Morgunblaðið - 19.10.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
238. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
273 farast í San Francisco:
15 sekúndnajarðskjálfti
veldur gífurlegu Ijóni
Herlögregla og þjóðvarðliðar gæta öryggis og hindra gripdeildir
Efri hæð átta akreina hrað-
brautar hrundi þegar land-
skjálfti reið yfir San Francisco
og norðurhluta Kaliforníu
síðdegis á þriðjudag að stað-
artíma. 273 fórust í skjálftanum
og 630 urðu fyrir meiðslum.
Björgunarmenn töldu í gær litl-
ar líkar á að fleiri fyndust á lífi.
Þetta var mesti jarðskjálfti í
sögu Bandaríkjanna frá „Stóra
skjálftanum" í San Francisco
árið 1906. Þá fórust 452.
Reuter
San Francisco. Reuter, Daily Telegraph.
JARÐSKJÁLFTI sem stóð í 15 sekúndur og mældist 6,9 stig á Richt-
er-kvarða varð 273 mönnum að bana, auk þess sem 650 slösuðust, í
San Francisco og norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum síðdegis
á þriðjudag að staðartíma. íslenska sendiráðið í Washington hafði
þær fréttir í gærkvöldi, að allir íslendingar á svæðinu væru heilir á
húfi. Herlögregla og þjóðvarðliðar héldu uppi eftirliti á götum San
Francisco til að koma í veg fyrir gripdeildir í gær þegar eftirskjálft-
ar riðu jrfir borgina. Björgunarsveitir notuðu sérþjálfaða hunda til
að leita að fólki sem enn var fast í rústunum. Tjónið af völdum
skjálftans gæti numið fjórum milljörðum dala, 240 milljörðum ísl. kr,
að mati tryggingarfélaga, en stór hluti þeirra eigna sem skemmdust
var að öllum líkindum ekki tryggður.
„Eftirskjálftarnir mælast enn og
hafa þeir verið allt að 4 stig á
Richter-kvarða — eða nógu miklir
til að valda einhveijum skemmd-
um,“ sagði Bob Streitz, jarð-
skjálftafræðingur við Kaliforníu-
háskóla í Berkeley. Hafa menn
áhyggjur af því að illa farin hús
og mannvirki þoli illa þessa skjálfta.
Almannavarnayfirvöld í Kaliforníu
skýrðu frá því að 273 menn hefðu
beðið bana og 650 orðið fyrir
meiðslum í skjálftanum, sem var
næst mesti landskjálfti í sögu
Bandaríkjanna. 452 fórust í „Stóra
skjálftanum" í San Francisco árið
1906.
Rafmagnslaust var í fjármála-
hverfi San Francisco í gær. Lög-
reglan sló varðhring um hluta
hverfisins til að auðvelda skoðunar-
mönnum að meta tjónið á bygging-
um. Jafnvel eigendum byggingana
var meinaður aðgangur að þeim.
Herlögreglumenn og þjóðvarðlið-
ar fylgdust með öðrum hverfum
borgarinnar til að að koma í veg
fyrir að fólk léti greipar sópa um
verslanir og bifreiðar, sem urðu
fyrir skemmdum í skjálftanum.
Mannlausar bifreiðar lágu eins og
hráviði um borgina og notfærðu
margir sér það til að stela úr þeim
útvörpum. Borgaryfirvöld töldu að
tekist hefði að halda gripdeildum í
skefjum. Fregnir herma að læknar
hafi þurft að gera skurðaðgerðir á
fólki á götunum, til að mynda af-
lima tveggja ára gamlan dreng til
að ná honum úr rústum.
George Bush Bandaríkjaforseti
lýsti því formlega yfir að ástandið
í San Francisco og nágrenni væri
slæmt að yfirvöld og íbúar
svæðisins ættu rétt á láni og aðstoð
frá ríkisstjórninni í Washington.
Dan Quayle, varaforseti Banda-
ríkjanna, fór á svæðið og hét því
að verulegum ijármunum yrði varið
til aðstoðar þeim sem úrðu fyrir
tjóni í skjálftanum. Leo McCarthy,
starfandi ríkisstjóri í forföllum
George Deukmejians, sem var í
heimsókn í Vestur-Þýskalandi, lýsti
yfir neyðarástandi í sex héruðum
Kaliforníu.
Skjálftamiðjan var um 80 km
suður af San Francisco. Á skjálfta-
svæðinu búa fimm milljónir manna
og þar eru flest tölvufyrirtæki
Bandaríkjanna með höfuðstöðvar
sínar. 253 fórust er um hálfur ann-
ar kílómetri af efri hæð átta ak-
reina hraðbrautar frá Flóabrúnni
yfir San Francisco-flóann til borg-
arinnar Oakland. Byggingar
hrundu í San Francisco og flugvelli
borgarinnar var lokað um tíma.
Skemmdir urðu einnig á Flóa-
brúnni, sem tengir borgina við Oak-
land, og öðrum brúm, svo sem Gold-
en Gate-brúnni, var einnig lokað
eftir skjálftann. Eldar brutust einn-
ig út í Santa Cruz og rafmagns-
laust varð í borginni.
Fjölmargar þjóðir sendu samúð-
arkveðjur til Washington og Kali-
forníu vegna jarðskjálftang og buðu
nokkrar þeirra aðstoð. Á meðal
þeirra voru Sovétmenn. Míkhaíl
Gorbatsjov Sovétforseti sendi Bush
samúðarskeyti og kvað Sovétmenn
reiðubúna að koma til aðstoðar.
Sjá fréttir af jarðskjálftanum
á bls. 25, miðopnu og baksíðu.
Jafiiöflugur og
Armeníuskjálftimi
London. Reuter.
Jarðskjálftinn í Kaliforiilu ,il orka er leyst úr læðingi við yfir-
mældist 6,9 stig á Richter eða borð jarðar þar sem upptök skjálft-
jafh mikið og skjálftinn í Arm- ans enj. Richter-kvarðinn vex lóga-
eníu í desember í fyrra sem varð ritnúskt þannig að hvert stig tákn-
25.000 manns að bana. ar 10 sinnum öflugri skjálfta en
næsta stig fyrir neðan. Skjálfti sem
Richter-kvarðinn sem nú er al- mælist 5,0 á Richter er 10 sinnum
mennt notaður til að mæla styrk Öflugri en skjálfti sem mælist 4,0
jarðskjálfta hefur fræðilega engin stig. Öflugasti skjálfti sero mælst
efri mörk. Hann mælir hversu mik- hefur var 8,9 á Riehter.
Krenz, nýr leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins:
Heitir að koma á nauð-
synlegum breytingum
Fyrstu viðbrögð við leiðtogaskiptunum einkennast af efasemdum
Austur-Berlín, Bonn. Reuter.
EGON Krenz,
sem tekið liefur
við af Erich
Honecker sem
leiðtogi aust-
ur-þýska
kommúnista-
fiokksins, sagði
í sjónvarpsá-
varpi í gær-
kvöld, að
stjórnvöld hefðu ekki brugðist
rétt við vaxandi óánægju almenn-
ings og hét að beita sér fyrir
breytingum á’samfélaginu. Hann
lagði þó áherslu á, að skilyrðið
fyrir viðræðum við ýmsa þjóð-
félagshópa væri, að sósíalisminn
yrði ekki dreginn í efa. Á Vest-
urlöndum einkennast viðbrögð
við leiðtogaskiptunum í Austur-
Þýskalandi fyrst og fremst af
varfærni en austur-þýskir and-
ófsmenn segjast hafa litla trú á
Krenz sem boðbera breyttra
tíma.
Erich Honecker lýsti yfir á mið-
stjórnarfundi í gær, að hann ætlaði
að draga sig í hlé sem leiðtogi
kommúnistaflokksins og bar við
bágri heilsu en ekki er efast um,
að óróinn í Austur-Þýskalandi að
undanförnu og krafa almennings
um lýðræðislegar umbætur hafi
ráðið mestu um ákvörðunina. Tók
það miðstjórnina ekki nema nokkr-
ar mínútur að velja Egon Krenz sem
eftirmann Honeckers enda hefur
hann lengi verið talinn líklegur í
embættið. Krenz, sem er 52 ára
gamall og yngstur þeirra, sem sitja
í stjórnmálaráðinu, hefur um sex
ára skeið verið yfirmaður öryggis-
mála í Austur-Þýskalandi. Að auki
var ákveðið að víkja tveimur mönn-
um úr stjórnmálaráðinu, þeim Gúnt-
er Mittag, yfirmanni efnahagsmála,
og Joachim Herrmann, sem hefur
haft með áróðursmál að gera. Voru
hvorugum þeirra þökkuð vel unnin
störf.
Helmut Kohl, kanslari 'Vestur-
Þýskalands, skoraði í gær á Egon
Krenz að beita sér fyrir umbótum
í Austur-Þýskalandi en ríkisstjórnir
á Vesturlöndum eru varkárar í.yfir-
lýsingum sínum um leiðtogaskiptin.
I yfirlýsingu Nýs vettvangs, stærstu
samtaka austur-þýskra andófs-
manna, var hins vegar bent á það
orðspor, sem fer af Krenz sem
harðlínumanni, og sagt, að frá hon-
um væri einskis að vænta.
í fimmtudagsútgáfu vestur-
þýska dagblaðsins Bild, sem oft
hefur spáð rétt- um hræringar í
Austur-Þýskalandi, segir, að leið-
togaskiptin hafi verið á döfinni í
nokkurn tíma. Segir einnig, að
Egon Krenz sé að velta fyrir sér
að veita Austur-Þjóðveijum fullt
ferðafrelsi að því tilskildu, að unnt
sé að skipta austur-þýskum mörk-
um fyrir vestur-þýsk. Hafi verið
rætt um það við stjórnina i Bonn,
að hún fjármagni gjaldeyrisskiptin
en svarið verið nei végna þess, að
Austur-Þjóðvetjar fái nú þegar
milljarða marka frá Vestur-Þjóð-
veijum undir því yfirskyni, að verið
sé að greiða fyrir ýmsa þjónustu,
tii dæmis póstþjónustu.
Sjá „Hefúr aldrei..." á bls. 24.
Egon Krenz