Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 30
1830 (H fMQRGUNBiASIÐ;'LAÚGAHDA.Qyfi4|Q) ,FBpKljjMUfi90 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) tf4i Nú er heppilegt fyrir þig að byija á verki sem þarf að vinna heima við. Þér launast fyrir dugnað og frumkvæði á vinnu- stað. Starf og leikur fléttast saman með æskilegum hætti. Naut (20. apríl - 20. maí) Farðu út að skemmta þér. Þú færð innblástur sem kemur sér vel vegna skapandi verkefnis sem bíður þín. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 4» Góður dagur til meiri háttar innkaupa eða heimsókna. Sumir fá fjárhagsaðstoð. Þú verður einstaklega atorku- samur í kvöld. Krabbi (21. júní - 22. júlí) >“18 Ferðalög og mannleg sam- skipti ættu að hafa forgang núna. Þú færð góðar fréttir í dag. Njóttu þess að rabba i næði við maka þinn í kvöld. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þig dreymir dagdrauma fyrri hluta dags, en síðan tekur þú þig á og lætur hendur standa fram úr ermum. Meyja (23. ágúst - 22. september) Vinur þinn færir þér góðar fréttir í dag. Þú skemmtir þér á nýjan hátt þar sem þú ert búinn að fá ieiða á venju- bundnum aðferðum. Leyfðu rómantíkinni að ná til þín. Vog (23. sept. - 22. október) Þú leggur grundvöll að framtíð þinni i dag. Sumir ljúka verki sem beðið hefur heima við. Fjölskyldan gengur fyrir í kvöld. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) 9|f8 Þú færð góða ábendingu frá vini þínum. Góður dagur til ferðalaga og vinafunda. Hóp- starf er líklegt tii að verða sérlega árangursríkt. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Frumkvæði þitt er sterkt í dag og þú tryggir framgang verk- efnis sem þú hefur unnið að. Fjárhagshorfur þínar fara batnandi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér gengur vel að hrífa aðra með þér. Góður dagur til ferðalaga. Hjónum vinnst vel saman. Sinntu menningunni. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þú færð nýtt atvinnutækifæri. Straumarnir í fjármálalífínu eru þér hagstæðir. Njóttu næðis með fjölskyldunni í kvöld. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú gætir orðið fyrir ónæði sem raskar tímaáætlun þinni fyrri hluta dags. Einstaklega heppi- legur dagur til mannfunda. Þú kynnist nýjum aðila við rómantískar aðstæður eða færð heimboð. AFMÆLISBARNIÐ er sjálf- stætt og treystir á sjálft sig. Það kýs oft að tjá sig í gegn- um skapandi miðil. Það fer mjög gjama eigin götur, en verður að gæta þess sérstak- Iega að dreifa kröftum sínum ekki um of. Það laðast oft að banka-, kynningar-, sölu- eða auglýsingastarfsemi. Það á mjög auðvelt með að umgang- ast fólk. Stjömuspdna á aó lesa sem dœgradvól. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra stadreynda. í VATNSMÝRINNI GRETTIR UÓSKA FERDINAND Hundahlé. Já, frú ... „hundahlé" er þegar þú Góð tilraun. færð að fara heim og athuga hvort hundurinn þinn saknar þín eða þarfnast þín við ... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þegar opnari vendir sér í hærri lit í sinni annarri sögn, gefur hann til kynna góða opn- un, ásamt því að sýna skipting- arspil. Vendingar eru alveg sam- bærilegar við stökk í nýjum lit: Norður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ 765 ♦ ÁD82 ♦ ÁKD76 Vestur ♦ G Austur ♦ G943 ♦ D y K976 il ▼ G1043 ♦ 942 ♦ 1053 ♦ K10 ♦ 98632 Suður ♦ ÁK1082 ♦ 5 ♦ G8 ♦ ÁD754 Vestur Norður Austur Suður — 1 tígull Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar Pass 3 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 6 spaðar Pass Pass Pass Útspil: lauftía. í suðursætinu var kunnur\gt- vinnumaður í Bandaríkjunum, Jim Jacoby. Eftir vendingu norð- urs voru tveir spaðar krafa, svo hann kaus að sýna fímmlitinn þar frekar en melda þijú lauf. Þegar norður studdi spaðann beitti Jacoby svokölluðum „fimm-ása-Blackwood“. Svarið á fímm hjörtum sýndi tvo ása en neitaði trompdrottningunni. Lauf hafði aldrei verið nefnt, svo vestur ákvað að „vera snjall“ og koma út undan kóngnum öðrum. Gosi blinds átti fyrsta slaginn og Jacoby spilaði næst trompi á ás. Drottning austurs var annaðhvort ein á ferð eða í fylgd með gosanum. Til að halda öllu opnu svínaði Jacoby næst hjartadrottningu. Tók svo ásinn og trompaði hjarta. Lagði síðan niður laufás. Myndin tók nú að skýrast. Þrír slagir á tígul komu næst og síðan var hjartað enn tromp- að. Vestur fylgdi alltaf lit en varð svo að trompa lauf og spila upp í trompgaffalinn. Umsjón Margeir Pétursson Á opnu méjti í Gausdal í Noregi í janúar kom þessi staða upp í skák norska alþjóðameistarans Jonathan Tisdall (2.465) og enska kvenstórmeistarans Jönu Bellin (2.240), sem hafði svart og átti leik. 22. — Rexg4+! og Tisdall ákvað að leggja niður vopn enda vinnur svartur manninn til baka eftir 23. fxg4 — Re4+ og fær nokkur peð í kaupbæti. Jana Bellin er nú gift alþjóðlega meístaranum Robert Bellin en fyrri menn hennar eru alþjóðlegi meistarinn William Hartston og hinn þekkti stór- meistari Tony Miles.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.