Morgunblaðið - 22.02.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 22.02.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ KIMMTUDACUJK 22. FEBRÚAR 1990 21 Tékkóslóvakía: Hreinsanir í kommúnista- flokknum Prag. Reuter. TÉKKNESKI kommúnistaflokk- urinn hefúr nú losað sig að mestu við heila kynslóð fyrrum ráða- manna. A laugardag voru Gustav Husak, fyrrum forseti landsins, Lubomir Strougal, fyrrum for- sætisráðherra, og 20 aðrir harðlínumenn reknir úr flokkn- um. Miðstjórn flokksins lýsti því yfir að hinir burtreknu hefðu gerst,sek- ir um misbeitingu valds og dóm- greindarleysi. Fljótlega eftir að kommúnistar voru hraktir frá völd- um í lQk nóvember voru Milos Jak- es flokksleiðtogi og Miroslav Step- an, flokksformaður í Prag, reknir úr flokknum. Ladislav Adamec, hinn nýi leiðtogi flokksins, sagði við miðstjórnarmenn að flokkurinn yrði að hverfa frá villum fortíðar- innar og beijast í kosningunum í júní sem lýðræðisafl. Reuter Albönsk æska kynnist vestrænum tölvuleik Mynd þessi er tekin í æskulýðsmiðstöð í Tirana, höfuðborg Albaníu, fyrir skömmu og sýnir æskufólk skemmta sér við vestrænan tölvu- leik. Undanfarið hefur nokkuð verið rýmkað um leyfi þar í landi til að flytja inn vörur frá Vesturlöndum. Bretland: Mál vegna gruns um tengsl kjarnorku og krabbameins Noregur: Hjónum dæmdar bætur fyrir að eignast barn Osló. Reuter. DOMSTOLL í Noregi hefur úrskurðað hjónum, sem eignuðust barn, þrátt fyrir að ófrjósemisaðgerð hefði verið gerð á eiginmanninum, 380.000 norskar krónur (um 3,5 millj. ísl. kr.) í bætur. Eiginmaðurinn gekkst undir ófrjó- semisaðgerð á opinberu sjúkrahúsi í suðurhluta landsins fyrir sex árum, af því að hjónin töldu sig ekki hafa efni á að eignast barn, að því er norska dagblaðið Verdens Gang sagði frá á þriðjudag. Enda þótt foreldrarnir fögnuðu komu bamsins sem þau áttu ekki von á, úrskurðaði rétturinn, að stað- aryfirvöldin sem reka sjúkrahúsið skyldu reiða fram sinn hlut til að tryggja framtíð barnsins. YNDA HANDRITA ATRIÐI TIL UMFJÖLLUNAR: ■ Kvikmynd sem miöill. ■ Hvar fæöast hug- myndir að kvikmynd? ■ Saga kvikmyndagerð- ar. ■ Handrit. Leiktexti. ■ Uppbygging texta. ■ Samspil handritshöfundar, leikstjóra og upp- tökustjóra. St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SHARON Coghill, stúdent við háskólann í Aberdeen, hefur ákveð- ið að höfða mál gegn Atómráði brezka ríkisins vegna þess að hún telur geislavirkni frá endurvinnslustöðinni í Dounreay í Skotlandi hafa valdið blóðkrabbameini, sem hún hefur þjáðst af. Ný rann- sókn bendir til sambands á milli Sharon Coghill bjó sem barn í sex kílómetra fjarlægð frá endur- vinnslustöðinni í Dounreay. Hún sýktist af blóðkrabba sem barn, en læknaðist eftir lyfjameðferð. For- eldrar hennar unnu ekki við stöðina í Dounreay. Hún lýsti því yfir um helgina, að hún hygðist fá Atómráð ríkisins dæmt til skaðabóta vegna sjúkdómsins, sem hún telur hafa orsakast af geislavirkni frá stöðinni. Hún segist ekki gera þetta sín vegna fyrst og fremst heldur til að fá það viðurkennt, að þeim börnum, sem þjáðst hafa af blóðkrabba í grennd við brezkar kjarnorkustöðv- ar, beri bætur frá ráðinu. í síðustu viku voru gefnar út niðurstöður könnunar á sambandi géislavirkni og tíðni blóðkraþba- meins við kjarnorkustöðina í Sella- field. Þetta er fyrsta könnunin, sem leiðir skipuleg rök að slíku sam- bandi. Niðurstaðan er sú, að hugs- anlegt sé, að mikil geislavirkni hafi áhrif á _sæði feðra, sem aftur valdi því, að börnum þeirra verði hættara við blóðkrabbameini en öðrum börn- um. í könnuninni kemur fram, að á árabilinu 1950 til 1985 hafi 52 börn í grennd við Sellafield sýkst af blóðkrabbameini. Þessi tíðni er 10 sinnum hærri en að meðaltali á meðal þjóðarinnar allrar. 10 af þessum börnum áttu feður, sem unnu I Sellafield. Sambandið var sterkast, ef feðurnir höfðu orðið fyrir mikilli geislun, áður en börnin voru getin. ' ■ MORONI - Stjórnvöld á Com- oro-eyjum hafa frestað forseta- kosningum, sem fram áttu að fara á sunnudag, til 4. mars. Sjö fram- bjóðendur stjórnarandstöðunnar sökuðu á þriðjudag Said Mohamed Djohar, sem gegnir forsetaemb- ættinu til bráðabirgða og er í fram- boði, um að hafa reynt kosningas- vindl og kröfðust afsagnar hans. Forsetinn vísaði þessum ásökunum á bug og kenndi embættismönnum og stjórnarandstæðingum um að fresta varð kosningunum. Kosning- ar hafa ekki farið fram í landinu frá því það hlaut sjálfstæði frá Frakklandi árið 1975. blóðkrabba og geislavirkm. Tekið er skýrt fram, að ekki er sannað, hvert orsakasambandið sé. En rannsóknin þykir svo vandlega unnin, að yfirvöld hafa þegar fyrir- skipað frekari rannsókn á 100 þús- und einstaklingum, sem hafa orðið fyrir mikilli geislun í störfum sínum. Talsmenn kjarnorkuiðnaðarins benda á, að í þessari rannsókn sé ekki skýrt, hver breyting verði á erfðaeiginleikum sæðisins vegna geislunarinnar. Ennfremur segja FJÖLMIÐLASKÓLI ,!SLANP$ TÍMI: msmman B0RGARTÚNI 24 105 REYKJAVlK SlMI 626655 FAX 624990 Þriðjudagskvöld frá 27. febr. -17. apríl. Aðalleiðbeinandi fylgir nemendum í gegnum allt námskeiðið. KENNARAR: ■ Ari Kristinsson, kvikmyndagerðarmaður, aðalleiðbeinandi. ■ Guðný Halldórsdóttir, kvikmyndagerðarmaður. ■ Sigurður Grímsson, kvikmyndagerðarmaður. ■'Lárus Ýmir Óskarsson, kvikmyndagerðarmaður. ■ Þórunn Siguröardóttir, leikstjóri og handrita- höfundur. Upplýsingar og skráning í síma 626655 þeir, að þessi hugmynd geti einung- is skýrt lítinn hluta tilfella af blóð- krabbameini i börnum. Mikill meiri- hluti þeirra eigi ekki feður, sem vinni í kjarnorkustöðvum né búi þau í grennd við þær. í þessari rann- sókn er raunar vísað á bug öllum getgátum um, að losun geislavirks úrgangs í umhverfi Sellafield hafi getað valdið blóðkrabbameini hjá börnum, sem búa í grennd stöðvar- innar. Talsmenn brezka atómráðsins bentu einnig á um helgina, að geislavirknin í umhverfi Dounreay væri miklu minni en í grennd við Sellafield. Það væru því hverfandi líkur á, að blóðkrabbamein gæti stafað af geislun þaðan. CIRKULIN TOK HJARTAÐ ÚR HVÍTLAUKNUM OG SETTI í LITLAR PERLUR Allicin er hjartað í hvítlauknum. „eaovn Allicin er virka efnið sem talið er valda hinum góðu óhrifum hvítlauks. í Cirkulin fóst allir kostir hvítlauksins í litlum perlum sem auðvelt er að gleypa — nær lyktarlaust — (dví Cirkulin leysist upp í (jörmum, ekki maganum! 09-'“ Uden Sugt og sr| Cir.kulin er hreint nóttúruefni: —- enginn sykur — engin litarefni Cirkulin — þessar með hjartanu J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.