Morgunblaðið - 24.10.1989, Blaðsíða 37
MORGGNBl^pip ÞRIÐJUDAGUR 24, pKTÓBER, 1989
37
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Tillögu um 4 ára
áætlun í íþrótta-
málum vísað frá
ALFREÐ Þorsteinsson, borg-arfulltrúi Framsóknarflokksins, lagði
fram tillögu á borgarstjórnarfundi á fimmtudaginn, þar sem borgar-
ráði var falið að gera fjögurra ára áætlun um uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja í borginni og veija til þess 200 milljónum króna á ári.
Tillögunni var vísað firá og sagði Júlíus Hafetein, borgarfiilltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, að óeðlilegt væri að gera áætlun af þessu tagi þegar
aðeins örfáir mánuðir væru til kosninga.
Tillaga Alfreðs Þorsteinssonar
var á þá leið, að borgarráð skyldi
falið í samráði við íþróttahreyfing-
una, að gera fjögurra ára áætlun,
sem taka ætti mið af því, að
Reykjavík gæti sem best sinnt
skyldum sínum sem mótshaldari
fyrir alþjóðlega keppni og séð
íþróttafélögum og almenningi fyrir
sómasamlegri aðstöðu til íþrótta-
iðkana. Til þessa verkefnis ætti að
veija upphæð, sem ekki væri lægri
en sem næmi kostnaði við útsýnis-
húsið í Öskjuhlíð, eða um 200 millj-
ónum króna á ári.
Júlíus Hafstein, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins og formaður
Námskeið
í brids
V
í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi eru að hefjast nám-
skeið í brids. Námsflokkar
Rcykjavíkur og Gerðuberg
standa sameiginlega að þessum
námskeiðum sem verða tvö, fyrir
byijendur og einnig þá sem ein-
hveija undirstöðu hafa. Þröstur
Ingimarsson verður kennari á
báðum námskeiðunum.
Námskeið fyrir byijðndur hefst
miðvikudaginn 25. október klukkan
20, það mun standa yfir i 8 vikur
og verður kennt á miðvikudögum.
Námskeið fyrir þá sem lengra
eru komnir hófst mánudaginn 23.
október klukkan 20, það mun einn-
ig standa yfir í 8 vikur og verða
kennt á mánudögum.
Kennslugjald er krónur 4.000
fyrir námskeið og hjón fá 10% af-
slátt. Skráning fer fram í Gerðu-
bergi.
(Fréttatilkynning)
íþrótta- og tómstundaráðs borgar-
innar, lagði til að þessari tillögu
yrði vísað frá. Taldi hann meðal
annars, að ekki væri hægt að fall-
ast á, að Reykjavíkurborg einni
bæri skylda til að koma upp full-
kominni aðstöðu fyrir alþjóðlega
keppni í öllum íþróttagreinum og
beni á, að það væru landssamtök í
einstökum íþróttagreinum, sem
væru mótshaldarar fyrir alþjóðleg
mót, en ekki borgin. Júlíus sagði
að lokum, að það væri óeðlilegt að
gera áætlun af þessu tagi nú, þeg-
ar aðeins nokkrir mánuðir væru til
kosninga. Eðlilegra væri, að stjórn-
málaflokkar og samtök gerðu grein
fyrir stefnu sinni í þessum málum
fyrir kosningarnar og málið yrði
þannig lagt í dóm kjósenda.
Frávísunartillagan var samþykkt
með 9 atkvæðum sjálfstæðismanna
gegn einu atkvæði fulltrúa Fram-
sóknarflokksins. Borgarfulltrúar
Alþýðufiokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Grimmsævintýri í gaggó
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Bíóhöllin
Treystu mér - Lean On Me
Leikstjóri John G. Avildsen.
Aðalleikendur Morgan Free-
man, Beverly Todd, Robert
Guillaume. Bandarísk. Warner
Bros 1989.
Við vitum hveiju við megum
eiga von á ef við sjáum nafn
Avildsens í leikstjórahlutverkinu.
Karlinn hefur dottið niður á
lífsseiga vinsældaformúlu með
Rocky og Karate Kid-myndunum.
Galdurinn er fólginn í að taka
fýrir efni um persónur, gjarnan
hornrekur, s'em eiga í baráttu við
ofurefli en sigra. Avildsen hefur
náð slíkum tökum á þessum
myndaflokki að helst má líkja
honum við áróðursmyndir stór-
veldanna á tímum Kalda stríðsins!
Lítilmagninn í þjóðfélaginu lendir
í hverskyns mótlæti af kerfinu og
ofbeldi af völdum þeirra sterkari.
Hann eignast sinn foringja sem
smátt og smátt vinnur á og loka-
bardaginn, hvort sem hann er
háður með hnefum og hnúum eða
mælskuælist og skynsemi, einsog
hér, fær adrenalínið til að
streyma...
Að þessu sinni er sögusviðið
gagnfræðaskóli í fátækrahverfi í
New York-fylki. Ástandið er öm-
urlegt. Máttlaus skólastjóm og
kennaralið fá ekki við neitt ráðið.
Einkunnirnar fyrir neðan allar
hellur, agaleysið algert svo þær
fáu hræður sem vilja læra fá ekki
til þess stundlegan frið, eiturlyfin
hellast yfir unglingana.
Þá er kallaður til leiks harðjaxl-
inn Vitlausi-Jói (Freeman), sem
getið hefur sér góðan orðstír sem
tamningamaður vandræðaungl-
inga. Er ekki að sökum að spyija
að á einu ári kemur hinn nýi skóla-
meistari röð og reglu á þessa af-
skiptu unglingahjörð jafnvel þó í
trássi sé við sterk öfl í bæjarfélag-
inu.
Myndin. er fyrst og fremst
geysilegur leiksigur Morgans
Freemans, það hreinlega sópar
að þessum skarpleita, tjáning-
arríka blökkumanni, sem hefur
einhveija bestu framsögn, róm og
raddbeitingu í kvikmyndum í dag.
Þá er handritið, sem byggt er á
sönnum atburðum, með ólíkindum
safaríkt, smellið og vitsmunaiegt
- lengst af - í mynd sem maður
áleit færibandaframleiðslu að
óséðu. Vissulega bregður fyrir
væmni og óskammfeilnum undir-
strikunum hjá leikstjóranum,
hvað sem því líður er heildar-
myndin spennandi, vel skrifuð og
leikin ágætis afþreyingarmynd
sem slagar hátt uppí hinn eftir-
minnilega forvera sinn Stand And
Deliver.
Hamslaus hrekkjavaka
Laugarásbíó:
Halloween 4
Aðalleikendur Donald Pleasen-
ce, Ellie Cornell. Bandarísk.
Gerð 1989.
Enn er ein subbulegasta sögu-
hetja hryilingsmyndanna, Mik-
kjáll Myer, komin fram á sjónar-
sviðið, í þeim einfalda tilgangi að
útvega framleiðendum sínum
nokkra milljónatugi á svosem
tveim, þrem helgum í hita sumars-
ins í Vesturheimi. Og það hefur
tekist hingað til. Annars er fátt
um þennan samsetning að segja,
hann er ótrúlega smekklaus og
lágkúrulegur. Efnistökin lítið
skárri, höfuðpaurinn kemur meira
að segja tæpast við sögu lungann
úr myndinni. Hér er fátt kunnra
nafna utan Pleasence gamla, sem
fyrir langt löngu er búinn að fyrir-
gera heiðri sínum í myndum sem
þessari. Aðeins fyrir þá sem hafa
ánægju af að láta kvelja sig á
útsöluverði.
<$►
15% afsláttur í tilefni 150 ára afmælis Ijósmyndarinnar ♦ Opiö á laugardögum
Kynningar-
átak um rún-
ingu og með-
ferð ullar
STARFSHÓPUR, sem skipaður
var að frumkvæði Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins snemma á
þessu ári til að vinna að úrbótum
í ullarmálum, mun beita sér fyr-
ir sérstöku kynningarátaki þar
sem áhersla verður lögð á
haustrúning og bætta meðferð
ullar dagana 30. október til 2.
nóvember næstkomandi.
Kynningar ullarhópsins fara
fram með þeim hætti að nokkur
hópur fjár verður rúinn, ullin verð-
ur skoðuð og metin og leiðbeint
verður um vinnubrögð við frágang
hennar. Þá verða fijálsar umræður
um ullarmálin í lok hverrar kynn-
ingar. Auk fulltrúa úr ullarhópnum
taka tveir erlendir ullarsérfræðing-
ar og einn erlendur ullarkaup-
maður þátt í leiðbeiningunum.
Kynningarnar verða haldnar á
Hrafnkelsstöðum í Hrunamanna-
hreppi, Hesti í Borgarfirði, Sam-
komugerði I í Eyjafirði og Skriðuk-
laustri í Fljótsdal. '