Morgunblaðið - 30.12.1989, Side 24
24
MORGU.NBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989
Helga II. aflahæst
á loðnuvertíðinni
HAUSTVERTÍÐIN á loðnu er ein-
hver sú rýrasta síðan slíkar veiðar
hófust. Aðeins veiddust 54.246
tonn, en á vertíðinni í fyrra veidd-
ust 311.000 tonn. Úthlutaður kvóti
frá því í sumar var 672.000 tonn,
en auk þess hafa íslenzkir útgerð-
armenn keypt rúm 30.000 tonn af
loðnu af Grænlendingum. Þar af
heftir útgerð Júpíters keypt
10.000 tonn. Á eftirfarandi lista
er skipunum raðað upp eftir afla,
sem er í fyrri dálki á eftir nafni
þeirra. í síðari dálki er sá afli, sem
skipin eiga eftir að veiða, sam-
kvæmt fyrstu úthlutun. Hún kann
að breytast eftir áramót, þegar
rannsóknarleiðöngrum lýkur og
mögulegt verður að meta stofn-
stærðina. Fyrr hafði verið talið
að í okkar hlut gæti komið um ein
milljón tonna, en nær ómöglegt
verður að ná svo miklum afla á
tímabilinu firá áramótum fram í
apríl, er loðnan hrygnir og drepst
að því loknu. Aflinn er talinn í
tonnum.
Skip Helgall. Veitt 3920 Óveitt 19897 ísleifur 1080 12300
Skarðsvík 2956 9616 Fífill 1061 11626
Hilmir 2923 26378 Guðrún Þorkelsd. 1036 12344
Bjarni Ólafason 2852 12663 Keflvíkingur 1002 17452
Albert 2386 10186 BjörgJónsdóttir 849 11492
Háberg 2348 1662 Víkurberg 780 11388
Hólmaborg 2131 16270 Þórður Jónasson 755 11182
Júpíter 2115 24612 Svanur 689 12344
örn 2068 10388 Harpa 596 18320
Víkingur 1824 15077 Erling 5530 10981
Þórshamar 1692 10822 Sighvatur Bjarnason 436 12597
Höfrungur 1645 12716 Sigurður 402 16903
Börkur 1622 14066 Gullberg 340 12233
Guðmundur Óiafur 1606 10850 Huginn 246 12326
Jón Kjartansson 1598 13860 Gígja 221 13159
Húnaröst 1560 11185 Guðmundur 113 14306
Súlan 1524 12202 Bergur 76 11919
Sjávarborg 1275 12451 Rauðsey 0 12400
Grindvíkingur 1245 14270 PéturJónsson 0 13785
KapII. 1243 11790 Jón Finnsson 0 12573
Sunnuberg 1165 17577 Heimaey 0 12111
Dagfari 1157 10953 Hákon 0 13727
Beitir 1139 15819 54246 617762
Morgunblaðið/Bjarni
Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, afhentir
Davíð Axelssyni, byggingarmeistara, viðurkenninguna.
Trésmiðafélag Reykjavíkur:
Viðurkenning veitt
fyrir góðan aðbúnað
TRÉSMIDAFÉLAG Reykjavíkur hefiir veitt Davíð Axelssyni, bygging-
armeistara, sérstaka viðurkenningu félagsins fyrir góðan aðbúnað á
vinnustaðnum að Þverholti 11 í Mosfellsbæ. Þetta er í fimmta skipti
sem Trésmiðafélagið veitir viðurkenningu fyrir góðan aðbúnað á vinnu-
stað, en með þeim hætti vill félagið vekja athygli á aðbúnaðar- og
öryggismálum í byggingariðnaði hér á landi.
Starfsmenn Trésmiðafélagsins
hafa á undanförnum vikum skoðað
vinnustaði og aðbúnað starfsmanna
á ýmsum vinnustöðum á Reykjavík-
ursvæðinu. Niðurstaða þeirra var að
vinnustaðurinn að Þverholti 11 væri
í hvfvetna til fyrirmyndar.
Starfsmannahúsið er vandað og
vel frá gengið, ytra sem innra. Kaffi-
stofa starfsmanna er vel búin innrétt-
ingum, húsgögnum og nauðsynleg-
um tækjum. Umgengni er til fyrir-
myndar og má nefna að starfsmenn
fara ekki á útiskóm inn í kaffistofu
og þar er ekki reykt.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
29. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 70,00 • -70,00 70,00 0,525. 36.750
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,034 680
Steinbítur 20,00 20,00 20,00 0,476 9.520
Samtals 44,93 1,053 47.310
FAXAMARKAÐUR hf. i í Reykjavík
Þorskur 79,00 71,00 73,08 6,940 507.172
Ýsa 90,00 50,00 80,48 0,374 30.100
Karfi 34,00 34,00 34,00 0,658 22.372
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,049 980
Hlýri+steinb. 55,00 46,00 47,07 0,227 10.685
Skarkoli 20,00 20,00 20,00 0,470 9.400
Lýsa 58,00 58,00 58,00 0,030 1.740
Samtals 66,58 8,748 582.449
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf
Þorskur 68,50 68,50 68,50 0,800 54.800
Ýsa 133,00 56,00 127,11 3,140 399.140
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,085 1.275
Lúða •160,00 60,00 95,01 0,337 32.020
Samtals 111,70 4,362 487.235
Selt var úr Happasæli KE. Næsta uppboð verður 2. janúar.
Nýstúdentar firá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt Þorsteini Þorsteinssyni skólameistara t.v. og
Gisla Ragnarssyni aðstoðarskólameistara t.h.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ:
Þijátíu nemendur brautskráðir
29 STÚDENTAR og einn nem-
andi af tveggja ára braut voru
brautskráðir frá Fjölbrautaskól-
anum í Garðabæ miðvikudaginn
20. desember sl. Hátíðleg athöfin
var haldin í skólanum.
Ávörp fluttu Þorsteinn Þor-
steinsson skólameistari, sem af-
henti nemendum prófskírteini,
Árni Emilsson, formaður skóla-
nefndar, sr. Bragi Friðriksson
sóknarprestur og Sigmar Guð-
mundsson nýstúdent. Gísli Ragn-
• arsson aðstoðarskólameistari veitti
nemendum viðurkenningu fyrir
góðan námsárangur. Bestum
námsárangri á stúdentsprófi náði
Lóa G. Davíðsdóttir á náttúru-
fræðibraut. Kór skólans söng við
athöfnina undir stjóm Hildigunnar
Rúnarsdóttur.
Nemendur skólans voru rúmlega
500 á haustönn.
Fundað með starfsfólki Þjóð-
leikhússins vegna sparnaðar
„ÞAÐ var ekkert rætt um uppsagnir. Afitur á móti ræddum við
um nýja rekstraráætlun eftir að Qóst var að firamlag ríkisins til
Þjóðleikshússins er mjög skert,“ sagði Snævar Guðmundsson, fram-
efitir fund með starfsfólki leik-
kvæmdarstjóri Þjóðleikshússins,
hússins í gær.
„Við ræddum eingöngu um inn-
anhússreglur, sem lúta að sparn-
aði. Það er ljóst að við verðum að
mynda okkar ákveðnar vinnuregl-
ur og þá verðum við að kanna
hvaða starfssemi við getum haldið
uppi. Nú næstu daga verður unnið
í þessum málum og ný rekstrar-
ákvörðun verður tekin fljótlega,"
sagði Snævar.
Eftir 20. febrúar hætta sýning-
ar á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu
vegna endurbóta á salnum. Þjóð-
leikhúsið hefur fengið tilboð frá
tveimur stöðum um aðstöðu fyrir
sýningar. Frá Gamla bíó og Há-
skólabíó, en nýir salir verða teknir
i notkun í Háskóabió fljótlega á
næsta ári. Salur sem tekur 250
manns í sæti verður tekin í notkun
i febrúar og salur sem tekur 330
manns í sæti verður tekin í notkun
i mars.
„Við erum að kanna þessu tvö
tilboð. Gamla bíó liggur betur við.
Það er nær Þjóðleikhúsinu, en aft-
ur á móti gerum við okkur ljóst
með því að fara þangað myndi
starfsemi okkar rekast á þá starf-
semi sem er í húsinu,“ sagði Snæv-
ar.
Eldur laus í Vífilsstaðaspítala:
Starfsstúlkur brugðust
rétt við o g slökktu eldinn
ELDUR var laus í Vífílsstað-
aspítala laust efitir klukkan tvö
í fyrrinótt, en þá fór brunavið-
vörnunarkefí í gang. Eldur
kviknaði út frá jólaskreytingu á
annari hæð spítalans. Raf-
GENGISSKRÁNING
Nr. 249 29. desember 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 61,09000 61,25000 62,82000
Sterlp. 97,91200 98,16800 98,12800
Kan. dollári 52,79400 52.93200 53,84200
Dönskkr. 9,26830s 9,29260 9,00970
Norsk kr. 9,25960 9,28380 9,17080
Sænsk kr. 9,82790 9,86360 9.80180
•Fi. mark 15,07460 15,11410 14,86860
Fr. franki 10,54730 10,57490 10,24630
Belg. franki 1,71360 1,71810 1,66590
Sv. franki 39,54050 39,64400 39,05380
Holl. gyflini 31,91750 32,00100 31,00610
V-þ. mark 36,05730 36,15170 34,97190
ít. líra 0,04812 0,04825 0,04740
Austurr. sch. 5,12290 5,13630 4,96700
Port. escudo 0.40820 0,40930 0,40110
Sp. peseti 0,55740 0,65890 0,54450
Jap. yen 0,42564 0,42676 0,43696
írskt pund 94,96400 95,21300 92,29200
SDR (Sérst.) 80,33270 80,54310 80,63320
ECU, evr.m. 72,62070 72,81090 71,16560
Tollgengi fyrir desember er sölugengi 28, nóvember.
Sjólfvirkur símsvari gengisskréningar er 62 32 70.
magnsnúra sem tengd var í lítið
kii'kjulíkan gaf sig og eldur
komst í bómull.
Starfsfólk hringdi strax í
slökkvilið Hafnarfjarðar þegar
brunaviðvömunarkefið fór í gang.
En áður en slökkviliðsmenn komu
á staðinn vora starfsstúlkur búnar
að slökkva eldinn. Þær kæfði hann
með blautum handklæðum. Engar
skemmdir urðu vegna eldsins.
„Stúlkumar bragðust rétt við
og voru slökkviliðsmenn í Hafnar-
firði mjög ánægðir með viðbrögð
þeirra,“ sagði Ingvi J. Victorsson,
umsjónarmaður Vífilsstaðarspít-
ala, í viðtali við Morgunblaðið.
Þess má geta að nýtt brunavið-
vömunarkefi frá Securitas var
tekið í notkun á spítalanum fyrir
jól. „Ég vil þakka því hvað við-
brögð stúlknanna vora góð og rétt,
hvað starfsfólk á Vífisstaðaspítala
var vel upplýst hvengi bregðast
átti við er eldur verður Iaus,“ sagði
Ingvi.
Starfsmenn frá Securitas voru
með námskeið í sambandi við nýja
branaviðvöranarkefið fyrir jól.
Hvernig ætti að bregðast við ef
eldur kæmi upp. Þá hafa menn frá
Slökkviliði Hafnarfjarðar komið
árlega á spítalann og haldið fyrir-
lestra og sýnt starfsfólkinu kvik-
mynd um brunavarnir.
♦ ♦ ----
Matareitrun
á Djúpavogi
SÝNI af gulum maísbaunum og
grænum baunum í dósum frá
ORA hf. eru nú í ræktun hjá
Hollustuvernd ríkisins. Ástæðan
fyrir því er að matareitrun kom
upp á Djúpavogi fyrir jól. Fjög-
urra manna fjölskylda veiktist.
Sýni af baununum og óupptekn-
ar dósir vora sendar til Reykjavík-
ur til ræktunar og einnig vora tek-
in sýni af samskonar baunum í
Reykjavík. Nú er verið að kanna
hvort um afmarkað tilfelli sé um
að ræða.
Fólkið sem varð fyrir þessu var
veikt eina nótt, en var orðið hresst
daginn eftir.