Morgunblaðið - 19.10.1989, Síða 42
í£
KERLINGARFJALLA-
B*A' L' L' I*Ð
verður haldið í Súlnasal Hótel Sögu
föstudagskvöldið 20. október.
Kerlingarfjallasöngur,
myndbandasýning frá sumrinu.
Gamlir og nýir nemendur
og gestir þeirra velkomnir.
Husið verður opnað klukkan 19:30 fyrir matargesti.
Miðar seldir og borð tekin frá á Hótel Sögu í dag,
fimmtudaginn 19. október, milli kl. 9 og 17, sími 29900.
Miðar einnig seldir við innganginn.
SKÍÐASKÓLINN
IŒRLINGARFJÖLLUM
fclk f
fréttum
Dalton alvörugefinn og
leiðinlegur Bond
Nú blasir við að Timothy Dalton
verði settur af sem ofurnjósn-
arinn James Bond og ungur leikari
að nafni Pierce Brosnan næli í hlut-
verkið. Það er ekki að Dalton skorti
áhuga á hlutverkinu, öðru nær,
hann telur sig hafa himin höndum
tekið er hann hreppti hnossið. Nei,
ástæðan fyrir breytingunni er sú
að Dalton þykir leiðinlegur Bond.
Aldrei hefur önnur eins seðlahrúga
verið lögð í gerð Bond-kvikmynda
og hinar tvær síðustu þar sem Dal-
ton lék James Bond. Engu að síður
hefur aðsókn dvínað nokkuð og
kenna framleiðendur Dalton um.
Það er haft eftir leikstjóranum
Cubby Broccoli, að James Bond eigi
að vera sposkur á svip og segja
smellnar setningar við hinar ótrú-
legustu tækifæri, rétt eins og Ro-
ger Moore gerði svo vel. Dalton
hafi á hinn bóginn verið saman-
bitinn og alvörugefinn. Sagt brand-
ara sína með svo miklum hörkusvip
að það áttaði sig enginn á því að
um brandara hafi verið að ræða.
Brosnan sé bæði myndarlegur og
glaðsinna.
Fráfarandi og tilvonandi James
Bond, Dalton og Brosnan.
Stór númer
Verslunin eropin
frá kl. 16-18.
Fáið ókeypis lista.
Sfmi 62 23 35.
MANDA
Baldursgötu 32.
JUNCKERS
VATN SÞYNNANLE GT LAKK A
--------W PARKETIÐ.
Lyktarlítiö, matt
IIF akryllakk. Gott á
f hvers konar
ólakkaöan vid og
Vandbaseret
BLITSA 222
Nemendur, kennarar og forsvarsmenn Skrifstofú- og ritaraskól-
ans utan við kennsluhúsnæði skólans á Heiðarvegi 6.
ÚTÞENSLA
Skrifstofu- og ritara
skólinn í Eyjum
NNý námsleið opnaðist fyrir
Eyjamenn fyrir skömmu
þegar Skrifstofu- og ritaraskóli
Stjórnunarfélagsins var settur
þar. Skólinn hefur til þessa ein-
göngu starfað á Reykjavíkur-
svæðinu en er nú að færa starf-
semina út á landsbyggðina.
Nemendur skólans eru um 20
og sjá 10 kennarar um að leið-
beina þeim. Skólinn stendur í 26
vikur, kenndar eru 16 stundir á
viku og snýst námið að mestu um
alhliða þjálfun til skrifstofuvinnu.
Forsvarsmenn skólans í Eyjum
eru Guðjón Hjörleifsson og Elín
Alma Arthursdóttir og segjast þau
vona að skólinn sé kominn til að
vera þannig að fólk geti reitt sig
á starfsemi hans á næstu árum.
Grímur