Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 7
Borgar stj órnar- kosningarnar: A-listinn líklega boð- inn fram í Reykjavík „VIÐ höldum væntanlega okkar striki og prófkjör Alþýðuflokks- ins í Reykjavík verði opið, óflokksbundnir hafí einnig kjör- gengi og verkefiiaskrá Málefiia- listans verði borgarmálastefiiu- skrá Alþýðuflokksins." Þetta seg- ir Birgir Dýrfjörð, formaður full- trúaráðs Alþýðuflokksins í Reykjavík, um framvindu mála þegar ljóst er orðið að Birting leggur Málefiialistanum ekki lið fyrir borgarstjómarkosningar. Birgir telur líklegt að A-listinn verði boðinn fram og hætt 'við Málefiialistann. Stjórn fulltrúaráðs Alþýðuflokks- félaganna í Reykjavík kemur saman nú um helgina. Birgir Dýrfjörð kveðst ætla að leggja til á fundinum að þijú ofangreind atriði verði sam- þykkt og síðar borin undir almennan fund Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík eða fulltrúaráðið. „Mér sýnist líklegt að boðið verði fram undir merkjum A-listans, en ekki Málefnalistans," segir Birgir. „Upp úr miðri vikunni höfðu nokkrir einstaklingar samband og lýstu áhuga á samstarfi þar sem Alþýðu- bandalagið væri komið út úr mynd- inni. En nú þarf að gefa þessum málum tíma, rúm vika líður að líkindum áður en línur hafa skýrst nægilegatil að taka megi ákvörðun." Kjartan Valgarðsson, formaður Birtingar, segist ekkert geta sagt um hvort einstakir liðsmenn Birting- ar muni ganga til samstarfs við Al- þýðuflokkinn. „Birting ákvað í vik- unni að hætta að sinni afskiptum af framboðsmálum. Við viljum hins vegar ekki loka neinum dyrum, það getur ýmislegt gerst fram að kosn- ingum.“ Myndir barna í Listasafhinu KENNURUM barna og unglinga í skólum landsins hefiir verið boðið að kynna verk ncmenda sinna í fyrirlestrarsal Listasafiis Islands og ríður barnadeild Myndlista- og handíðaskóla ís- lands á vaðið. Sýning á verkum nemenda verður opnuð í dag, laugardag, klukkan 14 og þá verður jafnframt farið með börnin um einn sal safnsins og verk- in útskýrð fyrir þeim. Fjallað verður um abstrakt list og verður þema dagskrárinnar Tónlist fyrír augun — litir og form fyrír eyrun. Þá verður verður kynningar- og umræðufundur um börn og myndlist laugardaginn 24. febrúar klukkan 14. Fundurinn er öllum opinn. Síðasti skila- dagur skatt- framtals í dag SÍÐASTI dagur til að skila skatt- framtölum er í dag, og rennur íresturinn út á miðnætti. Að sögn Ingvars Rögnvaldssonar, skrifstofustjóra Skattstofunnar í Reykjavík, hefur þegar borist tölu- vert af framtölum til skattstofunnar. Hann kvaðst eiga von á að flestir sem ættu eftir að skila framtölum sínum myndu gera það seinnipartinn í dag og í kvöld, en það væri mjög svipað og verið hefði undanfarin ár. „Við eigum því von á þessari hefð- bundnu biðröð við póstlúgu skatt- stofunnar í kvöld.“ ttaplöntuímeð 30% afslætti íið í Blómaval og gerið góð kaup Síðustu dugar útsölunnar noor q a t T q RrJrJJ morgunblauið , i itrif tqt/^t^í(í\\r TOPP TUTTU6U 1. (2) BETRAYED 2. (1) WORKING GIRL 3. (-) POLICE ACADEMY 6 4. (8) MY STEPMOTHERIS AN ALIEN 5. (5) CROSSING DELANCEY 6. (4) BARON MUNCHAUSEN 7. (6) WITHOUT A CLUE 8. (3) HERALIBI 9. (11) THROW-AWAY WIFES 10. (10) GUNRUNNER 11. (9) SPELLBINDER 12. (13) BL00DSP0RT 13. (7) NAKEDGUN 14. (-) CANNONBALL FEVER 15. (14) ACRYINTHEDARK 16. (-) DEADHEAT 17. (-) TRAPPER COUNTY WAR 18. (-) TORCH SONG TRILOGY 19. (12) THREE FUGITIVES 20. (20) RAIN MAN MYNDIR SEM EIMGIINIIM MÁ MISSA AF Ef róðsettar ráðskonur ætla að ráða ráðum sínum í ráðríkri um að ráðast með ráðum og dáðum á ráðherra... er gott ráð að kynna sér málið fyrst á myndbandi. A myndbandaleigum Steina hf. fást myndir um ráðskonur, ráðábrugg, ráðningar og ráð- herra, ásamt aragrúa kvikmynda um allt milli himins og jarðar. Myndbandaleigur Steina hf. njóta mikillar sérstöðu vegna greinargóðra merkinga mynda og fjölda verðflokka. Það hlýtur einnig að teljast mjög mikill kostur fyrir myndbandaunnendur að geta fengið myndirnar þegar þeim hent- ar, og varla ókostur að geta skilað þeim á fjórum stöðum, í Mjódd, Skipholti, Austurstræti eða í Hafn- arfirði. Eins og góðri myndbanda- leigu sæmir leigjum við út mynd bandstæki. Hjá okkur heitir þetta sjálfsögó iþjónusta. CROSSING DELINCY TWIN PEÍKS RikkyandPete tvv POLICE ACADEMY Þau eru nefnd mestu mistök lögregluskólans. Áfram halda þau að berjast á móti órétt- læti og misgjörðum með drep- fyndnum aðferðum. Þú deyrð hugsanlega úr hlátri, en hvern á að handtaka fyrir morðið. U APPRENTICE TO MURDER Spennumynd um lækni, sem beitir sömu aðferðum og kol- legar hans á miðöldum. Don- ald Sutherland ferst vel úr hendi hlutverk læknisins og sýnir afburðaleik. Rob Lowe þarf ekki að skammast sín fyr- ir Chad bróður sinn, sem sýnir hér snilldartakta. mmf KISS OF THE ^^SPIDER WOMAN Loksins er þessi stórmynd fá- anleg á íslandi. Hér er fléttað saman á meistaralegan hátt raunverleika og draumórum. William Hurt hlaut óskarinn fyrir leik sinn í þessari spenn- andi og dulúðugu mynd. Væntanleg 12. febrúar. VI RIKKY AND PETE Jarðfræðingurinn Rikky eyðir öllum stundum til að fá útrás fyrir miklar tónlistagáfur. Bróð- ir hennar, sérvitringurinn Pete er upptekinn af gagnlausum uppfinningum. Þrælmögnuð gamanmynd um ótrúlegar af- leiðingar skemmtilegra uppá- tækja. Ellie og Janice þurfa að stand- ast erfitt próf sem á að skera úr um það hvort konur standi jafnfætis karlmönnum. Það verður að segjast að líkamleg- ar og bóklegar úrlausnir próf- verkefna þeirra fái hvern mann til að skella upp úr svo um munar. Framleidd af leikstjóra Twins og Ghostbusters. Væntanleg 12. febrúar. myndirnar fást myndbandaleigur Álfabakka14 Austurstræti 22 Reykjavíkurvegi 64 Skipholti 9 sími79050 sími28319 sími651425 sími 626171

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.