Morgunblaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989
Mikið vatnsveður á ísafírði:
Vatn flæddi inn í hús í Hnífsdal
ísaftrði.
MIKLA hláku og vatnsveður
gerði á ísafirði í fyrrinótt. Krapa-
flóð féllu víða úr hlíðum og
þurfti að ryðja af veginum á milli
Isafjarðar og Hnífsdals. Vatn
komst á nokkrum stöðum í kjall-
ara húsa, en mesta tjónið varð í
tveimur íbúðarhúsum við Heima-
bæjarstíg í Hnífsdal.
Þar stíflaðist ræsi, sem flytur
læk úr heimabæjartúninu til qávar,
í fjörunni vegna brimróts. Við það
fór vatnið um holræsakerfi húsanna
og flæddi þar um svo að í öðru
húsinu varð eins metra hátt vatns-
borð í kjallara og um tíu sentimetra
hátt vatn á gólfum götuhæðar. í
hinu húsinu. varð vatnshæðin um
hálfur metri í allri neðri hæð.
Mjög erfiðlega gekk að fá menn
frá bænum til að losa stífluna úr
ræsinu og f læddi lækurinn um hús-
in fram eftir degi. Hins vegar tókst
betur til í nýja sjúkrahúsinu á
ísafirði, þar komst vatn í kjallara.
Slökkviliðsmenn komu þar strax á
vettvang og búið að þurka upp og
koma ræsum í lag um hádegi.
íbúar húsanna tveggja í Hnífsdal
voru mjög óánægir með aðgerðir
bæjaryfirvalda, en oft áður hefur
flætt úr þessu ræsi og reyndar fyr-
.ir löngu búið að kaupa rör til að
framlengja ræsið í fjörunni, að sögn
íbúa húsanna. Innréttingar og hús-
búnaður beggja húsanna eru mikið
skemmd.
Úlfar
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
í stofiinni að Heimabæjarstíg 1 í Hnífsdal náði vatnið upp undir hné.
f stofunni var myndsbandstækið á kafi og gítar húsfreyjunnar sigldi
um á vatnsborðinu þegar að var komið.
VEÐURHORFUR íDAG, 30. DESEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandshafi er 965 mb. lægð, sem þokast
norðnorðaustur og fer minnkandi og skammt suðaustur af Ný-
fundnalandi er vaxandi 980 mb. lægð sem mun hreyfast norðnorð-
austur. Veður fer kólnandi í nótt, en tekur aftur að hlýna þegar líður
á morgundaginn, fyrst sunnan- og vestanlands.
8PÁ: Sunnan- og suðaustankaldi eða stinningskaldi fram eftir degi,
en allhvasst eða hvasst suðvestanlands undir kvöldið. Skýjað og
slydda eða rigning um tíma á Suður- og Vesturlandi en öllu bjart-
ara og þurrt að kalla norðaustanlands. Hlýnandi í bíli.
l/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á GAMLÁRSDAG: Suðaustanátt og rigning eða súld,
einkum um sunnan- og austanvert landið, en úrkomulítið norðan-
lands. Milt í veöri.
HORFUR Á NÝÁRSDAG: Á nýársnótt snýst vindur til suðvestanátt-
ar og kólnar, fyrst vestanlands. Él sunnanlands og vestan en létt-
skýjað á Norður- og Austurlandi þegar kemur fram á daginn. Frost
0-4 stig.
Vfí VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hlti veður Akureyri 6 alskýjað Reykjavik 4 skýjað
Bergen 2 léttskýjað
Helsinki •r3 þokumóða
Kaupmannah. 4 skýjað
Narssarssuaq +10 snjókoma
Nuuk +13 snjókoma
Osló +5 skýjað
Stokkhólmur 3 hrímþoka
Þórshöfn 7 rignlng
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 1 þokumóða
Barcelona 13 skýjað
Berlin +3 kornsnjór
Chicago 2 þokumóða
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 1 alskýjað
Glasgow 4 reykur
Hamborg +3 þokumóða
Las Palmas 18 skúr
London 5 mlstur
Los Angeles 11 hálfskýjað
Lúxemborg +1 hrímþoka
Madríd 12 skýjað
Malaga 17 skýjað
Mallorca 15 skýjað
Montreal +21 léttskýjað
New York +3 skýjað
Orlando 6 þokumóða
París +1 hrfmþoka
Róm 10 heiðskírt
Vín +1 þokumóða
Washington +2 alskýjað
Winnipeg +30 léttskýjað
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Sturla Friðriksson veitir Herði Ágústssyni heiðurverðlaunin úr Verð-
launasjóð Ásu Guðmundsdóttur Wright.
+
Verðlaunasjóður Asu
Guðmundsdóttur Wright:
Hörður Agiistsson
fékk heiðursverðlaunin
HÖRÐUR Ágústsson, listmálari, tók á móti heiðursverðlaunum úr
Verðlaunasjóði Ástu Guðmundsdóttir Wright í gær. Var honum veitt
viðurkenningarskjal og peningaverðlaun að upphæð 155 þús. krónur
úr sjóðnum.
Sturla Friðriksson, sem á sæti í
stjórn sjóðsins ásamt Ármanni
Snævarr, prófessor og dr. Jóhannesi
Nordal seðlabankastjóra, veitti
Herði verðlaunin, en hann fékk þau
fyrir rannsóknir á sögu byggingar-
listar á íslandi og fyrir að kanna
þróun í gerð bygginga hér á landi
allt frá Landnámsöld.
Hörður Ágústsson er fæddur 4,
febrúar 1922 í Reykjavík. Foreldrar
hans voru þau Ágúst Markússon,
veggfóðrameistari og kona hans
Guðrún Guðmundsdóttir frá Urriða-
fossi í Ámessýslu.
Iðnlánasjóður með
bestu ársskýrsluna
Ársskýrsluverðlaun Sfjómunarfélagsins fyrir bestu ársskýrsluna
1988 féllu í hlut Iðnlánasjóðs. Dómnefhd taldi ársskýrslu sjóðsins frá-
bærlega vel gerða. Frásögn af starfsemi og rekstrarumhverfi þykir
að mati dómnefndar vera mjög vönduð og bæði skipulega sett fram og
á góðu máli. Þá þykja myndræn yfirlit og töflur með þeim injög vel
gerðar.
Bragi Hannesson, forstjóri Iðn-
lánasjóðs, veitti viðtöku sérstökum
verðlaunagrip í hádegisverðarboði á
Hótel Holti í gær af þessu tilefni.
Árskýrslunefnd Stjómunarfélagsins
ákvað einnig að veita Glitni hf.,
Orkubúi Vestfjarða og Kísiliðjunni
hf. viðurkenningu fyrir góðar árs-
skýrslur og voru þeim afhent skraut-
rituð viðurkenningarskjöl við sama
tækifæri. Alls tóku 26 fyrirtæki
þátt í samkeppninni um bestu árs-
skýrsluna 1988. í ársskýrslunefnd
sitja Stefán Svavarsson, löggiltur
endurskoðandi, Ámi Vilhjálmsson,
prófessor og Helgi Backmann, fram-
kvæmdastjóri lánasviðs Landsbanka
íslands.
Hannes vann Dreev
Arnhem. Frá Þráni Vigfússyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HANNES Hlífar Stefánsson vann
sovéska stórmeistarann Alexie
Dreev í tíundu umferð Evrópu-
Söfiiun til
styrktar
Rúmenum
Opnaður hefur verið Gíró-
reikningur í Landsbankanum
að Laugavegi 77 til að gefa
landsmönnum kost á að koma
alþýðu manna í Rúmeníu til
hjálpar. -
Jóhannes Georgsson, sem
f luttist frá Rúmeníu og býr hér
á landi, stendur fyrir söfnun-
inni. Númer reikningsins er
019100 en vilji menn leggja inn
á hann í öðmm bönkum eða
sparisjóðum ber að bæta ein-
kennistölum útibúsins við
Laugaveg, 011126, framan við
töluna.
móts unglinga í skák í Hollandi
í gær og er í 4.-5. sæti á mótinu
með 6,5 vinninga.
Hannes hafði svart í skákinni og
kom upp Colle-byijun. Hannes var
með heldur lakari stöðu framan af,
en Sovétmaðurinn eyddi miklum
tíma í miðtaflinu og féll að lokum
á tíma í 39. leik með kolltapaða
stöðu. Samkvæmt nýjum skákstiga-
lista FIDE er Dreev í 20. sterkasti
skákmaður heims með 2.605 stig.
Skák Hannesar við Búlgarann
Topalov í 9. umferð , sem fór í bið,
var tefld áfram í fyrradag og lauk
henni með jafntefli. Topalov, sem
er 14 ára gamall, er þegar orðinn
alþjóðlegur meistari og hefur hon-
um verið spáð miklum frama. Hann
gæti orðið stórmeistari á næsta ári
og fari svo fellur áratuga gamalt
met Bobbys Fischers.
Staðan á mótinu eftir tíu um-
ferðir er sú að efstur er G. Serper
með 8 vinninga, í 2. sæti V. Topalov
með 7,5 vinninga og í 3. sæti Dre-
ev með 7 vinninga. í 11. umferð-
inni, sem tefld verður í dag, teflir
Hannes við Serper efsta manna
mótsins.