huxtable-fjölskyldan, nýliðarnir eru í sófanum lengst til hægri. FYRIRMYNDARFJÖLSKYLDA Fjölgar hjá Huxtable Nýjasta þáttaröðin um fyrirmyndarfjölskyldu Bills Cosbys hefur vakið mikla hrifningu og ekki er að sjá að Cosby gefi þumlung eftir, en þættirnir um Huxtable-fjölsskylduna hafa verið valdir vinsælasta skemmþiefnið í bandarísku sjónvarpi fjögur síðustu árin. í nýju röðinni hefur orðið fjölgun í fjölskyldunni. Lisa Bonet sem lék dótturina Denise er nú komin í náðina á ný eftir að hafa leikið allt annað en fyrirmyndardóttur í kvikmyndinni Angel Heait á móti Robert DeNiro og Mieky Rourke. Hún er nú komin heim, þræl- gift fráskyldum karii sem leikinn er af Joseph H. Phillips. En rúsínan í pylsuendanum erþriggja ára leikkona, Raven Symone, sem leikur dóttur ektamannsins frá fyrra hjónabandinu. Raven litla hefur heillað alla upp úr skónum og fyllt skarðið sem Rudy skildi eftir sig er hún óx úr grasi. LANGHOLTSSKÓLI Skólabörn styrkja heyrnarskertan dreng 6bekkur KJ í Langholtsskóla ■ afhenti fyrir skömmu Hall- birni Hjartarsyni 25.000 krónur til styrktar dóttursyni hans, Hallbirni Frey Omarssyni, sem er heyrnar- skertur og þarf að gangast undir læknisaðgerð erlendis. Fjárins öfluðu börnin með útgáfu blaðs, Silfurljóssins, sem kom út fyrir jólin í fyrra. Féð ætluðu þau að nota til vorferðar bekkjarins á vori komandi, þegar börnin ljúka við barnadeild skólans. Voru þau öll á einu máli um að gefa ferðasjóðinn og betur yrði hon- um ekki varið. Þrír drengir, Helgi Guðlaugsson og Hákon og Stur- laugur Omarssynir, bættu þá krón- um 800 við með því að selja muni, sem þeir höfðu ætlað að nota á hlutaveltu. 6. bekkur KJ í Langholtsskóla, Hallbjörn Freyr og afi hans Hall- björn Hjartarson. KEPPNI Besta „sumar- brosið 1989“ Nýlega valdi dómnefnd bestu myndina í Ijósmyndakeppni Kodak Express-gæðafi’amköllunar og Vikunnar, „Sumarbrosið 1989“. Þátttakendur skiluðu inn mynd- um af sumarbrosi eða broslegri mynd. Mikill fjöldi mynda barst í keppnina og var myndefnið ákaf- lega fjölbreytt. Fyrsti vinningui' var helgarfei'ð til Hamborgar með Ferðaskrifstof- unni Sögu og hann hlaut Herdís Þorsteinsdóttir, ísafirði. Á mynd- inni er Gunnlaugur Jónasson hjá Bókaverslun Jónasar Tómassonar að afhenda Herdísi vinninginn. Morgunblaðið/Hordís Þoi’steinsdóttir Verðlaunamyndin í ljósmyndakeppni Kodak Express-gæðaframköll- unar og Vikunnar. ARFLEIFÐ Mussólíni leikur gyðing! Tímamir breytast og mennirnir með segir máltækið og 25 ára gömul leikkona Alexandra Mussol- ini getur tekið undir það að heilum hug. Nafnið er engin tilviljun, afi hennar var hinn eini og sanni Ben- ito Mussolini sem var einræðisherra á Ítalíu og gerði bandalag við Adólf Hitler á árum síðari heimsstyijald- arinnar. Nú reynir Alexandra fyrir sér sem leikkona og þykir bæði hafa hæfileíka og útlitið með sér. Þá finnst mörgum hún hugrökk að skipta ekki um nafn, en sumir segja það tvíeggjað, stúlkan veki meiri athygli og eftirtekt með gamla Ijöl- skyldunafninu, því flestir muna enn vel eftir Benító gamla. í Ijósi þess að gyðingar voru of- sóttir og myrtir svo milljónum skipti af nasistum með dyggum stuðningi fasista Mussolinis skýtur það kannski skökku við að Alexandra skuli vera í ísrael um þessar mund- ir að leika í þarlendri kvikmynd. Sérstaklega þar sem hún varð að sjá af stóru hlutverki í kvikmynd- inni The Assisi Undevground fyrir fimm árum vegna þess að gyðinga- samtök hótuðu öllu illu ef hún kæmi þar eitthvað nærri. Hún átti að leika táningsdóttur auðugrar gyðinga- fjölskyldu. Hún segir að sér hefði auðvitað vegnað betur ef hún héti Rossi eða Pasolini eða eitthvað ann- að, en það hefði aldrei hvarflað að sér að breyta nafni sínu. En nú leik- ur hún annað aðalhlutverkið í kvik- myndinni The Rond to Ein Harod, fer þar með hlutverk hennanns í ísraelska hernum sem verður ást- fanginn af samlendum blaðamann. Snýst myndin að verulegu leyti um þann samskiptavanda sem upp kemur vegna þeii'ra skyldna sem á herðum þeirra hvíla. Fyrir skömmu var Alexandra að sóla sig á strönd í ísrael og heyrði þá kallað hátt og hvellt, „Mús- sólíni!“. „Ég hugsaði þá með mér, Guð minn góður, nú fæ ég að heyra það eina ferðina enn, en er ég leit til mannsins sem kallaði, brosti hann og bætti við, „þú er stórfín". Alexandra í hlutverki sínu sem ísraelskur hermaður. KOTASÆLA Donna Mills æf vegna aldarfjórð- ungs gamalla nektarmynda Bandaríska sjónvarpsleikkon- an Donna Mills nær ekki upp í nefið á sér af reiði þessa dag- anna, eða eftir að karlatímaritið Playboy gróf upp 25 ára gamlar nektarmyndir af henni og birti þær umyrðalaust. Donna er nú 48 ára gömul og hin glæsilegasta, en myndirnar eru frá harkdögum hennar, þegar hún reyndi að troða sér áfram í skemmtibransanum og lét hafa sig í allt mögulegt og ómögulegt í þeirri von að frægð og frami sigldu í kjölfarið. Ungfrú Mills er ekki fyrsta fræga konan sem lendir í svipuð- um erfiðleikum, furðu margar frægar konur hafa einhvern tímann á ferlinum látið hafa sig í nektarmyndatökur og karlaritin eru glúrin að grafa upp slíka hval- reka. Yfirleitt eru viðbrögð kvenn- anna á einn veg. Þær verða æfar. Donna Mills er öskuill þessa dagana En Donna er ekki æf á sömu for- sendum og stallsystur hennar sem áður hafa lent í viðlíka. Nei, hún er æf vegna þess að hún segist vera margfalt glæsilegri og kyn- þokkafyllri nú heldur en í þá gömlu (góðu) daga. „Fólk gæti haldið að rassinn á mér væri eins og kotasæla, en það er alger mis- skilningur," segir ungfrúin. COSPER - Er eitthvað fyrir aftan? Nei, pabbi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.