Morgunblaðið - 26.10.1989, Síða 20
ítf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1689.
Kjarnorkuáætlananefiid NATO:
Skora á Sovétmenn
að fækka skamm-
drægum flaugum
Vilamoura í Portúgal. Reuter.
Varnarmálaráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins lýstu því yfir
í gær að þrátt fyrir umbætur í Austur-Evrópu þyrfti bandalagið enn
á sterkum vörnum að halda, þar á meðal kjarnorkuvörnum. Kom
þetta fram í lok tveggja daga ráðherrafundar kjarnorkuáætlunar-
nefndar NATO í Almansil í Portúgal sem lauk í gær. Ráðherrarnir
hvöttu Sovétmenn m.a. til að fækka einhliða skotpöllum fyrir skamm-
drægar kjarnorkueldflaugar í Austur-Evrópu niður í þá tölu sem
NATO hefúr yfír að ráða.
Mest var rætt um þróun mála í
Austur-Evrópu á fundinum. í loka-
yfirlýsingu er umbótum þar fagnað
og þeim einhliða fækkunum í hefð-
bundnum herafla sem Varsjárbanda-
lagið hefur staðið fyrir. En minnt er
á að sovésk stjórnvöld endumýi nú
langdræg kjarnorkuvopn sín og njóti
gífurlegra yfirburða á sviði skamm-
drægra kjarnorkueldflauga, þ.e.
þeirra sem draga skemmra en 500
km. Er skorað á Sovétmenn að fækka
skotpöllum fyrir skammdrægar
flaugar niður á sambærilegt stig við
NATO. Talið er að Sovétmenn ráði
yfir 1.400-1.600 skotpöllum. NATO
hefur 88 skotpalla í Evrópu fyrir
skammdrægar Lance-eldflaugar.
íslendingar eiga áheymarfulltrúa
í kjarnorkuáætlananefndinni.
Reuter
í víking til Napólí
Napólíbúar fengu óvenjulega heimsókn í gær. Þar vora á ferð 800 Líbýumenn um borð í feiju sem komnir
vora til að minnast ættingja sinna sem létu lífið sökum ítalskrar nýlendustjórnar í Líbýu á árunum 1911-
1943. Einnig var ætlunin að leggja áherslu á kröfur líbýsku stjórnárinnar um skaðabætur fyrir „kúgun
og harðræði ítölsku nýlenduherranna“. Líbýustjórn hefur hótað hefndum ef skaðabætur verða ekki greidd-
ar. ítalska stjórnin hefur hafnað slíkum kröfum og segir málið löngu útkljáð.
Bretland:
Deilt um
ráðgjafa
St. Andrews. Frá Guðmundi H.
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
SIR Alan Walters, sérstakur
efnahagsráðgjafí Margaretar
Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, er andvígur þátt-
töku Breta í evrópska mynt-
kerfinu. Nigel Lawson fjár-
málaráðherra hefúr vísað því
á bug að ráðgjafinn túlki stefhu
bresku ríkisstjórnarinnar.
Það hefur lengi verið vitað að
ágreiningur væri með Walters og
Lawsons. Walters hefur nú birt
ritgerð í bandarísku hagfræð-
itímariti, þar sem hann heldur
því fram að ráð sín hafi haft
mikil áhrif á stefnu bresku stjóm-
arinnar í efnahagsmálum og að
það sé gagnslaust fyrir Breta að
taka þátt í evrópska myndkerf-
inu. Mikill þrýstingur sé innan
stjórnkerfisins og í Evrópu á að
það verði gert, en ekki séu nokk-
ur gild hagfræðileg rök fyrir því.
Sir Geoffrey Howe aðstoðar-
forsætisráðherra og Nigel Law-
son fjármálaráðherra vísuðu því
á bug að ráðgjafinn væri að lýsa
skoðun stjómarinnar. Lawson
gekk svo langt að segja að ráð-
gjafar háttsettra stjómmála-
manna ættu hvorki að tala né
skrifa opinberlega.
Leiðtogar stjómarandstöðunn-
ar hafa krafist þess að Thatcher
forsætisráðherra taki af skarið
með hver væri stefna hennar í
efnahagsmálum. „Þingmenn
krefjast brottreksturs eða þagnar
Walters" segir í fyrirsögn breska
dagblaðsins The Times í gær.
Skotland:
Heimilað að reisa endur-
vinnslustöð í Dounreay
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Skotlandsmálaráðherra
bresku sljómarinnar, Malcolm
Rifkind, heimilaði í gær, að
reist yrði endurvinnslustöð fyr-
ir kjarnorkuúrgang í Dounreay
á norðurströnd Skotlands. Þyk-
ir víst, að þessi ákvörðun eigi
eftir að valda deilum.
Rifkind hefur undirbúið þessa
ákvörðun í þrjú ár eða síðan opin-
berri könnun á byggingunni lauk.
Ef af verður er talið, að byggingar-
Réttarhöld yfír John Poindexter:
Minnisbóka Reagans krafist
Washington. Reulor.
DÓMARI í Washington gaf á þriðjudag út stefnu á hendur Ronald
Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að hann þyrfti að
leggja fram dagbækur sínar og minnisbækur vegna Iran-kontra
málsins. Veijandi Johns Poindexters, fyrmm þjóðaröryggisráð-
gjafa, hafði krafist þess að skjölin yrðu lögð fram í réttarhöldum
til að varpa ljósi á þátt Reagans í málinu. Veijandinn heldur því
fram að Reagan hafi vitað um og verið sammála embættisfærslu
Poindexters. Búist er við því að Reagan áfrýji dómnum.
Fimm ákærar hafa verið lagðar
fram gegn Poindexter. Hann er
sakaður um samsæri, að hafa hindr-
að störf þingsins og að hafa gefið
út rangar yfirlýsingar til að hylma
yfir hneykslið. Poindexter var
þjóðaröryggisráðgjafi Reagans
þegar íran-kontra hneykslið varð
opinbert árið 1986.
Talið er að dagbækur og minnis-
bækur Ronalds Reagans veiti mjög
miklar upplýsingar um aðild forset-
ans fyrrverandi að vopnasölunni til
írans. Ágóðinn af sölunni var notað-
ur til að styrkja kontra-skæruliða
í Nicaragua.
Verjendur Olivers Norths aðstoð-
armanns Poindexters kröfðust þess
einnig á sínum tíma að umrædd
skjöl yrðu lögð fram. Dómari hafn-
aði kröfunni og sagði þau ekki
skipta það miklu máli fyrir dóms-
meðferðina að réttlætti inngrip í
friðhelgi framkvæmdavaldsins.
Harold Greene dómari hafnaði
hins vegar kröfu veijanda Poindext-
ers um að minnisbækur George
Bush forseta Bandaríríkjanan úr
varaforsetatíð hans yrðu lagðar
fram. Var kröfunni hafnað á þeirri
forsendu að Bush hefði sem vara-
forseti ekki haft skipunarvald yfir
Poindexter. Veijandi Poindexters
hélt því fram að minnisbækur Bush
væra mikilvægt málsgagn því Po-
indexter hefði öðru hveiju borið
ákvarðanir sínar undir Bush.
kostnaðurinn verði að minnsta kosti
30 niilljarðar ísl. kr.
Á síðustu þremur áram hafa að-
stæður breyst mikið en upphaflega
átti Dounreay-stöðin að vera ein
af þremur endurvinnslustöðvum
fyrir kjarnorkuúrgang í Evrópu.
Nú er aftur á móti talið, að ekki
verði þörf fyrir nema eina slíka stöð
í fyrirsjáanlegri framtíð og fremur
ólíklegt hefur þótt, að hún yrði í
Dounreay.
Smíði endurvinnslustöðvarinnar
hefur verið mjög umdeild vegna
mengunar- og slysahættu en tals-
menn kjarnorkuiðnaðarins eru án-
ægðir með ákvörðunina og segjast
vissir um, að stöðin muni rísa. And-
stæðingar stöðvarinnar era hins
vegar jafn staðráðnir og áður í að
beijast gegn henni. Þeir telja þó
fulla ástæðu tii að óttast, að Do-
unreay-stöðin verði stækkuð fyrir
endurvinnslu og bentu á það i gær,
að nýlega hefði verði gerður samn-
ingur við Vestur-Þjóðveija um inn-
flutning og endurvinnslu kjarnorku-
úrgangs.
VIÐSKIPTAVINIR ATHUGIÐ!
Frá og með 1. nóvember n.k. falla
niður síðdegisafgreiðslur bankans á
fimmtudögum á eftirtöldum stöðum:
Bankastræti, Háaleitisbraut,
Bíldshöfða, Hafnarfirði, Selfossi
og Sauðárkróki. Áfram verður opið á
Suðurlandsbraut 18 og á Akranesi.
SAMVINNUBANKI fSLANDS HF.
PC
Byrjenda-
námskeið
* IMumuTST'.i
Skemmtilegt og gagnlegt nám- —_____________s!
skeið fyrir þá sem eru að byrja
að fást við tölvur.
Tími: 31. okt., 2., 7., og 9. nóv. kl. 20-23.
BSRB, ASÍ og VR styðja félaga sína
til þátttöku á námskeiðunum.
Leiðbeinandi: Stefán Magnússon.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590