Morgunblaðið - 19.10.1989, Page 13
MmjymwW' mmwswv
kröfur til. Elva Ósk Ólafsdóttir er
úr hópi þeirra, sem útskrifuðust frá
Leiklistarskóla íslands í vor. í hlut-
verki yngstu systurinnar, Aðelu,
fær hún gullið tækifæri til að sýna,
hvað í henni býr. Hún leggur sig
því alia fram við túlkun á þessari
ungu, örgeðja stúlku, sem brennir
sig heiftarlega á forboðinni ást, er
kveður yfir henni dauðadóminn.
Það styrkir mjög leik Elvu, að hún
hefur skýra framsögn, er óþvinguð
í ungæðislegri hrifningu sinni, án
þess þó að fara nokkru sinni út
fyrir þau mörk, sem henni eru sett
af höfundi og leikstjóra. Áhrifamik-
ill er samleikur hennar og Maríu
Sigurðardóttur úti við jámrimla-
hliðið í tunglsljósinu. Þórey Aðal-
steinsdóttir leikur lítið hlutverk
Prúdenciu og í minni hlutverkum
eru Nanna I. Jónsdóttir, Bergljót
Borg, Laufey Ámadóttir, Tinna
Ingvarsdóttir, Hildigunnur Þráins-
dóttir og Hulda Stefánsdóttir.
Þómnn Sigurðardóttir leikstjóri
hefur náð miklum árangri og fer
saman vel heppnað val leikara,
vönduð og hnitmiðuð stjórn. Af því
leiðir að hraðinn er eðlilegur og
nákvæmur, svo hvergi * hleypur
snurða á og athygli áhorfenda er
ekki trufluð. Þá fer og saman traust
umgerð og vandaðir búningar leik-
'myndahönnuðar, Charlotte Clason.
Áhorfendum dylst ekki hvar þeir
em staddir, spænskt andrúmsloft
er laðað fram méð eilítið flíkróttum
litum tjaldanna, fáum og rétt völd-
um leíkmunum og í góðri samvinnu
við Ijósameistarann, Ingvar Bjöms-
son. Nákvæm hlutföll veita sviðinu
nauðsynlega reisn og undirstrika
jafnframt, að hér er lokaður heim-
ur. Og tii að kóróna sköpun þessa
spánska umhverfis er lifandi tón-
list. Það skiptir höfuðmáli, að
hljómflutningstæki skyldu lögð til
hliðar, þótt fullkomin séu. Pétur
Jónsson leikur spánska tónlist á
gítar og þar á meðai tónverk eftir
Garcia Lorca. Tónlistarmaðurinn er
ekki falinn, heldur á sér ákveðinn
stað fremst og til hliðar á sviðinu
og er í nánum tengslum við leik-
verkið erns og uppspretta í lifandi
landslagi. Af sterkri innlifun og
ótvíræðri færni leikur Pétur þessi
blæbrigðaríku verk, sem hann hefur
sjálfur valið og lagað að sýningunni
í samvinnu við ieikstjórann.
Þýðing Einars Braga er vönduð,
auðug af litbrigðum og hljómsterk,
samboðin miklum skáldskap.
Risna og ferðareikningar:
Kröfiir ríkisendurskoð-
unar svipaðar og regl-
ur í ráðuneytunum
KRÖFUR, sem ríkisendurskoðun hefúr sent aðalskrifstofúm allra ráðu-
neyta varðandi samþykkt og frágang risnu- og ferðareikninga þeirra,
eru svipaðar og reglur sem gilda um þessi efni hjá menntamálaráðu-
neyti, forsætisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti. Þetta segja Knútur
Hallsson ráðuneytisstjóri í menntamálaráðuneytinu, Guðmundur Bene-
diktsson ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu og Húnbogi Þorsteins-
son skrifstofústjóri í félagsmálaráðuneytinu.
Ríkisendurskoðun krefst þess að
reikningar fyrir risnu og viðiíka
kostnað séu ekki afgreiddir nema
fyrir liggi skriflegt samþykki ráð-
herra eða ráðuneytisstjóra. Þá er
þess krafist að tilefni risnu sé
ófrávíkjanlega ritað á reikning eða
fylgirit hans. Ríkisendurskoðun hef-
ur falið ríkisbókhaldi og ríkisféhirði
að vísa frá öllum reikningum sem
ekki standist þessar kröfur.
Knútur Hallsson, ráðuneytisstjóri
í menntamálaráðuneytinu, teiur kröf-
ur ríkisendurskoðunar til mikilla
bóta. „Þetta eru allt saman sjálfsagð-
ir hlutir," segir Knútur. „Mér skilst
að þessar reglur taki nú þegar gildi.
Þær gilda hins vegar einungis um
ráðuneytin og regiur um stofnanimar
koma síðar." Knútur segir að
menntamálaráðuneytið hafi haft sér-
stök eyðublöð fyrir risnuna, þar sem
meðal annars sé tekið fram tilefni,
fjöldi gesta og hverjar veitingamar
eru. Hann segist hafa skotið því að
ríkisendurskoðun að hún láti staðla
slík eyðublöð fyrir öll ráðuneytin og
hún hafí tekið vel í það.
Guðmundur Benediktsson, ráðu-
neytisstjóri í forsætisráðuneytinu,
segir kröfur ríkisendurskoðunar
mjög líkar þeim reglum sem gilt hafí
í forsætisráðuneytinu. „Hins vegar
man ég ekki hver setti þessar regl-
ur,“ segir Guðmundur. „Við höfum
kappkostað að fara eftir þessum regl-
um og ég held að það hafí ekki orð-
ið misbrestur á því hjá okkur. Ég
hef hins vegar ekki skrifað upp á
þegar menn hafa farið í ferðalög en
þau hafa öll verið í samráði við ráð-
herra hveiju sinni. Við höfum leitast
við að skrifa tilefni á hvern einasta
reikning sem komið hefur í öllu sem
lýtur að risnu hér. Það á að minnsta
kosti að vera þannig og ég held að
því hafi verið algjörlega framfylgt."
Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofu-
stjóri í félagsmáiaráðuneytinu, segir
að honum sé ekki kunnugt um að
til hafi verið sameiginlegar vinnu-
reglur í ráðuneytunum um þessi
mál. „Við höfum hins vegar haft
þann háttinn á, bæði hjá ráðuneytinu
og undirstofnunum ráðuneytisins, að
gera ferðaáætlanir snemma á árinu.
Ráðuneytisstjóri og skrifstofustjóri
flaila síðan um þessar áætlanir með
ráðherra.“
Electrolux
BW 310 uppþvottavélin
i... hún
„DUXAÐI” !
Á kröfuharðasta neytcndamarkaðinum, fékk hún
eftirfarandi ummæli frá Svenska Konsumentverket:
* Hæsta einkunn (5) fyrir uppþvott og þurrkun
* Hæsta einkunn (5) fyrir að vera hljóðlát
* Hæsta einkunn (5) fyrir sparneytni
* Við bætum svo við ótrúlegu verðtilboði
Nú aðeins kr.
49.9 99
stgr.
Láttu ekki uppþvottinn angra þig lengur-
„KÝLDU” Á ELECTROLUX !
Vbrumarkaðurinn
I KRINGLUNNI SÍMI 685440
MAXIS vegghillan
(Nú liggja bækurnar í því!)
Nýja MAXIS vegghillan vakti athygli
á Bella Center, fyrir hönnun
sem nýtir þyngdarlögmálið
á snjallan hátt.
HÖNNUN: PÉTUR B. LÚTHERSSON
FRÁBÆR GJÖF
ÁAÐEINS
KR. 9.975 .-siGR.
AXIS
SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI
SÍMl 91 43500