Morgunblaðið - 14.11.1989, Side 1

Morgunblaðið - 14.11.1989, Side 1
64 SIÐUR B 260. tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Umbótasinni kjörinn forsætisráðherra í Austur-Þýskalandi: Leiðtogar viðurkenna mis- tök á sögulegum þingfundi Um 300.000 Austur-Þjóð- verjar tóku þátt í mót- mælafundi í Leipzig í gær- kvöldi til að ítreka kröfiir sínar um frjálsar kosning- ar og afnám alræðis komm- únistaflokksins. Á mynd- inni bera fjórir þátttakend- ur líkkistu með áletrun- inni: „Tilkall kommúnista- flokksins til válda.“ 300.000 Leipzig-búar ítreka kröfur sínar um frjálsar kosningar Vestur-Berlín. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. AUSTUR-ÞÝSKIR þingmenn fjölluðu í fyrsta skipti hreinskilnislega um málefni Alþýðulýðveldisins Þýskalands í Austur-Berlin í gær. Margir fóru hörðum orðum um ríkisstjórn og leiðtoga landsins og sögðu róttækar breytingar nauðsynlegar. Giinther Maleuda, leiðtogi Bændaflokksins, var óvænt- kjörinn forseti þingsins en kommúnista- flokkurinn bauð ekki fram í embættið. Umbótasinninn Hans Modrow var kjörinn forsætisráðherra í stað Willi Stoph, sem viðurkenndi að stjórn sín hefði ekki staðið sig sem skyldi. Miðstjórn kommúnista- flokksins samþykkti í gærkvöldi að efiia til flokksþings, sem gæti leitt til verulegra breytinga á forystu flokksins að sögn vestrænna stjórnarerindreka. Um 300.000 manns kröfðust ftjálsra kosninga og þess að alræði kommúnistaflokksins yrði afnumið í mótmælagöngu í Leipzig í gærkvöldi. Sýnt var frá þingfundinum í Austur-Berlín í beinni sjónvarpsút- sendingu. Margir þingmenn fóru hörðum orðum um leiðtoga lands- ins, þar á meðal Horst Sindermann, fyrrum forseta þingsins. „Ég er ekki sekur um valdamisnotkun en ég stóð mig líklega ekki alltaf nógu vel í embættinu,“ svaraði þá þing- forsetinn fyrrverandi. Forsætisráð- herra stjórnarinnar sem sagði af sér í fyrri viku, Willi Stoph, viður- kenndi að leiðtogar kommúnista- flokksins hefðu tekið ákvarðanir sem haft hefðu slæmar afleiðingar fyrir efnahag landsins. Gunther Maleuda var kjörinn þingforseti í fyrstu leynilegu at- kvæðagreiðslunni í sögu þingsins. Hann fékk 246 atkvæði en þing- maður Fijálslynda demókrata- flokksins, Manfred Gerlaeh, 230. Aðeins einn þingmaður greiddi at- kvæði gegn Hans Modrow í emb- ætti forsætisráðherra. Miðstjórn kommúnistaflokksins kom saman í annað sinn á einni viku og samþykkti að efna til flokksþings í stað ráðstefnu, sem fyrirhuguð var um miðjan desem- ber. Háttsettir vestrænir stjórnarer- indrekar segja líkur á að sam- þykktar verði verulegar breytingar á flokksforystunni og að Egon Krenz flokksleiðtogi sé engan veg- inn öruggur um að halda embætti sínu. Tvö ný hlið voru opnuð á Berlín- armúrnum við mikil fagnaðarlæti borgarbúa í gær. Þingið í vestur- hlutanum skoraði á stjórnvöld aust- urhlutans að opna sem flest hlið til að auðvelda samgöngur milii borg- arhlutanna. Vestur-Þjóðveijar og útlendingar mega enn sem komið er aðeins fara um tvö hlið og verða að borga 30 vestur-þýsk mörk, eða um 1.000 ísl. kr. í hvert skipti. Fjöldi fólks úr austurhlutanum heimsótti vesturhlutann í gær en umferðin var mun minni en um helgina. Þó mynduðust biðraðir við bankaútibú, sem afhenda svokall- aða fagnaðarpeninga. Hver borgari hefur rétt á að fá 100 mörk, eða 3.400 ísl kr. Austur-þýska fréttastofan ADN skýrði frá því að 300.000 manns hefðu tekið þátt í mótmælafundi á Karl Marx-torgi í miðborg Leipzig. Þetta er áttundi mánudagurinn í röð sem efnt hefur verið til slíks fundar i borginni. Mótmælendurnir sökuðu stjórnvöld um lygar, spill- ingu og hrokafulla framkomu og kváðust ekki ætla að sætta sig við ferðafrelsið eitt. Auk þess efndu rúmlega 100.000 manns til mót- mæla í Dresden og 50.000 í Karl- Marx-Stadt. Francois Mitterrand Frakklands- forseti skýrði frá því í gær að leið- togar aðildarríkja Evrópubanda- lagsins kæmu saman í París um helgina til að ræða þróunina í Aust- ur-Þýskalandi að undanförnu. Sjá grein um Berlínarmúrinn á miðopnu og fréttir á bls. 26. Gullfundur á austur- strönd Grænlands Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. KANADÍSKA könnunarfyrirtækið Platinova hefúr fúndið gull á u.þ.b. Qögurra ferkílómetra stóru svæði við Kangerdlugssuak, milli Ammassalik og Seoresbysunds. Talið er að hægt verði að vinna þar 12 tonn af gulli að andvirði 100 milljóna Bandaríkjadollara (6.300 milljóna ísl.kr.) á ári. Miklar vonir eru bundnar við fundinn og fyrirtækið segir jarðveg- inn svo auðugan af málminum að auðvelt sé að hefja arðvænlega vinnslu á svæðinu. Telja talsmenn þess að hagnaður þeirra sem leggi fé í vinnsluna geti orðið sem svarar 2.500 milljónum ísl.kr. árlega. Ekki er álitið að hægt verði að hefja gullvinnslu af fullum krafti fyrr en eftir fimm ár. Páls Einarsson jarðeðlisfræðing- ur sagði að löngum hefði verið vitað að gull fyndist á Grænlandi því góðmálminn væri yfirleitt að finna í gömlu bergi eins og á Grænlandi. Hins vegar hefði spurningin yfir- leitt verið sú hvort vinnsla þess borgaði sig. Gullfundurinn nú breytti heldur engu um mat á íslenskum jarðlögum því hér væri eitt yngsta berg í heimi en á Græn- landi væri það ævafornt. Reuter Fjáraustrinum mótmælt RÚMLEGA 200 ánauðug börn efndu til mótmælafundar í höfuðborg Indiands, Nýju Delhí, í gær til að fordæma sóun á almannafé er þess var minnst að hundrað ár voru liðin frá fæðingu afa Rajivs Gandhis forsætisráðherra, Jawaharlais Nehrus. Hátíðahöldin munu hafa kostað um þijá milljarða rúpía, eða 11 milljarða ísl.ikr. Nehru var fyrsti for- sætisráðherra Indlands og þótti einkar barngóður. San Salvador. Reuter. Stjórnarhermenn og vinstrisinnaðir skæruliðar í E1 Salvador börð- ust í gær með vélbyssum í höfúðborg landsins, San Salvador. Talið er að um 300 manns hafí fallið og hundruð særst frá því skæruliðarn- ir hófu mikla sókn á laugardagskvöld. Eru þetta hörðustu bardagar í Iandinu frá því borgarastyijöldin braust þar út fyrir tíu árum. Skotið var úr vélbyssum úr þyrl- um, sem flugu yfir borgina, og var íbúum úthverfa ráðlagt að halda sig innandyra. Leiðtogar skæruliða segja að markmið árásanna sé að neyða stjórnvöld til að semja um frið og binda enda á styijöldináysem hefur kostað 70.000 manns lífið frá árinu 1979. Skæruliðarnir slitu frið- arviðræðunum 31. október eftir að. sprengjuárás var gerð á höfuðstöðv- ar verkalýðssamtaka með þeim af- leiðingum tíu manns týndu lífi. Að minnsta kosti 14 óbreyttir borgarar hafa beðið bana vegna átakanna frá því á laugardags- kvöld. Alfredo Cristiani, forseti landsins, lýsti yfir neyðarástandi í landinu á sunnudag og útgöngu- bann gildir á næturnar. Forsetinn sagði að stjórnin hefði neyðst til þess að afnema lýðréttindi um tíma til að vernda þjóðina fýrir „hryðju- verkurn" skæruliða. Hörð átök í E1 Salvador

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.