Morgunblaðið - 10.02.1990, Page 13
mm^mm
Örn Magnússon.
Sýnir öldruðum dansa, muni
og myndir frá Indlandi
UNNUR Guðjónsdóttir danskennari sem búsett er í Stokkhólmi í Svíþjóð hefúr undan-
farna mánuði verið með sýningu um Indland á vegum Stokkhólmsborgar í skólum og
hressingarheimilum þar í borg. Greint var frá þessu starfi Unnar í sænska tímaritinu
Sting nýverið. Unnur er nú stödd í Reykjavík og á vegum borgaryfirvalda ætlar hún
að gefa eldri borgurum mynd af Indlandi næstu vikurnar.
Unnur sagði að hún hefði tekið farið til
Indlands og tekið þar myndir sem hún sýnir
ásamt indverskum munum og tónlist. Sjálf
dansar hún indverska dansa í klæðnaði þar-
lendra, svonefndum sari.
„Ég er í fullu starfi við þetta alla virka
daga vikunnar í Stokkhólmi. Ég hef einnig
verið með sýningu um Kína og Island. Þessu
hefur verið vel tekið, sagði Unnur í samtali
við Morgunblaðið.
Unnur sagði að hún færi einnig oft út i
eyjar f sænska skeijagarðinum og sýndi þar
fyrir þorpsbúa. „Þegar ég er með sýningu
um ísland klæðist ég faldbúningi sem ég lét
sauma eftir búningi frá 1836 sem Þjóðleik-
húsið á. Svo syng ég rímur og þjóðvísur og
dansa vikivaka. Það vekur síðan mikla ánægju
þegar ég býð áhorfendum upp á íslenskan
harðfisk og hraunmola frá Vestmannaeyj-
um,“ sagði Unnur.
Hún verður með átta sýningar áður en hún
heldur aftur til Svíþjóðar. Fyrstu sýningarnar
voru í Aflagranda og í Furugerði fimmtudag.
EKKI BARA NÝ ÁRGERÐ
Dans-
leikfimi,
megrunar-
leikfimi,
trimmform.
Ný námskeid
12. feb
Heilsurœktin Heba
Auóbrekku 14. Kópavogi.
Píanótón-
leikar í
Hafiiarborg
Örn Magnússon píanóleikar
heldur tónleika í menningarmið-
stöðinni Hafnarborg í Hafiiarfirði
á morgun, sunnudag kl. 20:30 og
verða þeir endurteknir á Kjarv-
alsstöðum mánudaginn 19. febrú-
ar á sama tíma. Tónleikarnir eru
haldnir á vegum EPTA, Evrópu-
sambands pianókennara, en Örn
er kennari í hlutastarfi við Tón-
skóla Sigursveins. '
Á efnisskránni eru verk eftir
Bartók, Hróðmar Inga Sigur-
björnsson og Debussy.
„A fyrri hluta tónleikanna leik ég
14 bagatellur ópus 6 eftir Bartók,
sem hann skrifaði í byijun aldarinn-
ar,“ sagði Örn Magnússon i samtali
við blaðamann Morgunblaðsins. „I
þeim leggur hann grunninn að þeirri
tónsköpun sem hann vann síðar, en
Bartók var, í upphafi, rómantískur
í ætt við Brahms og Liszt.
í fyrri hlutanum ætla ég einnig
að spila Tilbrigði fyrir píanó eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Hann
skrifaði þetta verk árið 1988, en það
var lokaverkefnið hans frá Tónlistar-
háskólanum í Hollandi. Við vorum í
stöðugu sambandi allan tímann sem
hann var að skirfa verkið svo ég á
svolítið í því.“
Örn segist hafa verið í heilt ár
að æfa Tilbrigði Hróðmars, en hann
frumflutti verkið á tónleikum með
Kammersveit Seltjarnamess síðast-
liðið sumar. Það hefur nú verið kjö-
rið til flutnings, fyrir íslands hönd,
á alþjóðlegri tónlistarhátíð sem hald-
in verður í Osló næsta haust.
„Á seinni hluta tónleikanna leik
ég tólf prelúdíur eftir Debussy. Hann
skrifaði tvö sett af prelúdíum, sem
gefin hafa verið út í tveimur bókum,
12 prelúdíur í hvorri og eru þær sem
ég ætla að spila úr seinni bókinni.
Debussy skrifaði perlúdíurnar um
og eftir 1910. Þetta eru mjög falleg
og myndræn verk, eiginlega eins og
málaralist, þar sem hann dregur'
stemmningar út úr hljóðfærinu."
HELDUR ALVEG NYR BILL
SUZUKI SWIFT 1990
Suzuki Swift 1990 er ekki bara ný árgerð heldur
alveg nýr bíll á flestum sviðum. 1990 árgerðin
hefur öflugri vél, sjálfstæða fjöðrun, er stærri og
rúmbetri og útlit Suzuki Swift er alveg nýtt af
nálinni að utan sem innan - hefur aldrei verið
glæsilegra. Og Suzuki
Swift er til í ýmsum
gerðum, 5 gfra eða
sjálfskiptur, 3 dyra eða 5
dyra. Farþegarými er
sérstaklega þægilegt, haganlega og smekklega
búið, farangursrými ótrúlega mikið og jafnframt
aðgengilegt. Hefurðu gaman af hraðskreiðum,
öflugum og liprum bílum? Þá áttu sannarlega
mikið erindi á frumsýninguna, því sportbíllinn
Suzuki Swift GTI 1990 hefur allan búnað sem
krafist er af fyrsta flokks sportbll og þar er
geysilega öflug vél ekki undanskilin. I stuttu máli:
Suzuki Swift GTI 1990 er óskabíll allra sport-
aksturskappa.
Sjálfstœð fjöðrun Suzuki
Swifí 1990 eykur öryggi
farþeganna og gerir
aksturinn þœgilegri.
Stórglœsilegt útlit,
baganleg hönnun og
ótal nýjungar gera
Suzuki Swift 1990 nœstum
ómótstœðilegan.
Suzuki Swift 1990
Verð frá 626 þúsund
Frumsýning laugardag 10—17
og sunnudag 13—17
í Framtíð, Faxafeni 10.
$SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF.
HÚSI FRAMTÍÐAR, FAXAFENI 10, SlMI 685100