Morgunblaðið - 22.02.1990, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990
■ SAGNFRÆÐINGAFÉLAG ís-
lands efnir til opins umræðufund-
ar, laugardaginn 24. febrúar, um
nokkur sagnfræðirit sem komu út
á síðasta ári. Fundurinn verður
haldinn í Odda á Háskólalóð og
-hefst kl. 14. Þar hefur Guðrún
Ólafsdóttir dósent framsögu um
íslenskan söguatlas, 1. bindi, sem
Almenna bókafélagið gaf út.
Helgi Þorláksson sagnfræðingur
ræðir um Sögu íslands, 4. bindi,
sem kom út hjá Hinu íslenska
bókmenntafélagi. Loks fjallar
Loftur Guttormsson dósent um
bók Þórunnar Valdimarsdóttur,
Snorra á Húsafelli, útgáfubók Al-
menna bókafélagsins.
■ UM helgina fer fram prófkjör
um val fulltrúa í 6 efstu sæti á
~ iista Alþýðuflokksins að Hamra-
borg 14a. Prófkjörið stendur yfir á
laugardag og sunnudag frá kl. 10
til 20. Frambjóðendur í prófkjörinu
eru Þórður St. Guðmundsson,
Margrét B. Eiríksdóttir, Guð-
mundur Oddsson, Ólafúr Björns-
son, Sigríður einarsdóttir, Þor-
gerður Gylfadóttir, Gréta Guð-
mundsdóttir, Helga E. Jónsdótt-
ir, Gunnar Magnússon og Arnþór
Sigurðsson.
Viatka
þvottavél
31.600stgr
RÖNNING
KRINGLAN
— Sími 68 58 58.
SIEMENS
Frábœr eldavél!
HL 66120
• 5 ólíkar hitunaraðferðir:
venjuleg hitun, hitun
með blæstri, glóðar-
steiking m. blæstri,
venjuleg glóðarsteiking
og sjálfvirk steiking.
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4 - Sími 28300
NEYTENDAMAL
Umferð og mengun á
höfuðborgarsvæðinu
Ingvar Árnason dósent og Guðmundur Haraldsson dósent telja
nauðsynlegt að hafnar verði reglubundnar mengunarmælingar
hér á landi.
VIÐ ÍSLENDINGAR höfum
lengi verið þeirrar trúar að
ástæðulaust sé að hafa áhyggjur
af mengun í nánasta umhverfi
okkar, skaðleg mengun sé að-
eins áhyggjuefni í útlöndum. Af
þeim ástæðum hefur verið talið
ástæðulítið að beina fjármagni
í slíkar rannsóknir hér á landi.
Nú er að koma fram að mengun-
in er umtalsverð hér í þéttbýlinu
- og hefur svo verið lengi.
Við erum mjög kappsamir og
framkvæmdaglaðir Islendingar.
Oft eru þó framkvæmdirnar
þess eðlis að farsælla hefði verið
að kanna málin betur áður en
farið er út í mikilvirkar fram-
kvæmdir. Má vera að þaðan sé
komið orðtakið „að framkvæma
fyrst og hugsa síðan“, og nefht
hefur verið „islenska aðferðin“.
Þessi hraðvirka vinnuaðferð
hefur reynst okkur dýrkeypt,
ekki síst vegna þess að henni
hefiir fylgt andvaraleysi í um-
hverfls- og mengunarmálum.
í nýrri skýrslu, „Athugun á
skipulagi í Fossvog8dal“, sem unn-
in var af þremur stofnunum innan
Háskóla Islands fyrir skipulags-
stjórn ríkisins, fylgir viðauki um
mengun. Þar kemur fram, að þó
reglubundnar mælingar hafi ekki
farið fram á loftmengun hér á
höfuðborgarsvæðinu, ef undan eru
skildar svifryksmælingar Hollustu-
verndar frá árinu 1986, sé ljóst
af þeim loftmengunarrannsóknum
sem gerðar hafa verið við um-
ferðaræðar höfuðborgarinnar, að
loftmengunin var orðin umtalsverð
á áttunda áratugnum.
Efnafræðingarnir Ingvar Árna-
son dósent og Guðmundur Har-
aldsson dósent eru tveir af höfund-
um mengunarviðaukans. Þeir
sögðu í samtali við Neytendasíðu
Morgunblaðsins að þetta muni vera
í fyrsta skipti sem heildarúttekt
er gerð á þessum málum hér á
landi. Ingvar kannaði reglugerðir
um þessi efni, hann bar saman
reglugerðir sem notaðar eru í
Bandaríkjunum og í Evrópu og
setti í samhengi svo hægt væri að
átta sig á þeim mun sem á þeim
er. Hann sagði að ef menn ætli
sér að fjalla um þessi efni, sé nauð-
synlegt að hafa þessar reglugerðir
aðgengilegar og á íslensku.
Þeim bar saman um það, Guð-
mundi og Ingvari, að ljóst væri að
starfsnefndir hefðu ekki kynnt sér
nægjanlega vel þessi efni, áður en
reglugerðir um mengunarmörk
voru samdar. En til að hægt sé
að gera sér grein fyrir mengunar-
ástandinu á höfuðborgarsvæðinu
þyrfti að gera reglubundnar mæl-
ingar sem tækju yfír lengri tíma,
SPEKIDAGSINS
Allt kemur mér vel nema
högg og pústrar.
jafnvel í nokkur ár, þannig að
hægt væri að meta ástandið.
Mengun yfir raeng-
unarmörkum
Ingvar sagði að mengunarmæl-
ingar hafi verið gerðar við Hlemm-
torg á árunum 1975-78 og saman-
burðarmælingar á Miklatúni ná-
lægt Kjarvalsstöðum. Mælingarn-
ar hefðu leitt í ljós, að á þeim tíma
hefði þegar verið komin talsverð
mengun meðfram mestu umferð-
aræðum. Mælingamar gerðu Þor-
kell Jóhannesson og Hörður Þorm-
ar og mældu þeir m.a. nituroxíð
við Miklubraut norðan Kringlu-
mýrarbrautar. Magnið reyndist að
jafnaði vera um 29 míkrógrömm
á rúmmetra, en komst upp í 50
míkrógrömm. Kolmonoxíð var
einnig mælt á þessum stöðum árið
1975 og mældist mest við Mikla-
torg, 36 milligrömm á rúmmetra
sem er vel yfir 25 milligrömm, en
það eru þau mörk sem Hollustu-
vemd hefur sett. Við Hlemmtorg
fór magnið upp fyrir 90
milligrömm á rúmmetra sem er
langt yfir mengunarmörkum.
Þeir félagar benda á, að þetta
sýni að loftmengun sé til staðar í
Reykjavík ekki síður en í stórborg-
um erlendis. Mælingar hafi ekki
verið mjög margar og ætti því að
taka með nokkrum fyrirvara, en
ljóst sé að mengunin hafi farið
yfir sett mörk, þó þau séu ekki
mjög ströng.
Guðmundur sagðist telja að
þessar rannsóknir hafi verið bráð-
nauðsynlegar, en þeim hefði átt
að fylgja miklu fyrr eftir með
reglubundnum mælingum, svo
hægt hefði verið að fá samanburð
til að setja raunhæf mengunar-
mörk.
Blýmengun meiri en í stór-
borgum Bandaríkjanna
Mælingar voru einnig gerðar á
ryki og blýi í götulofti í Reykjavík
á vegum eiturefnanefndar og
Rannsóknastofnunar iðnaðarins,
unnar af sömu aðilum og hinar
fyrri rannsóknir. Blý reyndist ekki
mælanlegt við Kjarvalsstaði, við
Miklatorg mældist það um 23
míkrógrömm á rúmmetra, við
Miklubraut 21 míkrógramm en við
Hlemmtorg um 34 míkrógrömm á
rúmmetra. Þessu til samanburðar
má benda á, að í Bandaríkjunum
var blýmengun I götulofti stór-
borga við upphaf þessa áratugar
frá 0,8-38 míkrógrömm á rúm-
metra, þar sem mengun var mest.
Sigurbjörg Gísladóttir hjá Holl-
ustuvernd hefur frá árinu 1986
gert samfelldar mælingar á
svifryki við Miklatorg. Mælingarn-
ar hafa sýnt að svifryksmengunin
hefur aukist ár frá ári og er farin
að nálgast ískyggilega leyfileg
mengunarmörk. I þessum rann-
sóknum hefur einnig komið fram,
að á síðasta ári hefur dregið úr
blýmengun síðan blýlaust bensín
kom á markað.
Ágreiningur um
mengunarvarnir
Hér á landi hefur verið ágrein-
ingur meðal ýmissa hagsmunaað-
ila um hvort fylgja eigi banda-
rískum reglum um hreinsun út-
blásturs úr bílum eða þeim reglum
sem gilda í ríkjum Evrópubanda-
lagsins. Bandarísku reglumar eru
mun stífari og má geta þess að á
þingi Norðurlandaráðs, sem haldið
verður hér í Reykjavík í næstu
viku, á að taka afstöðu til norrænu
umhverfisvemdaráætlunarinnar
um beinar aðgerðir, m.a. um
hreinsun útblásturs frá bílum að
bandarískri fyrirmynd. Reglur
þessar kveða á um strangt aðhald
bæði á nýjum og notuðum bílum
hvajj mengunarvarnabúnað snertir
og verða þessir bílar að uppfylla
ákveðnar kröfur um mengunar-
varnabúnað jafnvel eftir 80.000
km akstur eða fimm ár.
Efnahagsbandalagsreglurnar
eru aðrar og samkvæmt þeim eiga
mengunarvarnir eingöngu að ná
til nýrri bíla, en ekki þeirra eldri.
Meðaltalsmengun bifreiða skiptir
þar máli, en hún þýðir að mengun-
armörk 80% ijöldaframleiddra bíla
verða að vera undir settum meng-
unarmörkum.
Mengunarvarnir eftir 1992
Hér á landi er sú sérkennilega
staða komin upp, að nýja mengun-
arvarnareglugerðin gerir ráð fyrir
því að hér verði fylgt bandarísku
reglugerðinni um mengunarvarnir
bíla, og nái hún til nýrra bíla sem
fluttir verða inn eftir 1992. í reglu-
gerðinni eru einnig ákvæði um hve
mikið magn efna má vera í út-
blæstri bifreiða, en Bifreiðaskoðun
ríkisins mun aðeins mæla kol-
monoxíð og sótmagn frá bifreiðum.
Ingvar sagði það ekki koma að sök
vegna þess að á kolmonoxíðmagn-
inu megi sjá hlutfall annarra efna
í útblæstri bifreiða. En hann sagð-
ist telja pauðsynlegt að Bifreiða-
skoðun íslands geti fylgst með
því, að mengunarvamabúnaður
bifreiða standist lögbundnar kröf-
ur eftir 1992.
Þó mengunarvarnareglugerðin
geri ráð fyrir mengunarvörnum í
nýjum bílum eftir 1992 er ekki ljóst
hvernig hægt verður að framfylgja
þessum ákvæðum, það gæti orðið
erfitt. Stíf ákvæði gætu t.d. rekist
á viðskiptahagsmuni landsins og
vafamál hvort hægt væri að hefta
innflutning bila frá Austur-Evr-
ópulöndum. Hér á landi er mjög
hátt hlutfall austur-evrópskra bíla
sem eru miklir mengunarvaldar.
Hættuleg eiturefhi
frá bifreiðum
í skýrslu þeirra Ingvars og Guð-
mundar koma fram áhugaverðar
upplýsingar um lauslega áætlað
magn eiturefna sem árlega mynd-
ast af völdum umferðar á höfuð-
borgarsvæðinu og er þar aðeins
miðað við bensínknúnar bifreiðir:
Kolmonoxíð 8.250 tonn.
Nituroxíð 1.155 tonn.
Kolvetni 1.100 tonn,
þar af er bensen 4% eða 44 tonn.
Blý 3 tonn.
Þetta er geysimikið magn eitur-
efna og fer ekki hjá því að eitt-
hvað af þessum efnum verður inn-
byrt af því fólki sem byggir þetta
svæði.
Eitt þessara hættulegu efna er
bensen, en það hefur verið mikið
í fréttum að undanförnu. Guð-
mundur benti á að þó nauðsynlegt
sé að fjarlægja blý úr bensíni þurfí
að vega upp lækkun oktantölu með
því að breyta samsetningu elds-
neytisins. Það er gert með því að
hækka hlutfall aromatískra sam-
banda, t.d. bensen o.f!., í eldsneyt-
inu. Bensen er krabbaméinsvaldur
og er talið geta valdið hvítblæði.
Mengunarmælingar
nauðsynlegar
Ingvar og Guðmundur voru að
lokum spurðir hvað þeir telji nauð-
synlegt að gert verði í framhaldi
af þessum könnunum þeirra á
umhverfismengun.
„Við teljum nauðsynlegt að
hefja hér reglubundnar mengunar-
mælingar" sögðu þeir. „Við Islend-
ingar erum greinilega orðnir á eft-
ir öðrum þjóðum í mengunarmál-
um. Það hefur skort að gerð hafí
verið reglubundin úttekt á aðstæð-
um hér. Við erum búnir að setja
mengunarmörk og reglugerðir án
þess að hafa til þess tilhlýðilegar
forsendur. Við teljum erfitt að setja
slík mengunarmörk nema réttar
forsendur séu fyrir hendi.“
M. Þorv.
■ FYRIRLESTUR verður hald-
inn
á vegum Geðhjálpar, fimmtudag-
inn 22. febrúar kl. 20.30 í
kennslustofu Geðdeildar Land-
spítalans. Fyrirlesari er Bragi
Guðbrands-
son, félagsmálastjóri og nefnir
hann
fyrirlestur sinn: Er aðstoðar að
vænta? Félagsþjónusta. Geðsjúkir.N
Aðgangur er öllum heimill.
Þátttakendur á námskeiði um stillingu oftiakerfa.
■ SAMBAND íslenskra: hita-
veitna og Lagnafélag íslands
héldu nú nýverið námskeið fyrir
pípulagningamenn á Reykjavíkur-
svæðinu um stillingu á ofnakerfí
og hvernig eigi að bæta nýtni
þeirra. Áður hafði þetta námskeið
verið haldið á Akureyri og næst
verður það haldið á Suðumesjum
og síðan víðar um land. Fyrirlesarar
á námskeiðinu voru Hreinn
Frímannsson, yfirverkfræðingur
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, Ragnar
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Verkvangs og Svavar Óskarsson,
verkstjóri hjá Hitáveitu Akraness
og Borgarfjarðar. Námskeiðið var
haldið í Iðnskólanum í Reykjavík.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
|Us>f||wil>W)iií>