Morgunblaðið - 10.02.1990, Side 24
24
MORGtTNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
f
Minning:
Ólafur I. Þórðarson
mjólkurfi~æðingur
Fæddur 9. júlí 1909
Dáin 31. janúar 1990
Nú fjöll og byggðir blunda
á beð sinn allir skunda,
og hljótt er orðið allt.
(H. Hálfdánarson)
Kvöldsett var orðið í lífí aldraðs
vinar míns og vinnufélaga og síðustu
mánuðina var líkaminn hnepptur í
fjötra illvígs sjúkdóms, sem bæði
hann og aðrir vissu, að myndi að
lokum bera sigur af hólmi. Nú er
stríðinu lokið, en það er ekki tapað
fyrir því. Lífíð sigrar alltaf dauðann
að lokum — og minningin um góðan
dreng og gegnan lifír æ í hugum
okkar, sem eftir stöndum.
Óli var kominn á efri ár, er við
kynntumst, fyrir rúmum tíu árum.
síðan. Þá var ég nýliði í starfí hjá
Mjólkursamlagi Borgfirðinga, en
hann átti þar þá langan starfsdag
að baki, sem ég veit, að hann hefur
skilað af sömu trúmennsku og öðru,
er hann lagði hönd að. Hann átti
stóra fjölskyldu og ég held að full-
yrða megi, að allt líf hans og atorka
var þeim helguð, Guggu og bömun-
um sem voru stolt hans og gleði.
Síðar bættust svo bamabömin í hóp-
inn og ekki skipuðu þau lægri sess
í hug hans og hjarta. Hann og þau
hjón bæði vom framúrskarandi
dugleg að rækja tengslin við hópinn
sinn. Eftir að Óli hætti störfum í
samlaginu, ferðaðist hann töluvert,
og dvaldi þá oft langdvölum hjá
bömunum sínum, sem búa nú dreift
um landið. Ekki þótti honum verra
að geta lagt hönd að verki í þessum
ferðum.
Bókamaður var hann, og átti
margar góðar stundir með bók í
hönd, eftir að um tók að hægjast.
Þá hafði hann sjálfur mjög gott vald
á íslensku máli í ræðu og riti, og
mér þótti mikill heiður að því að
hann sýndi mér oft ýmislegt, sem
hann setti á blað. Sumt af því á ég
enn í fómm mínum, þar á meðai
frásögn, sem hann sendi mér af
broslegum atvikum og kringumstæð-
um, er hann lenti í, eitt sinn er hann
lá á sjúkrahúsi.
Sl. sumar var haldið upp á áttræð-
isafmæli hans af rausn og myndar-
skap eins og þeirra hjóna var von
og vísa. Hann var glæsilegur afkom-
endahópurinn þeirra, sem þama var
samankominn, og þætti ýmsum yfrið
nóg ævistarf að koma þeim öllum
vel á legg og til manns. Daginn þann
er gott að muna, og þá var hann
Óli minn kátur og hress, eins og ég
man hann oftast nær, enda þótt sá
gestur, sem nú hefur haft hann
með sér á burt úr þessum heimi,
væri þá fyrir allnokkru búinn að
boða komu sína. Ég bið þess, að mér
fyrirgefíst sú skuld að hafa ekki
haft hugrekki til að vitja sjúkrabeðs
míns gamla vinar. Á slíkum stundum
verður manneskjan svo lítil sér, að
hún veigrar sér við að standa augliti
til auglitis við dauðann.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég þakka allar góðar stundir, sem
okkur gáfust, og vináttu, sem ég
veit að nær út yfír gröf og dauða.
Síst vil ég tala um svefn við þig:
Þreyttum anda er þægt að blunda
og þannig bíða sælli funda —
það kemur ekki mál við mig.
Flýt þér, vinur, í fegri heim.
Krjúptu að fótum friðarboðans
og fljúgðu á vængjum morgun-
roðans
meira að starfa Guðs um geim.
(Jónas Hallgrímsson)
Við Guðmundur sendum Guggu
og fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum þeim blessunar og
huggunar.
Kristín Halldórsdóttir
Það væri svo ótaj margt hægt að
segja um hann afa, Ólaf Inga Þórðar-
son, og ekki væri það af verri endan-
um, síður en svo. I eftirfarandi línum
langar mig að koma á framfæri
nokkrum minningarorðum um afa
og okkar samskipti síðastliðin tutt-
ugu ár.
Afa hef ég þekkt bókstaflega frá
blautu barnsbeini, því ég fæddist á
heimili hans og ömmu í Borgarnesi.
Dvaldist ég hjá þeim meira eða
minna fyrstu fímm ár ævi minnar
og ætíð síðan hafa verið nokkuð
reglulegar heimsóknir til afa og
ömmu í Borgó. Alltaf var jafn gott
að koma á þeirra heimili, sömu alúð-
legu móttökumar, hvenær sem mann
bar að garði. Aldrei neitt „vesen“
eða óþarfa fyrirhöfn, en öllum tekið
sem heiðursgestum.
Mínar fyrstu bemskuminningar
tengjast afa mikið og minnist ég
sérstaklega tíðra heimsókna í sam-
lagið í Borgamesi, þar sem hann
vann. Margar góðar stundir, hef ég
upplifað með afa, fjölmargar sam-
ræður um menn og málefni; ferðalög
og heimsóknir. Mitt uppáhaldsum-
ræðuefni við afa var unga fólkið þá
og nú. Þar hafði afí sínar ákveðnu
skoðanir og var hreint ekki sáttur
við lífemi ungdómsins í dag! Þetta
voru þær skemmtilegustu rökræður
sem ég tók þátt í, sérstaklega þegar
kom á daginn að samkvæmt lýsing-
um afa var þetta lítið betra í gamla
daga, bara öðruvísi. Samt fór það
ekki milli mála að afi hefur lifað
tímana tvenna og sögur af fátækt
fyrri ára eiga vart við í dag.
Afí var ákaflega fróður maður um
flesta hluti og ósjaidan veitti hann
svör við öllu mögulegu. Bókmenntir
voru hans hjartans mál og hafði
hann m.a. Islendingasögumar flestar
á hreinu. Ég man þegar ég var að
lesa Njálssögu í framhaldsskóla fyrir
rúmlega tveimur árum, þá ræddi
hann fram og aftur um hver hefði
skrifað Njálssögu. Var hann þá búinn
að kynna sér það efni til hins ítrasta
og mynda sér skoðanir á því. Jafn-
vel þótt ég væri algerlega áhugalaus
um hugsanlegan höfund Njálu á þeim
tíma, var ekki nokkur vegur að láta
sér leiðast undir þeim rökum sem
afí færði fyrir sínu máli. Raunar
hef ég ætíð haldið því fram að afi
ætti að gefa út á prenti eitthvað af
því sem hann dundaði við að skrifa,
því óneitanlega var afi vel penna-
fær. Samstíga bókhneigðinni átti
afí mikið safn frímerkja sem maður
skoðaði undir hans leiðsögn með
sérstakri lotningu og þorði ekki fyrir
sitt litla líf að snerta, hér áður fyrr.
Einnig get ég, og bræður mínir
tveir, þakkað afa þá kunnáttu sem
við höfum í skák og spilamennsku,
því þar stóð hann vel að vígi eins og
á fleiri vígstöðvum.
Oft hef ég ferðast með afa gegn-
um tíðina, lengri og skemmri ferðir.
Þar naut hann sín nú aldeilis því
hann gat þulið sögur af hveijum
stað, þó, svo að mesta tilhlökkunaref-
nið, fyrstu árin, hafí verið að koma
við í sjoppu og fá límonaði! Seinna
lærði maður að meta frásagnir hans
að verðleikum.
Það voru svo dæmalaust margir
kostir sem prýddu hann afa minn í
mannlegum samskiptum. Ekkert í
daglegu amstri þess stóra hóps af-
komenda sem hann á, var honum
óviðkomandi. Það kom mér alltaf
jafn mikið á óvart hve vel hann fylgd-
ist með og allt gat ég sagt afa.
Hann fussaði og sveiaði ef honum
mislíkaði, en aldrei man ég til þess
að hann reiddist mér eða svo mikið
sem skammaði mig. Hvernig sem
maður lét var afí alltaf tilbúinn til
viðræðna og alltaf hlustaði hann á
og viðurkenndi mín rök fyrir hlutun-
um þó svo að það breytti á engan
hátt afstöðu hans!
Ég hef ætíð talið mér trú um að
ég ætti hlut í afa og eitt er víst að
hann á stóran hlut í mér. Ég hefði
svo gjaman viljað hafa afa hjá mér
svo miklu lengur en raun ber vitni.
Nú er enginn afí lengur sem vill
hafa ungu stúlkurnar í pilsi, með
sítt hár og fléttur og hvetur til
samskipta við góða bændasyni.
Hann afí minn blessaður er horf-
inn á braut. Undir lokin átti hann í
miklu veikindastríði og segir skyn-
semin manni að þetta hafí verið
besta og líklega eina lausnin að svo
stöddu. Afí var fastur punktur í lífi
mínu en nú er hann einungis í minn-
ingunni og þar verður hann ljóslif-
andi um aldur og ævi. Ég get ekki
annað en verið þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast slíkum manni sem
afi var og einnig að fá að muna
hann nokkuð frískan. Elsku ömmu,
sem ekki hefur síður reynst mér vel,
votta ég dýpstu samúð mína og
bræðra minna, Ingólfs Áka og Guð-
mundar Hauks. Blessuð sé minning
afo # # f
Kristín Kjartansdóttir
Miðvikudaginn 31. janúar sl. and-
aðist í Sjúkrahúsi Akraness Ólafur
I. Þórðarson mjólkurfræðingur í
Borgarnesi eftir lasleika síðustu
misseri og nokkuð erfíða sjúkrahús-
legu síðustu mánuði.
Með honum er genginn hugljúfur
dugnaðarmaður. Langar mig með
nokkrum orðum að minnast tengda-
föður míns, þótt ekki séu tök á að
ræða ýtarlega um hans uppruna og
æviskeið.
Fæddur var hann í Hafnarfírði 9.
júlí 1909, elstur í hópi tólf systkina.
Foreldrar hans voru Sólveig Bjarna-
dóttir frá Sólmundarhöfða á Akra-
nesi og Þórður Einarsson frá Ný-
lendu í Garði, ljósavörður og síðar
bókhaldari, bjuggu þau lengst af í
Hafnarfírði.
Á því heimili var ekki auður í
búi, fremur en víðast annars staðar
á þeirri tíð. Ólafur mun því snemma
hafa farið að taka til hendi og níu
ára var hann sendur til sumardvalar
til skyldmenna í Þverárhlíð í Borgar-
fírði og gekk svo til mörg næstu
sumur. Kómst hann því fljótt í kynni
við það hérað, sem síðar átti eftir
að verða hans heimabyggð og vett-
vangur á langri starfsævi. Fór svo
að hann unni mjög þessu stórbrotna
og fagra héraði, þótt alltaf bæri
hann hlýjan hug til Hafnarfjarðar.
Eftir að barnaskólanámi lauk í
Hafnarfirði, fékkst Ólafur þar við
ýmis störf á vetrum, einkum af-
greiðslu og verslunarstörf. Á sumrin
gerðist hann kaupamaður á ýmsum
stöðum til sveita.
Á þessum árum var hann eitt
sumar aðstoðarmaður við plægingar
með hestum á vegum Búnaðarsam-
bands Suðurlands. Sagði hann mér
eitt sinn að það hefði verið það dýr-
legasta sumar, sem hann hefði lifað.
Veturinn 1926-27 var hann við
nám í Hvítárbakkaskóla í Borgarfírði
og veturinn eftir barnakennari í
Ölfusi.
Næstu árin vann Ólafur við land-
búnaðarstörf og var m.a. þrjú og
hálft ár vinnumaður í Gufunesi, sem
þá var stórbýli.
i
ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna-
samkoma kl. 11 árdegis. Guðsþjón-
usta kl. 14. Kristniboðskynning.
Benedikt Arnkelsson guðfræðingur
prédikar. Organleikari Jón Mýrdal.
Myndasýning frá kristniboðsstarfinu
eftir messu í safnaðarheimili kirkj-
unnar og sýning á munum frá Afríku
í anddyri kirkjunnar. Fyrirbænastund
miðvikudag kl. 16.30. Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns-
son.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Daníel Jónasson.
Bænaguðsþjónusta þriðjudag kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11, Guðrún Ebba Olafsdótt-
ir, sr. Pálmi Matthíasson. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Þorvaldur
Björnsson. Sr. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESPREST AKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta
í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 10. feb.:
Barnasamkoma kl. 10.30. Munið
kirkjubílinn. Sr. Jakob Ágúst Hjálm-
arsson. Sunnudag 11. feb. kl. 11.
Messa. Dómkórinn syngur. Organ-
isti Kjartan Sigurjónsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Kl. 14. Messa. Dóm-
kórinn syngur, organisti Ann Toril
Lindstad. Sr. Hjalti Guðmundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Sr. Ólafur Jóhannsson.
Organisti Kjartan Ólafsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Umsjón Ragnheið-
ur Sverrisdóttir. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Hreinn Hjartarson.
Organisti Guðný M. Magnúsdóttir.
Miðvikudag: Guðsþjónusta með alt-
arisgöngu kl. 20.30. Prestur sr.
Guðmundur Karl Ágústsson, organ-
isti Guðný M. Magnúsdóttir. Sóknar-
prestar.
GRAFARVOGSPRESTAKALL:
Messuheimilið Félagsmiðstöðinni
Fjörgyn við Foldaskóla. Barnamessa
kl. 11. Sunnudagspóstur — söngvar.
Aðstoðarfólk Guðrún, Valgerður og
Hjörtur. Skólabíll fer frá Hamra-
hverfi kl. 10.45. Messa kl. 14. Kirkju-
kór Grafarvogssóknar syngur. Org-
anisti Sigríður Jónsdóttir. Safnaðar-
kaffi eftir messu. Kynnt starfsemi
Systrafélags Víðistaðasóknar,
Bræðrafélags Bústaðasóknar og
Safnaðaríélags Ássóknar. Almennar
umræður. Sr. Vigfús Þór Árnason.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 11. Eldri börnin uppi í kirkjunni,
yngri börnin niðri. Guðsþjónusta kl.
14. Fyrirbænir eftir guðsþjónustuna.
Guðspjall dagsins:
Matt: 20.:
Verkamenn í
víngarði.
Organisti Árni Arinbjarnarson.
Samverustund aldraðra miðvikudag
kl. 11. Biblíulestur og bænastund
laugardag kl. 10.
HALLGRIMSKIRKJA: Laugardag
10. feb. Samvera fermingarbarna
kl. 10. Sunnudag: Messa og barna-
samkoma kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Matur eftir messu. Kvöld-
messa með altarisgöngu kl. 17. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þeir sem vilja
bílfar hringi í Hallgrímskirkju í síma
10745 eða 621475. Þriðjudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Morgunmessa
kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barna-
guðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer
um Hlíðarnar fyrir og eftir barna-
guðsþjónustuna. Hámessa kl. 14.
Sr. Arngrímur Jónsson. Kvöldbænir
og fyrirbænir eru í kirkjunni á mið-
vikudögum kl. 18. Prestarnir.
HJALLAPRESTAKALL: Messusalur
Hjallasóknar í Digranesskóla.
Kristniboðskynning: Barnamessa kl.
11. Sr. Guðmundur Guðmundsson
kristniboði kemur í heimsókn og
greinir frá starfi sínu f máli og
myndum. Almenn guðsþjónusta kl.
14. Sr. Guðmundur Guðmundsson
kristniboði prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt sóknarpresti. Að messu
lokinni annast sr. Guðmundur kynn-
ingu á starfi sínu sem kristniboði.
Fermingarbörn og foreldrar þeirra
sérstaklega hvött til þátttöku í
messunni. Samvera fyrir fermingar-
börn úr Digranesskóla og Snælands-
skóla kl. 20-22, að Lyngheiði 21.
Sr. Kristján Einar Þorvarðarson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu Borg-
um sunnudag kl. 11. Umsjón hafa
María og Vilborg. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Arni Páls-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Óskastund barn-
anna kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Altarisganga. Sr. Þórhallur Heimis-
son.
LAUGARNESKIRKJA: í dag, laugar-
dag, guðsþjónusta í Hátúni 10b, 9.
hæð, kl. 11. Sunnudag 11. feb.:
Messa kl. 11. Bjarni Karlsson guð-
fræðinemi prédikar, altarisganga.
Barnastarf er á sama tíma. Kaffi á
könnunni eftir messu. Bænastund
þriðjudagskvöld kl. 22. Kyrrðarstund
í hádeginu fimmtudag. Orgelleikur,
fyrirbænir, altarisganga. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.
Umsjón Sigríður Óladóttir. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Munið kirkjubílinn. Orgel-
og kórstjórn Reynir Jónasson. Mið-
vikudag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
SEUAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Organisti Þröst-
ur Eiríksson. Fyrirbænaguðsþjón-
usta föstudag kl. 21. Sóknarprestur.
SELTJARNARNESKIRKJA: Barna-
og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnakór kirkjunnar syngur í fyrsta
sinn. Organisti Gyða Halldórsdóttir.
Prestur sr. Solveig Lára Guðmunds-
dóttir. Starfsfólk barnastarfs að-
stoöar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Jónas Þórir.
Þórsteinn Ragnarsson safnaðar-
prestur.
FRÍKIRKJAN í Rvík: Guðsþjónusta
kl. 11. (tíminn valinn með tilliti til
Ríkisútvarpsins.) Miðvikudag kl. 7.30
morgunandakt. Orgelleikari Pavel
Smid. Cecil Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Lág-
messa kl. 8.30, stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18 nema á laugardögum,
þá kl. 14. Á laugardögum er ensk
messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga lág-
messa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Safnaðarsamkoma kl. 11. Ræðu-
maður Guðni Einarsson. Sunnudag-
askóli kl. 11. Almenn samkoma kl.
20. Ræðumaður Hallgrímur Guð-
mannsson.
KFUM & KFUK: Samkoma Amt-
mannsstíg 2b kl. 20.30. Upphafsorð:
Anna Hugadóttir. Ræðumaður sr.
Jón D. Hróbjartsson.
NÝJA Postulakirkjan: Messa kl. 11
á Háaleitisbr. 58.
MOSFELLSPRESTAKALL: Barna-
samkoma í safnaðarheimilinu kl. 11
í umsjá Guðnýjar og Sigrúnar.
Messa í Lágafellskirkju kl. 14. Sr.
Birgir Ásgeirsson.
GARÐASÓKN: Guðsþjónusta í
Garðakirkju kl. 14. Ólafur Helgi Ól-
afsson viðskiptafr. flytur ræðu.
Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sr.
Bragi Friðriksson. Barnasamkoma í
Kirkjuhvoli kl. 13.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
VÍÐISTAÐASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson messar.
Kór Víðistaðasóknar syngur. Organ-
isti Kristín Jóhannesdóttir. Sr. Sig-
urður H. Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn.
Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarbörn
aðstoða. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarf.: Barnasam-
koma kl. 11. Sr. Einar Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspítala: Há-
messa kl. 10.30. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl.
8.30. Rúmhelga daga messa kl. 8.
INNRI-Njarðvíkurkirkja: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14 í safnaðarheim-