Morgunblaðið - 10.02.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
19
Japanir óttast
norður-kóreskt
kjamorkuver
Tókió. Reuter.
JAPÖNSK stjórnvöld hafa áhyggjur af stækkun kjarnorkuvers í
Norður-Kóreu því talið er að þar séu Norður-Kóreumenn að koma
sér upp aðstöðu til smiði kjarnorkuvopna.
Við rannsóknir á gervihnatta-
myndum, sem teknar voru með
þriggja ára millibili, hefur verið
sýnt fram á að Norður-Kóreumenn
væru að reisa risastórt kjarnorku-
ver í Nyongbyong, 90 km norður
af Pyongyang, höfuðborg Norður-
Kalifornía:
Barist við
olíuleka
Huntingfton Beach. Reuter.
MIKILL viðbúnaður er nú undan
ströndum Kaliforniu vegna leka
frá olíuskipi. Ekki tókst að koma
í veg fyrir að olíubrák bærist á
land á Huntington Beach, sum-
ardvalarstað auðugs fólks, suður
af Los Angeles. Hætta er nú tal-
in á að olían spilli fúglagriðlandi
í nágrenni borgarinnar.
Á aðfaranótt fímmtudags byijaði
að leka úr olíuskipinu American
Trader tveimur mílum undan Hunt-
ington Beach. Svo virðist sem akk-
eri hafi lpsnað og rifið gat á síðu
skipsins. í skipinu voru tæp 95.000
tonn af hráolíu en 1.135 tonn láku
út. Bandaríski sjóherinn var fenginn
til að aðstoða við hreinsistarf en
olíuflekkurinn er um 18 ferkíló-
metrar að stærð. 21 skip tekur þátt
í aðgerðunum þar af sex svokallað-
ar „ryksugur", skip búin mjög
kraftmiklum hreinsibúnaði. Haft er
á orði í Bandaríkjunum að þar hafi
sjaldan verið brugðist jafn skjótt
við olíuleka og af jafn miklum
þrótti.
Kóreu, og lagt að því vegi. „Þegar
stöðin verður komin í notkun verður
þar hægt að vinna plútoníum og
smíða kjarnorkuvopn," sagði há-
skólaprófessor, sem rannsakaði
ljósmyndirnar. Þær voru teknar af
franska jarðkönnunarhnettinum
SPOT í júní 1986 og maí 1989.
í fyrra helt enska tímaritið „Jane’s
Defence Weekly“ þ’ví fram að
líklega öðiuðust Norður-Kóreu-
menn getu til þess að smíða kjarna-
vopn innan fimm ára.
Að sögn japanskra blaða byggðu
Norður-Kóreumenn 2.000-4.000
kílóvatta kjarnorkuver með hjálp
Sovétmanna í Nyongbyong fyrir
10-15 árum. Hefði það verið reist
í vísindaskyni og til rannsókna. Á
SPOT-myndunum 1986 hefði í ljós
komið að þar stæðu yfir bygginga-
framkvæmdir og myndirnar frá í
fyrra hefðu staðfest, að það hefði
verið stórstækkað, m.a. væri þar
risin risastór bygging og mikil
vegagerð hefði att sér stað í ná-
grenni versins.
Risaveldarómantík
Þessi mynd var tekin skömmu eftir að Suzan Eisenhower, barna-
barn Dwights D. Eisenhowers, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og
Roald Sagdeyev, vísindamaður hjá Sovésku geimferðastofnuninni,
höfðu verið gefin saman í hjónaband í Griboyedovski-hjónavígsluhöll-
inni í Moskvu í gær. Eins og sjá má blómstrar ástin milli þessara
fulltrúa risaveldanna.
Tyrkland:
66 kolanámu-
menn farast
Ankara. Reuter.
66 námumenn fórust þegar gas-
sprenging varð í kolanámu
skammt frá Merzifon-bæ í Tyrk-
landi í fyrradag. Talið er að ekki
hafi verið hirt um að gera nægi-
legar varúðarráðstafanir til koma
í veg fyrir slysið.
Björgunarmönnum tókst að ná
átta líkum og tveimur slösuðum'
mönnum úr námunni en 58 til við-
bótar urðu innlyksa 350 metrum
niðri í jörðu. Eldar loguðu ennþá í
námunni í gær. „Náman er lokuð
og loft berst hvorki út né inn,“ sagði
Celettin Cakir, framkvæmdastjóri
námunnar, og bætti við að tekið
gæti allt að hálft ár að opna hana.
Þetta er í þriðja sinn sem alvar-
legt slys verður í námunni frá árinu
1965. „Vinnuöryggi í námum ætti
að hafa forgang en í Tyrklandi er
aðeins hugsað um að framleiða og
græða sem mest,“ sagði talsmaður
stéttarfélags tyrkneskra náma-
manna. „Daginn sem sprengingin
varð var of mikill hiti í námunni.
Við fengum einnig vitneskju um að
gasið hefði líka verið of mikið,“
sagði námumaður, sem lokið hafði
vinnu skömmu fyrir slysið. Nokkur
hundruð verkamanna og ættingja
námumannanna söfnuðust saman
fyrir utan námuna til að kreijast
þess að eigendur hennar yrðu sóttir
til saka fyrir að sinna ekki öryggis-
málunum.
Skoðanakönnun
í Noregi:
*
Oánægja
með störf
Jans Syse
Ósló. Reuter.
JAN P. Syse fékk lökustu útkomu
sem nokkur forsætisráðherra
Noregs hefúr hlotið í árlegri
skoðankönnun, sem norska blað-
ið Dagbladet hefúr staðið fyrir í
áratug. Aðeins 15% aðspurðra
voru ánægð með frammistöðu
hans. Syse, sem tók við völdum
í októbermánuði síðastliðnum,
telur niðurstöðurnar alls ekki
slæmar.
Skoðanakönnunin var gerð í jan-
úarmánuði síðastliðnum og 1054
kjósendur spurðir. Samkvæmt nið-
urstöðunum töldu 46% aðspurðra
að Verkamannaflokkurinn, sem fór
frá völdum í október, ætti að mynda
ríkisstjórn, en 35% vildu fremur þá
samsteypustjórn mið- og hægri-
flokka sem nú situr undir forsæti
Syse. 17% höfðu enga skoðun á
málinu.
í umsögn um könnunina benti
Syse á að 64% aðspurðra hefðu
sagt að frammistaða hans væri
„góð eða viðunandi" og aðeins 20%
talið frammistöðu hans slæma.
Norska ríkisstjórnin hefur sætt
mikilli gagnrýni vegna atvinnu-
ástandsins í landinu, en atvinnu-
leysi hefur ekki verið meira í ára-
taigi..................
á raftœkjum og eldhúsáhöldum.
AFSLATTUR ALLTAÐ 70%!!
Nokkur dœmi um verð:
BLOMBERG kæliskápur, hvítur. 3
stjörnu frystihólf, vinstri eða hægri
opnun, hæð 85 cm. Fullt verð:
33.900. Útsöluverð: 25.900. Þú
sparar 8.000.
I'- *
PETRA 1000 watta kaffivél með á-
fyllingarmæli, 10 bolla, fæst í 2 litum.
Fullt verð: 3.950. Útsöluverð: 3.000.
Þú sparar: 950.
TOSHIBA ERS 5740 600 watta tölvu
stýrður örbylgjuofn með hraðþýð-
ingu í hvítum eða brúnum lit, töfra-
pottur fylgir.. Fullt verð: 31.890.
Útsöluverð: 24.600. Þú sparar:
7.290.
PETRA krullujárn með hitablæstri.
Fullt verð: 2.190. Útsöluverð: 990
Þú sparar 1.200.______________________
Ennfremur alls konar eldavélar, gufugleypar, kæliskápar
og frystiskápar með 10-20 % afslætti, kaffivélar, brauð-
ristar, pelahitarar, partígrill, hraðsuðukatlar, efdhúsvaskar
og margt fleira með allt að 40 % afslætti.
Athugið að allar gerðir TOSHIBA örbylgjuofna verða seld-
ar með 10% afslætti meðan á útsölunni stendur og að
þeim fylgir öllum frír töfrapottur að auki!
Nú er um að gera að hafa hraðar hendur, því aðeins er um
takmarkað magn að hverri vörutegund að ræða!
Sérstök laugardagsopnun frá kl. 10 - 4.
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 — ® 16995 og 622900
* öll útsöluverð eru staðgr. verð.