Morgunblaðið - 24.10.1989, Side 31
Heildarupphæð vinninga
21.10. var 5.237.373.
1 hafði 5 rétta og fær
hann kr. 2.237.133.
Bónusvinninginn fengu 6
og fær hver kr. 128.190.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 6.039
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 327
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu.
Sími 685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
XJöfóar til
XXfólks í öllum
starfsgreinum!
____________^óitGt^BL^iD ÍÞÍubjlrÓAÍÍL’R' ki.1 'dihÝjtÍBk^iM_____. ,SB
---i- - ----—-—-;-:-—---—r---------------
Vandi ferðaskrifstoíubænda
er of stuttur nýtingartími
AÐSÓKN hefur almennt verið góð hjá ferðaþjónustubændum á sumr-
in. Hinn stutti nýtingartími er eitt af höfuðvandamálum ferðaþjónustu-
bænda og eru uppi ýmsar hugmyndir um að lengja hann. Þetta kom
meðal annars fram á aðalfundi Félags ferðaþjónustubænda sem haldinn
var að Efstalandi í Ölfusi um síðustu helgi.
Fundinn sátu um 45 manns og
fluttu fjórir gestir erindi, Einar Gú-
stafsson frá Flugleiðum, Valtýr Sig-
urbjamason frá Byggðastofnun,
Reynir Adólfsson frá Vest Norden
nefndinni og Baldvin Jónsson for-
maður nefndar, sem forsætisráð-
herra skipaði til þess að fjajla um
leiðir til að marka ímynd Islands
erlendis.
í máli foi-manns Félags ferðaþjón-
ustubænda, Páls Richarssonar, kom
fram að árið 1988 hafi verið metár
hvað varðar fjölda bænda, sem
stunda ferðaþjónustu. 99 aðilar aug-
lýstu þjónustu í íslenskum bæklingi
samtaka ferðaþjónustubænda . og
hefur þeim nú fjölgað í 111. Arið
1986 gaf samgönguráðuneytið út að
ferðaþjónustubændur hefðu 500
gistirúm. í apríl 1988 áætlaði skrif-
stofa Ferðaþjónustu bænda að fé-
lagsmenn samtakanna hefðu aðstöðu
til að taka á móti 1.600 manns. „Það
verður æ ljósara að þróunin er í þá
átt að bændur, sem boðið hafa ferða-
þjónustu í nokkur ár, stækka sína
aðstöðu, og þeim fer hlutfallslega
fækkandi sem bjóða þjónustu fyrir
mjög fátt fólk. Arið 1988 voru ein-
ungis rþír bæir, sem auglýstu að-
stöðu fyrir færri en fimm manns. I
dag eru gistirými ferðaþjónustu-
bænda áætluð um 2.000 talsins,“
sagði Páll.
I ár var bryddað upp á þeirri nýj-
ung að veita viðurkenningu fyrir
góða ferðaþjónustu. Sá bær, sem
fyrstur hlýtur viðurkenninguna, er
Syðri Hagi á Árskógsströnd. Hjónin
Ármann Rögnvaldsson og Ulla Maj
Röngvaldsson hafa rekið ferðaþjón-
ustu á bænum um alllangt skeið og
bjóða nú tvö sumarhús, heimagist-
ingu og ýmsa afþreyingu.
Vinna við flokkun á gistingu hjá
ferðaþjónustubændum er komin
nokkuð langt á veg og búið er að
skoða alla bæi, sem bjóða uppbúin
rúm. Einnig er búið að gera tillögu
að flokkum og nú er verið að endur-
skoða þá tillögu miðað við þær upp-
lýsingar, sem fengust þegar bæirnir
voru skoðaðir.
Fjarkennsla er samvinnuverkefni
Ferðaþjónustu bænda, Iðntækni-
stofnunar, Bréfaskóland og Bænda-
skólans á Hvanneyri. Unnið er nú
að gerð námsgagna og gert er ráð
fyrir að hægt verði að hefja kennslu
eftir áramót.
Litlar breytingar urðu á stjórn
félagsins. Ingi Tryggvason kom í
stað Kristins Jóhannssonar. Aðrir í
stjórn eru Páll Richardson formaður,
Ágúst Sigurðsson, Ingibjörg Berg-
þórsdóttir og Valgeir Þorvaldsson.
Hulda
Leiðrétting
í dagskrárkynningu í Morgun-
blaðinu 22. október birtist röng
mynd með kynningu á upplestri á
ljóðinu Hlaðguður eftir Huldu. Biðst
Morgunblaðið afsökunar á þessum
mistökum.
Morgunblaðið/Sverrir
Lækjargata ínýjum búningi
Lækjargata hefur tekið stakkaskiptum eftir að grindverk var
sett á umferðareyjuna og nýjum ljósastaurum og tijám komið
fyrir. Grindverkið var sett upp til að beina gangandi umferð á
gangbrautirnar og koma í veg fyrir umferðarslys.
Félag stofiiað er gæt-
ir hagsmuna barna
FÉLAG, sem hefiir þann tilgang að gæta hagsmuna barna, unglinga
og fjölskyldna þeirra og hlotið hefiir nafiiið „Hjálpum börnum", verður
stofiiað í dag. Undirbúningur fyrir stofnun félagsins hefur verið í hönd-
um fólks sem í daglegu starfi sinnir börnum og fjölskyldum þeirra.
„Félagið mun vinna að öllu sem
getur orðið til hagsbóta börnum,
hvað varðar þroska, menntun, heil-
brigði og félagslega stöðu, bæði á
íslandi og í öðrum löndum. Höfuð-
áhersla verður lögð á velferð og
rétt barna á íslandi, en annað meg-
inverkefni þess verður að stuðla að
því að íslendingar taki á sig aukna
ábyrgð á velferð barna í öðrum
löndum,“ eins og segir í fréttatil-
kynningu frá undirbúningshópi.
Félagið mun sækja um aðild að
alþjóðlegu samtökunum Internatio-
nal Save the Children Alliance, en
þau eiga rætur sínar að rekja til
ársins 1919 þegar Save the Chil-
dren Fund í Bretlandi og Rádda
Barnen í Svíþjóð voru stofnuð. Sam-
starf er þegar hafið við hliðstæð
félög á Norðurlöndum, svo sem
Rádda Barnen í Svíþjóð, Red Bar-
net í Danmörku og Barnabati í
Færeyjum.
Undirbúningur fyrir stofnun fé-
lagsins hefur verið í höndum fólks,
sem í daglegu starfi sinnir börnum
og fjölskyldum þeirra. Stefnt er að
því að í félaginu og stjórn þess
verði fólk sem viðast að úr sam-
félaginu en ekki aðeins fagfólk um
málefni barna. Að sögn Sólveigar
Ásgrímsdóttur sálfræðings, sem
hefur starfað að undirbúningi fyrir
stofnun félagsins, hefur fagfólk séð
vaxandi þörf áþví að taka upp rétt-
indi bama á Islandi. Hér eru at-
hvarfslítil börn, börn sem eiga ekki
fjölskyldur sínar heilar að og börn
sem ekki líður nógu vel af öðrum
ástæðum.
Á fundinum á í dag verða m.a.
fluttar kveðjur frá Rauða krossinum
og systursamtökum í Svíþjóð og
Danmörku. Fjallað verður um að-
stöðu barna á íslandi og ný stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna um rétt-
indi barna verður kynnt. í stofn-
skránni segir að öll börn í heiminum
skuli eiga sama rétt, að öll börn
skuli njóta góðra og heilsusamlegra
uppvaxtarskilyrða, að öll börn skuli
eiga sér nafn og þjóðerni, að öll
börn skuli eiga heimili og fá saðn-
ingu dag hvern, að öll sjúk og föt-
luð börn skuli njóta þeirrar hjálpar
sem þau þarfnast, að öll börn skuli
njóta ástar og öryggis, að öll börn
skuli eiga skólagöngu vísa, að öll
börn eigi að njóta verndar og hjálp-
ar fullorðinna, að öllum börnum
beri að hlífa við erfiðisvinnu, börn-
um megi ekki misþyrma og ekki
megi selja þau, að öll börn eigi rétt
á friði.
Fundurinn verður í Borgartúni 6
og hefst kl. 20.30. Hann er opinn
öllum þeim sem áhuga hafa á börn-
um og vilja vinna að velferð þeirra.
Eggert Lárusson lgör-
inn formaður HIK
EGGERT Lárusson var kjörinn formaður Hins íslenska kennarafé-
lags í atkvæðagreiðslu um helgina. Hann hlaut 468 atkvæði, en
Gísli Ólafúr Pétursson, sein einnig var í framboði, hlaut 107 at-
kvæði. 763 neyttu atkvæðisréttar síns eða 60,1%.
náðu ekki kjöri eru Valgeir Kára-
son, 215 atkvæði, Bjarnþór G.
Kolbeins 192, Jónas Stefánsson
185, Brynjólfur Eyjólfsson 176,
Kristján Elís Jónsson 155, Hrafn
Arnarson 103.
Einnig voru greidd atkvæði um
áframhaldandi aðild að Bandalagi
háskólamanna. 363 eða 51%
greiddu atkvæði með áframhald-
andi aðild, úrsögn vildu 280 eða
39,4%. 8,3% atkvæðaseðla voru
auðir og 1,3% ógildir.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 23. október.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 78,00 56,00 75,39 34,157 2.575.248
Þorskur(óst) 63,00 59,00 62,76 0,652 40.887
Þorskur(smár) 45,00 45,00 45,00 0,132 5.940
Ýsa 113,00 76,00 104,98 4,700 493.430
Ýsa(ósl.) 88,00 75,00 77,00 0,488 37.577
Ýsa(smá) 29,00 29,00 29,00 0,069 1.987
Karfi 20,00 20,00 20,00 ,0,050 1.000
Ufsi 32,00 31,00 31,89 0,974 31.041
Steinbítur 60,00 40,00 48,55 1,763 85.562
Langa 47,00 47,00 47,00 1,045 49.115
Lúða 225,00 70,00 197,69 1,040 205.508
Koli 35,00 35,00 35,00 0,082 2.871
Kolaflök 110,00 110,00 110,00 0,300 33.000
Keila(óst) 20,00 20,00 20,00 0,759 15.180
Samtals 77,17 46,462 3.585.532
í dag verða meðal annars seld 35 tonn af þorski, 5 tonn af ýsu
og óákveðið magn af ufsa, steinbít, löngu, lúðu og keilu úr Sig- urey BA, Ljósfara ÞH og fleiri bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 76,00 65,00 71,32 7,857 560.354
Ýsa 111,00 30,00 89,70 38,564 3.459.173
Karfi 46,00 46,00 46,00 0,146 6.716
Ufsi 40,00 20,00 38,47 22,178 853.223
Hlýri+steinb. 53,00 40,00 42,37 1,472 62.364
Lúða 225,00 190,00 209,19 0,396 82.840
Skarkoli 93,00 54,00 56,02 1,065 59.663
Skata 30,00 30,00 30,00 0,009. 270
Háfur 12,00 12,00 12,00 0,145 1.740
Lýsa 30,00 30,00 30,00 0,189 5.670
Samtals 70,24 72,986 5.126.337
Selt var meðal annars úr Arnari HU. I dag verða meðal annars
seld 80 tonn af ufsa og 20 tonn af karfa úr Klakki VE.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 75,00 40,00 64,24 33,479 2.150.633
Þorskur(umál) 40,00 40,00 40,00 0,500 20.000
Ýsa 108,00 25,00 91,78 26,504 2.432.554
Karfi 40,00 27,00 34,31 0,283 9.711
Ufsi 37,00 15,00 34,32 23,419 803.736
Steinbítur 67,50 38,00 55,36 1,806 100.008
Langa 55,00 20,00 39,11 4,478 175.138
Lúða 335,00 70,00 218,46 0,663 144.840
Keila 19,50 13,00 16,85 5,623 94.773
Síld 10,16 9,00 10,05 353,690 3.555.420
Tindaskata 15,00 10,00 10,68 0,730 7.800
Kinnar 75,00 75,00 75,00 0,368 27.600
Smokkfiskur 30,00 30,00 30,00 1,000 30.000
Samtals 21,19 453,206 9.601.867
Selt var meðal annars úr Búrfelli KE, Sæmundi HF, Ólafi GK,
Reyni GK og Þorsteini GK. I dag verður selt óákveðið magn
úr Víkingi III. ÍS, línu- og netabátum.
Eggert fékk einnig flest atkvæði
í stjórnarkjöri eða 574, Elna K.
Jónsdóttir fékk 461, Björn Búi
Jónsson 378, Erlingur Sigurðarson
367, Ásdís Ingólfsdóttir 335,
Sigríður Hannesdóttir 329 og Lov-
ísa Kristjánsdóttir 299. í.varastjórn
voru kjörnir Ingi Viðar Árnason
með 243 atkvæðum, Gísli Ólafur
Pétursson 242, Matthías Kristians-
en 228, Ásrún Kristjánsdóttir 223
og Sigríður Bílddal 223.
Aðrir sem atkvæði fengu en