Morgunblaðið - 19.10.1989, Page 34
ð'4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 1989
VIÐSKIPTAFRÆÐINGAR
FJÁRMÁLAFÓLK
Láttu dæmið ganga upp
með HEWLETT-PACKARD
Viðskiptaráðgjafa II
HP viðskiptaráðgjafinn Business Consulant II er einstök tölva
sem hægt er að nýta á ótal vegu. Hann hefur innbyggð töl-
fræðiforrit, fjármálaforrit og viðskiptaforrit ásamt dagbók.
Einnig er hægt að nota eigin formúlur sem geymast í minni
tölvunnar (6,5 Kb). Hægt er að fá lítinn jsráðlausan prentara
sem tengist við tölvuna.
HP Viðskiptaráðgjafi II er kærkomið hjálpartæki fyrir athafna-
fólk í fjármálaheiminum.
Verð kr. 16.900,-
Laugavegi 8, sími 1 7812
TÖLVUVERSLUN
REYKJAVÍKUR
r i """N
n 'aa 'mm\
■■ ma *m'
ma_
_au~
M 1 1 rJidSist ll iTTl l.
Jóhann Karl Birgis-
son - Minning
Fæddur 2. nóvember 1972
Dáinn 13. október 1989
Jóhann Karl Birgisson fæddist 2.
nóvember 1972 í Neskaupstað og
ólst þar upp þangað til þrettánda
þessa mánaðar að hann kvaddi jarð-
lífið. Það var ótímabær kveðja ungs
drengs.
Jóhann Karl átti elskulega for-
eldra, Birgi Siguijónsson og Sigrúnu
S. Jóhannsdóttur, sem eignuðust,
auk Jóhanns, börnin Kristínu Stein-
unni, Söndru og Sindra.
Á heimili Sigrúnar og Bigga í Star-
mýri 15 var jafnan líflegt og fjör-
ugt. Vinir Jóhanns, jafnt sem yngri
systkina hans, voru velkomnir þang-
að og komu oft og nutu þar góðra
samverustunda.
Þegar ég rifja upp eiginleika Jó-
hanns Karls kemur mynd í hugann
af tilfinninganæmum, samviskusöm-
um og duglegum dreng, sem var
sannkallaður vinur vina sinna. Af
dreng sem fór í veiðiferðir til Vopna-
fjarðar með fjölskyldu sinni, ömmum
og öfum, dreng sem iðkaði skíða-
íþróttir af kappi og vann reglulega
til verðlauna.
Jóhann Karl hafði farið nokkrar
ferðir til sjós sér til ánægju með föð-
ur sínum áður en hann réðst sem
háseti á togara síðastliðið vor. Hann
átti reyndar ekki langt að sækja
áhuga á sjósókn, en Birgir er stýri-
maður og afi hans og nafni er fyrr-
verandi sjómaður. Þeim nöfnunum
kom vel saman og oft spiluðu þeir
saman á síðkvöldum.
Föðurömmu sína missti Jóhann
Karl þegar hann var fjórtán ára en
með henni og móðurömmu sinni átti
hann margar góðar og gefandi
stundir. Iðulega leitaði Jóhann Karl
til þeirra sem jafnan áttu góðsemi
og hlýju.
Jóhann Karl var bæði greindur og
kappsamur og hafði m.a. áhuga á
að læra ensku og sumarið 1987 fór
hann til Englands á sumarskóla og
bætti tungumálakunnáttu sína. Þá
dvaldi Jóhann Karl ásamt fjölskyldu
sinni um stund heima hjá mér og
Marteini frænda sínum og minnist
ég þess hve Jóhann var þá glaðlegur
og ánægður með líf og tilveru.
Marteinn, Silja og ég sendum hug-
heilar samúðaróskir til ættingja og
vina sem eiga um sárt að binda vegna
fráfalls Jóhanns Karls.
Sorg þín er sár elsku mágkona
og vona ég að lífskraftur fylgi þér,
Birgi svila mínum og börnunum í
nútíð sem í framtíð.
Minning lifir um einlægan bróður,
ljúfan og bjartan son. Minning um
Jóhann Karl. Megi hann hvíla í friði.
Ágústína Jónsdóttir
Þig lofar faðir líf og önd,
þín likn oss alla styður.
Þú réttir þína helgu hönd
af himni til vor niður.
Og föðurelska þóknan þín,
í þínum syni til vor skín,
þitt frelsi náð og friður.
(Þbj. K)
Okkur er harmur í huga er við
kveðjum Jóhann K. Birgisson, sem
hrifinn var burt í blóma lífsins. Jó-
hann fæddist 2. nóvember 1972, son-
ur hjónanna Sigrúnar Jóhannsdóttur
■eg Birgis Sigutjónssonar. Var hann
elstur barna þeirra, en hin eru Kristín
Steinunn 14 ára, Sindri 9 ára og
Sandra 8 ára.
Jóhann ólst upp í faðmi fjölskyldu
sinnar og fylgdumst við oft með er
fjölskyldan kom saman á heimili Jó-
hanns K. Sigurðssonar og Kristínar
Marteinsdóttur sem nú sjá á bak
elskulegum dóttursyni. Sár er sökn-
uður fjölskyldu hans og vina. Við
viljum með þessum fátæklegu orðum
minnast Jóhanns heitins.
Megi góður Guð styrkja fjölskyldu
hans og ástvini og sefa þá sáru sorg
sem ríkir í hugum þeirra.
Blessuð sé minning hans.
Guðríður, Sveinn og
börn, Neskaupstað.
Þegar maður er rétt 15 ára og
vinur manns tæpra 17 ára og kaldur
nár, verður manni ljóst á miskunnar-
lausan hátt að lífið á sér sínar
skuggahliðar. Staðreyndin er sú að
dauðinn er óumflýjanlegur, okkur
öllum, en hann er óréttlátur að taka
burtu 17 ára vin okkar.
Jóhann Karl er farinn og eftir er
minning um góðan vin og skemmti-
legan. félaga. Hans skarð fyllir eng-
inn. Aldrei heyrum við hláturinn sem
kom okkur öilum í gott skap, aldrei
eigum við eftir að bíða í ofvæni eftir
að hann komi í land. Sársaukinn og
söknuðurinn er óbærilegur. Við, sem
fengum að kynnast honum, þökkum
samfylgdina, og megi minning hans
lifa um ókomin ár.
Við sendum foreldrum og systkin-
um- okkar dýpstu samúðarkveðjur,
megi guð biessa þau í sorginni.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.'
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
(E.B.)
Kolla og Heiðrún
Ali álegg
. hefurðu smakkað eitthvað betra?