Morgunblaðið - 09.03.1990, Síða 2

Morgunblaðið - 09.03.1990, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990 Sölumet á Fiskmarkaði Suðurnesja SÖLUMET var sett á Fiskmarkaði Suðurnesja í gær en þá voru seld þar samtals 227,5 tonn fyrir um 16,4 milljónir króna. Selt var úr Gnúpi GK, Sigurði Þorleifssyni GK og dagróðrabátum. Á Fiskmarkaði Suðurnesja voru meðai annars seld í gær 131,5 tonn af þorski fyrir 79,81 krónu meðal- verð, tæp 25 tonn af ýsu fyrir 104,86 króna meðalverð, rúm 30 tonn af karfa fyrir 41,51 krónu meðalverð og rúm 14 tonn af ufsa fyrir 34,46 króna meðalverð. Morgunblaðið/Ami aæberg. Skákstórveldin draga um töfluröð í gær. Boris Gulko, Nigel Short, Artur Júsúpov og Simen Agdestein halda á hrókum sem rásnúmer- in voru skrifuð á. Arnold Eikrem aðaldómari er eitthvað að lagfæra hrókinn hjá Short og Einar S. Einarsson forseti Skáksambands íslands og Þorsteinn Þorsteinsson framkvæmdastjóri mótsins fylgjast með. Skákstórveldaslagurinn hefst í dag Oká 130-150 km hraða og fór þrisvar yfir á rauðu MAÐUR sem grunaður er um ölv- un og réttindaleysi við akstur var handtekinn í fyrrinótt eftir að lög- regla hafði veitt bíl hans eftirfor frá Álflieimum upp í Breiðholt. Maðurinn játaði við yfirheyrslur að hafa ekið á 130-150 kílómetra hraða, hafa farið þrisvar yfir á móti rauðu umferðarljósi og að hafa drukkið eina vodkaflösku og sex bjóra áður en hann settist undir stýri. Skömmu áður en för mannsins var stöðvuð, missti hann vald á bíl sinum ók upp á snjóruðn- ing og þaðan kastaðist bíllinn á lögreglubíl. Lögreglumenn veittu bíl mannsins eftirtekt þar sem honum var ekið um Álfheima og töldu aksturslagið aðfmnsluvert. Okumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerki heldur ók áfram Suðurlandsbraut, Reykjaveg, Sund- laugaveg, Dalbraut og austur Kleppsveg. Þá höfðu lögreglumenn- irnir kallað eftir aðstoð. Bílnum var ekið á miklum hraða austur illfæran Kleppsveginn og móts við Klepps- spítalann mældist hraði hans vera 130 kílómetrar á klukkustund. Ökumaðurínn skeytti engu um rauð umferðarljós og ók áfram á miklum hraða eftir Reykjanesbraut upp í Breiðhoit. Að sögn íögregiu Framgangur öryggiskerfisins óviss vegna 40% niðurskurðartillögu samgönguráðherra Stórveldaslagurinn í skák hefst í dag kl. 16.30 i Skákmiðstöð- inni í Faxafeni. Dregið var um töfluröð og liti í gær, og teflir Norðurlandasveitin við Sovétmenn í fyrstu umferð og hefiir hvítt á fyrsta borði. Bandaríkin hafa hvitt á fyrsta borði gegn Bretum. Flestir sterkustu skákmenn heims tefla næstu viku í Skákmið- stöðinni og er keppt á 10 borðum. Artur Júsúpov leiðir sovésku sveitina, Nigel Short þá bresku, Boris Gulko þá bandarísku og Norðmaðurinn Simen Agdestein fer fyrir Norðurlandaúrvalinu en Friðrik Ólafsson er liðsstjóri auk þess að vera varamaður. Sex íslendingar eru í Norður- landasveitinni, þeir Helgi Ólafsson sem teflir á 2. borði og hefur í dag svart gegn Vasilíj Ivantsjúk, Margeir Pétursson teflir á 3. borði og hefur hvítt gegn Rafael Vag- anjan, Jóhann Hjartarson teflir á 5. borði og hefur hvítt í daggegn Míkhaíl Gúrevítsj og Jón L. Ama- son hefur svart á 6. borði gegn Sergei Dolmatov. Friðrik Ólafsson o g Karl Þorsteins eru varamenn. Sjálfvirka tilkynningakerfíð komið á framkvæmdastig; Fyrstu 20 skipsstöðvarn- ar smíðaðar fyrir vorið drógu ökumenn lögreglubíla mjög úr ferð sinni á þessum kafla og voru 500-700 metrar á milli bíla þeirra og mannsins. Við Álfabakka var lög- reglubifreið ekið upp að hlið bíls mannsins en hann ók þá upp á snjó- ruðning, missti vald á bíl sínum svo hann rakst á lögreglubflinn. Eftir þetta hélt maðurinn áfram för sinni skamma stund en nam staðar við Fálkabakka. Hann var þá handtek- inn. Við yfirheyrslur kvaðst maður þessi, sem er um þrítugt, hafa verið sviptur ökuréttindum ævilangt og oftsinnis verið kærður fyrir ölvun og réttindaleysi við akstur. Hann hafði fyrr um daginn drukkið eina flösku af sterku áfengi og sex bjórflöskur. SJÁLFVIRKT tilkynningakerfi __ skipaflotans sem kerfisverkfræði- stofa verkfræðideildar Háskóla íslands hefúr unnið að á undanfóm- um árum er nú tilbúið fyrir framkvæmdastig, en kerfi þetta sem byggist á skipsstöðvum veldur byltingu í tOkynningamöguleikum skipa og öryggiseftirliti. Þorgeir Pálsson prófessor hefur stjórnað verkinu og var áformað að halda því markvisst áfram á þessu ári, en nú hefúr samgönguráðherra lagt til að fjárframlag, sem Qárveit- inganefnd lagði til og Alþingi samþykkti við gerð síðustu fjárlaga, verði skorið niður um 40% eða 2 milljónir króna af 5. Alþingi á eftir að flalla um málið. „Ef fé til verkefnisins verður skorið niður, verð- um við að hætta við uppsetningu landstöðva á VestQörðum, í Bolung- arvík og á Bjargtöngum og einnig uppsetningu eftirlits- og tilrauna- stöðvar hjá Slysavarnafélaginu í Reykjavík," sagði Þorgeir Pálsson prófessor. „Þetta verkefni hefur að ýmsu hefur fylgst grannt með málinu og leyti verið eins konar sérmál á gætt þess að það gæti gengið áfram könnu fjárveitinganefndar, því hún þegar árangur hefur verið augljós," sagði Þorgeir Pálsson prófessor þegar Morgunblaðið leitaði upplýs- inga um stöðu málsins í gær. „Aðalmiðstöð þessa verkefnis er i Háskóla íslands," sagði Þorgeir, „aðallandstöðin er í Bláfjölium og einnig eru stöðvar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum og á Snæfells- nesi. Þau skip sem hafa verið tengd kerfinu eru Heijólfur, Hópsnesið GK, Aðalbjörg RE, Akraborg og Kyndill, en þar sem fjárveitinga- nefnd vildi að málinu yrði fylgt eft- ir lagði hún til 5 milljónir á þessu ári. Með því átti að bæta við land- stöðvum í Bolungarvík, á Bjarg- töngum og eftirlitsstöð hjá Slysa- Einn þekktasti myndlistargagnrýnandi Breta: Kjarval væri meðal helstu symbólista Times o g The Finaneial Times fara lofsamlegum orðum um sýninguna á íslenskum landslagsmyndum í Barbican „í LJÓSI þeirrar staðreyndar að íslendingar eru fámenn þjóð verð- ur það þeim mun merkilegra að þar skuli hafa komið fram svo stór hópur, ekki aðeins listamanna heldur listamanna styrks og frum- leika. Það hlýtur að vera einungis landfræðileg einangrun sem hefur komið í veg fyrir að Jóhannes S. Kjarval hlyti alþjóðlega viður- kenningu meðal helstu symbólista, því hann er fær um að fylla ein- faldasta myndsvið hæglátri innri dulúð sem þvingar fram eftir- tekt,“ segir John RusseJ Taylor, einn kunnasti myndlistargagnrýn- andi Bretlands í umsögn i The Times um sýningu þá á íslenskum landslagsmálverkum sem nú stendur yfir í Barbican-listamiðstöðinni í London. Fer hann mjög lofsamlegum orðum um sýninguna og einstaka listamenn og við sama tón kveður hjá William Packer sem skrifar um þessa sýningu í The Finuncial Times. Taylor nefnir einnig Jón Stef- ánsson og segir stöðu hans í íslenskri málaralist sérstaka að því leyti að hann hafi horft meira til Parísar en Skandinavíu í upp- stillingum sínum, en frumleiki hans sé engu að síður óumdeilan- legur. „Og alls staðar annars stað- ar væru málarar á borð við Gunn- laug Scheving og Finn Jónsson taldir í fremstu röð; vafalaust mun listamarkaðurinn nú vera á varð- bergi.“ Af yngri málurunum nefn- ir Taylor sérstaklega verk Sigurð- ar Örlygssonar. William Packer hefur greini- Iega komið til íslands og heillast af landinu, því að hann segir það ekki undrunarefni að í slíku um- hverfí skuli hafa orðið til lista- mannahópur með sérstök ein- kenni, einkanlega þó meðan landið var einangraðra heldur en það er nú. Eftir því sem utanað- komandi áhrif hafí aukist og íslenskir listamenn færst nær al- þjóðlegum meginstraumum, þá verði verk þeirra fágaðri, venju- legri og dauflegri. Stjörnur sýn- ingarinnar 4 Barbican séu þess vegna frumheijamir og millikyn- slóðin. Packer tilgreinir sérstak- lega Kjarval sem sé að verðleikum þekktastur þessara málara en einnig Þórarin B. Þorláksson og Ásgrím Jónsson, sem Packer hrífst mjög af. „Með vaxandi áhuga nú á tímum fyrir norrænni list getur vegur þeirra einungis átt eftir að vaxa,“ segir Packer. Hann nefnir einnig verk Júlíönu Sveinsdóttur og Finns Jónssonar en af millikynslóðinni Gunnlaug Scheving sérstaklega fyrir sjó- mannamyndir hans, og af yngstu kynslóðinni Georg (Guðna) Hauksson sem tekið hafi upp þráðinn með sjávarstemmningum sínum. varnafélagi íslands í Reykjavík. Ef fjárveitingin verður skorin niður verðum við að hætta við þetta og þó eram við búnir að skuldbinda okkur með pöntun á tölvubúnaði fyrir stöðina hjá Slysavarnafélag- inu. Einnig munum við á þessu ári láta smíða tuttugu skipsstöðvar, sem Tryggingamiðstöðin fjármagn- ar í fyrstu, en þær verða síðan seld- ar til þeirra útgerða, sem hafa áhuga, á kostnaðarverði og við reiknum með að kostnaður verði ámóta og á farsíma, eða liðlega 100 þús. kr. Við eram búnir að panta efnið í skipsstöðvamar og þær verða til- búnar í vor. Þær ættu að auka mjög og auðvelda öryggiseftirlit á þeim svæðum þar sem landstöðvar era komnar, en miðað er við að kerfíð nái um alla grunnslóðina um 60 mflur frá Iandi. Stöðin sem fyrirhuguð er hjá SVFÍ er ætluð til þess að hraða tilraunarekstrinum en kerfið virkar þannig á tilraunastigi að tölvurnar gefa til kynna ef ekki kemur til- kynning frá skipi á réttum tíma. Þegar kerfið verður komið í fullan rekstur munu tölvur gera viðvart í eftirlitsstöð um leið og eitthvað óvænt kemur upp á og þá er hægt að rekja feril og stöðu skipsins á stuttri stund, hafa samband við skipið eftir öðrum leiðum eða ganga úr skugga um að allt sé með felldu." Þorgeir sagði að allir þættir kerf- isins hefðu nú verið prófaðir og lof- uðu góðu. Reikna mætti með að verð skipsstöðvanna lækkaði eitt- hvað í fjöldaframleiðslu, en hins vegar væri gert ráð fyrir að land- stöðvarnar fyrir landið allt myndu kosta um 100 milljónir króna og væri æskilegt að byggja það kerfi upp á þremur árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.