Morgunblaðið - 10.02.1990, Síða 31
MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. KBBRCAR >1990
0831
fclk f
fréttum
BLEKKING?
Eiginmaður Karólínu á
fangelsun yfir höfði sér
Nú er uppi fótur og fit í smárík-
inu Mónakó, en Stefano, hinn
ítalski eiginmaður Karólínu prins-
essu, hefur verið kallaður heim til
að svara til saka fyrir skjalafals.
Hann lagði fram vottorð lækna um
líkamlegt og andlegt óheilbrigði
árið 1983 og var leystur undan
herþjónustu vegna þessa. Nú þykir
sýnt að skjöl þessi hafi.verið fölsuð
eða læknum hafi verið mútað og á
Stefano yfir höfði sér allt að 6 ára
fangelsi ef hann verður sekur fund-
inn. Karólína hefur gífurlegar
áhyggjur af þessu, því að hún ótt-
ast að Stefano kunni að verða lúbar-
inn eða jafnvel myrtur í steininum.
Víst þykir að Stefano muni svara
kallinu og svara til saka, en hann
hafi með sér her lögmanna og leiti
allra leiða til að komast hjá fangels-
isvist.
Það var árið 1983 að Stefano
Karólína og Stefano með tvö
barna sinna.
lagði fram plöggin. Þar báru lækn-
ar að Stefano væri með æxli í
kynfærum. Þau hefðu gert hann
óftjóan og valdið um leið slíkum
sálarskaða að hann væri óhæfur
til að gegna herþjónustu. Ári síðar
áttu þau Stefano og Karólína sitt
fyrsta barn og í dag eru börnin
þrjú, þannig að fullyrðingar um
ófijósemi Stefanos eru stórlega
ýktar. Þessu vilja saksóknarar á
Italíu ekki una og hafa kvatt Stef-
ano fyrir dómstóla. Stígi hann á
ítalska grundu verður hann umsvif-
alaust handtekinn.
Nú er talið að Stefano kunni að
vera í bráðri lífshættu í fangelsi.
Búið er að greina honum frá því
að hann hljóti enga sérmeðferð
Guðmundur Sv. Hermannsson
eir sem fóru í síðustu ferð MS
Eddu hér um árið gleyma
henni sennilega seint. Skipið lenti
í vitlausu veðri suður af landinu og
á meðan minnti fátt um borð á að
þetta væri skemmtisigling. Bræð-
urnir Haraldur og Þórhallur Sig-
urðssynir voru í þessari Edduferð
og ég hef lúmskan grun um að hún
hafí verið kveikjan að hugmyndinni
um skemmtunina Ómladí, Omlada
í ólgusjó á Sögu.
Þar er sviðsetningin sjóferð MS
Sögu til Horrimolinos. Einkennis-
klæddir hásetar og skipsþjónar taka
á móti gestum við landganginn,
þ.e. stigann upp í Súlnasal. Borð-
haldið og skemmtiatriðin tengjast'
svo „sjóferðinni" og á stundum
minntu tilburðir á sviðinu á tilraun-
ir Eddufarþega til að stíga ölduna.
Við fórum tvenn hjón á frumsýn-
ingu Ómladí Ómlada á Hótel Sögu.
Á matseðli MS Sögu éru tveir for-
réttir, tveir aðalréttir og tveir eftir-
réttir. Ég valdi í forrétt kryddaðar
vegna stöðu sinnar. Lendi hann í
fangelsi verður hann meðhöndlaður
eins og hver annar fangi. Talið er
nokkuð víst að margur forhertur
fanginn vildi gjarnan kýla þennan
fokríka silfurskeiðardreng til óbóta,
jafnvel ganga enn lengra. Þá er
annað til í dæminu og það er, að
eiturlyfjakóngar skipi einhveijum
fanganum hreinlega að myrða Stef-
ano vegna þess að Karólína hefur
skorið upp herör gegn þeim í Món-
akó. Annað eins hefur gerst. Haft
er eftir Karólínu að þetta séu þau
mestu ótíðindi sem yfir hana hafi
dunið síðan móðir hennar fórst í
bílslysi fyrir nokkrum árum. Hún
hefur lagt hart að Stefano að hunsa
kvaðninguna, en hann er ekki á því.
laxaþynnur Magnúsar óðalsbónda
sem reyndist vera einkar bragðgóð-
ur graflax. Hin fengu sér fljótandi
marfang eftir forskrift Saxa lækn-
is, eða sjávarréttarsúpu, og gáfu
henni bestu meðmæli.
Aðalréttir voru ofnsteiktur svína-
hryggur að hætti Hallgríms skips-
kokks og pipruð og kveikt steik af
perlu fjallanna í anda Marteins
Mosdals. Einn valdi sér svínahrygg-
inn, sem borinn var fram með léttri
sinnepssósu en við hin ákváðum að
lækka lambakjötsfjallið. Við vorum
sammála um að piparsteikin væri
heldur of sterk. Svínahryggurinn
þótti hins vegar ágætur. Við lukum
svo máltíðinni með suðrænu aldin-
mousse, öðru nafni ananasfrómas.
Skemmtiatriðin, sem á eftir fóru,
tengdust sjóferð MS Sögu, eins og
áður sagði. Haraldur Sigurðsson
var í hlutverki skipstjóra sem
tengdi saman atriðin og kynnti, en
Laddi brá sér í sín venjulegu gerfi,
dyggilega studdur af Ömari Ragn-
arssyni.
Satt best að segja kom dagskrá-
in mér skemmtilega á óvart. Ómar
Omar og Laddi í
góðu formi á Sögn
Skemmtanir
VINSÆLDIR
Allir vilja eiga
Paulu Abdul
Söngkonan og dansarinn Paula
Abdul hefur heldur betur sleg
ið í gegn beggja vegna
Atlantsála, þó einkum
heima fyrir í Banda-
ríkjunum. Þessi
snaggaralegi litli
söngfugl hefur heillað
landa sína með poppi
og liðugum dansi, en
að sönnu hafa dansat-
riðin iðulega misboðið
velsæminu í Banda-
ríkjunum og þarf þó
ekki endilega mikið
til að ná þeim árangri.
Stöku myndband hef-
ur verið bannað á
stöku sjónvarpsrás og
hafa önnur bönd
gjarnan verið snikkuð
til og snyrt og það
burt numið sem sært
gæti blygðunarsemi
og siðgæðisvitund ein-
hverra. Allt umtalið
og umstangið hefur
vitanlega aukið á vin-
sældimar og um leið
plötusöluna. Þannig
hafa vopnin snúist í
höndum siðgæðispost-
ula og ekki í fyrsta
sinn.
Svona senur og fleiri í
líkum dúr hafa orðið til
þess að myndbönd Paulu
hafa verið umdeild og
klippt tU.
Paula þessi segist ekkert botna í
að myndbönd sín hrelli fólk, þau
sýni einungis heilbrigt
ungt fólk í ærslafullum
dansi og leik. Hún
segist einnig mikið
hafa brotið heilann um
hina raunverulegu
ástæðu þess að hún sé
jafn vinsæl og raun
ber vitni, því ekki dugi
að nefna að myndbönd
hennar séu umtöluð og
e.t.v. pínulítið djörf.
Ástæðan liggi nú fyrir:
„Blökkumenn halda að
ég sé kynsystir þeirra,
Mexíkóarnir og þessir
rómönsk/amerísku
halda að ég tilheyri
þeirra kynstofni. Ein-
hverra hluta vegna
halda gyðingar að ég
sé gyðingur og arabar
telja nafnið Abdul
benda til þess að ég sé
arabi. Það eru því
margir hópar og fjöl-
mennir sem telja að ég
sé þeirra. Hið sanna er
að ég er blendingur af
Sýrlendingi, Brasilíu-
manni, Kanadamanni
og Frakka!"
Ljósmynd/Kristján Ari.
Eddi og Elli, alias Ómar og Laddi, á leið til Horrimolinos með MS
Sögu.
og Laddi hafa ekki beinlínis verið
ósýnilegir undanfarna mánuði og
ár, og allt er best í hófi. En í þetta
skiptið vom þeir í ágætu stuði og
mörg atriðin vom drepfyndin. Þar
má nefna matseðil Hallgríms Orms
skipskokks, sem kom þó blessunar-
lega ekki nálægt matseldinni þetta
kvöld, Ómar í hlutverki fréttamanns
Stöðvar 2, og sjóferðasögur Leifs
óheppna.
Ég sá Ómar Ragnarsson á Sögu
í fyrra og fannst þessi dagskrá
hniðmiðaðri og betur heppnuð.
Haraldur Sigurðsson átti þar ef til
vill ekki hvað sístan þátt með því
að halda vel um stjórnvölinn en
hann lék einnig nokkur aukahlut-
verk. Ég held að allir eigi að geta
skemmt sér vel á laugardagskvöld-
um á Sögu í vetur, líka þeir sem
telja sig hafa fengið nóg af Ómari
Ragnarssyni og Ladda og persónum
hans í bili.
COSPER
Forstjórinn er mættur, elskan. Ég skal hafa ofan af fyrir
honum þangað til þú kemur.