Morgunblaðið - 30.12.1989, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989
13
STAÐGREÐSLA
1990
ÚTGÁFA SKATTKORTA — PERSÓNUAFSLÁTTUR
Ákveðið hefur verið að áður útgefin
skattkort, þ.e. vegna áranna 1988 og
1989 skulu gilda áfram á árinu 1990. Þó
með þeirri undantekningu að frá og með
1. janúar 1990, eru fallin úr gildi eftirfar-
andi skattkort: Skattkort með uppsöfnuð-
um persónuafslætti útgefin 1988 og
1989. Námsmannaskattkort útgefin
1988 og 1989.
Ný skattkort, sem gilda fyrir árið
1990, verða einungis gefin út til þeirra
sem öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn og á
þeim verður aðeins tilgreint hlutfall per-
sónuafsláttar, auk persónubundinna
upplýsinga um launamanninn, en ekki
skatthlutfall og upphæð persónuafslátt-
ar.
Áríðandi er að launagreiðandi
athugi, að það skatthlutfall og sú upp-
hæð persónuafsláttar sem fram koma á
skattkortum útgefnum vegná áranna
1988 og 1989 falla úr gildi frá og með 1.
janúar 1990.
Frá og með 1. janúar 1990 ber því
launagreiðanda að reikna stað-
greiðslu af launum miðað við auglýst
skatthlutfall og persónuafslátt og
taka tillit til þess hlutfalls per-
sónuafsláttar sem tilgreint er á skatt-
korti launamanns.
SKATTHLUTFALL
STAÐGREIÐSLU
Skatthlutfall staðgreiðslu er sameiginlegt
skatthlutfall tekjuskatts og útsvars.
Fyrir árið 1990 verður skatthlut-
fall staðgreiðslu 39,79%. Skatthlutfall
barna, þ.e. sem fædd eru 1975 eða
síðar, verður6%.
3ÖRG sveinsdottir
Skattkort 1990
k«fn miki. kinniuia
J0NAS SIGURÐUR (|
KT• ^50455-0069
Hlutlill
—-----------_________ RlKISSKATTSTJ0RI
Persónuafsláttur ársins 1990 hefur verið
ákveðinn 250.200 kr. Mánaðarlegur
persónuafsláttur verður þá 20.850 kr.
Við útreikning á staðgreiðslu launa-
manns á árinu 1990 ber launagreiðanda
að nota:
1. Auglýsta upphæð persónuafsláttar
fyrir árið 1990 en ekki þá upphæð
persónuafsláttar sem tilgreind er
á áður útgefnum skattkortum.
2. Hlutfall persónuafsláttar sem
fram kemur á skattkorti launamanns.
Sjómannaafsláttur ársins 1990 verður
575 kr. fyrir hvern dag sem maður telst
stunda sjómannsstörf.
Skýrlngar meö ske
BREYTINGAR
Breytingar sem kunna að verða á upp-
hæð persónu- og sjómannaafsláttar
síðar á árinu 1990 verða auglýstar sér-
staklega, auk þess sem allir launagreið-
endur, sem hafa tilkynnt sig til launa-
greiðendaskrár RSK, munu fá orðsend-
ingu um breytingar áfjárhæðum.
Áríðandi erað launagreiðendur
kynni sérréttskatlhlutfall og skattafslátt 7990
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI