Morgunblaðið - 26.10.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26.
flt *
ER 1989
n
Iðnó til sölu:
Einkaaðilar sýna áhuga
„ÞAÐ er líflegt í kringnm Iðnó
og nokkrir aðilar jjafa sýnt
áhuga á að kaupa húsið,“
sagði Sverrir Kristinsson hjá
Eignatniðluninni, sem sér um
sölu á Iðnó. Sagði hann, að
það væru einkaaðilar sem
hefðu sýnt húsinu áhuga og
væru þeir að velta ýmsum
möguleikum fyrir sér en engin
kauptilboð hafa verið gerð
enn þá.
„Menn sjá að verðmæti stað-
arins fer vaxandi í framtíðinni
þegar ráðhúsið verður fullbúið,"
sagði Sverrir. „Það er til dæmis
hægt að hafa þarna kaffistofu
með útsýn yfir Tjörnina og ráð-
húsið. A annarri hæð mætti
hugsa sér að hafa aðrar veiting-
ar. Þarna mætti einnig hugsa
sér ferðamannaverslun og auk
þess auðvitað félags- og leiklist-
arstarfsemi. Húsið býður upp á
ýmsa möguleika.“
Flugleiðir:
Islendingar búsettir erlendis:
Rýmri reglur um kosningarétt
ÍSLENSKIR ríkisborgarar sem
búið hafa erlendis lengur en átta
ár, geta sótt um það að vera tekn-
ir á kjörskrá hérlendis við AI-
þingis- og forsetakosningar og
gildir slík skrásetnipg í fjögur
ár, frá 1. desember að 'telja eftir
umsókn.
Með lögum sem samþykkt voru
á síðasta Alþingi var breytt reglum
um kosningarétt íslenskra ríkis-
borgara sem búsettir eru erlendis.
Samkvæmt hinum nýju reglum-
halda íslenskir ríkisborgarar kosn-
ingarétti við Alþingiskosningar og
forsetakjör í átta ár í stað fjögurra
áður, frá því að þeir fluttu úr landi,
talið frá 1. desember næstum fyrir
kjördag. Eru viðkomandi sjálfkrafa
skráðir á kjörskrá í því sveitarfélagi
sem þeir síðast áttu lögheimili.
Þeir sem búið hafa erlendis leng-
ur en átta ár verða hins vegar að
sækja um það sérstaklega. I til-
kynningu frá dómsmálaráðuneytinu
er greint frá því að umsóknareyðu-
blöðum hafi þegar verið dreift til
allra sendiráða íslands og ræðis-
mannsskrifstofa og fastanefnda ís-
lands við alþjóðastofnanir. Auk þess
liggja þau fyrir á Hagstofunni.
Fraktrými til Evrópu tvöfaldað
FLUGLEIÐIR hafa, I kjölfar
vaxandi eftirspurnar, tvöfaldað
fraktrými á beinu flugi til Evr-
ópu og aukið rými á beinu frakt-
flugi til Bandaríkjanna. Áætlað
hafði verið að fljúga beint til
New York, London og Billund
á Jótlandi, með Boeing 727-100
vél Flugleiða. Eftirspurn hefur
hinsvegar verið svo mikil að
Flugleiðir leigja DC 8 frakt-
flutningavél til vikulegs flug til
Bandaríkjanna, til viðbótar eig-
in vél, og Qölga Evrópuferðum
úr einni í tvær, á viku. Flogið
er til New York, London, Ost-
ende í Belgíu og Billund á Jót-
landi.
Samkvæmt fraktáætlun Flug-
leiða er flogið til Billund og Lond-
on á miðvikudögum og sunnudög-
um, til Ostende á fimmtudögum
og sunnudögum, og til New York
á miðvikudögum og laugardögum.
í frétt frá Flugleiðum segir að
fiskútflutningur hafi aukist veru--
lega síðustu misseri. Flutningar
þessir hafa að mestu verið á vet-
urna en það virðist þó vera að
jafnast út og var óvenjumikið flutt
af fiski í sumar.
V er ðlagsstofiiun:
Ekki talin ástæða til
aðgerða gegn Vífilfelli
VERÐLAGSSTOFNUN telur að
ekki sé ástæða til frekari aðgerða
vegna kæru sem stofnuninni hef-
ur borist frá Sanitas hf. um meint
brot Verksmiðjunnar Vífilfells hf.
á lögum um verð, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti.
í fréttatilkynningu frá Verðlags-
stofnun kemur fram að forráða-
menn Vífilfells hafi með bréfum og
á fundum hjá Verðlagsstofnun
skýrt sjónarmið fyrirtækisins. Þar
sem Verðlagsstofnun hafi ástæðu
til að treysta því að Vífilfell muni
fara eftir fyrirmælum stofnunarinn-
ar um framkvæmd afsláttartilboða
fyrirtækisins, og sjá til þess að
starfsmenn fyrirtækisins gæti
ákvæða laganna um samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti, þá sjái stofnunin ekki ástæðu
til frekari aðgerða í málinu.
Kveikt í bíl
KVEIKT var I Daihatsu
Charade bíl á bílastæði við
veitingahúsið Hollywood i
Ármúla um klukkau þrjú
aðfaranótt síðastliðins laug-
ardags.
Tusku hafði verið troðið inn
undir grill bílsins og eldur bor-
inn að. Bíllinn skemmdist tals-
vert.
Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur að málinu og óskar eftir
að þeir sem kunna að hafa orð-
ið þessa atviks varir að hafa
við sig samband.
Kuldafatnaður á góðu verði hjá EUingsen
Nokkur dæmi um úrvalið:
Hlýjar enskar nylonúlpur
með loðkanti í skærgulum
öryggislit. Henta þeim sem
þurfa að sjást öryggisins
vegna. Stroff á ermum og
hægt að þrengja í mittið,
marglr vasar og þægileg
hetta. Kr. 4.650,-
Hlýjar enskar nylonúlpur,
dökkbláar með loðkanti.
Stroff á ermum og hægt að
þrengja í mittið, margir vas-
ar og þægileg hetta.
Kr. 4.650,-
Norsku Stil ullarnærfötin.
Dæmi um verð:
Barnabuxur st. 10-12
kr. 1.275-
Dömubuxur kr. 1.610-
Herrabuxur kr. 1.946—
Langermabolir kr. 1.998—
Barna langermabolir
st. 10-12 kr. 1.398-
Norsku Stii ullarnærfötin
eru nú fáanleg tvöföld,
þ.e. fóðruð með mjúku
100% Dacron efni.
Dæmi um verð:
Dömubuxur kr. 1.694-.
herrabuxur kr. 2.040— og
bollr kr. 2.247-.
Barnastærðlr eru væntan-
legar.
íslensku nærfötin frá
Fínull úr 100% angóruull.
Einnig heilsunærföt úr
sama efni sem halda hita
á hluta líkamans hverju
sinni. Dæmi um verð:
Herrabuxur kr. 2.818-
mittisskjól kr. 1.500—
axlaskjól kr. 1.230- og
hnéskjól kr. 1.070-
SENDUM UM ALLT LAND
wmmssi
Grandagarði 2, Reykjavík, sími 28855