Morgunblaðið - 24.10.1989, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1989
-T— - •: ■ i ■; : • i '
27
Grikkland:
Reynt að ráða Konstant-
ín Mitsotakis af dögum
Mytilini. Reuter.
HERMAÐUR úr gríska flughernum fórst aðfararnótt sunnudags á
eynni Lesbos er hann reyndi að koma fyrir sprengju í í borgarleik-
húsinu í Mytilini. Fullvíst þykir að tilræðinu hafi verið beint gegn
Konstantín Mitsotakis, leiðtoga Nýja demókrataflokksins, en til stóð
að hann héldi ræðu í leikhúsinu síðar á sunnudag.
Lögreglan sagði að Michalis
Pavlis, 33 ára gamall foringi í flug-
hernum sem vann í fjarskiptadeild
flughersins í Mytilini, höfuðborg
Lesbos, hefði farist þegar hann
reyndi að koma fyrir tímasprengju
í loftræstistokk í leikhúsinu.
Konstantín Mitsotakis, leiðtogi
Nýja demókrataflokksins, hægri-
flokks sem ásamt kommúnistum fer
með völd í Grikklandi, átti að halda
framboðsræðu síðar um daginn í
leikhúsinu.
Mitsotakis kom til eynnar Lesbos
á sunnudagsmorgun og aðstoðar-
menn hans sögðu að framboðs-
fundur hans í leikhúsinu myndi fara
fram. Mitsotakis hefur boðið sig
ERLENT
fram á Lesbos til næstu þingkosn-
inga sem haldnar verða innan
tveggja vikna. Á Lesbos hefur löng-
um verið eitt styrkasta vígi vinstri-
manna.
í síðasta mánuði réðu vinstrisinn-
aðir skæruliðar Paul Bakoyannis
af dögum í Aþenu. Bakoyannis var
tengdasonur Mitsotakis.
Kosningar í Baden-Wiirttemberg:
Repúblikanar fá
allt að 9% fylgi
Stutt^art. dpa.
REPUBLIKANAR, flokkur þjóðernissinna í Vestur-Þýskalandi, komu
á óvart og fengu töluvert fylgi í bæjar- og sveitarstjómarkosningum
í Baden-Wiirttemberg-fylki á sunnudag. Kristilegir demókratar, sem
höfðu áður hreinan meirihluta í fylkinu, töpuðu allt að 10% fylgi.
Kosningalög í Baden-Wurttem-
berg eru flókin og ekki er búist við
endanlegum úrslitum í kosningun-
um fyrr en síðar í vikunni. Fyrstu
tölur frá Stuttgart, Mannheim,
Pforzheim og Freiburg bentu til
þess að Repúblikanar hefðu fengið
9% fylgi. Flokkur Kristilegra demó-
krata tapaði 6-9% fylgi í þessum
borgum. Græningjar og Fijálsir
demókratar héldu sínu.
Athygli vakti að repúblikanar
unnu víða á í kjördæmum þar sem
jafnaðarmenn hafa ráðið rfkjum.
Er þau úrslit í samræmi við ítarlega
skoðanakönnun sem jafnaðarmenn
hafa nýlega gengist fyrir og sýnir
að allstór hluti fylgismanna repú-
blikana eru verkamenn og iðnaðar-
menn sem áður studdu jafnaðar-
menn. Framanaf höfðu menn geng-
ið út frá því að repúbiikanar tækju
nær eingöngu fylgi frá Kristilegum
demókrötum.
Reuter
Múslimar í Frakklandi
mótmæla
Nokkur hundruð múslimakonur fóru í mótmælagöngu í París á sunnu-
dag til að andmæla banni við því að múslimastúlkur beri blæju í
skólum landsins. „Kóraninn er stjómarskrá okkar,“ hrópuðu konum-
ar. Ein af þeim sagðist bera blæju af því að hún vildi ekki vekja
athygli karla á sér. í síðasta mánuði rak skólastjóri í framhalds-
skóla þijár stúlkur fyrir'að bera blæjur og hefur málið valdið miklum
deilum síðan. Talsmenn kaþólikka, gyðinga og múslima hafa hvatt
til umburðarlyndis og menntamálaráðherrann hefur lýst sig andvígan
brottrekstrinum.
Heímílístæki
sem bíða ekki!
isskápnr
iwn a \ trii
111un n11«
þmrkari
eldavél
írvslikista
VJ.'P-'0
.000
Nú er ekki eftir neinu aö bíða, þú verslar í Rafbúð
Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt
öll heimilistækin í einu, valið sjálfur hverttæki af
ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki
eða hrærivél við og skipt greiðslum jafnt niður á
24 mánuði. Engin útborgun og fyrstagreiðsla eftir
einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur
boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Hafðu sam-
band við Rafbúð Sambandsins strax - það er ekki
eftir neinu að bíða.
t ;-5".
|
jr:
i
I
}
i
msmmmmmm