Morgunblaðið - 22.02.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUK 22. FEBRUAR 1990
25
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Á myndina vantar Andreu E. Atladóttur. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Selfoss:
Samning-
ar felldir
Selfossi.
ALMENNUR félagsfimdur í
Starfsmannafélagi Selfosskaup-
staðar á þriðjudag sendi bæjar-
sljóra harðorða ályktun þar sem
mótmælt er hækkunum þjá raf-
veitu og hitaveitu frá 1. febrúar.
Á fúndinum voru nýgerðir kjara-
samningar felldir með 34 atkvæð-
um gegn 3, einn var auður.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
Níu stúlkur tóku þátt í keppninni og munu einhveijar þeirra auk sigurvegarans taka þátt í keppninni
um titilinn Fegurðardrottning íslands 1990.
Fegurðardrottning Suðurnesja valin:
„Öðlast dýrmæta reynslu
og aukið sjálfstraust“
Keflavík.
OLGA Björt Þórðardóttir 17 ára menntaskólanemi var útnefhd feg-
urðardrottning Suðurnesja í Keflavík á laugardagskvöldið. Olga
Björt, sem er búsett í Ytri-Njarðvík, var einnig kjörin besta ljós-
myndafyrirsætan. íris Eggertsdóttir úr Keflavík var útnefnd vinsæl-
asta stúlkan úr hópnum, en alls tóku 9 stúlkur þátt í keppninni.
„Þetta var meiriháttar upplifun,
því ég var búin að ákveða að allt
önnur yrði fyrir valinu,“ sagði Olga
Björt í samtali við Morgunblaðið.
Olga Björt stundar nám við
Menntaskólann í Reykjavík og fer
á milli í rútunni á hvetjum morgni
þegar skóli er. Hún sagði að á þessu
stigi málsins langaði hana mest til
að læra hjúkrun, myndlist eða þá
að starfa sem fyrirsæta. Olga Björt
sagðist ekki búast við að titilinn
hefði neinar meiriháttar breytingar
í för með sér í sínu daglega lífi. „Ég
hef öðlast dýrmæta reynslu og auk-
ið sjálfstraust sem ég hefði ekki
viljað missa af og undirbúningurinn
fyrir keppnina var ákaflega
skemmtilegur tími og hópurinn var
frábær,“ sagði Olga Björt. Foreldr-
ar hennar eru Þórður B. Þórðarson
slökkviliðsmaður á Keflavíkurflug-
velli og Helga Magnúsdóttir kenn-
ari.
Elfa Hrund Guttormsdóttir feg-
urðardrottning Suðurnesja 1989
krýndi Olgu Björtu sem verður full-
trúi Suðurnesja í keppninni um titil-
inn Fegurðardrottning Islands
1990. Baldvin Jónsson, formaður
dómnefndar, sagði að svo fríður
hefði hópurinn verið að fleiri stúlk-
ur yrðu örugglega valdar til að taka
þátt í keppninni um Fegurðar-
drottningu Islands.
BB
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Olga Björt Þórðardóttir fegurð-
ardrottning Suðurnesja 1990.
Félagið hefur farið fram á viðræð-
ur við launanefnd sveitarfélaga og
að hækkanir sem ákveðnar hafa
verið á gjaldskrám orkufyrirtækj-
anna verði dregnar til baka eða
bættar í launum bæjarstarfsmanna.
Bárður Guðmundsson formaður
Starfsmannafélags Selfosskaup-
staðar sagði að félagið tæki mið af
6. grein samningsins en þar segir í
4. lið: „Ekki komi til hækkana á
opinberri þjónustu samanber yfirlýs-
ingu ríkisstjórnarinnar þar um, dags.
1. febrúar.“ Hann sagði að vissulega
hefðu hækkanirnar verið ákveðnar
í janúar en þær hefðu tekið gildi 1.
febrúar. Samningurinn hefði líka átt
að taka gildi 1. febrúar. Hækkanim-
ar og samningurinn tengdust því í
þessum punkti. Hann sagði að á
fundinum hefði ekki verið tekin af-
staða til ástæðnanna fyrir hækkun-
inni.
— Sig. Jóns.
V estmannaeyjar:
19 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Vestmannaeyjum.
Sjálfstæðsflokkurinn í Vest- á lista flokksins fyrir bæjar-
mannaeyjum eftiir til prófkjörs stjórnarkosningarnar í vor.
um næstu helgi, til uppstillingar Nítján frambjóðendur gáfu kost
Siglufirði:
Stöðug bræðsla
TVÖ loðnuskip, Húnaröst ÁR og
Helga II RE, komu hingað til
Frjálst verð
á hrognum
Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins á laugardag varð sam-
komulag um að gefa ftjálsa verð-
lagningu á grásleppuhrognum á
hrognkelsavertíð vorið 1990.
Á fundinum varð einnig sam-
komulag um að frjálst verð verði á
loðnu til frystingar, beitu og
skepnufóðurs á vetrarvertíð 1990.
■ HLJÓMS VEITJN Centaur
heldur blústónleika í Kjallara keis-
arans í kvöld. Sérstakur gestur er
fyrrum söngvari og munnhörpuleik-
ari hljómsveitarinnar, Sigurður
Sigurðsson.
Siglufjarðar um miðja vikuna
með fúllfermi af stórri og fall-
egri loðnu, sem þau fengu við
Reykjanesið. Bræðsla hefúr verið
samfelld hér lengi og þrær enn
hálffúllar, þó 1.400 tonn séu unn-
in á sólarhring.
Það veldur vandræðum í verk-
smiðjunni að mjölbirgðir hlaðast
upp og hefur orðið að grípa til þess
ráðs að geyma það laust á verk-
smiðjugólfínu í stíum, gerðum úr
stórum mjölpokum.
Togarinn Sigluvík er nú frá
vegna bilunar í rafmagni, en
Stálvíkin landaði 80 tonnum í vik-
unni og fór strax aftur á veiðar.
Hún er væntanleg inn aftur eftir
um 10 daga og Ijóst er að vinna
við fiskverkun hjá Þormóði
rammma fellur niður í um það bil
viku.
-Matthías
á sér í prófkjörið og verður núm-
erað við sjö nöfn.
Eftirtaldir gáfu kost á sér í próf-
kjörið: Georg Þór Kristjánsson,
verkstjóri, Þórunn Gísladóttir,
skrifstofustjóri, Ómar Garðarsson,
blaðamaður, Októvía Andersen,
húsmóðir, Andrea Elín Atladóttir,
skrifstofustúlka, Sigurður Jónsson,
kennari, Sigurður Einarsson, út-
gerðarmaður, Grímur Gíslason,
blaðamaður, Bjarnhéðinn Grétars-
son, matreiðslumaður, Ólafur Lár-
usson, leiðbeinandi, Ólafur Þór
Gylfason, nemi, Inda Marý Frið-
þjófsdóttir, bankastarfsmaður,
Sveinn Rúnar Valgeirsson, sjómað-
ur, Stefán Geir Gunnarsson, deild-
arstjóri, Auróra Friðriksdóttir, um-
boðsmaður, Hafliði Albertsson,
verkstjóri, Bragi I. Ólafsson, um-
dæmisstjóri, Sigurjón Þorkelsson,
bakari, Svanhildur Gísladóttir,
verslunarstjóri.
Prófkjörið fer fram 24. og 25.
febrúar nk. og verður það svokallað
útkeyrsluprófkjör, þ.e. kjörseðlum
verður ekið í hús á laugardag og
þeir síðan sóttir aftur á sunnudag.
Auk þess verður opinn kjörstaður.
Utankjörstaðaratkvæðagreiðsla fer
fram í Ásgarði í Vestmannaeyjum
og Valhöll í Reykjavík frá miðviku-
degirium 21. febrúar.
Grímur
21. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. f Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 88,00 83,00 86,35 13,818 1.193.122
Þorskur(ósL) 83,00 55,00 80,09 5,038 403.471
Ýsa 108,00 79,00 101,69 3,285 334.061
Ýsa(ósl.) 92,00 71,00 86,35 2,085 179.997
Karfi 60,00 31,00 39,30 47,195 1.854.747
Ufsi 47,00 30,00 35,80 3,959 141.720
Steinbítur 56,00 46,00 50,93 3,459 176.174
Steinbítur(ósl.) 67,00 25,00 54,29 7,325 397.676
Langa 65,00 44,00 54,99 3,194 175.642
Keila(ósl.) 33,00 33,00 33,00 1,120 36.960
Rauðmagi 129,00 129,00 129,00 0,019 2.451
Saltfiskur 250,00 180,00 202,50 0,150 30.375
Samtals 54,72 91,387 5.000.556
I dag verða m.a. seld 40 tonn af þorski, 14 tonn af ýsu og óákveöið magn af steinbít, keilu og fleiri tegundum úr Ljósfara, Stakkavík og fleiri bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 85,00 58,00 70,14 12,474 874.890
Þorskur(ósL) 98,00 59,00 78,98 —5,377 424.673
Ýsa 92,00 30,00 74,73 15,466 1.155.818
Ýsa(ósl.) 103,00 70,00 96,63 3,562 344.182
Karfi 42,00 30,00 39,81 15,424 614.082
Ufsi 60,00 49,00 56,72 57,451 3.258.314
Hlýri+steinb. 56,00 27,00 43,58 1,920 83.677
Langa 54,00 54,00 54,00 0,606 32.724
Lúða 315,00 290,00 301,84 0,057 17.205
Grálúða 60,00 60,00 60,00 0,680 40.800
Skarkoli 12,00 12,00 12,00 0,377 4.524
Skötuselur 265,00 265,00 265,00 0,094 24.910
Samtals 60,52 113,952 6.696.248
l dag verða meðal annars seld 15 tonn af ýsu, 100 tonn af karfa og 15 tonn
af ufsa úr Má SH og óákveöið magn úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 94,00 47,00 84,44 110,725 9.349.975
Ýsa 125,00 66,00 85,72 17,461 1.496.812
Karfi 46,35 38,00 43,48 1,200 52.171
Ufsi 51,00 34,00 44,61 14,769 658.913
Steinbítur 50,00 46,00 48,79 10,925 532.996
Langa 45,00 43,00 44,74 1,037 45.391
Keila 35,00 20,00 30,34 2,192 66.505
Rauðmagi 96,00 90,00 92,13 0,093 8.568
Lýsa 20,00 20,00 20,00 0,077 1.540
Hrogn 165,00 165,00 165,00 0,062 10.230
Bleikja 100,00 100,00 100,00 0,037 3.700
Samtals 76,82 160,867 12.357.671
Selt var úr Skarfi GK og dagróörabátum. (dag verður selt úr dagróðrabátum.