Morgunblaðið - 30.01.1990, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ: ÞRIÐJUDAGUR 30; JANÚAR 1990
fclk f
fréttum
MANNASIÐIR
Heilsað að hætti
frumbyggja
HOLIYWOOD
LeikurRonald
Reagan í Batman 2?
Ronald Reagan fyrrum Banda-
ríkjaforseti hefur verið eins
og fló á skinni þessa mánuði sem
liðnir eru síðan að hann dró sig í
hlé og George Bush tók við. Hann
eirir hvergi heldur þeytist heims-
, homa á milli, heldur ræður og seg-
ir brandara og þiggur himinháar
fúlgur fyrir. Er haft fyrir satt, að
forsetalaunin hafi verið smápening-
ar hjá því sem hann rakar saman
nú.
En annars er mikið talað um það
vestur í Bandaríkjunum, að Reag-
an, sem er fyrrum Hollywood-leik-
ari, hyggi ef til vill á endurkomu,
eða „come back“ eins og Kaninn
kallar það. Reagan hefur ávallt
elskað sviðsijósið og þótt bráð-
Ronald Reagan veifar til aðdá-
enda fyrir nokkru, en frú Nancy
stendur felmtri slegin fyrir aftan
bónda sinn og minnir hann á að
hylja skalla sinn. Skallinn er
vegna geislameðferðar.
skemmtilegur karl, ekki síst í for-
setatíð sinni er hann gat slegið á
létta strengi undir flestum kring-
umstæðum, jafn vel um hin alvar-
legustu mál. Það þætti því fáum
ótrúlegt að hann vildi ekki gjarnan
leika í einni eða tveimur kvikmynd-
um, ekki virðist skorta starfsorkuna
og hefur jafnvel geislameðferð við
heilaæxli ekki hægt á honum. Orð-
rómur er á kreiki um að það verði
engin smámynd sem Reagan muni
koma fram í, ef hann afræður það,
engin önnur en „Batman 2“, en
vitað er að framleiðendur fyrri
myndarinnar, sem sló aðsóknarmet
í Bandaríkjunum, hafa lagt hart að
honum og boðið gull og græna
skóga...
/ /
FERÐ AM ALAR AÐ STEFN A
Á EGILSSTÖÐUM
16. og 17. febrúar 1990
Dagskrá
Föstudag ur 16. febrúar:
O o 5 Ráðstefnan sett: Kristín Halldórsdóttir, formaður. Ávarp Steingríms J. Sigftíssonar, samgönguráðherra.
Kl. 11:30 Framsöguerindi: a) Fræðslumál og menntun. b) Uppbygging ferðaþjónustu í dreifliýli.
Kl. 13:00 Kynning ferðamálanefndar samgönguráðu- neytisins á störfum nefndarinnar. a) Framsaga formanns nefndarinnar Hjörleifs Guttormssonar. b) Nefndarmenn kynna hugmyndir og sitja fyrir svörum. c) Skoðanaskipti og fyrirspumir.
Kl. 15:00 Ráðstefnugestir hefja umræður I 6 starfs- hópum.
Laugardagur 17. febrúar:
Kl. 09730 Starfshópar ljúka umræðum og ganga frá niðurstöðum og álitsgerðum.
Kl. 13:00 Niðurstöður hópa kynntar og ræddar. Gengið frá tillögum og álitsgerðum.
Kl. 17:00 Ráðstefnuslit: Kristín Halldórsdóttir, for- maður.
Reiknað er með aukaflugi frá Reykjavík til Egilsstaða fimmtu- daginn 15. febrúar kl. 17:15, fbstudaginn 16, febrúar kl, 08:30 og frá Egilsstöðum til Reykjavíkur 18. febrtíar kl. 12:00. Flug-
leiðir munu veita ráðstefnugestum 50% afslátt af flugfargjald-
inu. Panta skal far hjá Flugleiðum en þátttaka tilkynnist til Sigurborgar Kr. Hannesdóttur, Hótel Valaskjálf.
Feróamálaráöislands
árjS
Einhell
vandaöar vörur
w.
ARGON-
SUÐUVÉL
SGA 142
Kr. 23.696,-
Skeljungsbúðin
Síðumúla 33
símar 681722 og 38125
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Menn eru misjafnir og sinn er
siður í hveiju landi,“ sagði
djúp vitur spek ingur einhverju sinni
og fáir efast víst um gildi þessara
vísdómsorða. Stjómmálamenn og
konungborið fólk þurfa ekki síst að
vera meðvitað um þessa óvefengj-
^nlegu staðreynd mannlegs lífs og
raunar er það svo að til er sérstök
stétt manna, siðameistarar, sem
m.a. annast undirbúning opinberra
heimsókna og sjá um að allt fari
fram eftir settum reglum. Á dögun-
um fór fram setningarhátíð Sam-
veldisleikannna í Auckland á Nýja-
Sjálandi og var þar mættur Játvarð-
ur prins, fulltrúi Bretlandsdrottn-
ingar. Siðameistarinn hafði sýni-
lega sinnt starfi sínu af dæmafárri
samviskusemi því Játvarður heilsaði
fulltrúa frumbyggja, sem nefnast
Maoríar, að hætti þeirra og neru
þeir prinsinn og frumbygginn, Sir
Hugh Kawaharu, saman nefjum
drykklanga stund. Um tíu prósent
íbúa Nýja-Sjálands munu vera Ma-
oríar. Þess má geta, þó það komi
þessu máli nákvæmlega ekkert við,
að söngkonan fræga Kiri Tekanawa
er Maoríi en nýverið söng hún fyrir
rúmlega 100.000 manns í heima-
landi sínu og munu það vera fjöl-
mennustu klassísku tónleikar sög-
unnar.
Reuter
Staðlarád íslands og Háskóli íslands
boða til kynningarfundar um
samræmingu hugbúnaðar
í flskvinnslu
miðvikudaginn 31. janúar kl. 16.30 til 17.30 í
veitingastofu Tæknigarðs, Dunhaga 5.
Dagskrá fundarins:
Fundarstjóri: Páll Jensson, prófessor, verkfræði-
deild HÍ.
Stöðlun á sviði upplýsi ngatækni: Þorvarður Kári
Ólafsson, UT-staðlaráði.
Samræming hugbunaðar ífiskvinnslu, niðurstöð-
ur verkefnisins: Snprri Agnarsson, prófessor,
tölvunarfræðiskor HÍ.
Umræður.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.