Morgunblaðið - 30.12.1989, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / VINÁTTULANDSLEIKUR
ÍÞRÓTTAMAÐUR ARSINS
Ísland-Noregur
20 : 22
íþróttahúsið Seltjarnamesi, vináttu-
landsleikur í handknattleik, föstudag-
inn 29. desember 1989.
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 4:4, 4:6,
8:6, 10:8, 10:9, 10:10, 13:13, 13:14,
18:18, 18:20, 19:21, 20:21, 20:22.
ísland: Kristján Arason 6, Héðinn Gils-
son 5, Valdimar Grímsson 4, Alfreð
Gíslason 1, Jón Kristjánsson 1, Þorgils
Óttar Mathiesen 1, Jakob Sigurðsson
1, Júlíus Jónasson 1, Gunnar Beinteins-
son, Konráð Olavson, Sigurður Sveins-
son, Sigurður Gunnarsson.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 18
(þar af fímm, er knötturinn fór aftur
til mótherja), Leifur Dagfínnsson.
Utan vallar: Tvær mínútur.
Mörk Noregs: Muffetangen 6, Gjek-
stad 5/1, Bohn 3, Schonfeldt 3, Sando
3, Johnsen 1, Áse 1.
Varin skot: Bmbakken 13/2 (þar af
6/1, er boltinn fór afturtil mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Áhorfendur: Um 400.
Dómarar: David Boker og Avner Zin-
ger frá ísrael.
kém
FOLK
lið C-þjóðarinnar lét mótlætið ekki
á sig fá og sannaði að allt getur
gerst í handbolta.
Vöm íslenska liðsins var oft illa
á verði. Norðmennirnir gerðu lielm-
ing marka sinna með langskotum,
sem menn hefðu í flestum tilfellum
stöðvað miðað við eðlilegan leik.
íslensku strákamir misstu boltann
klaufalega margoft og fengu auk
þess þijú vítaköst, sem ekki nýttust. S»'
Bogdan lét alla spila að þessu
sinni nema Leif markvörð. Alfreð,
Sigurður Gunnarsson og Sigurður
Sveinsson voru reyndar lítið með.
Einar varði vel í markinu, en vörn-
in var ótrúlega götótt og enginn
má við margnum. Kristján, sem lék
allan leikinn að venju, gerði fá mis-
tök og Héðinn reif sig upp úr meðal-
mennskunni og gerði fjögur síðustu
mörk íslands, en aðrir vom frá sínu
besta.
faémtt
FOLK
■ ÍSLAND tapaði 103:92 fyrir
Eistlandi á mótinu í Danmörku í
gærkvöldi. Pétur Guðmundsson
var stigahæstur með 33 stig, en
Guðjón Skúlason skoraði 30 stig. ^
í hálfleik var ísland 10 stigum
undir, 62:52.
■ BOBBY Nimms verður í marki
Tottenham í dag, en Erik
Thorstvedt er enn meiddur. „Ég
hef alltaf sagt að ég er besti mark-
■BBHB vörður Tottenham
Frá og fæ enn tækifæri
Bob til að sýna það,“
Hennessy sagði Nimms.
/ Englandi B BRIAN Clough
stjórnar liði í ensku deildarkeppn-
inni í 1000. sinn í dag, er Notting-
ham Forest sækir Tottenham
heim. Lið hans hafa sigrað 456
sinnum, gert 260 jafntefli og tapað
283 leikjum.
■ CLOUGH hefur boðið Ipswich
800.000 pund fyrir David Lowe, ^
miðherja enska U-21 liðsins. Ips-
wich vill fá 400.000 pund og Lee
Chapman að auki, en hann hefur
gert átta mörk fyrir Forest á tíma-
bilinu.
■ KENNY Dalglish hefur séð um
Liverpool í 182 deildarleikjum,
horft á menn sína sigra 108 sinn-
um, séð 45 jafntefli og aðeins 29
töp.
■ DANNY Wallace verður ekki
með Manchester United í næstu
þremur leikjum vegna meiðsla.
■ ASTON Villa hefur sigrað í
síðustu sjö heimaleikjum. Leikurinn
gegn Arsenal verður í beinni út-
sendingu sjónvarps í Skandinavíu,_
og fær félagið um 350.000 pund
fyrir réttinn og sölu aðgöngumiða.
Fyrir nákvæmlega ári vann Arse-
nal 3:0.
■ MICK Harford verður senni-
lega í bytjunarliði Luton í fyrsta
sinn í sex mánuði. Hann kom inná
sem varamaður gegn Nottingham
Forest um jólin.
■ IAN Andrews, varamarkvörð-
ur Celtic, hefur verið lánaður til
Southampton í einn mánuð.
■ PAUL Goddard gekk frá fé-
lagaskiptum sínum í gær, en of
seint til að fá að leika með Mill- -
wall í dag. Það gerir hann hins
vegar á mánudag og mætir þá
sínum gömlu félögum í Derby.
■ STEVE Morgan, Gary Briggs
og Neil Matthews hafa verið settir
á sölulista hjá Blackpool vegna
ósæmilegrar hegðunar á nætur-
klúbbi um jólin. Að auki þurfa þre-
menningarnir að greiða sekt sem
samsvarar tveggja vikna launum.
GLÆSILEG flugeldasýning var
á KR-velli í gærkvöldi og í sam-
anburði við hana sýndu
íslensku landsliðsstrákarnir í
handknattleik stjörnuljósaleik
á Seltjarnarnesinu — með ör-
litlum, Ijósum undantekning-
um. Norðmennirnir voru hins
vegar ekki á þeim buxunum að
gefa tommu eftir; þeir léku
skynsamlega, nýttu sér kæru-
leysi mótherjanna og sigruðu
með tveggja marka mun, 22:20.
ÆT
Islenska liðið hafði mikla yfir-
burði í fyrri leiknum og sennilega
hafa menn iitið á seinni leikinn sem
formsatriði, ekki síst vegna þess
að þrír af bestu leik-
Steinþór mönnum Noregs,
Guðbjartsson Havang, Kjendalen
skrifar 0g Erland, voru
famir til liða sinna
í Vestur-Þýskalandi. En vængbrotið
Naumt tap gegn
heimsmeisturum
Morgunblaðið/Einar Falur
Alfreð Gíslason fékk óblíðar móttökur þann stutta tíma, sem hann lék, og
gerði aðeins eitt mark.
HEIMSMEISTARAR Portúgal
18 ára og yngri sluppu með
skrekkinn, er þeir unnu ísland
2:1 á alþjóða mótinu í knatt-
spyrnu í tsrael í gær. Reyndar
höfðu Portúgalar mikla yfir-
burði í fyrri háifleik og gerðu
þá tvö mörk, en íslendingar
minnkuðu muninn og voru ná-
lægt því að jaf na undir lokin.
Portúgalir voru aðgangsharðir
fyrsta stundarfjórðunginn og
skoruðu þá bæði mörk sín, á 11.
og 14. mínútu. Um langskot var
að ræða í bæði skiptin, jarðarbolti,
sem fór undir Ólaf Pétursson í
markinu. Hann reyndist meiddur á
fæti og fór af velli skömmu síðar,
en‘ Vilberg Sverrisson tók stöðu
hans.
„Við komumst vel inn í leikinn
eftir hlé og allt annað var að sjá
til strákanna," sagði Sveinn Sveins-
son, fararstjóri, við Morgunblaðið
um seinni hálfleikinn.
Ríkharður Daðason minnkaði
muninn með skalla á 67. mínútu
eftir að Arnar Gunnlaugsson hafði
platað vamarmenn Portúgal upp
úr skónum að sögn Sveins og sent
hnitmiðað á Ríkharð, sem var við
fjærstöng. Eftir þetta sóttu íslend-
ingarnir látlaust og feng-u nokkur
góð færi til að jafna. Ríkharður
fékk besta færið undir lokin, en
varnarmaður náði að bjarga á línu
eftir hornspyrnu.
Arnar Gunnlaugsson og Arnar
Grétarsson léku mjög vel og Steiriar
Guðgeirsson átti ágætis dag, en
enginn sýndi stjörnuleik.
Kýpur vann Sviss 1:0 í gær og
Sovétríkin unnu Pólland 3:1.
Verdlaunagripurinn til sýnis
Samtök íþróttafréttamanna útnefna íþróttamann ársins 1989 á fímmtudag,
4. janúar. Vegsemdinni fylgir glæsilegur verðlaunagripur til varðveislu í
eitt ár. Gripurinn verður til sýnis í innanlandsafgreiðslu Flugleiða á
Reykjavíkurflugvelli fram að kjörinu ásamt nánari upplýsingum um kjörið
undanfarin 33 ár.
■ ARNÞÓR Ragnarsson, SH,
setti íslandsmet í 400 m bringu-
sundi á innanfélagsmóti Vestra í
Sundhöll Reykjavíkur, synti á
5.08,47.
■ ÆVAR Orn Jónsson, SFS,
setti piltamet í 400 m baksundi,
4.42,59.
■ HILDUR Einarsdóttir, KR,
synti 50 m skriðsund á 28,73, sem
er telpnamet.
■ TELPNAS VEITIR KR settu
þrjú met á mótinu; telpnamet í
4x100 m fjórsundi (5.15,67), 4x50
m bringusundi (2.41,53) og í 4x100
m bringusundi (5.53,11). I sveitun-
um voru Berta Hannesdóttir, Eva
H. Egilsdóttir, Hildur Einars-
dóttir, ísold Uggadóttir og
Sigríður Lára Guðmundsdóttir.
■ HEIÐA B. Bjarnadóttir, UM-
FA, hljóp 50 m á 6,4 sekúndum á
innanfélagsmóti Ármanns í Bald-
urshaga í fýrradag og jafnaði þar
með telpnamet Geirlaugar B. Geir-
laugsdóttur, Ármanni. Þetta var
síðasta mót ársins og um leið
síðasta tækifæri Heiðu til að ná
metinu, en hún flyst upp um flokk
eftir áramótin.
■ GEIRLAUG hafnaði í öðru
sæti í hlauþinu á 6,5 sek., og er
óðum að komast í sitt gamla form,
en hún hefur átt við langþráð meiðsl
að stríða. Guðrún Arnardóttir,
UBK, varð í 3. sæti á 6,7 sek..
■ SÚSANNA Helgadóttir, FH,
sigraði í langstökki __kvenna, stökk
5,47 m, en Björg Össurardóttir,
FH, stökk 5,37 m og varð önnur.
Um helgina
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið í knattspymu inn-
anhúss heldur áfram f Laugardalshöll
f dag og verður leikið í 4., 5. og. 6.
flokki. Keppni í 6. flokki hefst kl. 9,
en síðasti leikurinn í dag byrjar kl.
18:09.
Síglingar
í dag heldur Siglingafélagið Ýmir f
Kópavogi mót á Fossvogi, „Áramót
Ýmis“. Sigldar verða tvær umferðir,
kl. 11 og kl. 14. ísleifur Friðriksson,
keppnisstjóri, veitir nánari upplýsingar
(s. 45469/44148).
Gamlárshlaup ÍR
Gamlárshlaup ÍR fer fram á morg-
un, 14. árið í röð. Hlaupið hefst kl. 14
og er hlaupinn um 9,5 km hringur frá
ÍR-húsinu við Túngötu, um Seltjamar-
nes og Vesturbæinn. Hlaupið er öllum
opið. Tekið er við skráningu í síma
28228 og einnig er hægt að skrá sig
á staðnum.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
ísland í 22. sæti í Evrópu
Islenska landsliðið í knattspymu
er í 22. sæti á styrkleikalista
landsliða í Evrópu 1989. Landslið-
ið lék fimm landsleiki, vann einn,
gerði tvö jafntefli og tapaði tveim-
ur.
Belgíumenn voru í efsta sæti
með 1,66 punkt, en síðan komu
Spánveijar, Tékkar og írar með
1,62 punkt, Englendingar (1,54),
Hollendingar og V-Þjóðveijar með
1,50 punkt.
Danir voru í ellefta sæti með
Frökkum með 1,28 punkt. Þau
lönd sem voru fyrir aftan ísland
á styrkleikalistanum eru: Noreg-
ur, Grikkland, Finnland, Sviss,
N-írland, Búigaría, Wales, Malta,
Albanía, Lúxemborg og Kýpur.
Brasilia varð efst á styrkleika-
lista S-Ameríku, en síðan kom
Kolumbía, Uruguay og í fjórða
sæti urðu heimsmeistararnir frá
Argentínu.
KNATTSPYRNA / U-18
Kæruleysi