Morgunblaðið - 22.02.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRUAR 1990
37
félk í
fréttum
Vaclav Havel
í Bandaríkjunum
Vaclav Havel, forseti Tékkósló-
vakíu, kom í opinbera heim
sókn til Bandaríkjanna á mánudag.
Er þetta í fyrsta skipti í sögunni
sem forseti Tékkóslóvakíu sækir
Bandaríkin heim í opinberum er-
indagjörðum auk þess sem Havel
er fyrsti austur-evrópski þjóðhöfð-
inginn sem heldur vestur frá því
að valdakerfí kommúnismans
hrundi til grunna. Havel átti m.a
fund með George Bush, forseta
Bandaríkjanna, og ávarpaði þing-
menn beggja deilda Bandaríkja-
þings. Á þriðjudag tilkynnti Bush
forseti að Tékkar myndu framvegis
njótu bestu kjara sem Bandaríkja-
menn bjóða í utanríkisviðskiptum
sínum en Havel hafði boðað að
hann hygðist leita eftir auknum
samskiptum við Bandaríkjamenn
ekki síst á viðskiptasviðinu.
Havel var hvarvetna sýndur mik-
ill sómi í þessari fyrstu embættisför
sinni til Vesturlanda. Hér á landi
var hann viðstaddur hátíðarsýningu
í Þjóðleikhúsinu á leikriti sínu „End-
urbyggingin“ og í Ottawa í Kanada
tók hann við heiðursdoktorsnafnbót
við York-háskóla, sem hann hafði
verið sæmdur átta árum áður er
hann sat í fangelsi í Tékkóslóvakíu
vegna gagnrýni sinnar á stjórnkerfi
kommúnista
Vaclav Havel við komu sína til Kanada.
Reuter
Havel (fyrir miðju) ásamt Shirley
Temple Black, sendiherra
Bandarikjanna í Tékkóslóvakíu,
við minnismerki í Washington
um bandaríska hermenn sem
féllu í Víetnam-stríðinu
BINDINDIS SEMI
O’Toole minnist drykkju-
áranna o g Islandsmiða
reski leikarinn Peter O'Toole
er nú á sviði Appollo-leik
issins í London í hlutverki Jef-
jys Bernards, sem ritar dálkinn
ow Life“ í enska vikurritið The
lectator. Bernard er kunnur fyr-
drykkjuskap sinn og lýsir hon-
n eða vandræðum sínum og
ikindum vegna hans í þessum
rstæðu ritsmíðum sínum. Þaðan
fur höfundur leikritsins Keith
aterhouse fengið hugmyndir
lar og lýsingar.
1 tilefni af leiksýningunni birt-
ist viðtal við O’Toole í breska blað-
inu The Independent on Sunday,
þar sem meðal annars er rætt við
leikarann um drykkjuskap hans
sjálfs. Er sagt frá því, að O’Toole sé ólíkur flestum
afturbata drykkjumönnum að því leyti, að hann ið-
rist alls ekki, þegar hann rifjar upp hátterni sitt.
Þvert á móti minnist hann drykkjusakaparins inni-
lega. Og til marks um það hefur blaðið þetta eftir
honum:
„Ég kom til London 1953 [hann ólst upj) í Le-
eds] eftir að hafa velst um á korvettu við Islands-
strendur og barist fyrir verndun fisksins [hann
gegndi herþjónustu í flotanum], eftir að hafa þolað
Peter O’Toole
sprengjuárasir [í stríðinu] og orð-
ið að flytjast búferlum og búið
við skömmtun og harðræði, og
ég vildi skemmta mér.“ Síðan
segir hann frá því, þegar hann
hóf að stunda krár og veitinga-
staði í London, þar sem hann hitti
margt fólk sem var í skemmtana-
leit eins og hann. Það hafi verið
undravert fyrir sveitadreng að
geta þrætt krámar og fengið
tækifæri til að hitta kunna andans
menn þess tíma og vera tekið vel
af þeim. Þetta hafi losað mjög á
hömlunum eftir stríðið og skipt
miklu fyrir þá, sem voru dálítið
reikulir í ráði.
í The Independent on Sunday
segir, að ótrúlega margir líti
þannig á, að Peter O’Toole sé stöðugt undir áhrifum
áfengis. Það sé alrangt, þar sem hann hafi hætt
að drekka 1975, þegar ýmis líffæri voru fjarlægð
úr maga hans. Er líklegt, að áfengið hafi ráðið
mestu um skaðan á þeim og vonandi ekki sjóveikin
við íslandsstrendur 1953, en þá áttu íslendingar í
fyrstu landhelgisdeilunni við Breta. Hefur O’Toole
vafalaust fremur verið að vernda veiðar breskra
togara við landið en fiskinn.
Hofum fengið aftur
hinar vinsælu spóiur
með æfingum frá
Louise Hay
* Feellng Fine Affirmotiona
* Anger Releasing
* Chancer, DiscoverYourHealing
Power
* Forgiveness/Love Your Inner Child
★ Morning and Evening Meditations
* YouCanHealYourLife
★ Self Healing/Loving Yourself
★ What I Believe/Deep Relaxation
+ Dissolving Barriers
Enn ein sending af bókinni
You Can Heal Your Life
Michael bækurnar:
Messages From Michael
* Michael'sCastof Characters
★ Michael’sGemstone Dictionary
★ The World According to Michael
* Michael Handbook
★ EarthtoTao
★ TaotoEarth
Bækur Joan Grant:
Bækur um stjörnuspeki,
kristalla og heilun
Winged Pharoah
FarMemory
Return to Elysium
Life as Carola
Blue Faience
Hippopotamus
Bækur um makrobiotik og heilsufæði
Úrval af spólum með slökunartónlist
Tarotspilígóðu úrvali
-------------------------------
MONDIALarmbandið-
skartið sem bætir
Sérstæðar gjafavörur og skartgripir
Reykelsi, ilmolíur, veggspjöld, tímarit
Við höfum í umboðssölu stjörnukort eftir
Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking:
★ PERSÓNULÝSING ★ FRAMTÍÐARKORT ★ SAMSKIPTAKORT
Afgreidd á meðan beðið er eða send í póstkröfu.
Pantanasímar: (91) 62 33 36 og 62 62 65.
ÆS&. VER
becR/Sip
VERSLUN í ANDA
NÝRRAR
ALDAR
Laugavegi 66-101 Reykjavík - Símar: (91) 623336 - 626265
Póstkröfuþjónusta - Greiðslukortaþjónusta
Pantanasímar: (91) 62 33 36 og 62 62 65
'
Vaclav Havel ræðir við George
Bush, forseta Bandaríkjanna, í
Hvíta húsinu í Washington.
ERT ÞU
AÐ LEITA?!