Morgunblaðið - 26.10.1989, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 26.10.1989, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1989 Fötlim ekki lengnr einkamál örfárra efíir Astu B. Þorsteinsdóttur í síðastliðinni viku*efndu Lands- sarhtökin Þroskahjálp, Öryrkja- bandalag íslands ásamt Alþýðu- bandalagi íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, banda- lagi háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna og Bandalagi kennarafélaga til fjöldafundar fyrir framan Al- þingishúsið. Tilgangurinn var að vekja athygli alþjóðar á því neyðar- ástandi sem ríkir í húsnæðismálum alvarlega fatlaðs fólks á Islandi._ Árið 1983 samþykkti Alþingi ís- lendinga þau lög sem áttu að stuðla að því að fatlað fólk hér á landi nyti í grundvallaratriðum sömu lífskjara og aðrir, en þetta eru Lög um mál- efni fatlaðra. Menn höfðu gert sér grein fyrir að átaks væri þörf ef koma ætti kjörum þessa hóps í mannsæmandi horf. Þeir sem lögin skópu höfðu án efa háleit markmið og lögðu til að árlega skyldi renna í Framkvæmdasjóð fatlaðra 55 milljónir króna verðtryggðar næstu fimm árin. Ennfremur ættu tekjur Erfðafjársjóðs að renna í sjóðinn. Lög um málefni fatlaðra eru samin af metnaði, eða eins og þar segir: Markmið þeirra er að tryggja fotl- uðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélags- þegna ...“ Hefur þetta markmið náðst? Nei — því miður. Þess vegna hafa hagsmunasam- tök fatlaðra og fjölmennustu laun- þegasamtök í landinu reynt að vekja athygli ráðamanna og alls almenn- ings á því að á annað hundrað manns eru á biðlistum hjá svæðis- stjórnum. Alvarlega fatlað fólk sem býr við algjört neyðarástand í umönnunar- og húsnæðismálum, þrátt fyrir þá uppbyggingu á und- anförnum árum. Auk þess er vitað um a.m.k. 250 manns á biðlista hjá Öryrkjabandalagi íslands, sveitar- félögum og svæðisstjórnum. Sjálfsagt er engin ein skýring á því hvers vegna við stöndum enn í þessum sporum og eigum svo langt í land sem raun ber vitni þar til markmiðum umræddra laga er náð. Ein skýringin er óneitanlega sú að þrátt fyrir skýr ákvæði laganna um fjármagn til uppbyggingar hef- ur Alþingi ekki borið gæfu til að standa við þau, en í stað þess skor- ið fjármagn til sjóðsins niður árlega þannig að mörg hundruð milljónir vantar þar á. Fénu hefur verið var- ið til annarra verkefna. Sennilega trúðu flestir fatlaðir og aðstandend- ur þeirra því, að vilji manna á Al- þingi til að beita sér fyrir stórátaki til uppbyggingar væri einlægur. Þeim mun sárari voru vonbrigðin þegar hið gagnstæða kom í ljós. Trúlega er önnur skýringin sú að menn gerðu sér enga grein fyrir því hversu víðfemt vandamálið væri í raun og veru. Fjölskyldur fatlaðra höfðu ekki haft það til siðs að bera vandamál sín á torg og vandinn því Ásta B. Þorsteinsdóttir „Það er einlæg von okk- ar að allir stjórnmála- flokkar sem sæti eiga á Alþingi láti flokkspóli- tísk sjónarmið eða ósamlyndi á stjórn- málasviðinu víkja og taki höndum saman og tryggi nauðsynlegt íjármagn til framgangs þessa máls. Það er sið- ferðileg skylda þeirra svo og samfélagsins alls.“ lengi vel dulinn. Hagsmunasamtök fatlaðra hafa æ ofan í æ vakið at- hygli stjómmálamanna á því ástandi, sem enn ríkir í þessum málum. Vandann þarf að leysa með skjótum hætti af ábyrgð og festu. Sífellt bætast fleiri í þennan hóp bæði af völdum slysa og sjúkdóma. Þótt mótsagnakennt sé hefur aukin tæknivæðing og þekking á sviði læknavísinda orðið þess valdandi að hópurinn hefur enn stækkað. Talað fyrir daufum eyrum stj órnmálamanna Það hefur valdið okkur alvarleg- um vonbrigðum að finna að við höfum talað fyrir daufum eyrum stjórnmálamanna. Stefnuskrár stjórnmálaflokka era skreyttar með ákvæðum um að rétta hag fatlaðra, en á Alþingi er lítið minnst á þenn- an vanda. Þó er mér skylt að minn- ast á örfáar tilraunir til að taka á einstökum vandamálum eins og þegar nokkrir þingmenn fluttu þingsályktun um lausnir á hús- næðisvanda fólks sem fatlast hefur af völdum slysa. Sú tilraun bar engan árangur, og var það ekki fyrr en félagasamtök tóku af skarið og söfnuðu fé hjá almenningi. Loks fór að hylla undir lausn fyrir þetta fólk sem hefur í mörg ár búið við lítt mannsæmandi aðstæður. En það virðist einmitt oft vera stefna ríkisvaldsins að bíða svo lengi með aðgerðir að einhveijum félagasam- tökum ofbýður aðbúnaður fólks og grípur til þess ráðs að safna fé hjá almenningi. En á að leysa vandann á þann hátt? Öryrkjar hafa orðið útundan í velmegnninni Undanfarið hefur efnahagsleg velmegun vaxið verulega meðal þorra almennings. Með það í huga er fróðlegt að lesa könnun sem land- læknisembættið lét gera á aðbúnaði og lífsháttum öryrkja á höfuðborg- arsvæðinu. Þar kemur í ljós að hag- ur þeirra hefur alls ekki batnað samanborið við aðra þjóðfélagshópa — þeir hafa að mestu orðið útundan í velmeguninni. Stjómvöld verða að sjá til þess aij- skipting lífsgæða sé jafnari, og -^draga þannig úr andstæðum og aðstöðumun í þjóðfélaginu. Að öðr- um kosti er sameiginlegri framtíð okkar hætta búin. Svo virðist sem slagsíða sé komin á velferðarþjóð- félagið, en það sýna allar þær að- gerðir sem margir hagsmunaaðilar gangast fyrir um þessar mundir. Stjórnmálamenn virðast ekki hafa uppgötvað að fötlun er ekki lengur álitin harmsaga eða einka- mál þeirra sem fatlast heldur sam- félagsmál sem á að ræða og Ieysa á vettvangi stjómmála. Og þeir að skynja réttmæti þess að sameigin- legir sjóðir landsmanna standi straum af uppbyggingunni, alveg á sama hátt og önnur mál samfélags- ins era leyst. En hvað blasír við núna? Á annað hundrað manns, alvar- lega fatlaðir, bíða eftir heimili og umönnun sýnir könnun sem hags- munasamtök fatlaðra hafa gert um landið. í húfi er heill og hamingja fjölda fólks — ekki aðeins þessara rúmlega 100 sem um ræðir heldur jafnframt fjölskyldna þeirra — fjölda sem vel getur samsvarað íbúaijölda í litlu sjávarplássi. Þessar fjölskyldur hafa áratugum saman annast fötluð börn sín heima — börn sem urðu fullorðið fólk án þess að fá réttmæt tækifæri til að flytja úr foreldrahúsum í fyllingu tímans líkt og aðrir jafnaldrar. Þess í stað dvelja þau undir verndarvæng fjölskyldna sem sumar hveijar era að kikna undan stöðugu álagi. í þessum hópi fatlaðra eru einnig þeir sem misst hafa foreldra sína eða hafa vistast á sjúkrahúsum eða eilliheimilum. Framlag enn einu sinni skert Við lestur fjárlagaframvarps er ljóst að ríkisstjómin ætlar enn einu Málræktarátak í Heym- ley singj askólanum í SKÓLUM landsins er í þessari viku 23.-27. október efnt til móður- málsviku og af því tilefni verður í Heymleysingjaskólanum málrækt- arátak með sérstakri kynningu á móðurmáli heyrnarlausra, táknmáli. Heyrnarskert börn sem eru að hluta til í almennu grannskólunum munu koma með bekkjarfélaga sína í heimsókn og nemendur Heyrnleys- ingjaskólans munu kynna tákn- málið fyrir þeim, í öðram tilvikum munu herynarlaus börn fara í heimaskóla sína og kynna tákn- málið. í jþessari táknmálsviku verður einnig efnt til kynningar fyrir al- menning á táknmáli með opnum fyrirlestri í Heyrnleysingjaskólan- um í kvöld, fimmmtudagskvöldið 26. október, klukkan 20.30, og nefnist kynningin Hvað er táknmál? Með táknmálsvikunni vill Heyrn- leysingjaskólinn benda á þá stað- reynd að móðurmál nemenda skólans er ekki íslenska heldur- táknmál heyrnarlausra, mál með eigin formgerð og eigin málfræði. (Frcttatilkynning) sinni að horfa fram hjá vandanum. Framlag til málefna fatlaðra heldur ekki einu sinni verðgildi sínu. Það er enn einu sinni skert eða jafn hátt í krónum talið og fyrir ári, 201 milljón, þrátt fýrir 20—30 prósent verðbólgu. Þetta er staðreynd þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagn- stæða. Nú er beðið eftir svari ríkis- stjómarinnar um það hvort hún sé reiðubúin að svara kalli hagsmuna- samtakanna. Það er einlæg von okkar að allir stjómmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi láti flokkspólitísk sjónarmið eða ósamlyndi á stjórnmálasviðinu víkja og taki höndum saman og tryggi nauðsynlegt ijármagn til framgangs þessa máls. Það er sið- ferðileg skylda þeirra svo og sam- félagsins alls. Hér er ekki beðið um nýja skatta eða álögur á þjóðina. Enda hafa skattahækkanir sem þjóðin hefur þolað á síðustu tímum engan veginn aukið fjárstreymi málefnum fatl- aðra til framdráttar. Það er einfaldlega farið fram á það að stjórnmálamenn forgangs- hraði verkefnum á annan veg. Sá stuðningur og samstáða sem öll stærstu launþegasamtök hafa sýnt fötluðum með þátttöku í þessu átaki speglar, svo ekki verður um villst, vilja almennings hér í landinu — vilja sem stjómmálamenn geta ekki lengur horft fram hjá. Á þessum útifundi var Ríkis- stjóm íslands afhent svohljóðandi ályktun: Til ríkisstjórnar íslands Heildarsamtök fatlaðra, Oryrkja- bandalag íslands og Landssamtökin Þroskahjálp, ásamt Alþýðusam- bandi Islands, Bandalagi háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna, Bandalagi kennarafélaga beina þeim eindregnu tilmælum til Ríkis- stjómar íslands að nú í þingbytjun verði gerð fjögurra ára áætlun um byggingu eða kaup á vernduðu húsnæði fyrir mikið fatlað fólk sem nú býr við alls óviðunandi aðstæð- ur. Einnig verði jafnhliða sett inn í fjárlög fjármagn til reksturs þessa húsnæðis. Samkvæmt upplýsingum frá svæisstjórnum era 108 manns sem búa við alls óviðunandi aðstæður í húsnæðismálum og umönnun. Auk þess er um að ræða 250 manna biðlista eftir húsnæði hjá Öryrkja- bandaiagi íslands auk almennra biðlista hjá sveitarfélögunum. Jafnframt beina áðurnefnd sam- tök því til ríkisstjómarinnar að hún fýlgist með högum fjölfatlaðra bama sem þurfa framtíðarheimili. Þannig verði í framtíðinni tryggt að húnsæðisvandi þeirra verði leyst- ur. Þau samtök sem standa að þess- ári ályktun óska eftir svari ríkis- stjórnarinnar innan mánaðar. Virðingarfýllst, f.h. þeirra samtaka sem standa að þessari ályktun, Arnþór Helgason formaður Öryrkjabandalags íslands, Ásta B. Þorsteinsdóttir for- maður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Höfandur er formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. KULDASKOR Stærðir: 40-46 Litur: Svart + brúnt Efni: Skinn Verð: 4.790.- ff.H KRINGMN KöMeNM S. «89212 C 21212 5% staögreiðsluafsláttur Pústsendum samdægurs. 1989 Eigum einn Honda Accord EX, sjálfskiptan, árgerð 1989 á frábæru afsláttarverði. HONDA Á ÍSLANDI, Vatnagörðum 24, sími 689900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.