Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990 15 Vegna heyrnarlausra eftirBraga Asgeirsson í haust sem leið var í fyrsta skipti og með ým§u móti minnt á aiþjóðlegan dag heyrnarlausra. Dagurinn þótti heppnast vel óg vera málefnum þessa minnihlutahóps til framdráttar hérlendis og veitti ekki af. _ Ýmsir væntu þess, að ég myndi skrifa um þennan dag, en vegna mikilla anna tókst mér það ekki í tíma þrátt fyrir góðan vilja, hver sýningin rak aðra, sem skrifa þurfti um og ég að auki á kafi í öðrum störfum. En í dag, laugardaginn 10. febrú- ar, er Félag heyrnarlausra 30 ára og er þess minnst á ýmsan hátt og þess einnig að vænta, að athygli manna beinist að því dugmikla fólki, sem verið hefur í forustu í baráttu fyrir mannréttindum þessa fólks. í því tilefni vil ég í stuttu máli minna á stöðu heymarlausra í þjóð- félaginu, en það gengur dæmalaust seint að ná fram ýmsum mikilvæg- um áföngum, sem hafa verið taldir sjálfsagðir erlendis um langt skeið. Þegar komið er til móts við þetta fólk með lágmarks þjónustu, sem viðhöfð er víða um heim, er það líkast því sem að þá séu menn að gefa því eitthvað af mikilli rausn sinni og vænta þakklætis og lófa- klapps fyrir. Ég vísa til þess, er Stöð tvö tilkynnti það á degi heyrn- arlausra, að hún myndi framvegis senda út sérstakar myndaðar frétt- ir fyrir heyrnarlausa einu sinni í viku. Þetta hefur verið gert í ná- grannalöndum okkar um árabil og þykir ekki tiltökumál, eiginlega hrein og bein mannréttindi, enda eru slíkir einnig áhorfendur sjón- varps, sem er að auki eini Ijósvaka- miðillinn sem þeir skiljanlega fá notið. Rétt er að geta þess að Stöð tvö, flytur fréttirnar á hárréttan hátt, þ.e. sýnir atburðina gerast á skján- um um leið og táknmálið kemur fram í einu horninu. Ekki er nóg að búa til sjónrænt útvarp svo sem á Stöð eitt. Veröld hins heyrnar- lausa er nefnilega fyrst og fremst sjónheimurinn. Og þar sem fyrsta mikilvsega skrefíð hefur verið tékið, þá mætti kannski varpa þeirri spurningu fram, hve mörg íslenzk leikrit hafi verið textuð fyrir þá heyrnarlausu og heyrnarskertu — og hve margar íslenzkar kvikmynd- ir eða mikilvæg viðtöl og skemmti- þættir. Svarið liggur hér að því er ég best veit á kláru núlli. Þetta er ekki óalgengt erlendis og er þá kannski bæði notast við texta og táknmál eða annað tveggja. Og þegar tekið er tillit til þess, hve þetta kostar lítið, fyrir utan nokkurt framtak þá hljóta menn að falla í stafi. Hvernig væri líka að sýna það oftar á töflu hvernig kappleikir standa í íþróttum? Þar þarf bókstaf- lega ekkert annað til en ofurlitla tillitssemi! Og hvemig væri t.d. að texta íslenzkar kvikmyndir til leigu fyrir þennan hóp og hafa til sölu í ákveð- inni myndbandaleigu miðsvæðis? Halda má hér lengi áfram, því hér er hægt að gera svo margt, svo ótal margt og þá fyrst og fremst með því að beita dálítilli hug- kvæmni. — Það liggur og ljóst fyrir, að sú tækni, sem heimurinn ræður yfír í dag, gerir líf hins heymar- lausa mun léttbærara en áður, og sú tækni, sem er á næstu grösum, mun enn frekar losa um einangrun þeirra og einnig eyða fordómum. Jafnframt mun hún auka möguleika þeirra til náms og þá um leið að gerast virkari borgarar og taka meiri þátt í þjóðmálum. Alls konar mikilvæg smáatriði hversdagsleikans, sem hinn heyr- andi tekur varla eftir, en var mikil hindrun hinum heyrnarlausa og heyrnarskerta, eru nú svo til úr sögunni og hverfa senn, t.d. eru þeir með sérhannaða síma, sérhann- aðar dyrabjöllur, sérhannaðar vekj- araklukkur og allt slíkt gerir þá sjálfstæðari og óháðari umhverfi sínu en áður. Erlendis eru jafnvel heymarlausir, er fljúga einkaflug- vélum. í framtíðinni steypast svo hreint yfir alla, jafnt heyrandi sem heym- arlausa, hvers konar möguleikar til aukinnar samskipta- og tjámiðl- unar í gegnum tölvur, myndbönd o.fl. o.fl. Mögulegt er að kenna táknmái í gegnum myndbönd, kenna fólki að tala rétt við heyrnarlausa, sem lesa af vörunum, þótt slíkt vefjist sem betur fer ekki fyrir ýmsum. Það að tala skýrt og eðlilega er nefni- lega ekki öllum gefið, þótt heyrnin sé í lagi. Þá ætti að vera mögulegt að kenna heymarlausum varamál í gegnum myndbönd, þjálfa þá á ýmsan hátt, jafnvel kenna þeim að nema útlend mál af varalestri og það opnaði ótakmarkaða mögu- leika. Menn skulu sérstaklega athuga eitt og það er, að iangflestir heyrn- arlausir eru á allan hátt fullkomlega eðlilegir og heilbrigðir fyrir utan það mein sem gerir það að verkum, Einn heimur — sameiginleg ábyrgð. „Þegar komið er til móts við þetta fólk með lágmarks þjónustu, sem viðhöfð er víða um heim, er það líkast því sem að þá séu menn að gefa því eitthvað af mikilli rausn sinni og vænta þakklætis og lóf- aklapps fyrir.“ að hljóð berast ekki rétta boðleið til heilans. Þeir eru þannig gæddir sömu hæfileikum til náms ogþroska og aðrir, svo fremi sem þeir fái skilyrði til jafns við þá. Það hlýtur að hafa verið sárt fyrir marga að gera sér þessar staðreyndir ljósar, en ná ekki að þróa hæfileika sína né njóta þeirra fyrir skilningsleysi umheimsins og fordóma. Það sem er þannig mál málanna er að búa heyrnarlausum og heyrn- arskertum skilyrði til þroska og auðvelda þeim á allan hátt að verða sér úti um hin ýmsu hjálpartæki — þeir eiga sem minnst að þurfa að borga fyrir það, sem öðrum er gefið ókeypis af skaparanum og siðblinda væri af þjóðfélaginu að leggja nokkra tegund af opinberum gjöldum á slíkt. En svo vil ég líka minna á eitt og það er, að það sem við nefnum móðurmál, er hugsað mál, talað mál og ritað mál. Mál feðra okkar og mæðra, áa og afa. Ekki er hægt að búa til sérstakt móðurmál fyrir minnihlutahópa innan málsvæðis- ins, nema að það gangi í erfðir. Það gerir táknmál sem betur fer ekki að því leyti, að heymarleysi er sjaldnast arfgengt, en hitt er annað mál, að táknmál er mikil- vægt samskiptatæki öllum þeim, sem þurfa á því að halda og aðal- mál þeirra sín á milli. En það má síður verða til að gera vægi vara- málsins minna eða t.d. hins ritaða máls og auk þess er hætta á því að hugtakið „móðurmál" skiljist þá ekki rétt af hinum heyrnarlausa. Að skilja hugtök rétt og tala og rita rétt mál hefur verið stærsti þröskuldurinn á vegi hinna heyrnar- lausu, en einnig hann mun verða yfirstiginn með réttri beitingu ný- tækninnar. Það skiptir alla þegna þjóðfélags- ins mestu máli að vera til, nýta og þroska hæfileika sína og geta borið höfuðið hátt í lífi hér og þá einnig hinn heyrnarlausa. Þess skal og einkum minnst á nefndum tímamótum. Höfundur er myndlistarmadur. • • Mörg hundruö bókatitlar á einstöku verði bjóöast nú á bókamarkaði Vöku-Helgafelis í forlagsversluninni að Síðumúla 29 í Reykjavík. Hér gefst einstakt tækifæri til jiess að bæta eigulegum verkum í bókasafn heimilisins - bókum af öllum gerðum við allra hæfi. Bókamarkaður Vöku-Helgafeils stendur til 20. febrúar næstkomandi. Margar bókanna eru til í takmörkuðu upplagi og j)ví best að drífa sig sem fyrst! HELGAFELL úfyájfe' Síðumúla 29 • Sími 688 300. z afckílhnt OmULEG a MRfíLUhhlX Dæmi um nohkur sértilboð á bóhamarkaðnum: Blindálfar-skáidsaga eftir Pál H. Jónsson... liðui'inn - Ijóðabók eflir Þorstein Erlingsson . lfyiniýramaður- Jón Ólafsson, Gils Guðmundsson skráði..................... Drykkiriiðallrahæfí-litprcntuð handbók...... Lifsháski í lijónadal - spcnnusaga eftir Ken Follett L>sfeinni cldlmunni-VilhjálmurHjálmarsson...... 1.679,- Kver með útlendum kvæðunt - Jón Helgason þýddi Venjuiegt Tilboðs- Af- verð verð Slállur 1.890,- 95,* 95% 1.990,- 295,- 88% 1.978,- 295,- 85% 2.286,- 495,- 78% 1.673,- 295,- 82% 1.679,- 295,- 82% 983,- 95,- 90%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.