Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 10
10 -U- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FKBRÚAR 1090---- Rut Rebekka sýnir í Noregi MYNDLISTARKONAN Rut Re- bekka Sigurjónsdóttir opnar einkasýningu i bænum Hamar í Noregi í dag laugardag. Það er menningarmálanefnd bæjar- ins, sem er skammt austur af Ósló, sem bauð Rut Rebekku að halda þessa sýningu. Frá þessu var skýrt í Hamar Ar- beiderblad nýlega. Rut Rebekka hefur haldið tvær einkasýningar á Kjarvalsstöðum, síðast 1988, og í Gammelstrand galleri í Kaupmannahöfn á síðasta ári. Auk þess hefur hún tekið þátt í samsýningu á Aker brygge í Noregi. Rut Rebekka nam málaralist í Mynd- og handíðaskóla Islands. Hún mun sýna 35 olíu-, grafík- og vatnslitamyndir sem unnar voru á síðasta ári. LARUS Þ. VALDIMARSSOIM framkvæmdastjóri EINAR ÞÓRISSON LONG, SÖLUMAÐUR KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggilturfasteignasali Til sölu eru að koma meðal annarra eigna: Ný endurbyggð - allt sér Séríbúð 4ra herb. 102,2 fm nettó við Laekjarfit, Garðabæ. Öll ný endur- byggð. Allt sér. Bílskréttur. Nýtt og glæsilegt raðhús í Ártúnsholti á tveim hæðum um 160 fm. 3-4 svefnherb. Góður bílsk. Langtímalán. Eignin er næstum fullgerð. Við Brekkubyggð í Garðabæ raðhús á tveim hæðum með 3ja herb. glæsil. íb. Bílsk. Ræktuð lóð. Útsýni. Velbyggt steinhús við Látraströnd Ein hæð um 225 fm með bílsk. og sólverönd. Húsið er 6 herb. íb. Nýtt parket. Nýtt gler og póstar. Stór og góð eignarlóð. í tvíbýli í Suðurhlíðum 5 herb. íb. á neðri hæð og í kj. Alls 152,4 fm. Næstum fullgerð. Allt sér. Sanngjarnt verð. Góð íbúð á Högunum 3ja herb. íb. á 3. hæð 88 fm nettó. Töluvert endurn. (bað, gler og póstar). Suðursv. Geymsla og föndurherb. í kj. Ágæt sameign. Laus 1. júní nk. í smíðum - sérþvottah. - bílskúr Glæsil. 3ja herb. ib. við Sporhamra fullb. undir trév. nú þegar. Sam- eign verður fullg. Hentar einkum þeim sem hafa lánsloforð. Hag- kvæmir greiðsluskilmálar. Opiðídagkl. 10.00-16.00. Fjöldi fjársterkra __________________ kaupenda. FASTEIGNASA L A N LAUGAVEG118 SIMAR 21150-21370 Húseign í Hafnarfirði Nýkomið í einkasölu timburhús á góðum og rólegum stað við sjóinn í Vesturbænum, alls 120 fm. A aðalhæð eru 3 herb. og eldhús, í risi 3 herb. og rúmgóður kjall- ari. Húsið er í góðri hirðu, með tvöföldu verksmiðju- gleri að mestu, endurnýjuðum raflögnum og nýlegri stálklæðningu. 24 fm bflskúr. Ekkert áhvílandi. Laust strax. Opiðídag Árni Gunnlaugsson hrl., frákl. 13-17 Austurgötu 10, sími 50764. Sinfóníuhljómsveit- in 1 Háskólabíói _________Tónlist_____________ Ragnar Björnsson Ekki bætir Sibelius miklu við stórleik inn með tónaljóðinu Tapi- ola op. 112. Þó er verkið fullt af dulúðgum stemmningum finnsku skóganna, ótta einstaklingsins sem freistast lætur að hlusta á seið skógarguðsins og hugmyndaflugið vefur upp á sig. Ur einu þema vinn- ur Sibelius sinn vef og birtir þannig áheyrandanum hinar ýmsu sýnir úr myrkviðum skógarins. Margt gerðu hljómsveit og stjórnandi vel í tónaljóðinu en vafasamur er sá óhemju styrkleikamunur sem hljómsveitarstjórinn knúði fram í hljómsveitinni. Hætta er sú að innri spenna tónsmíðarinnar líði fyrir ytri búning. Frumflutningi á íslensku verki er alltaf beðið með eftirvæntingu. „Tilbrigði um silfur", konsert fyrir einleiksflautu og hljómsveit, er líkt og Tapiola ekki flókið verk í byggingu en mjög eru þau ólík. Hér er öllu haldið í skefj- um og í öguðu formi. Verkið byijar á ákveðnum hljómagangi í hörp- unni, hljómum sem Þorkell Sigur- björnsson virðist síðan nota í allri framvindu verksins. Engu er hér sleppt lausu en þó fær músíkin sína spennu og slökun. í einfaldleik sínum hljómar verkið aldrei lang- dregið en kannske bjargaði því einnig snilldarleikur Martial Nard- eau á flautuna. Stanslaust spil Nardeau út allan konsertinn er kannske svolítið tillitslaust af Þor- keli en Nardeau leysti það án erfið- leika með öruggri tækni, fallegum tóni og „músikaliteti“ sem gaf verk- inu svolítið franskan „impress- ionískan" blæ. Svona spila aðeins framúrskarandi hljóðfæraleikarar. „Pósthorn-kvöldlokkan" eftir Moz- art er vafalítið flestum tónleika- gestum ókunn og flutningur verks- ins í tónleikasal réttlætist kannske fyrst og fremst af einleikshlutverk- um og samspili tréblásaranna svo og vegna kynningar á því sérstæða hljóðfæri sem pósthorn heitir og þrátt fyrir nafnið - horn - til- heyrir trompetunum en ekki horn- unum og sem Ásgeir Steingrímsson lék á af ágætum. Tréblásararnir gerðu og margt mjög fallega en það verður þó að segjast, innbyrðis voru þeir ekki alltaf alveg hreinir, og er það hlutur sem þeir verða að gera upp sín á milli. Hljómsveitarstjórinn Osmo Vánská er vafalaust efnilegur stjórnandi, en enn og aftur, hvers vegna þessar óskapa andstæður í styrkleikavali og hvers vegna þarf Þorkell Sigurbjörnsson stjórnandi endilega að láta svo á stjórnandapalli sem himinn og jörð séu að farast? Ekki trúi ég því að það sé finnski skólinn því Panula, kennari Osmo Vánská, lærði hjá Albert Wolff og Wolff, sem talaði eingöngu frönsku, hafði þann hátt- inn á í kennslustundum að þegar honum þótti nemandinn ganga of langt í handsveiflúm, bugti og beyg- ingum, gekk Wolff um gólf fyrir aftan stjórnandann og tautaði „compote marmelade, kompotte marmelade". ÍQmgDsl máfl Umsjónarmaður Gísli Jónsson 525. þáttur Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli átti nokkuð ósagt við okkur, og birtist hér framhald af bréfi hans: „Að „byggja upp ímynd“, — er það að mynda skoðun? Er þá uppbygging ímyndar skoðana-myndun? Eg las í Morgunblaðinu: „íslenski fiskurinn hefur góða ímynd í Bandaríkjunum“. Samkvæmt Blöndal skilst mér að ímynd geti verið mynd, tákn eða eft- irlíking. Þarna skilst mér að ímynd sé álit, skoðun. Þegar ég var barn var okkur kennt að segja: „Það er eftir að gera hitt og þetta.“ Hins vegar sögðum við: „Ég á það eftir.“ Nú virðist mér að margur segi: „Það á eftir.“ Eigum við þá að segja: „það á ógert“? Þingið á eftir að setja lög og ráðherra á eftir að gefa út reglugerð. Það er eftir að finna bestu lausnina, hver sem verður svo gæfusamur að leysa þá þraut. Það er ógert, „það á eftir“ að sætta mig við að heyra sí og æ: „Það á eftir.“ Nú er nóg sagt, en ég vænti að þú hafír gaman af svona rabbi þó að ekki verði öllu komið á prent. Bestu kveðjur. Bréfsauki: Fyrst bréfið er ekki farið bæti ég því við að vestra var talað um fjörður þegar rætt var um Jökulfirði. Það er alltaf nóg um að tala. Hvað veistu fyrst um nafnið Hagalín? Guðmundur Hagalín sagði það komið í sína ætt frá norskum skipstjóra, Hagelien, og má það vel vera rétt, þó að ég hyggi að nafnið Hagalín hafi verið eldra.“ ★ Já, ég hef gaman af svona spjalli, og bréf Halldórs eru slík, að ég vil helst koma öllu efni þeirra á prent. Um það hrogna- mál, að byggja upp ímynd, vísa ég til 512. þáttar og ummæla próf. Baldurs Jónssonar þar. Ég er sammála bréfritara um að vera eftir og eiga eftir; og svo er það Hagalín. Guðrún Jakobsdóttir í Reykjahlíð við Mývatn hefur lát- ið Þóroddi lækni í té eftirfarandi upplýsingar og góðfúslega leyft mér að nota þær: „Hún amma mín það sagði mér. Á fardög- um 1827 fluttu afi hennar og amma, Jón Teitsson og Silfá (Silpha) Jóhannesdóttir úr Grunnavík að Kvíum (sömu sveit) og með þeim fullorðin börn þeirra sem í heimilinu voru, þar á meðal Jóhannes Jóns- son ... Engilráð Gísladóttir og sonur þeirra Jakob (smábarn). Jóhannes heillaðist mjög af haglendinu í Kvíum, leist það fagurt, fijósamt og kjarngott. 12. júní 1827 fæðist þeim Jó- hannesi og Engilráðu sonur, og gaf Jóhannes honum nafnið Hagalín, til heiðurs því fagra haglendi sem augu og hugur bóndans var svo snortið af. Jó- hannes eignaðist 12 börn með konu sinni... og svo hana ömmu mína fædda 14. október 1868 í Kvíum. Hennar móðir var Jóhanna Einarsdóttir. Jóhannes vildi gefa yngstu dóttur sinni nafnið Baldinbrá, en móðir hennar samþykkti það ekki; amma hlaut nafnið Ketilríður. Hagalín Jóhannesson kvænt- ist Margréti Einarsdóttur (hún var systir Jóhönnu). Hagalín og Margrét bjuggu á Steig í Grunnavíkurhreppi og eignuðust 9 börn, og enn er til Hagalíns- nafn á niðjum þeirra. Afkomend- ur Jóhannesar bjuggu á Kvíum, uns jörðin var yfirgefin 1948. Manntöl aldanna sýna að margt heimilisfólk var jafnan á Kvíum, hvaða augum sem aðrir hafa litið landkosti þar. Með bestu kveðju. Guðrún Jakobsdóttir. Skráð 24. janúar 1990. Bréfauki: Ég hafði símasam- band við Jóhönnu Jakobsdóttur og las henni það sem á blaðinu stendur. Hún samþykkir að rétt sé með farið. Hún er fædd 1913 og alin að mestu upp af ömmu Ketilríði." ★ Alúðarþakkir færi ég Guð- rúnu fyrir þennan stílhreina, greinargóða og trúverðuga vitn- isburð. Verður það, sem hún segir, trauðla rengt, enda mun ég hafa það fyrir -satt. Ég ímynda mér að Jóhannes á Kvíum hafi haft mætur á Jóni Vídalín og postillu hans og hag- að endingu nafnsins Hagalín í samræmi við Vídalín. Eftir öllu gramsi mínu í manntölum og kirkjubókum er Hagalín Jóhann- esson á Kvíum víslega fyrsti ís- lendingur með því heiti. í næsta þætti verður vikið að því, er Hagalín var löggilt ættarnafn. ★ Hlymrekur og Þjóðrekur kváðu: Þegar Hrognkelsa-Kalli frá Kveneyjum sat kengfullur suður í Feneyjum, heyrði ’ann þjóta í tóum í þarlendum móum: „Það er geggjað að búa í greneyjum." ★ „Hingað til hafa fslenzk orð verið mynduð á þann hátt, að skeytt hefur verið viðskeyti eða afleiðsluending aftan við rót eða stofn, sem til er í málinu, eða með því að skeyta saman tvö orð (t.d. bæjarstjóm, ritstjóri) eða loks með því að setja sam- stöfu, eina eða tvær, framan við orð (t.d. tomæmur, afar-þung- ur). Þetta eru aðal-orðmyndun- arreglur íslenzkrar tungu, og eru þær svo handhægar og full- komnar, að íslenzkan hefur tæp- ast orðið svo víðfræg fyrir neitt sem fimleika sinn til orðmyndun- ar.“ Þessi orð Árna Pálssonar pró- fessors frá 1916 mættum við hafa í huga, þegar í tísku er að hraga upp forsetningarliðum að erlendum hætti, svo sem: „mik- ill fjöldi af mönnum“, mikil lækkun á vöxtum", „mikil breidd í gæðum“, o.s.frv. ★ Spurning: Hvað merkir orðið fjöllyndur? Þarf það að hafa niðrandi merkingu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.