Morgunblaðið - 22.02.1990, Qupperneq 33
þeir henni fyrir dygga og góða þjón-
ustu á löngum æviferli.
Á ísafirði kom það í minn hlut að
taka við starfi Hendriks í Lands-
bankanum um miðjan september
1939. Nokkru áður var hann reyndar
búinn að birtast mér í draumi og
segja: „Tak þú við starfi mínu í bank-
anum.“ Enginn tók mark á draumn-
um, sem rættist þó. Svona gerast
örlögin.
Eftir að ég fluttist alfarinn til
Reykjavíkur árið 1955 heimsótti ég
Ásu eins oft og færi gafst. Þá rædd-
um við mikið saman og riíjuðum upp
liðnu árin fyrir vestan, og alltaf hýrn-
aði yfir henni, þegar ísafjörð bar á
góma.
Ása var mjög vel gefin, ennfremur
fljúgandi mælsk og munaði lítið um
að flytja frábærar afmælis- og tæki-
færisræður, ef því var að skipta.
Eina slíka ræðu, er hún flutti fyrir
löngu síðan, minnast vinir hennar
oft á, en þá var Ása komin yfir áttr-
ætt.
Minningarnar sækja á, hver af
annarri, en nú skal staðar numið. Inn
í þessa mynd verður þó að koma
Dóra Sigurjónsdóttir, tengdadóttir
Ásu, sem hefur sýnt tengdamóður
sinni einstaka umhyggju í gegnum
árin. Sá sérstaki þáttur er geymdur
en ekki gleymdur.
Að leiðarlokum fylgja eftirfarandi
vísuorð Herdísar Andrésdóttur:
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð,
fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
Haft er að orði: Þar sem góðir
menn fara eru guðs vegir. Nú er
gatan greið fyrir Ásu, því að „upp-
himinn fegri en augað sér, mót öllum
oss faðminn breiðir“. (E.Ben.)
Innilegar samúðarkveðjur frá okk-
ur hjónum og Guðbjörgu uppeldis-
systur minni til Dóru og annarra
ástvina Ásu Theódórs.
Sveinn Elíasson
Rökkrið færist yfir. Allt er hljótt
á sjúkrastofunni á Isafirði. Faðir
heldur um hönd fárveikrar dóttur
sem loks er sofnuð. Hann spyr konu
í næsta rúmi hvort hún vilji halda í
hönd litlu stúlkunnar í sinn stað ef
hún skyldi rumska. Því er vel tekið.
Þetta var fyrsta en ekki síðasta
aðstoð þessarar hjartagóðu konu við
litlu stúlkuna.
Konan var Ása Theodórs en stúlk-
an var undirrituð. Nafngiftin „Ása
mamma“ varð til vegna náinnar sam-
veru næstu mánaða. Hún gefur
greinilega til kynna hvers virði um-
hyggjan og ástúðin var þriggja ára
bami, fjarri foreldrum. I þá daga var
foreldrum ekki gert kleift að vera
samvistum við börn sín á sjúkrahús-
um.
Manni Ásu, Hinriki Theodórs,
kynntist ég líka og var hann ekki
eftirbátur konu sinnar í ástúð og
hlýju. Manngæskan geislaði frá hon-
um. Því miður urðu kynni okkar allt-
of stutt því að vorið 1939 flutti ég
á annað landshom, en hann lést þann
17. ágúst sama ár.
Árin líða. Leið mín liggur til
Reykjavíkur. Nú skyldi dvalið í höf-
uðborginni heilan vetur við nám. Þá
var tækifærið notað að leita „Ásu
mömmu“ uppi. Þar kom símaskráin
í.góðar þarfir. Eiginlega hefði nafn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1990
33
Ásu Theodórs að vera þar skrautrit-
að. Svo vel og dyggilega þjónaði hún
Landsíma íslands áratugum saman.
Þar var ekki slegið slöku við fremur
en annars staðar. Samviskusemi og
árvekni Ásu var einstök. Hún mátti
ekki vamm sitt vita í neinu. Ná-
kvæmnin og heiðarleikinn voru í
öndvegi. Það var svo sem ekki verið
að kveina og kvarta undan annríki
eða of löngum vinnudegi. Skyldu-
ræknin var henni í blóð borin. Að
gera sitt besta var jafn sjálfsagt og
að draga andann.
En allt tekur enda, einnig starfs-'
ferill manna. Þar um gilda fastar
reglur hjá „því opinbera".
Nú skyldi maður halda að Ása
hefði fallið saman og koðnað niður
er hún, einbúinn, gekk ekki lengur
til starfa utan heimilis. Ó ekki! Slík
var ekki skaphöfn þessarar mætu
konu. Þó að sjón tæki óðum að dapr-
ast tók hún samt til við hannyrðir
og lét sig ekki muna um að læra
nýtt hekl sem henni leist vel á.
Ég vildi að ég væri málari. Þá
skyldi ég mála mynd af henni þar
sem hún kemur galvösk til dyra,
hnarreist og hressileg í fasi og býður
til stofu. Reyndar fékk maður að
drekka í eldhúsinu á Hringbrautinni
undir það síðasta, þegar sjónin var
orðin harla léleg.
Og svo kom að þessu erfiða augna-
bliki, þegar öldungurinn verður að
horfast í augu við þá sorglegu stað-
reynd að ekki verður lengur dvalist
á eigin heimili. Elli kerling er búin
að ná undirtökunum.
Nú hlaut að koma að uppgjöf og
armæðu hjá „Ásu mömmu“. Nei,
ekki aldeilis. Enn var það hreykin
og hnarreist kona sem kom til dyra
á Droplaugarstöðum.
Með bros á vör sýndi hún íbúðina
sem sonur hennar hafði útvegað
henni. Alltaf ánægja, sannkallaður
Pollyönnu-stíll. Öllu snúið á besta
veg.
Ása eignaðist einn son, Richard,
og missti hún hann fyrir tveimur
árum, þann 19. janúar 1988. Eftirlif-
andi kona hans, Dóra Sigurjónsdótt-
ir, breiddi sig þá af enn meiri nær-
gætni og alúð yfír tengdamóður sína
og hafði hún þó alla tíð sýnt henni
æma umhyggju.
Nú hnignaði heilsu „Ásu mömmu"
óðum og skyldi engan undra. Þá tók
sjúkradeild Droplaugarstaða við og
voru þar margar hlýjar hendur sem
hjúkruðu þreyttu gamalmenni.
Þann 13. janúar síðastliðinn varð
Ása Theodórs 100 ára. Hún hafði
þá lítið talað um tíma , aðeins tjáð
sig með svipbrigðum. Dóra sá um
að allt yrði sem ánægjulegast en þó
ekki ofviða afmælisbaminu. Ekki
vissu menn gjörla að hve miklu leyti
Ása naut návistar ættmenna sem
heimsóttu hana. Þegar flestir voru
farnir og komið að kveðjustund
heyrðist afmælisbamið segja: „Ja,
þetta var nú garnan."
Ég á enga ósk heitari til íslensku
þjóðarinnar en að hún eignist sem
flesta þegna með lyndiseinkunn og
gáfur Asu Theodórs. Þá verður auð-
velt að sigrast á erfiðleikum. Ekkert
vol og víl, hálfvelgja né hik, heldur
eljusemi, óeigingirni, ástúð og heið-
arleiki.
Dóra mín, megi allar hlýju, björtu
minningarnar fylla það tómarúm sem
þú finnur óhjákvæmilega til um þess-
ar mundir. Guð veri með ykkur öllum
þessa heims og annars.
Þórný Þórarinsdóttir
:—! — • rtff • j .. [ j ! . W'n Aí(t & háíívitd
Sjyariskr y. ) $
gsuakór a QQQQ
^Laiwaveo 44 s. i35?o
Fulltm sjwsMisfélaganna f Reykiavlk
Ákvörðun
um framboðslista
Fundur verður í fulltrúaráði
sjálfstæðisfélaganna í Reykavík
í Átthagasal, Hótel Sögu,
fimmtudaginn 22. febrúar kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Tillaga kjörnefndar um framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík.
2. Önnur mál.
Fulltrúaráðsmenn eru beðnir að sýna félagsskírteini
sín við innganginn. Þeir félagar í fulltrúaráðinu, sem
enn hafa ekki fengið skírteini, eru beðnir að sýna
persónuskilríki.
Vinsamlegast athugið að fundurinn hefst
kl. 17.30 síðdegis.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
RONNING , __ . __ A
MlSKALTTlLBOÐ
—HJÁ RÖNNIN6 í KRINGLUNNI BÝÐST NÚ EINSTAKT TÆKIFÆRI
CRINGLAN T|i_að eignastsnowcapkælitækiágóðuverði.
Sími: 685868