Morgunblaðið - 10.02.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1990
39
f
I
i
I
I
I
I
I
I
I
!
I
I
ÍÞRÚmR
FOLK
■ BREIÐABLIK fer í æfingabúð-
ir til Stuttgart í apríl. Blikarnir,
sem leika í 2. deildarkeppninni í
knattspyrnu, koma til með að leika
þtjá æfingaleiki í ferðinni.
■ GUÐMUNDUR Baldursson,
sem hefur leikið með Val undanfar-
in tvö ár, hefur gengið til liðs við
sitt gamla félag - Fylki. Guð-
mundur hefur leikið með Hibern-
ian á Möltu í vetur.
■ FYLKISMENN fara í æfinga-
búðir til Hannover í V-Þýskalandi
í apríl.
I NOKKRIR kunnir frjálsíþrótta-
menn ætla að skipta um félag fyrir
sumarið. Gunnlaugur Grettisson,
hástökkvari, ætlar úr ÍR í HSK,
Kristján Gissurarson stangar-
stökkvari fer úr KR í UMSE og
Eggert Bogason, kringlukastari
verður með Breiðabliki í sumar,
en hann keppti fyrir ÍR í fyrra.
Annar kappi sem yfirgefur ÍR er
Þorsteinn Þórsson sem heldur á
heimaslóðir og verður með UMSS.
Allir ættu þeir því að verða meðal
keppenda á Landsmóti UMFÍ Mos-
feUsbæ.
■ STEFFI Graf, tennisdrottning-
in fræga frá V-Þýskalandi, leikur
ekki tennis næstu tvo mánuðina.
Hún féll á síðum í St. Moritz í
Sviss í gær. Hægri handleggur
brotnaði. Graf er 20 ára.
■ MARCO van Basten skrifaði
undir nýjan samning í gær hjá AC
Mílanó. Leikmaðurinn, sem kjörinn
var Knattspymumaður Evrópu í
fyrra, leikur með liðinu til 1993
skv. samningnum.
H WESTHam hefur keypt Ludek
Miklosko, landsliðsmarkvörð
Tékkóslóvakíu fyrir 300.000 pund
frá Banik Ostrava. Hann á að
■HHHH baki 31 landsleik.
FráBob Ekki var gengið
Hennessy nógu snemma frá
i Engiandi samningnum til að
Miklosko geti verið
með í 2. deildarleiknum gegn
Brighton í dag, eins og Lou Mac-
ari stjóri West Ham hafði vonast
til. Hann leikur líklega gegn Old-
ham í undanúrslitum deildarbikars-
ins á miðvikudaginn.
■ DEREK Ferguson, miðvallar-
leikmaður hjá Glasgow Rangers,
er sennilega á leiðinni til Real Soci-
edad á Spáni fyrir 700.000 pund.
Fyrir hjá spánska liðinu er írski
framheijinn John Aldridge.
URSLIT
Handknattleikur
1. DEILD KVENNA:
PH-Haukar 23:14
FH: Kristin Pétursdóttir 6, Björg Gilsdóttir
4, Rut Baldursdóttir 4, Sólveig Birgisdóttir
3, Eva Baldursdóttir 3, Berglind Hreins-
dóttir 2, María Sigurðardóttir 1.
Haukar: Ragnheiður Júlíusdóttir 4/2, Björk
Hauksdóttir 3/1, Halldóra Mathiesen 1, Ása
Þórisdóttir 1, Ragnheiður Guðmundsdóttir
Víkingur-Fram 14:20
Víkingur: Inga Lára Þórisdóttir 6/4, Halla
Helgadóttir 4/1, Svava Baldvinsdóttir 3,
Katrin Jónsdóttir 1.
Fram: Guðríður Guðjónsíóttir 10/8, Ósk
Víðisdóttir 4, Ingunn Bemótusdóttir 2,
Björg Bergsteinsdóttir 2, Ama Steinsen 2.
Körfuknattleikur
STJÖRNULEIKUR KKÍ OG SÍ
Suðumes - Landið 132:129
Iþróttahúsið í Keflavík, úrvalslið íþróttaf-
réttamanna, Suðurnesjaúrval - Landið,
föstudaginn 9. febrúar 1990.
Gangur leiksins: 2:0, 4:4, 4:12, 13:21,
19:32, 21:38, 26:43, 30:47, 36:52, 40:58,
44:65, 50:70, 52:77, 57:85, 69:86, 72:98,
80:101, 86:105, 92:105, 94:112, 100:116,
107:121, 121:121, 126:127, 132:129.
Stig Suðurnesjaúrvalsins: Teitur Örlygs-
kon 33, Patrick Releford 26, Sandy Ander-
son 20, Guðmundur Bragason 17, Friðrik
Ragnarsson 9, Guðjón Skúlason 9, ísak
Tómasson 7, David Grissom 7, Magnús
Guðfinnsson 2, Jón Kr. Gíslason 2.
Stig Landsins: Chris Behrends 39, Jonat-
han Bow 27, Anatoifj Kovtoum 20, Dan
Kennard 16, Páll Kolbeinsson 9, ívar Ás-
grímsson 6, Valur Ingimundarson 5, Guðni
Guðnason 5, Pálmar Sigurðsson 2.
Áhorfendur: Um 400.
Dómarar: Kristján Möller og Leifur S.
Garðarsson sem dæmdu með miklum ágæt-
um.
KNATTSPYRNA
Amar kominn heim
frá Skotlandi
Arnar Grétarsson, leikmaður Breiðabliks, sem hefur ver-
ið hjá Glasgow Rangers í fimm mánuði, er kominn
heim. „Ástæðan fyrir því að ég er kominn nú, er að ekki
náðust samningar á milli KSÍ og Rangers um sölurétt á
mér. Rangei's vijl fá yfirráð yfir mér án þess að greiða neina
peninga fyrir. Ég skrifa ekki undir samning við félag án
þess að fá neitt í minn hlut,“ sagði Arnar.
„Ég verð hér heima þar til að þetta mál leysist og mun
ég leika með Breiðablik í sumar ef ekki næst samkomulag.
Mér liggur ekkert á að skrifa undir samning við erlent fé-
lag. Get vel beðið í tvö til þijú ár,“ sagði Arnar.
Amar sagði að nú væri góður mannskapur hjá Breiða-
bliki. „Það er létt yfir og góður andi hjá strákunum - og
það er kominn tími til að Breiðablik endurheimti sæti í 1.
deild."
HANDBOLTI / BIKARINN
Stjarnan mætir ÍR
Stjarnan, sem sigraði í bikarkeppni HSÍ í fyrra,
fær IR í heimsókn í 32 liða úrslitunum í karlaflokki
nú. Stjörnustúlkurnar, sem sigruðu í bikarkeppni
kvenna í fyrra, mæta Val að Hlíðarenda í kvenna-
keppninni.
Það vekur athygli að b-lið Vals mætir a-liði félags-
ins, eins og í fyrra. Sumir leikjanna fara fram í
næstu viku, en félögin sem eiga landsliðsmenn í
hópi Bogdans leika ekki í keppninni fyrr en eftir
HM, síðari hluta marzmánaðar.
Drátturinn var annars þannig i karlaflokki:
ÍBV-KA, Stjaman-ÍR, Haukar b-Selfoss, Leiftri-UBK, UBK
b-FH, Fram b-Þór Ak., KR b-ÍBK, ÍH-Grótta, FH b-Haukar,
Grótta b-UMFN, Valur b-Valur, HK-KR, Víkingur b-UMFA,
Ármann b-Ármann. Einum leik er þegar lokið, IBV b sigraði
Fram í Ejum 3.1:28. Víkingur situr hjá í þessari umferð.
í kvennaflokki mætir lið Hauka Þrótti, en Haukastúlkumar
lögðu b-lið Vikings að velli, 17:16. Aðrir leikir em: Afturelding-
ÍBV, ÍR-Víkingur, Selfoss-ÍBK, Fram-KR, FH-Grótta, Valur-
Stjaman. Þór á Akureyri situr hjá í þessari umferð.
KÖRFUKNATTLEIKUR / STJÖRNUKVÖLD SÍ OG KKÍ
Suðumesjasigur
á æsispennandi
lokamínútum
Teitur Örlygsson maður leiksins
SUÐURNESJ AÚRVALINU tókst að tryggja sér sigur á
síðustu stundu gegn úrvalsliði Landsins, 132:129 á
stjörnukvöldi Samtaka íþróttafréttamanna og KKÍ í
körfuknattleik í Keflavík ígærkvöldi. Leiknir voru 4 leik-
hlutar, 10 mínútur hver og fljótlega stefndi í stórsigur
úrvalsliðs Landsins sem hafði yf ir í hálfleik 77:52 og
virtist ætla að rúlla Suðurnesjamönnunum upp, en þeim
tókst að snú dæminu við í síðari hálf leiknum og skor-
uðu þá 80 stig gegn 52 stigum Landsins og tókst með
því að tryggja sér sigur í leiknum á lokamínútunum.
Teitur Öriygsson og Patrick Releford voru bestu menn í
Suðurnesjaúrvalinu og fóru á kostum, sérstaklega undir lok
leiksins. Hjá Landinu bar mest á Jonathan Bow og Chris Be-
hrends, Bow átti sjörnuleik í fyrsta leikhluta, skoraði þá 20
mBH stig og voru körfur hans sérlega giæsilegar.
Bjöm Einnig fór fram troðslukeppni og þriggja stiga
Blöndal keppni. Troðslukeppnin var hálf mislukkuð, en
sknfar - þar gjgragi Bandaríkjamaðurinn Ron Davis í
UMFG. Meistarinn frá því í fyrra, Teitur Örlygs-
son féll út í undankeppninni auk Bandaríkjamannsins Sandy
Andersson í ÍBK sem talinn var einna sigurstranglegastur fyrir
keppnina. Valur Ingimundarson sigraði í þriggja stiga skot-
keppninni, hitti í 7 skotum af 15 í úrsiitakeppninni, en í undanúr-
slitum náði Guðjón Skúlason bestum árangri, hitti 8 sinnum.
Hann varð í öðru sæti, hitti 6 sinnum í úrslitunum.
Tveir úr hópi áhorfenda gafst kostur á að vinna sér inn bíl,
Micra frá Ingvari Helgasyni ef þeim tækist að hitta í tvígang
í körfuna frá miðju, en það tókst ekki að þessu sinni. Þá kepptu
íþróttafréttamenn gegn stjóm KKÍ sem styrkti lið sitt með
Laslo Nemeth landsliðsþjálfara og lauk þeirri rimmu með sigri
þeirra KKÍ-manna sem skoruðu 18 stig gegn aðeins 8 stigum
„pressunnar".
MorgunblaðiS/Einar Falur
Troðið með tilþrifum
Patrick Releford, leikmaður frá Njarðvík treður með tilþrifum á lokamínútum leiksins
í gærkvöldi. Releford fór á kostum bæði í sókn og vörn í síðasta leikfjórðungi. Til hægri
er Keflvíkingurinn Sandy Anderson og hefur hann greinilega gaman af tilburðum landa
síns. Hlær að minnsta kosti dátt að öllu saman...
HANDBOLTI / 1. DEILD KVENNA
Fram styrkir
enn stöðu sína
Vann auðveldan sigur á Víkingi, 20:14
FRAM styrkti enn stöðu sína á
toppi 1. deildar með fremur
auðveldum sigri á Víkingi í
gærkvöldi, 20:14. Fram hefur
því fjögurra stiga forskot á
Stjörnuna sem mætir Val í
Valsheimili ídag kl. 17.30. Þá
sigraði FH nágranna sína úr
Hafnarfirði 23:14.
Leikur Víkings og Fram var jafn
framan af, en um miðjan fyrri
hálfleik sigu Framarar- fram úr og
voru yfir í leikhléi 7:12. Síðari hálf-
leikur var jafn, en
Katrín sigur Fram þó ekki
Friöriksen f hættu og Víkingar
náðu aðeins að
minnka muninn í 4
mörk um tíma.
.Skyttum. beggja liða. yorufrekar
mislagðar hendur og fá mörk komu
frá þeim í leiknum. Þar var þó
Guðríður Guðjónsdóttir, Fram, und-
antekning því hún skoraði 10 mörk
þrátt fyrir að hafa sig lítið í frammi.
Guðríður er mjög örugg í vítaskot-
unum og skoraði úr 8 slíkum að
þessu sinni. Þá skoraði Ósk Víðis-
dóttir falieg mörk fyrir Fram úr
hægra horninu. Inga Lára Þóris-
dóttir og Halla Helgadóttir voru
atkvæðamestar Víkinga.
Öruggt hjá FH
Eftir jafnan fyrri hálfleik í viður-
eign FH og Hauka skiptu FH-ingar
um gír í þeim síðari og unnu stórsig-
ur 23:14. Haukar verma því enn
botnsæti deildarinnar og hafa ekk-
ert stig hlotið í vetur, en FH á í
baráttu um þriðja ssetið..........
Laugardagur kl.14: 55
6. LEIKVIKA- 10, fe ‘b. 1990 1 m m
Leikur 1 Aston Villa - Sheff. Wed.
Leikur 2 Chelsea - Tottenham
Leikur 3 Everton - Charlton
Leikur 4 Man. City - Wimbledon
Leikur 5 Miliwall - Man. Utd.
Leikur 6 Norwich - Liverpooi 1« mm mm
Leikur 7 Barnslev - Svindon
Leikur 8 Oxford - W.B.A.
Leikur 9 Portsmouth - Newcastle
Leikur 10 PortVale - Watford
Leikur 11 Sunderland - Blackburn
Leikur 12 Wolves - Ipswich
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN s. 991002
* j* R ^ • •• mm A Di' ini uts. a Rl