Morgunblaðið - 09.03.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990
Þrotabúið rekur Bflaborg
Framtíð Mazda umboðsins óráðin
VARAHLUTAVERSLUN Bíla-
borgar hefur verið opnuð aftur
eftir um þriggja vikna lokun og
verkstæði var opnað í gær. Bíla-
sal var hins vegar lokað í kjölfar
gjaldþrots fyrirtækisins á þriðju-
dag og er óvíst hvenær hann
verður opnaður aftur. Rekstur
er á ábyrgð þrotabúsins. Enginn
samningur er í gildi um Mazda
umboð hér á landi og ekki er
búist við að ákvörðun verði tekin
um nýjan samning fyrr en í
næstu viku.
Af hálfu Mazda hefur sá skiln-
ingur verið áréttaður við þrotabú
Bílaborgar, að enginn samningur
hafi verið í gildi við Bílaborg þegar
fyrirtækið varð gjaldþrota. Um-
boðssamningurinn rann út, sam-
kvæmt ákvæðum samningsins, í
lok janúar síðastliðins og var ekki
endurnýjaður.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru fulltrúar Mazda Mot-
or Corporation í Japan og fjár-
mögnunarfyrirtækisins C. Itoh Ltd.
í London hér á ferð fyrir og um
síðustu helgi. Það er í þeirra hönd-
um að ákveða við hvern verður
samið um umboð fyrir Mazda hér
á landi. Japanimir munu taka sér
tíma fram í næstu viku áður en
ákvörðun liggur fyrir og þeir munu
ekki taka ákvörðun án samráðs við
eigendur Bflaborgar.
Laugavegur:
Jarðskjálftamælar settir upp
HITAVEITA Reykjavikur og
Orkustofnun hafa sett upp þrjá
jarðskjálftamæla, til að kanna
eðli og upptök jarðhræringanna,
sem vart hefúr orðið við Lauga-
veg og Skipholt.
Að sögn Ólafs Flóvenz jarð-
fræðings hjá Orkustofnun, hafa
verið settir niður mælar í Laugard-
al og við Sjómannaskólann. „Við
erum að kanna hvað þama er á
ferðinni," sagði Ólafur. „Það er
tímafrekt að setja upp þessa bráða-
birgðamæla en lítið er til af mæli-
tækjum sem hægt er að grípa til.
Það litla, sem til er, er bundið við
Kröflu. Við höfum því verið að
klastra saman mælum úr msli til
að geta fengið einhveija hugmynd
um hvað þarna er á ferðinni."
Sagði Olafur að flest benti til
að um jarðskjálfta væri að ræða,
sem ættu upptök sín skammt frá
Laugaveginum. Of snemmt væri
að draga þá ályktun að borholur
Hitaveitu Reykjavíkur ættu hlut
að máli. Heitu vatni hefði verið
dælt úr holunum í áratugi án þess
að. menn yrðu varir við jarðhrær-
ingar. „Það er löngu vitað að þarna
liggur gamalt sprungubelti og það
má vel vera að hreyfingarnar komi
þaðan, en þetta em óskaplega litlar
hreyfingar," sagði hann.
VEÐURHORFUR í DAG, 9. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Breytleg átt var á landinu, víðast gola eða kaldi.
Él voru sums staðar við norðurströndina og sunnantil á Vestfjörð-
um, en annars úrkomulaust. Inn til landsins var víða léttskýjað.
Mildast var 1 stigs frost á Vatnsgaröshólum, en kaldast á
Grímsstöðum og á Hveravöllum, 13 stiga frost.
SPÁ: Breytileg átt, gola eða kaldi. Dálítil él eða snjómugga með
köflum við norður- og vesturströndina, en annars úrkomulaust og
allvíða léttskýjað. Talsvert frost verður áfram um mest allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg breytileg átt og sums stað-
ar dálítil él við norður- og vesturströndina, en bjart veður annars
staðar. Frost 10-17 stig i.innsveitum, en yfirleitt mildara við strönd-
ina.
HORFUR Á SUNNUDAG: Austan- og norðaustanátt, líklega hvasst
/við suðausturströndina en mun hægari vindur annars staðar. Snjó-
koma víða um austanvert landið, él með norðurströndinni, en þurrt
suðvestanlands. Dregur heldur úr frosti.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyrl +8 léttskýjað
Reykjavík +6 skýjað
Bergen S úrkoma í grennd
Helsinki 1 alskýjað
Kaupmannah. 8 þokumóða
Narssarssuaq +18 heiðskfrt
Nuuk +13 léttskýjað
Osló 9 léttskýjað
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 2 slydduél
Algarve 18 skýjað
Amsterdam vantar
Barcelona 15 mistur
Berlín 11 alskýjað
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 11 léttskýjað
Glasgow 7 rigning
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 20 skýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 10 skýjað
Lúxemborg vantar
Madrid 11 alskýjað
Malaga 14 súld
Mallorca 18 alskýjað
Montreal +11 léttskýjað
New York +4 heiðskírt
Orlando 19 léttskýjað
París 15 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Vin 13 skýjað
Washington +4 skýjað
Winnípeg 0 alskýjað
Jenný Baldursdóttir og Guðrún H. Tuliníus, starfsmenn Stíga-
móta, á skrifstofú samtakanna í Hlaðvarpanum.
Samtökin Stígamót:
Aðstoð við fórn-
arlömb kynferð-
islegs ofbeldis
SAMTÖK kvenna gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart konum
og börnum, Stígamót, vígðu í gær á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna miðstöð I Hlaðvarpanum við Vesturgötu. Starfsmenn
samtakanna eru til viðtals á skrifstofúnni frá kl. 12 til kl. 7 alla
virka daga auk þess sem svarað er í neyðarsíma allan sólar-
hringinn. Arið 1988 bárust tilkynningar um 24 mál er snerta
siQaspell og 15 nauðgunarmál til Kvennaathvarfsins. Ári síðar
hafði þessum málum fjölgaö verulega eða en þá var tilkynnt
um 84 mál er varðar sifjaspell og 48 nauðgunarmál.
Að sögn Ragnheiðar M. Guð-
mundsdóttur, starfsmanns varð
hugmyndin að stofnun samtak-
anna til fyrir ári eftir sameigin-
legan fund aðstandenda Kvenna-
athvarfsins, Kvennaráðgjafar-
innar, Ráðgjafahóps um nauðg-
anir og Vinnuhóps um sifjaspjöll.
Sagði hún að á fundinum hefði
komið fram mikil óánægja með
viðbrögð opinberra aðila og yfír-
valda við kynferðislegu ofbeldi
gagnvart konum og þá sérstak-
lega með viðbrögð rannsóknar-
lögreglunnar, sem virðist ekki
vilja breyta sínum starfsaðferð-
um. Ákveðið var að koma á fót
miðstöð, þar sem veitt væri að-
stoð, ráðgjöf og fræðsla um of-
beldi gagnvart konum og gerð
fjárhagsáætlun um kostnað við
rekstur slíkrar miðstöðvar.
Kostnaður vegna fjögurra starfs-
manna allan sólarhringinn, var
áætlaður 11 milljónir króna og
var leitað til Alþingis um fjár-
hagsaðstoð. „Við fengum tvær
milljónir,“ sagði Ragnheiður. „Og
getum því ekki framkvæmt allt,
sem við höfum hug á að gera
en ákveðið er að miðstöðin verði
opnin alla virka daga frá hádegi
til kl. sjö að kvöldi. Þá tekur
símaþjónustan við.“
Ragnheiður sagði að þegar
hefðu komið fyrirspurnir frá kon-
um um starfsemina og því ljóst
að mikil þörf er fyrir miðstöð sem
þessa. Ráðgjöfín sem Stígamót
munu veita grundvallast á
reynslu þeirra sem orðið hafa
fyrir kynferðislegu ofbeldi og
þekkingu þeirra sem hafa kynnt
sé þessi mál. Rætt er við hveija
konu einslega eða í sjálfshjálpar-
hópi og er aðstoðin veitt án end-
urgjalds. Að sögn Guðrúnar
Jónsdóttur félagsráðgjafa, geta
allar þær konur, sem telja sig
verða fyrir eða hafa orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi í víðustu
merkingu þess orðs, leitað sér
aðstoðar.
Símar Stígamóta eru: (91)62-
68-68 og (91)62-68-78.
Stal heitu vatni af
nágranna sínum
HITAVEITA Reykjavíkur kallaði lögregluna að fyrirtæki í borginni
að morgni miðvikudags. Þar hafði maður tengt fyrirtæki sitt við hita-
lögn nágrannafyrirtækis, en lokað hafði verið fyrir heitt vatn til hans
fyrir 3-4 mánuðum vegna vanskila.
Gunnar Kristinsson, hitaveitu-
stjóri, segir að starfsmenn Hitaveit-
unnar verði varir við orkuþjófnaði
10-20 sinnum á ári. „Oftast er um
það að ræða, að við lokum fyrir
heitt vatn vegna vanskila, en menn
tengja þá framhjá mæli,“ sagði
Gunnar. „Þegar nokkur tími líður,
án þess að menn greiði reikninginn
og fái vatn á ný, kanna starfsmenn
okkar hvernig á því stendur. Þá
kemur oft í ljós að tengt hefur ver-
ið framhjá mæli. í einstaka tilfelli
hefur slíkur þjófnaður staðið í heilt
ár og starfsmönnum Hitaveitunnar
þá gert erfitt um vik að kanna
málið. Lyklar að kyndiklefum hafa
verið sagðir týndir og fleira í þeim
dúr. I þessu fyrirtæki var hins veg-
ar ekki stolið af Hitaveitunni, held-
ur öðru fyrirtæki í sama húsi, sem
fékk þá óeðlilega háa reikninga
miðað við vatnsnotkun þess.“
Gunnar sagði að þegar upp kæm-
ist um þjófnað á heitu vatni væri
yfirleitt áætlað ríflega hversu mikið
vatn hefði verið notað og mönnum
gert að greiða fyrir það. „Menn
hafa alltaf tekið þann kostinn,
fremur en að eiga dómsmál yfír
höfði sér.“