Morgunblaðið - 30.12.1989, Page 44
-v
Jólaleikrit Utvarpsins
Kl. 16:20
ö ÚTVARPIÐ RÁS 1 Q
FLÓRÍDA^
einmitt núna
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Alvarlegum augn-
áverkum vegna flug-
elda hefúr fjölgað
FIMMTÁN einstaklingar hafa
verið lagðir inn á augndeild
Landakots vegna augnskaða af
völdum flugelda undanfarin tíu
ár. Sjö af þessum slysum urðu
undanfarin tvenn áramót, og hef-
ur enginn þeirra sjúklinga náð
fullri sjón á því auga sem skadd-
aðist, að því er fram kemur í
grein eftir Harald Sigurðsson
augnlækni í blaðinu í dag.
Mun fleiri hafa slasast bæði í
andliti og augum á þessu tímabili,
þá einkum vegna ýmiss konar biys-
bruna, en innlagnar er ekki þörf
nema hjá þeim sem hljóta mikla
! áverka á auga. Yfirleitt eru það
börn og unglingar sem slasast af
þessum völdum, og tveir þriðju af
þessum hópi voru fjórtán ára eða
yngri.
Fimm slys urðu af völdum flug-
elda áramótin 1987-1988 og tvö
um síðustu áramót. Það sem grein-
ir þessi sjö tilfelli frá þeim átta sem
urðu á árunum 1978-1987 er
hversu alvarleg þau eru. Eitt auga
þurfti að fjarlægja, eitt er alblint,
þijú sjá vart fyrirsagnir í biöðum
og tvö hafa í kringum 50% sjón.
Sjá grein Haralds bls. 14.
Milt ára-
mótaveður
ALLT bendir til að milt veður
verði um áramótin. Suðaustanátt
verður um allt land. Strekkings-
vindur verður á gamlársdag, en
mun hægari vindar á nýársdag.
Ný lægð er i uppsiglingu sunnan
til á Grænlandshafi og mun hún
blása heitu lofti yfir landið um
helgma.
Þjóðvegir eru víðast greiðfærir
um landið, en nokkur hálka er þó
í einstökum iandshlutum
.Dísilolía hækkar
um 30% um áramót
VERÐ á disilolíu hækkar um 30%
um áramót vegna virðisauka-
skatts og hækkana erlendis.
Lítrinn kostar nú 17,30 krónur
og hækkar því í um 22,50 krónur
við verðbreytinguna. Utsöluverð
á bensíni lækkar hins vegar um
0,5%, eða úr 49,90 krónum í 49,20
hver lítri.
Virðisaukaskattur leggst á allar
oiíuvörur, einnig þær sem ekki hafa
borið söluskatt. Þar á meðal eru
dísilolía, gasolía og svartoiía.
Kostnaðarauki vegna þessa verð-
ur ekki afgerandi fyrir fyrirtæki,
sem geta dregið skattinn frá sem
innskatt af aðföngum. Til dæmis
verður virðisaukaskattur á gasolíu
ekki íþyngjandi fyrir útgerðina, að
sögn Kristjáns Ragnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Landssambands
íslenskra útvegsmanna.
Sveitarfélög og einstaklingar,
sem þurfa að kaupa dísilolíu, bera
hins vegar aukinn kostnað sem
nemur skattinum. Til dæmis áætlar
stjóm Strætisvagna Reykjavíkur að
eldsneytiskostnaður aukist um 8,3
milljónir króna á næsta ári vegna
virðisaukaskattsins.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Safhað í áramótabrennu
Leyfi hefur verið veitt fyrir tveimur áramótabrennum á Akur-
eyri. Önnur verður ofan Hlíðarbrautar og á myndinni eru knáir
piltar sem voru að koma þar rusli fyrir. Frá vinstri á myndinni
eru Róbert, Konráð, Gerald, Fjalar og Rúnar.
Rey kj avíkurborg:
Viðræður
um mögu-
leg kaup á
Vatnsenda
Dugir fyrir 15-20
þús. manna byggð
Reykjavíkurborg hefur átt í
viðræðum um hugsanleg kaup
á Vatnsendalandi, ofan við
Reykjavík. Davíð Oddsson borg-
arstjóri segir að á þessi svæði
sé hægt að skipuleggja 15-
20.000 manna byggð.
Um er að ræða 5-600 hektara
svæði, og Davíð Oddsson sagði við
Morgunblaðið, að ef af þessum
kaupum yrði, væri það gífurlegur
fengur fyrir borgina. Hins vegar
væru viðræður um landakaupin
enn á byijunarstigi.
Að auki væri Vatnsendaland í
lögsögu Kópavogsbæjar sem hefði
forkaupsrétt að landinu og því
gæti Kópavogur kosið að ganga
inn í þau kaup ef samningar tækj-
ust.
Davíð vildi ekki upplýsa hvaða
verðhugmyndir væru um landið,
en sagði að málið hefði verið kynnt
í borgarráði sem trúnaðarmál.
Ríkisábyrgð til Stöðvar 2 úr sögunni:
Ríkisstj órnin bauð yfirlýsingu -
Verzlunarbankinn krafðist laga
Andstaða í stj ómarflokkum við ríkisábyrgð
Ríkisábyrgð fyrir erlendu láni
til Stöðvar 2 er úr sögunni. Ríkis-
stjórnin skýrði Verzlunarbankan-
um, aðalviðskiptabanka sjón-
varpsstöðvarinnar, frá því í gær,
að hún væri reiðubúin tii þess að
gefa bankanum yfirlýsingu þess
eftiis, að hún mundi leggja fyrir
Alþingi lagafrumvarp um ríkis-
ábyrgð vegna fyrirtækisins. Ekki
var rætt um sérstaka upphæð í
því sambandi. Verzlunarbankinn
lýsti því þá yfír, að slík yfírlýsing
dygði ekki og gerði kröfú um
bráðabirgðalög vegna þessarar
ábyrgðar en Alþingi kemur ekki
saman fyrr en i lok janúar. Ríkis-
stjórnin var ekki tilbúin til þess
að fallast á þá kröfu. Skömmu eft-
ir miðnætti í nótt voru fúlltrúar
Stöðvar 2 boðaðir til fúndar við
sérfræðinga ríkissljórnarinnar.
Morgunblaðinu var ekki kunnugt
um tilefiii þess fúndar.
Ein ástæða þess að ríkisstjórnin
vildi ekki fallast á bráðabirgðalög
er sú, að þegar í gærmorgun höfðu
ýmsir þingmenn stjómarflokkanna
samband við ráðherra og lýstu and-
stöðu við ríkisábyrgð vegna Stöðvar
2.
Verzlunarbankinn hefur lagt
áherzlu á, að málefni stöðvarinnar
Landsbankiim býður 605 millj-
ónir í 52% Samvinnubankans
Engir fyrirvarar um töpuð útlán eða eftirlaunaskuldbindingar
Á FUNDI bankaráðs og banka-
stjómar Landsbanka íslands, sem
stóð frá kl. 10 í gærmorgun og
fram undir kvöld, var samþykkt
að gera Sambandi ísl. samvinnufé-
laga tilboð um að kaupa 52% eign-
arhlut þess í Samvinnubanka ís-
lands hf. fyrir 605 milfjónir króna
án nokkurra fyrirvara. í því felst,
að Landsbankinn tekur jaftiframt
á sig, sem þessum eignarhlut nem-
ur, hugsanlegar eftirlaunaskuld-
bindingar Samvinnubankans, sem
talið er að geti numið um 120
milfjónum króna og áætluð töpuð
útlán, sem talið er að geti numið
124 milfjónum króna. Loks felst í
þessu tilboði, að Landsbankinn
tekur við fasteignum Samvinnu-
bankans á bókfærðu verði þeirra,
sem er 189 milljónum króna hærra
en ef beitt hefði verið sömu reglu
og notuð var við sölu Útvegs-
bankans.
í samkomulagi því, sem Sverrir
Hermannsson, bankastjóri, og Guð-
jón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, undir-
rituðu sl. haust um kaupin á Sam-
vinnubankanum var gert ráð fyrir,
að kaupverðið yrði 828 miHjónir
króna en þá voru gerðir fyrirvarar
af hálfu Landsbankans um ofan-
greinda útgjaldaliði. Ef þeir lenda
að fullu á Landsbankanum sam-
kvæmt ofangreindum tölum er tilboð
bankans nú heldur hærra en síðast-
liðið haust. Ef þeir lækka umtalsvert
er tilboð Landsbankans nú lægra en
sl. haust.
Jafnframt felst í þessu tilboði
Landsbankans, að 605 milljónir
króna verða viðmiðun við kaup á
þeim 48% í Samvinnubankanum, sem
eru í eign annarra en SÍS, svo sem
KEA og KRON og fleiri aðila. Sverr-
ir Hermannsson, bankastjóri Lands-
bankans, vildi ekkert segja um niður-
stöðu þessa fundar og Guðjón B.
Ólafsson, forstjóri SÍS, sagði að
stjóm Sambands ísl. samvinnufélaga
mundi ekki taka tilboð Landsbankans
til umræðu og ákvörðunar fyrr en f
næstu viku.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var bankaráðsfundurinn
sviptingasamur og kom m.a. til
harðra orðaskipta milli Sverris Her-
mannssonar, bankastjóra, og
Lúðvíks Jósepssonar, bankaráðs-
manns. Tilboðið til Sambandsins var
hins vegar samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum bankaráðs-
manna.
verði leyst fyrir áramót og í því
felst, að eigendur Stöðvar 2 leggi
fram fullnægjandi veð fyrir skuld-
bindingum fyrirtækisins eða aðra
lausn á vandamálum þess í dag eða
á morgun.
Á fundi, sem forráðamenn Stöðv-
ar 2 áttu með ráðherrum síðdegis
í gær, var reifaður sá möguleiki,
að rikisstjórnin kæmi til aðstoðar
fyrirtækinu með aðild Hlutafjár-
sjóðs að því og jafnvel með ein-
hverri aðstoð Atvinnutryggingar-
sjóðs. Steingrfmur Hermannsson,
forsætisráðherra neitaði því í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi,
að þessi leið væri í athugun og sagði
að hún stæðist ekki lögum sam-
kvæmt. Helgi G. Þórðarson vara-
formaður stjórnar Hlutafjársjóðs
sagði við Morgunblaðið að setja
þyrfti alveg nýjar reglur um sjóðinn
ef sjóðsstjóm ætti að taka slíka ósk
til afgreiðslu.
Steingrímur Hermannsson sagði
að rætt hefði verið um í gær að
ríkið veitti ábyrgð fyrir láni að upp-
hæð 190 milljónír króna. Hann
sagði að formenn ríkisstjómar-
flokkanna hefðu rætt þetta mál í
gær en ekki treyst sér til að verða
við kröfu Verzlunarbankans um
bráðabirgðalög, enda væri erfitt að
rökstyðja nauðsyn þess að setja
bráðabirgðalög f þessu skyni.
í stjómarskránni segir um bráða-
birgðalög, að þau megi gefa út
milli þinga þegar brýna nauðsyn
beri tll. Ekki megi þó gefa út bráða-
birgðalög ef Alþingi hafi samþykkt
fjárlög fyrír fjárhagstimabilið.