Morgunblaðið - 10.02.1990, Qupperneq 4
4
MÓRGUNBLAÐIÍ) LAUÖARÍÍáGUR 10.
Samvinnubankinn:
Ekki gerðar breyting-
ar fyrr en á aðalfundi
Friðrik Sophusson óskar eftir aukaiundi bankaráðs og
boðar tillög-u um að Sambandið fái ekki vaxtaleiðréttingu
FRIÐRIK Sophusson bankaráðsmaður í Landsbankanum sendi form-
anni bankaráðsins bréf í gærmorgun og óskaði eftir ýmsum upplýsing-
um varðandi afgreiðslu bankaráðsins á kaupum bankans á hlut Sam-
bandsins í Samvinnubankanum og ítrekaði fyrri ósk sína um upplýsing-
ar. Hann óskaði eftir aukafundi bankaráðsins og boðaði tillögu um
að bankinn veitti Sambandinu ekki svokallaða vaxtaleiðréttingu. Frið-
rik sagðist í gær einnig hafa haft samband við bankastjóra Lands-
bankans og óskað eftir að þeir gengju ekki frá vaxtaleiðréttingunni
fyrr en eftir aukafundinn. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
fjölluðu bankastjórar Landsbankans ekki um þetta mál í gær.
Eyjólfur K. Siguijónsson, formað-
ur bankaráðs Landsbankans, segir
að ekki verði gerðar breytingar á
rekstri Samvinnubankans fyrr en á
aðalfundi Samvinnubankans. Ekki
sé farið að ræða það í einstökum
atriðum hvernig yfirstjórninni verði
háttað. Allt kæmi þetta í ljós á aðal-
fundinum, þá tilnefndi bankaráð
Landsbankans sína menn í Sam-
vinnubankann. Geir Magnússon
bankastjóri Samvinnubankans segir
að stefnt sé að aðalfundi í þriðju eða
fjórðu viku marsmánaðar.
„Friðrik verður sjálfur að ráða þvi
á hvaða fundi hann vill vera, ég sá
að hann fór af bankaráðsfundinum
á fund í Valhöll. Ef formaður bank-
aráðs hlypi alltaf eftir slíku yrði aldr-
ei neinn bankaráðsfundur," sagði
Eyjólfur þegar leitað var álits hans
á gagnrýni Friðriks Sophussonar á
að mál varðandi kaup Landsbankans
á meirihluta Sambandsins hafí verið
afgreidd að honum fjarstöddum en
ekki frestað eins og hann hafði far-
ið fram á. Eyjólfur sagði: „Banka-
ráðsmenn vita að fundadagar eru
annan og fjórða fimmtudag í hveij-
um mánuði. Þessir dagar voru vald-
ir í samráði við Friðrik þegar hann
byijaði í bankaráðinu. Venjulega
hittumst við klukkan þijú, fundimir
settir klukkan hálffjögur og standa
oftast ekki skemur en til hálf fimm,
jafnvel lengur. Þetta vissi Friðrik
um. Hann fékk dagskrána senda á
þriðjudag og ég sagði honum fyrir
VEÐUR
V
ÍDAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggl á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
fundinn að ég myndi ljúka þessu
máli. Friðrik kom á fundinn og sagð-
ist þurfa að fara á annan fund og
bað um frestun. Ég neitaði því, enda
tel ég að við höfum ekki getað dreg-
ið afgreiðslu málsins lengur, og hann
bókaði mótmæli við því.“
Eyjólfur sagðist ekki vilja ræða
efnislega gagnrýni Friðriks á sam-
þykkt bankaráðsins og hvemig að
henni var staðið að öðru leyti. Hann
sagði að ekki þyrfti sérstaka útreikn-
inga á tilboðunum til að sjá að upp-
hafleg samningsdrög bankastjóra
Landsbankans og forstjóra Sam-
bandsins, sem Eyjólfur var á móti í
bankaráðinu á sínum tíma, og kaup-
in nú væm ekki sambærileg. „Sverr-
ir bauð 828 milljónir i allan pak-
kann, ætlaði að taka Sambandið á
bijóstið í fimmtán ár og að taka
allt starfsfólk Samvinnubankans inn
í Landsbankann með sömu réttindi,"
sagði EyjÓlfur.
Lúðvík Jósefsson bankaráðsmað-
ur sagði þegar álits hans var leitað:
„Fréttin í Morgunblaðinu er röng.
Landsbankinn hefur enga ákvörðun
tekið um að láta Sambandið fá
vaxtafyrirgreiðslu. Það rétta í þessu
er að bankaráðið samþykkti að
ganga endanlega frá kaupunum á
hlut Sambandsins í Samvinnubank-
anum fyrir það verð sem bankinn
hafði boðið, 605 milljónir, og það
er hið endanlega verð. Síðan var
bankastjórunum falið að ganga eftir
því að fá þessi hlutabréf í hendur
og færa þetta á reikning Sambands-
ins um leið. Þá var samþykkt í til-
efni af beiðni Sambandsins um
vaxtaleiðréttingu að vísa því máli til
bankastjóranna eins og ber að gera
því að það flokkast algerlega undir
þá ef á að gera vaxtaleiðréttingu
hjá einhveijum viðskiptavini bank-
ans.
Ég get ekkert sagt um þá fullyrð-
ingu að bankastjómin muni veita
Sambandinu slíka vaxtaleiðréttingu.
Ég hef ekkert fyrir mér nema það
að einn bankastjóri, sem ég ætla
ekki að nefna á nafn, sagðist mundu
standa þannig að málinu," sagði
Lúðvík.
„Ég hef áður hafnað því í bankan-
um að gera tilboð í Samvinnuban-
kann með þessu atriði í og geri það
áfram og hef ekki samþykkt neitt í
þessa átt,“ sagði Lúðvík þegar hann
var spurður hvort hann legðist gegn
því að bankastjórarnir greiddu Sam-
bandinu 60 milljónir kr. í vexti vegna
kaupanna á Samvinnubankanum.
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði að kaup Búnað-
arbankans á hlut í Samvinnubankan-
um væru ekki til umræðu. „Mér
sýnist að Landsbankinn ætli að
kaupa Samvinnubankann og við
ætlum ekki að fara í samkeppni um
þau kaup,“ sagði Stefán. Hann sagði
að kaup annarra en Landsbankans
á þeim 12%, sem komið hefur fram
að Landsbankinn hefur ekki bol-
magn til að kaupa vegna reglna um
eiginfjárstöðu viðskiptabanka, hefðu
ekki komið upp, og sagðist ekki vita
hvort einhver hefði áhuga á slíkum
kaupum.
VEÐURHORFUR í DAG, 10. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Vestan- og norðvestanátt á landinu, víðast gola
eða kaldi. Snjókoma var á norðanverðum Vestfjörðum og á Norður-
landi vestra, sums staðar él á Suðvestur- og Vesturlandi en skýjað
og þurrt veður austan til á landinu. Hiti var frá 2 stigum á Kamba-
nesi, niður í 6 stiga frost á Hornbjargsvita.
SPÁ: Austan- og norðaustan 3-5 vindstig og él víða um land. Frost
0-5 stig víðast hvar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Nórðan- og norðaustan-
átt um allt land, víða 6-8 vindstig, og fremur kalt. Snjókoma um
norðan- og norðaustanvert landið en annars þurrt.
A_____'A
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / * *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CXO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
Kaup Landsbankans á Samvinnubankaiium:
Öll hlutabréf verði
keypt eða ekki meira
- segir forstjóri Olíufélagsins
„ÞAÐ gengur ekki hjá Landsbankanum að segja að hann kaupi eitt-
hvað í viðbót. Annaðhvort verður hann að segjast kaupa öll hluta-
bréf bankans eða ekki meira en hann er nú að gera. Það er engin
málamiðlun til þar á milli,“ sagði Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufé-
lagsins hf., en félagið á um 4% í Samvinnubankanum og er þriðji
stærsti hluthafinn, á eftir Sambandinu sem á 52% og Vátryggingafé-
lagi íslands hf. sem á um 5,8%. Aðrir hluthafar, sem eiga yfír 1%,
eru Samvinnulífeyrissjóðurinn, Kaupfélag Eyfírðinga, KRON og
Kaupfélag Borgfírðinga. Hluthafar eru alls tæplega 1.500. Aðrir
hluthafar en upp eru taldir eru kaupfélög og einstaklingar, og eiga
þeir innan við 1% hver, flestir tiltölulega mjög lítinn hlut, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins. Samvinnulífeyrissjóðurinn er um þessar
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri skýjað
Reykjavik 1 snjókoma
Bergen 7 haglél
Helsinki 2 skýjað
Kaupmannah. 7 skýjað
Marssarssuaq -5-13 alskýjað
Nuuk 5-14 snjókoma
Osló 7 hálfskýjað
Stokkhólmur 4 iéttskýjað
Þórshöfn 4 skúr
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Barcelona 12 þokumóða
Berlin 7 skýjað
Chicago 3 skýjað
Feneyjar 7 þokumóða
Frankfurt 7 skýjað
Glasgow 8 alskýjað
Hamborg vantar
Las Palmas 21 heiðskírt
London 11 skýjað
Los Angeles 9 heiðskírt
Lúxemborg 4 skýjað
Madríd 10 þokumóða
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 17 skýjað
Montreal 4 alskýjað
New York 6 léttskýjað
Orlando 18 hálfskýjað
París 10 léttskýjað
Róm 9 súld
Vín 8 skúr
Washington 9 skýjað
Winnipeg 5-8 snjókoma
mundir að taka yfir hlut KRON.
Axel Gíslason, forstjóri Vátrygg-
ingafélags íslands, sagði að félagið
væri tilbúið til viðræðna við Lands-
bankann um að selja hlutabréf fé-
lagsins. Það færi eftir niðurstöðum
þeirra viðræðna hvort félagið seldi
bréfin. Hann sagðist ekki sjá að það
væri raunhæft að Landsbankinn
keypti 88% í Samvinnubankanum
og ræki hann síðan með óbreyttu
sniði. Ef bankinn keypti svo mikið
hlyti hann að vilja breytingar til að
ná fram hagkvæmni í rekstri beggja
bankanna og því vandséð að hags-
munir Landsbankans og litlu hlut-
hafanna færu saman.
Vilhjálmur Jónsson sagði að Olíu-
félagið hefði ekki ákveðið með sölu
á hlutabréfum í Samvinnubankan-
um og sagðist ekkert geta um það
sagt hvort félagið vildi eiga í bank-
anum ef Landsbankinn keypti 88%
hlutabréfanna. Sagði hann að minni
hluthafarnir hefðu ekki haft samráð
en taldi ekki ólíklegt að þeir hefðu
það. Taldi Vilhjálmur að á meðan
Landsbankinn gæti ekki sameinað
rekstur bankanna væri erfitt að
reka Samvinnubankann til hags-
bóta fyrir hann og eigendur hans.