Morgunblaðið - 19.10.1989, Page 33
MORGUNBMÐIÖ FIMMTUDAQUR/19.
a&
Hamsykurmolar
Sykurmolarnir, stærsta bflskúrshljómsveit landsins, er nú á ferð
um Bretland með Ham í farteskinu, en stuttu áður en haldið var
utan léku þessar sveitir á einskonar kveðjutónleikum í Tunglinu.
Ekki er hægt að segja að menn
hafi fjölmennt á þessa síðustu
tónleika Molanna að sinni, en
sveitin hitaði upp fyrir rokksveit-
ina góðkunnu Ham í Tunglinu. í
Bretlandsförinni er þessu öfugt
farið, því Ham hitar upp fyrir
Molana.
eftir því skemmtileg. Eftir tónleik-
ana sagði Einar Orn það hafa
verið mikinn létti að vera í hlut-
verki upphitunarsveitarinnar.
Molarnir léku ýmis lög úr laga-
safni sínu, gömul og ný, en
brugðu svo óforvarandis fyrir sig
laginu Motorcycle Mama, sem
þeir tóku upp fyrir afmælissafn-
plötu bandaríska útgáfufyrirtæk-
isins Electra fyrir stuttu. Mot-
orcycle Mama flutti öndvegis-
sveitin Sailcat á sínum tíma en
frómir herma að rokkarinn Gene
Vincent og fleiri hafi tekið það
til flutnings. Útsetning Sykurmol-
anna er frábærlega skemmtileg
og sem sniðin fyrir tónleikahald.
Lokalagið var svo kristilegt
barnalag sem sveitarmeðlimir
sungu allir utan Þór, sem lék
undir á gítar. Eftirminnilegur end-
ir á eftirminnilegum tónleikum.
Mótorhjólamóðir
Molarnir byrjuðu þessa tón-
leika á því að syngja lagið um
Þórð sjóara með Sigga Björns.
Það gaf tóninn fyrir það sem á
eftir kom, því sveitin var méð
afbrigðum afslöppuð og tónlistin
Ljösmyna/Bb
Sykurmolar og Siggi Björns. Já sjómennnskan er ekkert grín.
Djöflarokk
Ham hefur haldið sinni línu frá
því sveitin kom fyrst fram
snemma árs 1988. Mannabreyt-
ingar hafa orðið nokkrar í sveit-
inni frá upphafi og hafa styrk
hana mikið. Tónlistin hefur alla
tíð haft á sér sérlega smekklegan
ógnvekjandi blæ, sem hefur vak-
ið ýmist óhug eða óblendina
gleði. Með tímanum hefursveitin
þó færst nær þungri rokktónlist,
„metal“-tónlist, og segja má að
um þessar mundir sigli sveitin
snyrtilega nálægt þeirri tónlistar-
stefnu. Þetta kvöld íTunginu var
Ham betri en nokkru sinni og réð
þar miklu hve hljóðblöndun var
vel heppnuð. Raddir Óttars og
Sigurjóns heyrðust mjög vel og
það er einmitt samsöngur þeirra
sem gefur sveitinni sitt sterka
yfirbragð. Ham þarf að leika
„gömlu dansana" úti komið, því
flest lögin sem á plötunni eru eru
komin út af tónleikadagskrá
sveitarinnar. Vísast heldur sveit-
in þó enn inni lögum eins og
Rape Machine og „Væmna lag-
inu“, sem eru með perlum
íslenskrar rokktónlistar.
Oðurtil lífsins
Rokksveitin Síðan skein sól hefur starfað alllengi, en sendi frá
sér sína fyrstu breiðskífu fyrir sfðustu jól. í sumar hafa sveitar-
menn verið iðnir og vfða leikið auk þess sem sveitin átti tvö lög
á safnplötu frá Skffunni. Innan skamms kemur svo út önnur
breiðskífa.
Rokksíðan heimsótti Sólina í
Sýrland, þar sem verið var að
leggja síðustu hönd á væntan-
lega LP-plötu.
í viðtali sem tekið var um það
leyti sem síðasta plata kom út
sögðuð þið hana vera bara und-
irbúningur að þeirri næstu og
nú er næsta plata i' aðsigi.
Hver plata er ákveðið skref,
en lögin á síðustu plötu voru
samin á mjög löngu tímabili, allt
frá því sveitin tók til starfa og
fram á síðustu stundu. Lögin á
þessari plötu sem við erum að
Ijúka við núna eru samin af meiri
getu og við erum að ná betur
saman sem lagahöfundar.
Verður platan þyngri fyrir vik-
ið?
Lögin þola kannski meiri hlust-
un en það er alltaf matsatriði
hvort þau séu þung eða ekki.
Það er sami metnaður og áð-
ur; við gáfum allt sem við áttum
í síðustu plötu og það er alveg
sama núna. Við sem hópur af
listamönnum erum markvisst að
takast a við hluti sem leiða okkur
áfram.
Hvernig lög eru á
Ljósmynd/BS
Til helminga órafmagnað og
rafmagnað. Við fórum í hljóm-
leikaferð í vor og fluttum allt óraf-
magnað. Það gerir mun meiri
kröfur þegar allt er órafmagnað
því flytjandinn verður að gera sér
grein fyrir byggingu lagsins, me-
lódíu, texta og hljómum. Hljóm-
leikferðin í vor skilar sér á plöt-
unni, þó að sumt sé aftur raf-
magnað upp á þessari plötu.
Hvað á platan að heita?
Það hefur verið vinnuheiti á
henni Ég stend á skýi, og það
er líklegt að það verði ofaná,
enda er platan einskonar óður
til lífsins.
Þessir vösku sveinar feerðu Hjálparsjóði RKÍ rúmlega 1.700 kr., en
það var ágóðinn af hlutaveltu sem þeir héldu hjálparsjóðnum til
styrktar. Strákarnir heita: Siggeir Þór Siggeirsson, Bjarki Þór
Sveinsson og Finnur Guðlaugsson.
Þetta eru þær Ellý Ingvarsdóttir og Halldóra Helgadóttir. Þær af-
hentu Styrktarfél. lamaðra og fatlaðra 1.850 kr. sem þær söfnuðu á
hlutaveltu.
m ’M 1 | P909
AÐALSTÖÐIN
Við byrjuðum k 1. 7 í morgun. Hlustaðu! !