Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990 Nýtt álver á íslandi: A Akvörðun Alumax imian tveggja vikna Líst vel á málið, segir aðalforstjóri Alumax Beverwijk í Hollandi. Frá Kristófer Má FYRSTA fundi fulltrúa banda- ríska fyrirtækisins Alumax með fulltrúum hollenska fyrirtækisins Hoogovens og sænska fyrirtækis- Þýzkur ráð- herra kynnir sér æðarrækt VESTUR þýzki umhverfis- málaráðherrann dr. Klaus Töpfer hefúr þekkzt boð Júl- íusar Sólnes hagstofuráðherra um að heimsækja Island og kynna sér m.a. æðarrækt. í fréttatilkynningu frá hag- stofuráðherra segir að dr. Töpfer hafí hlutazt til um að fá farsæla lausn á deilumáli íslenzkra æðar- dúnsútflytjenda og þýzkra toll- embættismanna. Hann og Júlíus Sólnes ræddu þetta mál á fundi í Frankfurt í desember sl. Kristínssyni fréttaritara Morgunblaðsins. ins Gránges um mögulega sam- vinnu þessara fyrirtækja við byggingu nýs álvers á Islandi lauk í Hollandi í gær. Fundinn sátu jafnframt fúlltrúar íslensku álviðræðunefíidarinnar. Jóhannes Nordal formaður nefndarinnar sagði að of snemmt væri að spá um niðurstöður við- ræðnanna eftir þennan fyrsta fund en ekki virtist ástæða til annars en bjartsýni. Umræður á fundinum hefðu verið jákvæðar og gagnlegar. I sama streng tók Paul Drack aðal- forstjóri Alumax. Hann sagði að sér litist vel á málið en nú lægi fyrir að skoða það betur og ákvörðun yrði tekin innan viku eða hálfs mánaðar. Hann sagðist búast við að næsti fundur yrði haldinn á ís- Iandi innan þriggja vikna. Reiknað er með að eignarhald álfyrirtækj- anna þriggja verði svipað en Paul Drack sagði að Alumax myndi leggja áherslu á a.m.k. þriðjung í hinu nýja fyrirtæki ef saman gengi. STJÓRNENDUR útibús PK-bank- ans í Bergen hafa fallizt á að Andri BA verði gerður út á kolavinnslu og frystingu undan ströndum Al- aska. Ákvörðunin var tekin eftir fund stjórnarformanns og fram- kvæmdastjóra útgerðarfélagsins og fúlltrúa bankans í Noregi í gær. Stjórn útgerðarinnar fundar í dag og tekur endanlega ákvörðun um framhaldið. Skipið hefur þvi ekki hafið vinnslu, en hefur leyfí til henn- ar. Einnig er talinn möguleiki á því að um einhveija þorskvinnslu geti orðið að ræða síðar á árinu. PK-bankinn er fyrrverandi eigandi Andra og á í skipinu veð fyrir lánum. í Ijósi breyttra aðstæðna er hugsan- legt að um aukið áhættufé verði að ræða af hálfu bankans, að sögn Haralds Haraldssonar stjómarfor- manns íslenska úthafsútgerðarfé- lagsins. Haraldur sagði í gærkvöldi að vonazt væri til að tekjumar af kolavinnslu Andra nægðu fyrir kostnaði við vinnsluna. Hins vegar nægðu þær ekki fyrir afborgunum og því borgaði vinnslan sig ekki til lengdar. „Við teljum að íslenzk stjómvöld eigi að þiýsta á að Andri BA fái heimild til þorskvinnslu við Alaska. Það er mikilvægt fyrir íslenzkt þjóð- félag að fá auknar þjóðartekjur," sagði Haraldur. Hann sagði að ijár- festingin í skipinu væri um 40 Bandaríkjadalir eða um 2.400 krónur á hvern Islending. Það hlyti að hafa áhrif á bandarísk stjórnvöld að ef Bandaríkjamenn fjárfestu fyrir jafn háa fjárhæð á mann væri fjárfesting þeirra um 10 milljarðar dala eða um 600 milljarðar króna. PK-bankinn samþykkir kolavinnslu Andra BA Morgunblaðið/Ami Sæberg Bridshátíð hófst ígærkvöldi Bridshátíð var sett á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi kl. 20. Fyrri hluti mótsins er tvímenningskeppni með þátttöku 48 para. Sex erlend pör taka þátt í hátíðinni. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, setti mótið og sagði fyrstu sögnina fyrir José Damiani forseta Evrópubrids- sambandsins, sem er meðal þátttakenda. Bak við er Helgi Jóhannsson forseti Bridssambands íslands. Amarflug innanlands: Stefiiir í 25 millj. hluta- fjáraukniiigii NÚ STEFNIR í að hlutafé í Arnar- flugi innanlands verði aukið um 25 milljónir króna, úr 10 í 35 millj- ónir. Kristinn Sigtryggsson for- stjóri Arnarflugs hf. segir að end- anlega verði gengið frá málinu um eða upp úr helgi. Amarflug hf. á nú langstærstan hlut í Amarflugi innanlands. Kristinn Sigtryggsson segir að þeir sem standi bak við tilboð um hlutafjáraukningu séu nokkrir hluthafar og stjómar- menn í Amarflugi hf. auk aðila af landsbyggðinni og starfsfólks Amar- flugs hf. Hann segir að þorri aukins hlutaijár í Arnarflugi innanlands komi þó frá fáum aðilum ef af verð- ur. Þess vegna sé ekki um að ræða að fyrirtækin tvö sameinist á nýjan leik. Flugtak á Akureyri dró tilboð í Arnarflug innanlands til baka í vik- unni, þegar ljóst varð að stjómendur og starfsfólk Amarflugs hf. vildu líka kaupa. Skúli Ágústsson hjá Flugtaki segir að fyrirtækinu hafí verið boðið að taka þátt í tilboði frá Kristni Sig- fryggssyni. Herði Einarssyni og starfsfólki Amarflugs hf. Því hafi Flugtaksmenn hafnað, enda hafí þeir viljað standa einir að kaupunum og tilboð starfsfólksins hafí verið nokkr- um milljónum hærra en það sem þeir gerðu. Ríkisstjórnin: Siglufjörður: Játaði fjög- ur innbrot LÖGREGLAN í Siglufirði hefúr upplýst fjögur innbrot. Þrjú þeirra voru framin aðfaranótt fimmtudags, en það fjórða í lok nóvember á síðasta ári. Við yfir- heyrslur gekkst maður um tvítugt við innbrotunum. Maðurinn braust inn í útibú Út- vegsbankans 28. nóvember og hafði á brott nokkur þúsund krónur, auk vindla. Aðfaranótt fímmtudags braust hann inn í byggingu við flug- völlinn og í tvo skála á skíðasvæðinu og stal smámynt og talstöð. Eftir að játning hans lá fyrir var honum sleppt úr haldi. Innbrotin vora öll framin um hánótt, þegar lögreglan var ekki á vakt. Niðurskurðurinn verður um einn milljarður króna EKKI tókst að afgreiða tillögur Ólafs Ragnars Gímssonar, fjár- málaráðherra, um 1.200 miHj- óna króna niðurskurð ríkisút- gjalda á þessu ári, á ríkisstjórn- arfúndi í gær. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins er enn talsverður ágreiningur í ríkis- stjórninni um með hvaða hætti ríkisútgjöld skuli skorin niður, en líklegt þykir þó að á ríkis- sljórnarfúndi á þriðjudag fáist niðurstaða í málið og ákveðinn verði niðurskurður sem nemi um einum milljarði króna. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að nokkuð vel hefði miðað á fundinum í gær- morgun og hann reiknaði með nið- urstöðu í málinu á þriðjudag. Hann sagðist ekki vilja ræða málið að öðru leyti á þessu stigi. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru það einkum flokks- bræður fjármálaráðherra, þeir Steingrímur J. Sigfússon, sam- göngu- og landbúnaðarráðherra, og Svavar Gestsson, menntamála- ráðherra, sem hafa snúist öndverð- ir gegn ákveðnum tillögum fjár- málaráðherra, sem snerta þeirra málaflokka. Ráðherrar Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks munu í megindráttum styðja tillögur fjár- málaráðherrans. Ríkisstjómin mun telja það nægjanlegt að skera ríkisútgjöld niður um einn milljarð króna, þar sem talið er að kostnaðarauki ríkis- sjóðs vegna nýgerðra kjarasamn- inga nemi um 980 milljónum króna. Listaverkagjöf Errós: Ráðuneytið óskar upplýs- inga um tilefiii gjafarinnar Áföllin komu mjög óvænt - sagði Sigfus Harðarson hafhsögumaður „VIÐ vorum búnir að fara tvisvar út fyrir ós um daginn. Þá var veður og sjór mjög þokkalegt, þannig að þessi áfoll komu mjög óvænt,“ sagði Sigfús Harðarson, aðspurður um slysið við Hornafjarðarós í fyrrakvöld, er Ióðsbáturinn Björn Lóðs fékk á sig brot og sökk. „Eftir fyrsta brotið keyrði ég upp að Keflvíkingi og hafði skjól af honum, en svo riðu fleiri sjóir yfir báða bátana og lóðsbátinn hrakti frá. Þá bakkaði ég iíka til að bátarnir skyllu ekki harka- lega saman og þá mun tóg hafa farið í skrúfuna og báturinn varð stjórnlaus. En Keflvíkingur kom strax upp að mér og náðu strák- amir að fleygja til mín bjarg- hring, sem ég komst í og þeir drógu mig strax um borð. Þetta er í fyrsta sinn sem ég lendi í sjónum við þessi störf mín,“ sagði Sigfús. Jón Eyfjörð, skipstjóri á Keflavíkingi, sem var að fylla sig af loðnu við Stokksnes, er Morg- unblaðið hafði samband við hann í gær, sagði að lóðsbáturinn hefði skyndilega orðið stjómlaus. „Leikurinn barst upp í Qöru og gengu ólög yfír. Við náðum hon- um á síðustu stundu, en vorum þá komnir í stórhættu — vorum komnir svo nálægt landi. Þetta leit illa út á tímabili og við mátt- um þakka fyrir að ná honum á síðustu sekúndunum. Síðan var erfítt að koma bátnum frá, við fengum ólög, en það hafðist." Sigfús maður. Morgunblaðið/Jón Gunnar Harðarson hafíisögu- Fjármálaráðuneytið hefúr óskað eftir upplýsinguin um af hvaða tilefni listamaðurinn Erró gefúr Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum bréf, ljósmyndir, bæklinga og listaverk eftir að ráðuneytið synjaði beiðni safhsins um nið- urfellingu á virðisaukaskatti, sem lagður hefúr verið á gjöf- ina. í bréfí ráðuneytisins segir: „Ráðuneytið fer þess á leit við safnið að það leggi fram greina- góðar upplýsingar um það af hvaða tilefni munir þessir eru gefnir safninu, hvort allir þessir munir eru gjöf af viðkomandi til- efni til safnsins og einnig um hvaða muni er nákvæmlega að ræða.“ Ennfremur er farið fram á að rétt aðflutningsskjöl fylgi beiðn- inni, því samkvæmt aðflutnings- skýrslum, sem fylgdu beiðni flutn- ingafyrirtækisins, er sér um flutn- inga fyrir safnið, er eingöngu get- ið um ljósmyndir, en í beiðni Kjar- valsstaða til ráðuneytisins er þeirra ekki getið. Að fengnum þessum upplýsing- lim mun ráðuneytið en.durskpða afstöðu sína til beiðni um niðurfell- ingu á virðisaukaskatti á gjöf Err- ós til Reykjavíkurborgar. Hagkaup: 40 kærðir fyrir hnupl FJÖRUTIU manns hafa verið staðnir að hnupli í Hagkaupum í Kringlunni frá áramótum. Atvikin hafa verið kærð til lögreglu. í vikunni vora tvær stúlkur staðn- ar að því að stela snyrtivörum og nærfötum í Hagkaupum. í fóram þeirra fannst skyrta og bolur sem þær höfðu hnuplað úr öðrum verslun- um í húsinu. Þá vora tvær 16 ára stúlkur kærðar til lögreglu fyrir að stela eintaki af „Kristnihaldi undir Jökli,“ eftir Halldór Laxness, úr Kaupstað við Mjódd. Loks var 14 ára piltur staðinn að þjófnaði á seðla- veski úr búningsklefa í Sundlaugun- um í Laugardal. Við yfirheyrslur hjá lögreglu játaði hann einnig að hafa stolið armbandsúri sem hann gekk með á sér. Pilturinn var vistaður á _ U ngl injgahej mili„ ríkisi n s.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.