Morgunblaðið - 14.10.1989, Side 44
Dagskrárstjórinn
Kl. 16:30
, SVAVAR GESTSSON___j
1Q útvarpÍð rás i Q\
ÆWÆFÆrÆA/ÆZ
Efstir á blaði
FLUGLEIDIRJ0B?
LAUGARDAGUR 14. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Sakadómur:
6 mánaða
fansrelsis-
vist fyrir
hórmang
KARLMAÐUR um fimmtugt var
í gær dæmdur í 6 mánaða fang-
elsi í Sakadómi Reykjavíkur fyrir
að liafa haft milligöngu um sam-
ræði fólks gegn greiðslu. Helm-
ingur refsingarinnar er skilorðs-
bundinn til þriggja ára. Eftir því
sem næst verður komist er þetta
í fyrsta sinn sem maður er dæmd-
ur hérlendis fyrir hórmang.
, Maðurinn var ákærður fyrir þessa
starfsemi á árinu 1988 og fram til
2. febrúar í ár, þegar hann var hand-
tekinn. Hann var fundinn sekur um
að hafa haft fimm stúlkur á sínum
snærum og haft milligöngu um að
koma þeim í samband við menn, sém
þær höfðu mök við gegn greiðslu.
Hann hafði stundum frumkvæði að
þessu, en í önnur skipti báðu stúlk-
urnar hann um að útvega sér við-
skiptavini. Stúlkurnar, sem eru á
aldrinum 20-35 ára, fengu allt frá
500 krónum tii 10 þúsund króna
- -fyrir hvert skipti. Sjálfur tók maður-
inn 2000 krönur fyrir milligönguna
og ieigði að auki út herbergi, fyrir
1000 krónur á sóiarhring.
Fyrir rétti neitaði maðurinn hór-
manginu og héit því fram, að hann
hefði stundað hjúskaparmiðlun. Við
yfirheyrslur kannaðist enginn við þá
starfsemi hans, a.m.k. ekki stúlkurn-
ar. Hann viðurkenndi hins vegar að
hafa leigt út herbergi, þar sem fólk-
ið gat hist. Með framburði stúlkn-
anna taldi dómari fullsannað, að
herbergin voru ekki tekin á leigu
með það að markmiði að undirbúa
hjúskap.
Arngrímur ísberg, sakadómari,
kvað upp dóminn. Maðurinn hefur
tekið sér fjórtán daga frest til að
^akveða hvort hann áfrýjar til Hæsta-
réttar. Hann hefur ekki hlotið dóm
áður.
v -•<
I MATARLEIT
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þessi selur leit við á Höpfnersbryggju á Akui’eyri fyrir skömmu og gægðist í nokkra báta. Selurinn var.mjög gæfur og hefur líklega ætlað að ná sér
í auðfenginn bita úr bátunum.
Rafíðnaðarmenn samþykkja nýjan kjarasamning:
Fá 8,2% kauphækkun strax og
nýjan launaflokk eftir námskeið
RAFIÐNAÐARMENN staðfestu
síðdegis í gær kjarasamning um
8,2% launahækkun frá 1. septem-
ber og þar með lauk um hálfs
mánaðar verkfalli. Símviðgerðir
hófust seinni partinn í gær, sýning
Þjóðleikhússins var með eðlileg-
um hætti og útsendingar Ríkisút-
Fyrsta hugsunin var að
komast upp úr lestinni
- segir Sigfus Sveinsson
skipverji á Arnþóri EA
„ÉG var niðri í lest ásamt öðrum skipveija
og okkar fyrsta hugsun var að komast upp,“
sagði Sigfús Sveinsson háseti á Arnþóri
EA-16 frá Árskógströnd, sem sökk austur
af Hvalsnesi í fyrradag. Sigfús, sem er 18
ára gamall, sagðist aldrei áður hafa lent í
neinu sem þessu, en hann hóf sjósókn 15
ára gamall. Sjópróf fóru fram á Eskifirði í
gær og þykir Ijóst að skilrúm eða uppistöð- _ Morgunbiaðið/Björn Sveinsson
ur í lest hafi gefið sig með þeim afleiðingum Skipverjar á Sigurfara bera í land flotgalla úr Arnþóri
að skipið fékk á sig mikla slagsíðu og sökk. á Reyðarfyrði í fyrrakvöld.
„Menn urðu auðvitað hræddir
þegar þetta gerðist, en það komst
engin önnur hugsun að en að reyna
að rétta skipið við,“ sagði Sigfús.
„Skipið hallaðist það mikið að það
hefði getað oltið yfir hvenær sem
er.“
Arnór fékk á sig mikla slagsíðu
er verið var að dæla síld um borð
úr nótinni, en þegar reynt var að
keyra hann upp lenti nótin í skrúf-
unni og aðalvélin stöðvaðist. Sigfús
sagði að strax hefði verið kallað á
Sigurfara frá Ólafsfirði sem var
við veiðar á svipuðum slóðum.
Sigfús var niðri í lest er þetta
átti sér stað og annar skipveiji var
staddur í framlestinni. Hann sagði
að sjór hefði verið kominn í lestina
þegar hann var á leið upp.
Sigfús sagði að allir hefðu lagst
á eitt um að reyna að bjarga bátn-
um, en það því miður ekki tekist.
„Það var erfitt að horfa á eftir
honurn," sagði hann. Sigfús sagði
að honum hefði ekki tekist að
bjarga neinu af fötum sínurn eða
öðrum persónulegum munum.
„Þetta fór allt saman niður með
bátnum."
Sjópróf fóru fram á Eskifirði í
gær og sagði Sigurður Eiríksson,
sýslumaður um ástæður þess að
báturinn sökk, að líklega hefðu
uppistöður eða skilrúm látið undan.
„Það voru um 60 til 80 tonn í lest-
inni og farmurinn fór af stað,“
sagði Sigurður. „Það kom ekki
fram neinn galli á skipinu og við-
hald skipsins virðist hafa verið
mjög gott,“ sagði Sigurður.
Sjóprófum er að mestu lokið en
eftir er að ræða við tvo skipverja
sem komnir voru til Akureyrar.
varpsins komust í samt lag. Deilu-
aðilar skrifuðu í gærmorgun und-
ir sáttatillögu sem ríkissáttasemj-
ari lagði fram eftir margra stunda
samningafúnd. Á Qölmennum
fundi Rafiðnaðarsambands ís-
lands eftir hádegið greiddu 123
atkvæði með samningnum en 24
voru mótfallnir honum.
Samkvæmt samningnum fá raf-
iðnaðarmenn 8,2% launahækkun frá
1. september sl. og áfangahækkun
um 2% 1. janúar. Þá var samið um
6.500 króna orlofsuppbót og 21.500
króna desemberuppbót eins og hjá
öðrum ríkisstarfsmönnum. Nýr
launaflokkur bætist við þá þtjá sem
fyrit' voru. Til að ná honum þurfa
rafiðnaðarmenn 200 námskeiðs-
stundir ofan á þær 160 sem þarf til
að komast í þriðja flokkinn. Samn-
ingurinn gildir tii marsloka.
Helgi Gunnarsson, sem sat í
samninganefnd RSÍ, segir að mark-
miðið hafi verið að ná sömu kjörum
og aðrir ríkisstarfsmenn á sérkjara-
samningum njóta. Þetta markmið
h'afi ekki náðst að fullu nú, en í lok
samningstímans verði rafiðnaðar-
menn þó á svipuðum nótum og
starfsmenn Landsvirkjunar, Raf-
magnsveitna ríkisins og ríkisverk-
smiðjanna.
„Menn höfðu skiptar skoðanir á
samkomulaginu, en.töldu ekki raun-
hæft að taka hugsanlega hálfan
mánuð tii viðbótar í þessa baráttu.
Niðurstaðan varð þess vegna býsna
afgerandi eftir hálfs annars tíma
fund í gær. Við reyndum að gefa
sem flestum félagsmönnum kost á
að taka afstöðu til samningsins, vor-
um í símasambandi við Akureyri,
Sauðárkrók og loranstöðina á Gufu-
skálum," segir Helgi.
Indriði H. Þorláksson, formaður
samninganefndar ríkisins, segir
samninginn hliðstæðan hækkunum
sem almennt hefur verið samið um.
í 8,2% upphafshækkuninni sé slegið
saman hækkun sem flestir hafi þeg-
ar hlotið og nóvembet'hækkun launa.
í yfirlýsingu sem fylgdi samn-
ingnum. deildu rafiðnaðarmem^ á
ríkisstarfsmenn sem reyndu 'áð
hindra verkfallsaðgerðir.
Terence Stamp
kemur á kvik-
myndahátíðina
HINN kunni breski kvikmynda-
leikari Terence Stamp keniur
hingað til lands á sunnudagskvöld
í boði Kvikniyndahátíðar Lista-
hátíðar í Reykjavík og verður
hann síðasti gestur hátíðarinnar
sem nú stendur yfir í Regnbogan-
um.
í tilefni af komu
Terence Stamp
verða sýndar á hát-
íðinni tvær af
þekktustu mynd-
um hans, sú fyrsta,
Billy Budd frá ár-
inu 1962 en fyrir
leik sinn í henni
undir stjórn Peters
Ustinovs var
Stamp tilnefndur
til Óskarsverðlauna, og sú mynd sem
markaði endurkomu lians til kvik-
myndaleiks, breska spennumyndin
Uppgjörið (The Hit) frá 1984 undir
stjórn Stephen Frears.
Terence
Stamp
U