Morgunblaðið - 22.02.1990, Side 44
Kaffipokar
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Bráðabirgðatölur um rekstur ríkissjóðs 1989:
Morgunblaöið/Kristján Jónsson
Brodal og Sea Gull að veiðum
Landhelgisgæzlan flaug yfir tvo laxveiðibáta í gær
um 310 mílur austur af Langanesi. Það voru Sea
Gull og Brodal, en þeir eru báðir frá Borgundar-
hólmi í Danmörku, en skráðir í Panama. Yfírvöld
hér á landi telja veiðar þessar ólöglegar, bæði hvað
varðar hafréttarsáttmálann og samkomulag þjóð-
anna við Norður-Atlantshafið. Því hefur verið hart
lagt að dönskum yfirvöldum að þau komi höndum
yfir danskættuðu bátana og stöðvi veiðar þeirra.
Svo hefur ekki verið gert enn. í gær voru bátarnir
að veiðum og sáust menn við vinnu á dekki undir
segli, eins og sjá má á þessari mynd af Brodal.
Leikmyndin grafin úr snjó
Morgunblaðið/Erlendur
Lifandi myndir vinna nú að upptökum á tveimur
heimildarmyndum við Bolungarvík. Um er að ræða
sögu útgerðar og mynd um saltfiskverkun. Meðal
annars er myndað við Ósvör, gamalt útræði rétt við
bæinn, en þar hefurgömul verbúð, þurrkhjallur, fisk-
þró og bátaspil verið endurgert. Fyrst í stað töldu
kvikmyndagerðarmenn sig vanta snjó og var upptök-
um frestað þar til að áliðnum janúar. Síðan þá hef-
ur snjóað stanzlaust og mikill tími farið í að grafa
„leikmyndina" upp.
Halli ríkissjóðs rúm-
ir 6 milljarðar króna
HALLI á rekstri rikissjóðs á síðasta ári nam 6.055 milljónum króna,
samkvæmt bráðabirgðatölum sem Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra hefur gefíð út. Fjárlög ársins gerðu ráð fyrir um 630 miHj-
óna hagnaði. Fjármálaráðherra segir að 1989 hafí rekstrarkostnaður
stofnana ríkisins dregist saman um 600 milljónir króna frá fyrra ári.
í þingræðu í gær vakti Geir H. Haarde þingmaður Sjálfstæðisflokks
athygli á að í skýrslu fjármálaráðuneytis 22. desember síðastliðinn
hefði halli ársins verið áætlaður 5.464 milljónir króna. Frá þeim tíma
hefði hallinn því aukist um sem svarar 100 milljónum króna á degi
hveijum.
í greinargerð ráðuneytisins segir
að árið 1989 hafi tekjur ríkissjóðs
aukist um 2,5% að raungildi, þrátt
fyrir að þær hafí verið 2.000 millj-
ónum lægri en fjárhagsáætlun ráð-
Listahátíð:
Kristján
syngur ekki
KRISTJÁN Jóhannsson, óperu-
söngvari, hefiir tilkynnt stjórn
Listahátíðar, að vegna anna
verði hann að hverfa frá fyrri
áformum um að syngja á Lista-
hátið í vor. Kristján verður á
þessum tíma í óperum á ítaliu
og í Venezúela.
Kristján sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að fyrst í stað hefði hann
ætlað sér 5 vikur hér í tengslum
við Listahátíð vegna uppsetningar
á óperunni Manon Lescaut. Síðan
hefði verið horfíð frá óperunni og
ætlunin verið að hann syngi þess í
stað á sérstökum tónleikum. í það
hefðu farið um 5 dagar og því hefði
verið útlit fyrir verkefnaleysi í heil-
an mánuð í vor. Því hefði hann
þegið boð um að syngja í II Trova-
tore eftir Verdi á Ítalíu og Norma
eftir Bellini í Caracas í Venezúela
á þessum tíma.
gerði, aðallega vegna samdráttar í
þjóðarútgjöldum. Pjármálaráðherra
segir að tekist hafí að stöðva út-
gjaldaþensluna, eins og 600 millj-
óna samdráttur í útgjöldum stofn-
ana sýni, og að ríkissjóðshallinn
hefði á liðinu ári verið 2.500 milljón-
um minni en 1988 þrátt fyrir sam-
drátt í þjóðartekjum.
Talið er að verg landsframleiðsla
hafí dregist saman um 2-2,5% á
síðasta ári en þá námu útgjöld ríkis-
sjóðs 29,1% af landsframleiðslu en
tekjur 27,1%, sem er hæsta hlut-
fall sem orðið hefur.
Sjá fréttir á bls. 16 og
þingfréttir á bls. 27.
Byggingarvísitalan hækkaði um 0,5% vegna launahækkunar kjarasamninganna:
Hækkun útseldrar vinnu brot
á nýgerðum kjarasamningum
gangi verðstöðvun, en það eru hins
vegar eindregin tilmæli til atvinnu-
rekenda að þeir endurmeti sínar
verðlagningarforsendur í ljósi þess
að þeir hafa hag af öðru sem fylgir
þessari samningagerð. Að þvi að ég
best veit hafa okkar félagsmenn tek-
ið mjög undir þau sjónarmið, því
hagsmunirnir sem við eigum allir
saman undir því að þessi tilraun tak-
ist eru gríðarlegir," sagði Þórarinn.
Hann sagði að sú skýring gengi
ekki að einingum í ákvæðisvinnunni
hefði fjölgað vegna þess að mönnum
fyndist koma of lítið út úr mæling-
um. Það gengi heldur ekki að vísa
til þess að það hafi orðið tæknibreyt-
ingar, því á þessari öld gengju þær
út á að auka framleiðni en ekki að
draga úr henni. „Ef ný tækni hefur
í för með sér aukinn kostnað og
hægari vinnubrögð þá sýnist það
blasa við að það sé skynsamlegt að
halda sig við gömlu vinnubrögðin og
gömlu tæknina," sagði hann enn-
fremur.
Fugladauði
rannsakaður
Bolungarvik.
FRÁ því um miðjan janúar hefúr
talsvert borið á fugladauða í fjör-
unni við höfnina hér í Bolung-
arvfk. Talið er að nær 200 fuglar
hafi drepist á þessum tíma. Hér
er nánast eingöngu um æðarfugl
að ræða.
Áhugamenn hér um slóðir hafa
fylgst náið með þessum fugladauða
og velt fyrir sér hugsanlegum orsök-
um þessa. Ekki hafa enn fundist
nein rök fyrir því hvað hér gæti ver-
ið á ferðinni og finnst mönnum ólík-
legt að um geti verið að ræða fæðu-
skort eða veðurhörkur og þá hefur
ekki fundist olía í fiðri fuglanna.
Má nefna til dæmis að á sama tíma
í fyrra var mun kaldara.
- Gunnar
- segir Ari Skúlason hagfræðingur Alþýðusambands íslands
ARI Skúlason, hagfræðingur Al-
þýðusambands íslands, segir að
nýgerðir kjarasamningar eigi
ekki að hafa í för með sér hækkan-
ir á útseldri vinnu og slíkar hækk-
anir séu brot á samningnum, en í
10. greininni þar sem raktar eru
launahækkunar kjarasamninga,
auk þeirrar 0,8% hækkunar sem
stafaði af íjölgun eininga í ákvæð-
isvinnu iðnaðarmanna á tímabil-
inu frá því í fyrrahaust. Samtals
eru þetta 1,3% af 2% hækkun vísi-
tölunnar, en það sem á vantar
stafar af hækkun ýmissa efnis- og
þjónustuliða. Við undirbúning og
frágang samninga var gert ráð
fyrir 1,2% hækkun vísitölunnar.
Þessi mál verða tekin fyrir á fúndi
verðlagsráðs í dag.
Samkvæmt upplýsingum Hag-
stofu íslands, sundurliðast þessi 0,5%
hækkun vísitölunnar vegna kjara-
samninganna þannig að útseld vinna
múrara hækkaði um 2,18%, málara
um 0,94%, húsasmiða um 0,98%,
pípulagningamanna um 1,10% og
dúklagningamanna um 2,82%. Taxti
rafvirkja er hins vegar óbreyttur og
innréttingasmíði á verkstæðum
lækkaði um 0,61%. Hagstofan fær
upplýsingar sínar um þessar hækk-
anir frá Meistara- og verktakasam-
bandi byggingarmanna, en það er
aðili að kjarasamningnum. Það
stendur utan við Vinnuveitendasam-
band íslands.
Ari sagði að ekki væri hægt að
sætta sig við þessar hækkanir og
þær yrði að endurskoða bæði hvað
varðar hækkunina vegna kjarasamn-
inganna og einnig hvað varðaði fjölg-
un eininga i ákvæðisvinnu, enda
gæti þessi hækkun byggingarvísi-
tölunnar umfram það sem ráð var
fyrir gert stefnt markmiðum samn-
inganna í voða. Bæði yrði hækkun
framfærsluvísitölunnar meiri en ella,
en fyrsta rauða strikið er í maí og
lækkun vaxta gæti orðið hægari.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, sagði að þessi 0,5%
hækkun yrði skoðuð, hann kynni
ekki að svo stöddu á henni skýring-
ar. „Það er út af fyrir sig ekki i
forsendur hans segir í 4. tölulið
að svigrúm vegna nafnvaxtalækk-
unar verði þegar nýtt í atvinnu-
rekstrinum til þess að mæta 1,5%
upphafshækkun launa. Visitala
byggingarkostnaðar hækkaði um
0,5% milli janúar og febrúar vegna