Morgunblaðið - 10.02.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRUAR 1990
17
Hið nýja aðsetur BSR við Skógarhlíð. Morgunblaðið/J6n Stefánsson
BSR flytur í ný húsakynni
fermetrar að flatarmáli, var vígt
við hátíðlega athöfn í gær. Að
sögn Guðmundar Barkar Thorar-
ensen, framkvæmdastjóra BSR,
hefur fyrirtækið tekið í notkun
nýja tölvustýrða símstöð sem býð-
ur upp á mikla möguleika, og hef-
BIFREIÐASTÖÐ Reykjavíkur
hefur flutt aðsetur sitt úr Lækj-
Bifreiðastjóra-
félagið Sleipnir:
argötu 4b í nýtt húsnæði við
Skógarhlíð. Útibú frá fyrirtæk-
inu verður framvegis í Lækjar-
götu, en einnig stendur til að
fjölga stæðum sem eru á víð og
dreif um borgina.
Nýja húsnæðið, sem er um 200
Klippt á borða við vígslu hússins, talið frá vinstri: Jens Pálsson, sem
ekið hefur lengst núverandi bílstjóra á BSR eða síðan 1945, Ingimar
Einarsson, sljórnarmaður í Starfsmannafélagi BSR, Snjólfur Pálma-
son, formaður Starfsmannafélagsins, Guðmundur Börkur Thorarens-
en, framkvæmdastjóri BSR og Eggert Thorarensen, forstjóri fyrir-
tækisins.
ur símalínum þess nú verið fjölgað
úr 6 í 10. Þá væri einnig verið að
setja upp nýtt talstöðvarkerfi, sem
gæfi möguleika á að afgreiða bíla
á fleiri en einni rás. „Þetta er í
fyrsta sinn síðan BSR var stofnað
árið 1921, sem fyrirtækið er í
raunverulegu framtíðarhúsnæði.
Við verðum áfram í Lækjargöt-
unni með aðstöðu fyrir bílstjórana,
en einnig verður starfsmaður þar
til að taka á móti viðskiptavinum
á opnunartíma verslana á virkum
dögum.“
I dag starfa á milli 160 og 170
manns hjá BSR, en bílstjórarnir
eru rúmlega 150 talsins.
Fimm daga
verkfall hefet
á miðnætti
FIMM daga verkfall iijá Bifreiða-
sijórafélaginu Sleipni hefet á mið-
nætti í nótt. Fundir stjórnar- og
trúnaðarmannaráðs við viðsemj-
endur hafei verið árangurslausir
og í fyrrakvöld var samþykkt að
boða til 10 daga verkfalls, frá 22.
febrúar til 3. mars.
Samningar voru lausir 1. janúar
sl. Helstu kröfur félagsins voru að
grunnlaun hækkuðu um nær 100%;
úr um 42_ þúsundum króna í um 80
þúsund. Óskar Stefánsson gjaldkeri
Sleipnis sagði að félagið hefði dreg-
ið úr kröfunum hjá sáttasemjara og
óskað eftir sambærilegum samning-
um og gilda hjá SBK, þar sem
grunnlaun eru um 52 þúsund krón-
ur. „Við buðum að þessi hækkun
kæmi á löngum tíma, allt að 16
mánuðum, en þessu var hafnað og
staðan er því óbreytt," sagði Óskar.
Einar Arnason, sem hefur tekið
þátt í samningaviðræðunum með
vinnuveitendum, sagði að hækkanir
umfram þær, sem samið var um hjá
ASÍ og vinnuveitendum, kæmu ekki
til greina. „Það er beinlínis skylda
vinnuveitenda að standa vörð um
þann samning. Það eru bein ákvæði
í honum um það.“
Síðasti sáttafundur var í fyrradag,
en annar hefur ekki verið boðaður.
Óskar sagði að allur akstur fyrir
Flugleiðir myndi stöðvast á mið-
nætti, svo og ferðir með Landleiðum
og Norðurleið og röskun yrði á ýms-
um öðrum ferðum.
Myndir eftir
börn sýndar
í Gerðubergi
OPNUÐ verður sýning á verð-
launamyndum og öðrum völdum
myndum úr samkeppni um gerð
myndeftiis til tóbaksvarna í
grunnskólum landsins í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í dag,
laugardaginn 10. febrúar klukk-
an 14.
Samkeppnin fór fram í öllum
bekkjum grunnskóla í nóvember og
desembermánuði. Jafnframt verður
gerð grein fyrir úrslitum samkeppn-
innar og verðlaun afhent.
Sýningin í Gerðubergi verður
opin næstu vikurnar mánudaga til
fimmtudaga frá klukkan 9-22 og
laugardaga klukkan 10-16.
3 RÉTTA MÁLTÍÐ
A KR. 610
Kjorobótoveislo
í Veitingohöllinni
Vió í Veitingahöllinni fögnum nýgeróum kjarasamningum og leggjum
strax okkar lóó á vogarskálarnar meó því aó bjáÓa glæsilegan helgarmat-
seóil á stórlækkuóu verói í hádegi og á kvöldin.
Djúpsteikt ýsuflök orly m/korrý og grjónum . kr 610 Salatdiskur m/túnfiski og kotasælu 410
Pönnusteiktur steinbítur m/hvítluukssmjöri kr. 650 Reyktur lox m/eggjahræru kr 350
Fiskgratín hússins kr 690 Rækjur og sellerí m/rifnum osti kr. 350
Gljóð heilagfiski m/aspargus og osti kr. 790 Skinkubrouð m/icebergsalati, sinnepi og osti, kr 290
Snitchel m/lauk, papriku oq sveppum Marineraðar lambalundir m/bernaissósu ...kr. 890 kr 1.090 Súpa og eftírréttur ínnifolin í öllu verði. Bornarétfir ...kf. 150
Kafflhlaðborðið á sunnudögum girnilegra og Qölbreyttara en
nokkru sinni fyrr með hnallþórum og brauðtertum.
Kaffihlaðborð sem seint gleymist.
fyrir alla
og
ódýr tilbreyting.
Húsi Verslunarírmar - símar: 33272-30400