Morgunblaðið - 26.10.1989, Side 26
26
MÓRGDNBLAÐIÐ Í'ÍMtó'UÖAGl/á 26. ÖicfL l’áéð
Ingrid Jónsdóttir og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir í hlutverkum
sínum í „Isaðar gellum“.
Síðustu
sjóiingar á
Isuðum
gellum
Alþýðuleikhúsið sýnir í Iðnó
nú um helgina leikritið „Isaðar
gellur" eftir breska höfundinn
Frederick Harrison. Þetta eru
síðustu sýningar.
í verkinu segir frá dvöl þriggja
stúlkna frá Hull á Englandi í sjáv-
arþorpi á norðanverðum Vest-
fjörðum. Þær hafa flúið bágt at-
vinnuástand heima fyrir í von um
betri Iífsafkomu og bjartari
framtíð á íslandi.
Leikritið snýst síðan um þann
raunveruleika sem við þeim blas-
ir í fiskvinnu í íslensku sjvarþorpi
og kynni þeirra af Islendingum.
Verkið er kryddað hispurslausri
gamansemi og fá Islendingar sinn
skammt ekki síður en aðrir sem
við sögu koma.
Verkið „ísaðar gellur“ var
frumsýnt í Hull í apríl sl. og hef-
ur sýningin farið víða um Eng-
land.
Leikarar í „ísaðar gellur" eru
Ása Hlín Svavarsdóttir, Halldór
Bjömsson, Ingrid Jónsdóttir og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leik-
mynd og búninga gerir Gerla,
lýsingu annast Sveinn Benedikts-
son og leikstjóri er Hávar Sigur-
jónsson.
Sýningar verða á föstudag
klukkan 14.30 og miðnætursýn-
ing á laugardag klukkan 23.30.
(Fréttatilkynning)
Breytingar á
skipan iðn-
fræðslumála á
þingi iðnnema
47. ÞING Iðnnemasambands
íslands verður haldið í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi,
Breiðholti, dagana 27., 28. og
29. október 1989.
Á þessu þingi INSI verður fjall-
að um helstu hagsmunamál iðn-
nema, má þar nefna kjaramál,
iðnfræðslumál, félagsmál hreyf-
ingarinnar og önnur málefni er
varða iðnnema.
Á þinginu verða teknar sér-
staklega til umfjöllunar breyting-
ar á skipan iðnfræðslumála í
landinu með tilkomu laga um
framhaldsskóla og setningu
reglugerða í kjölfar þeirra nú á
næstu misserum.
Þing Iðnnemasambandsins
hefstkl. 16 föstudaginn 27. októ-
ber með setningu formanns sam-
bandsins Georgs Páls Skúlason-
ar, síðan munu gestir þingsins
flytja ávörp en þeir verða Ás-
mundur Stefánsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, Guðrún
Ágústsdóttir, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra, og Jó-
hanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra.
Krossanesverksmiðjan;
Misst úr heila vertíð á
síðustu þremur árum
SIÐASTLIÐNAR þrjár loðnuvertíðar hefur Krossanesverksmiðjan
misst sem svarar til sex mánaða vinnslu miðað við þann tíma sem
áður var talið eðlilegt að vinnslan hæfist.
Geir Zoéga frámkvæmdastjóri
Krossanesverksmiðjunnar sagði að
oft hefðu skipin farið á veiðar upp
úr verslunarmannahelgi og vinnsla
hefði hafist í byijun septembermán-
aðar. Síðastliðnar þijár vertíðar
hefði vinnsla hins vegar hafist um
Múlagöngin
orðin 2.300
metra löng
GÖNGIN í gegnum ÓlafsQarð-
armúla er nú orðin um tveggja
kílómetra löng, Ólafsljarðarmeg-
in, en auk þess var í haust unnið
Dalvíkurmegin í göngunum og
farið 300 metra inn í fjallið þeim
megin.
Björn Harðarson staðarverk-
fræðingur Vegagerðarinnar sagði
að verkið gengi eðlilega fyrir sig
og væri það heldur á undan áætl-
un. Göngin eru alls orðin 2.300
metra löng og eru þá 840 metrar
eftir.
Björn sagði allt líta út fyrir að í
mars á næsta ári yrði búið að
sprengja fyrir göngunum, en þá
væri eftir heilmikill frágangur.
„Ætli það sé ekki svona eitt ár í
að menn getið ekið hér í gegn,“
sagði Björn.
I dag verður lokið við að steypa
upp vegskálann Ólafsfjarðarmegin,
en Fjölnismenn frá Akureyri hafa
unnið við það verk í sumar. Verkinu
við vegskálann lýkur í næstu viku,
en um er að ræða 165 metra lang-
an -skála. Næsta vor verður hafist
handa við að byggja vegskála
Dalvíkurmegin, en hann er 100
metra langur.
Alls vinna um 45 manns nú við
göngin í gegnum Ólafsfjarðarmúla.
tveimur mánuðum síðar, sem þýddi
að engin vinnsla hefði verið um sex
mánaða skeið samanlagt, eða um
það _bil ein heil loðnuvertíð.
„Ársvelta fyrirtækisins er um
500 milljónir króna og því segir það
sig sjálft að það munar um heila
vertíð," sagði Geir. Hann sagði að
það kæmi mun verr við Krossanes-
verksmiðjuna, heldur en verksmiðj-
ur t.d. fyrir sunnan að vertíðin
hæfist svo seint. Þegar vertíðin
hæfist seint kepptust skip við að
klára kvótann og lönduðu því í
næstu höfn, en lengra væri að fara
með aflann norður.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skiptyfírá vetrardekkin
„Það var alveg á mörkunum að maður kæmist í vinnuna í morgun,“
sagði Páll Tómasson, en hann var að skipta yfir á vetrarhjólbarðana
í gærmorgun. Jörð var alhvít á Akureyri og snjóaði fram eftir degi.
Fjölmargir bifreiðaeigendur lögðu því leið sína á hjólbarðaverkstæði
og létu vetrardekkin undir bílinn, enda betra að vera viðbúinn komu
vetrarins.
Vegleg vetraríþróttahátíð á Akureyri;
Sovéskt verðlaunapar
sýnir listdans á skautum
Von á íjölmörgum erlendum keppendum
SOVÉSKT verðlaunapar í listdansi mun sýna við opnun vetraríþrótta-
hátíðar sem haldin verður í þriðja sinn á Akureyri í mars næstkom-
andi. Hátíðin verður öll hin veglegasta og fjölmargt verður í boði.
Vetrarhátíðarnefhd var skipuð í ágúst á síðasta ári og hefur nefnd-
in haldið 25 fundi vegna undirbúnings hátíðarinnar. Þröstur Guðjóns-
son hefur verið ráðinn í hálft starf sem framkvæmdasljóri hátíðarinn-
ar. Dagskráin var kynnt á blaðamannafiindi í gær.
Vetraríþróttahátíðin stendur í 15 ar um íþróttamál og var þá gengið
Vélfrysta
skautasvell-
ið opnað
VÉLFRYSTA skautasvæðið á
Krókeyri verður opnað á laugar-
dag, 28. október, kl. 20.30. Frá
þeim tíma verður svellið opið
almenningi öll kvöld nema
þriðjudagskvöld frá kl. 20.30-
22.30. Einnig verður opið fyrir
almenning á laugardögum og
sunnudögum frá 14-16.
Boðið verður upp á námskeið og
æfingar í skautaíþrótt, m.a.
grunnnámskeið þar sem þátttak-
endur fá leiðbeiningar um undir-
stöðuatriði skautaíþróttarinnar,
einnig verða æfingar í íshokkí og
listhlaupi fyrir alla aldursflokka.
í fréttatilkynningu frá Skautafé-
lagi Akureyrar kemur fram að
markmið félagsins sé að fá sem
flesta til þátttöku í hollri og
skemmtilegri íþrótt, en skautaferðir
sameini útiveru og hreyfingu í
skemmdeginu þegar fólk þurfi mest
á slíku að halda.
Skólar, félög, eða hópar geta
fengið leigða tíma á svellinu eftir
samkomulagi.
daga og verður hún sett þann 23.
mars og henni slitið 1. apríl. Á fund-
inum kom fram að aðstaða í Hlíðar-
fjalli er á heimsmælikvarða, en þar
hefur m.a. verið reist hús fyrir tíma-
tökur í skíðagöngu og þar eru einn-
ig snyrtingar, aðstaða fyrir fjömiðla
og salur fyrir áhorfendur.
Hvað alpagreinar varðar verður
haldið unglingamót þar sem gert
er ráð fyrir 160-180 keppendum.
Keppendum stendur til boða að
koma í æfingabúðir nokkru fyrir
keppnina. Þá verða haldin alþjóðleg
mót í flokki karla og kvenna, fjögur
fyrir hvorn flokk og fara þau fram
á Akureyri og Dalvík.
Landskeppni fer fram í boðgöngu
og hefur Dönum og Englendingum
verið boðin þátttaka í þeirri keppni
og fyrirspurnir hafa borist frá Finn-
landi og Austurríki vegna keppn-
innar. Einnig verður alþjóðlegt mót
í karla og kvennaflokkum í skíða-
göngu, sem og unglingamót. Ski-
cross er grein sem ætlunin er að
keppa í, en þar er um að ræða eins
konar þrautabrautakeppni þar sem
tveir keppendur fara af stað
samtímist og vinnur sá er fyrstur
kemur í mark. Gert er ráð fyrir að
útlendingar taki þátt í þessari
keppni, en aðeins einu sinni hefur
verið keppt í henni hér á landi áður.
Mikið verður um að vera á vél-
frysta skautasvellinu við Krókeyri
og ber þar hæst komu sovésks verð-
launapars í listdansi, sem halda
mun sérstakar sýningar auk þess
að sýna við opnunarhátíðina. Fyrst
var um komu listdansaranna rætt
fyrir um þremur árum, en nú fyrir
skömmu er Kolbeinn Sigurbjörns-
son var staddur í Moskvu ræddi
hann við Alexander Kozlovsky
varaformann ríkisnefndar sem fjail-
frá málinu. Enn er ekki ljóst hvaða
par mun sýna listir sínar á skauta-
svellinu.
íshokkykeppni verður á svellinu
og sýningar af ýmsu tagi, trimm
og fleiri uppákomur.
Auk þess sem áður er talið verð-
ur boðið upp á hestreiðar á ís og
jafnvel munu Léttisfélagar fara um
bæinn með hestakerrur, þar sem
bæjarbúum og gestum gefst kostur
á ferðum um bæinn. Vélsleðamenn
verða á ferðinni og verður bæði
keppnir og sýningar á vélsleðum.
Þá þefur verið leitað til Iþróttafé-
lags fatlaðra varðandi sýningu á
vetraríþróttum fatlaðra. Skátar
taka einnig þátt í hátíðinni og bjóða
upp á fjallgöngur, útilegur og ýmis-
legt fleira. Fyrirlestrar verða haldn-
ir og skemmtanir og einnig er gert
ráð fyrir að alla daga verði í boðið
upp á útiveru í hinum ýmsu vetrar-
íþróttagreinum.
Að lokum má geta þess að sett
verður upp sögusýning, þar sem
brugðið verður ljósi á sögu vetrarí-
þrótta.
Landsþing Búsetafélaga:
Hafa sótt um lán til
bygginga 326 íbúða
BÚSETI, landssamband húsnæðissamvinnufélaga hefur sótt um lán
vegna byggingar 326 íbúða samkvæmt lögum um kaupleiguíbúðir.
Landsþing Búseta var haldið á Akureyri síðastliðinn laugardag. Á
þinginu voru um 30 fulltrúar frá 11 Búsetafélögum í landinu, en
alls eru um 6.000 manns í Búsetafélögum víðs vegar um landið.
Reynir Ingibjartsson starfsmaður
Búseta sagði að á þinginu hefði
verið ákveðið að stórefla starf
landssambandsins og þjónustu við
félögin. í því skyni var ákveðið að
1% af byggingakostnaði hverrar
íbúðar sem félögin byggja renni til
sameiginlegs þjónustustarfs. „Bú-
setafélögin eru að fara út í miklar
framkvæmdir og því þótti okkur
hentugt að hafa öfluga skrifstofu
sem væri í stakk búin að þjónusta
félögin," sagði Reynir.
Fyrir 1. oktober síðastliðin voru
Búsetafélögin í sameiningu búin að
leggja inn lánsumsóknir vegna
byggingar 326 íbúða samkvæmt
lögum um kaupleiguíbúðir. Um
þessar mundir eru að hefjast fram-
kvæmdir vegna byggingar um 60
íbúða.
Búsetafélög eru starfandi á höf-
uðborgarsvæðinu, á Akureyri, í Ól-
afsfirði, Húsávík, Fljótsdalshéraði,
Norðfirði, Árnessýslu, Garði,
Garðabæ, Mosfellsbæ og í Borgar-
firði.
Ný stjórn landssambandsins var
kjörin á landsþinginu og er Guðni
Jóhannesson, Reykjavík formaður
hennar, en aðrir í stjórn eru Jónína
Pálsdóttir, Akureyri, Snorri Styrk-
ársson, Neskaupstað, Anna Beni-
diktsdóttir, Mosfellsbæ og Guð-
munda Helgadóttir, Reykjavík.
VERSLUNIN ÞORPIÐ
Móasíðu 1
Opið alla daga kl. 8-23.30