Morgunblaðið - 22.02.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2g. FEBRÚAR 1990
41
VELXAKANDI
SVAR/R í SÍMA
691282KL. 10-12
FRÁ NÁNUDEGI
TIL FCSTUDAGS
til skírnar, sem er tákn dauða hans
á krossinum. Jesús vildi skírast skv.
orði hans: „til að fullnægja öllu
réttlæti."
3. til að sýna að iðrunarskírn er
vegurinn til Guðs ríkis og til kirkj-
unnar, sem hann átti að stofna.
Það væri mögulegt að lengja
skrána um misnotkun texta Biblí-
unnar en ég held að þessi dæmi séu
nóg til að afhjúpa aðferðina sem
Haralds og vottar Jehóva nota. Á
meðan ég sannaði svikin fylgdi ég
ráði Jean-Francois Blanchet, forseta
áfrýjunardómstólsins í Forbach
(Alsace), sem var eins og Schnell
tólf ár í hlekkjum vottanna. Sem
ungur stúdent hafði hann hætt námi
í læknisfræði, því að 1975 mundi
skv. spá Vottanna himinn og jörð
líða undir lok. Þar sem það kom
ekki fram vildi Blanchet rannsaka
Biblíuna betur og keypti kristna
Biblíu. Það var þó virt sem helgi-
spjöll, sérstaklega fyrir hann, sem
forseta hópsins. Bóksalinn gaf hon-
um einnig skrá með dagsetningum
heimsloksins á nítjándu og tuttug-
ustu öld skv. spádómum vottanna.
Þegar yfirvöld votta héraðsins og í
París gátu ekki leyst vandamálið um
útskýringu textanna, sagði hann af
sér sem meðlimur. Hann varð meþód-
isti en fór því þeir voru einnig of
bókstaflegir. Að lokum fann hann
aftur hamingju og hvíld í hinni ka-
þólsku kirkju æsku sinnar. Ráðið sem
Blanchet gefur er að dýpka þekkingu
okkar á Biblíunni til að afhjúpa bók-
stafstrú vottanna og slíkra safnaða.
Líka segir Blanchet að biðja skuli
fyrir þessu fólki. Vissulega eru marg-
ir í grandaleysi í þessum sértrúar-
flokki. Sérstaklega með textum úr
Gamla testamentinu er auðvelt að
svíkja einfalt fólk sem veit h'tið um
sögu G. testamentisins. Það er líka
aðferð Haralds t.d. með textum úr
2. Mósebók um líkneski og úr Mal-
aki 3,6: „Ég, Drottinn, hefi ekki
breytt mér.“ Páll postuli, sem afnam
umskurn Gamla testamentisins,
mundi segja við Harald: „Vinur minn,
2 Kor. 3,6: „Guð hefur gjört oss
hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála,
ekki bókstafs, heldur anda. Því að
bókstafurinn deyðir, en andinn
lífgar.“ Umskurn var mikilvægt boð-
orð GT en hvað segir Páll postuli:
„Ef þér látið umskerast, þá gagnar
Kristur yður ekkert.“ (Gal. 5,2).
Níðingsleg
framkoma
Hér er lítil saga úr íslensku
þjóðlífi í dag. Hún gerðist á Digra-
nesvegi í Kópavogi föstudaginn 2.
febrúar um hálf eitt leytið.
Tæplega sjö ára drengur var á
leið í skólann og kisan hans elti
hann og slæddist út á akbrautina.
Drengurinn var að kalla til kisu í
þeim tilgangi að reka hana heim
þegar að bar bíl sem umsvifalaust
ók yfir köttinn og „súpermann“,
sem við stýrið var, hægði ekki einu
sinni ferðina. Þegar drengurinn í
hrellingu sinni ætlaði að fara og ná
í hræið af kisu var hann svo lánsam-
ur að tvo unglingspilta bar þar að,
sem sögðu honum að fara heim og
fjarlægðu hræið.
Þegar heim kom var drengurinn
örvita af því sem hann hafði horft
á og sagði við mömmu sína: „Hún
hreyfðist einu sinni og svo kom
blóð“, og endurtók svo í sífellu:
„Hann þurfti ekkert að gera þetta,
hann gat vel stoppað.“
Ef viðkomandi „súpermann" les
þetta ætti hann að geta glaðst yfir
verki sínu. Köttinn drap hann alger-
lega að óþörfu að drengnum sjá-
andi, sem við það fékk það áfall
er hann gleymir ekki í bráð. Síðan
þetta skeði hefi ég heyrt að ekki
sé mjög óalgengt að sálsjúkir „sú-
permenn“ geri sér leik að því að
aka yfir ketti ef þeir sjá sér færi á.
Þóra
Góði Haralds, ég held, að það sé
betra að trúa Páli og Jesú en vottum
frá Brooklyn, NY, USA, og slíku
fólki. Ef þú ert sjálfur vottur þá lestu
einu sinni bækur W. Schnells: Thirty
Years a Watchtower Slave (30 ár
þræll Varðturnsins) eða „Jehovah’s
Witnesses Errors Exposed". (Af-
hjúpun villukenninga votta Jehóva).
Baker Book House, Grand Rapids,
Michigan, USA. Þessi maður var
umboðsmaður útgáfna vottanna.
Þúsundir fundu aftur rétta trú í guð-
dómi Jesú Krists. Ég vona að þú finn-
ir hana líka. Að lokum ennþá þetta:
Guð sjálfur er ekki þræll bókstafs-
ins. Hann bauð sjálfur Móse að gera
líkneskjur englanna af gulli af drifnu
smíði og láta þá í helgidóm (2 M
25,18). Á eftir átti Móse líka að
gera líkneski eiturorms til að bjarga
fólkinu (fyrirmynd Jesú á krossinum)
(4 M 21,8). Guð breytti einniglögum
um hrein og óhrein dýr (5 M 14,
3-21) skv. Post. 10, 13-16. En viljir
þú, Haralds, lifa sem gyðingar GT,
þá er allt í lagiphaltu þá öll boðorð
Gamla testamentisins og láttu um-
skera þig, en við viljum lifa sem
kristnir menn, sem erum skírðir í
nafni eins Guðs, sem er Faðir, Sonur
og Heilagur Andi. Guð blessi þig,
vinur.
Sr. J. Habets
Fiskverkendur
Til sölu sprautusöltunarvél og salt-
dreifarar frá Traust hf.
Upplýsingar gefur Guðmundur í síma
97-81885.
i 1
co co iTÍ CO Góðan daginn!
Húsgagnahöllin
býður þér
ÚRVAL, GÆÐl, GOTT VERÐLAG
OG ÞJÓNUSTU
Þa
að er á þessum tíma sem margir hugsa sér til hreyfings
í leit að borðstofuhúsgögnum.
Þe
etta vitum við hér í Húsgagnahöllinni af langri reynslu og
höfum undirbúið góðar móttökur með því að hafa mikið úrval af þess-
ari vöru í öllum stærðum, öllum verðflokkum
og öllum hugsanlegum viðartegundum.
V
v ið bjóðum þér stórkostlegt úrval vandaðra borðstofuhúsgagna,
sem eru smíðuð úr beyki, mahogny, aski, furu, ljósri og dökkri
eik og ýmis konar harðviði sem hefur verið litaður
svartur eða gráhvítur (perlmut) og hvítur.
/7
móti borðunum og stólunum eigum
við til alls konar veggskápa — svona á að
giska 30 - 40 mismunandi gerðir . _ B|.
í öllum viðartegundum. HUSQðQnZ^ilOlllll
REYKJAVÍK