Morgunblaðið - 09.03.1990, Síða 27

Morgunblaðið - 09.03.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990 27 Þjónusta sendibílstjóra: Afram virðis- aukaskattskyld - segir jjármálaráðherra ÞJÓNUSTA sendibílstjóra verður áfram virðisaukaskattsskyld, að minnsta kosti fram á næsta þing. Þetta kom fram í svari fjármála- ráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. í umræðu um fyrirspumir í Sameinuðu þingi beindi Guðmund- ur Ágústsson (B/Rvk) þeirri fyrir- spurn til fjármálaráðherra hvort ■ SVANFRÍÐUR Jónasdóttir (Ab/Ne) og Margrét Frímanns- dóttir (Ab/Sl) hafa lagt fram til- lögu til þingsályktunar þess efnis að Alþingi álykti að fela umhverfis- ráðherra að láta kanna hve mikið fellur til árlega af endumýtanleg- um pappír og með hvaða hætti væri unnt að safna honum skipu- lega saman og endumýta. ■ SVANFRÍÐUR Jónasdóttir (Ab/Ne)hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar þess efnis að Al- þingi álykti að fela sjávarútvegs- ráðherra að undirbúa löggjöf sem feli í sér að útgerðarfyrirtæki séu skylduð til að gera sjómönnum kleift að hirða allan undirmálsfisk sem um borð kemur. Slíkur afli yrði eign sjómanna og ekki inni í hlutaskiptum. Sama eigi við um það sem litið hefur verið á sem fiskúrgang, svo sem lifur. ■ SVAVAR Gestsson mennta- málaráðherra greindi frá því í fyrirspumatíma að stofnkostnaður við það að koma sjónvarpssending- um út á miðin, 50 mílur umhverfis landið, yrði um 490 milljónir króna. Rekstrarkostnaður við dreifikerfi sjónvarpsins myndi tvöfaldast við þetta, en sá kostnaður er um 34 milljónir á ári. MMIICi til stæði að breyta reglum um virð- isaukaskatt þannig að sendibíl- stjórar þyrftu ekki að ganga frá tvöföldu framtali; annars vegar vegna fólksflutninga og hins vegar vegna farangurs. Taldi Guðmund- ur það þjóna hagsmunum ríkissjóðs að um þetta giltu strangar reglur. í svari Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra kom fram að þegar lögin um virðis- aukaskatt vom aftur til umfjöllun- ar á þessu þingi, hafí ekki þótt ástæða til að breyta lögum um virðisaukaskatt að því er þetta varðaði, en í lögunum væri það skýrt að fólksflutningar væm und- anþegnir virðisaukaskatti en ekki vömflutningar. „Þessu verður ekki breytt nema með lagabreytingu," sagði Ólafur og sagði að hann teldi ekki rétt að lögin um virðisauka- skatt færu aftur inn á þetta þing. „Ég tel rétt að skoða málið heild- stætt í haust, eftir reynslu fyrsta ársins." Ólafur bætti því og við að sendi- bílstjórar hefðu ekki séð hagræðið í virðisaukaskattinum á vöraflutn- inga; leigubílstjórar fengju ekki endurgreiðslu af virðisaukaskatti af aðföngum en sendibílstjórar í föstum viðskiptum við fyrirtæki fengju innskattinn frádreginn. „Rekstrarlega og efnahagslega er þetta hagkvæmara fyrir þessa sendibílstjóra en leigubílstjórana.“ Friðrik Sophusson (S/Rvk) beindi þeirri áskorun til fjármála- ráðherra að opinberar stofnanir breyttu ekki viðskiptum sínum, þannig að leitað væri til leigubíl- stjóra með þjónustu sem sendibílar hefðu áður sinnt, til þess að kom- ast hjá virðisaukaskatti. Fjármála- ráðherra taldi sjálfsagt að verða við þessu. Sendibílstjórar óku fólki ókeypis heim frá skemmtistöðum um síðustu helgi til þess að mótmæla virðis- aukaskatti á þjónustu sendibílstjóra. Forsætísráðherra: Abyrgð á ríkisstj órninni háð „sérfræðigreiðslum“ til starfsmanns Samtakanna Ríkisstjórnin og forsætisráðu- neytið keyptu sérfræðiaðstoð á árinu 1989 fyrir samtals 4,2 m.kr., samkvæmt bókhaldi forsætisráðu- neytisins. Til aðkeyptrar sérfræð- iaðstoðar teljast m.a. greiðslur til Trausta Þórlákssonar, vegna Samtaka um jafiirétti og félags- hyggju (flokks Stefáns Valgeirs- sonar). Það vekur athygli að í svari Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra, við fyrirspurn frá Friðrik Sophussyni (S-Rv) um að- keypta sérfræðiþjónustu á vegum ríkisstjómarinnar árið 1989 kemur fyrir ákveðinn greiðsluliður nokkrum sinnum: „Trausti Þórláksson, sér- fræðiaðstoð vegna Samtaka jafn- réttis og félagshyggju" kr. 90.576.- í hvert sinn. í skýringum forsætis- ráðherra segir m.a.: „Þegar ríkisstjórnin var mynduð með aðild Samtaka jafnréttis og fé- lagshyggju 28. september 1988 lá fyrir að þingmaður samtakanna treysti sér ekki til þess að bera ábyrgð á störfum ríkisstjómarinnar án þess að fá nokkra sérfræðiaðstoð m.a. til þess að kynna sér og yfír- fara frumvörp og þingmál ríkis- stjórnarinnar. Var Trausti Þórláks- son ráðinn til þess starfa. Að mati ríkisstjórnarinnar hefur hann unnið gott starf, a.m.k. hefur ekki staðið á afgreiðslu þeirra mála sem send eru til meðferðar Samtaka jafnréttis ’ og félagshyggju." Endurbætur Þjóðleikhússins: Hönnunarkostnaður nú orðinn 48,9 milljónir Sjálfstæðismenn og frjálslyndir hægri: Gjaldeyrisviðskipti verði gefin frjáls ÁTTA þingmenn Sjálfstæðisflokks og Frjálslynda hægri flokksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þess eftiis að gjaldeyrisviðskipti verði gefin frjáls og að fallið verði frá fyrirvara við Efnahagsáætlun Norðurlanda. Hönnunarkostnaður vegna endurbóta á Þjóðleikhúsinu er nú orð- inn 48,9 milljónir, eða sem nemur 8% af heildarkostnaði við endurbæ- turnar. Þetta kom fram hjá Svavari Gestssyni menntamálaráðherra í fyrirspurnartíma í Sameinuðu þingi í gær. Það var Ásgeir Hannes Eiríksson verksins og 240 næstu árin. Það (B/Rvk) sem beindi þeirri fyrir- kom fram hjá Svavari að algengt spurn til menntamálaráðherra hver væri að hönnunarkostnaður, ráð- hönnunarkostnaður væri við endur- bæturnar á Þjóðleikhúsinu. í svari menntamálaráðherra kom fram að á verðlagi ársins 1989 væri kostnaðurinn við endurbæt- urnar 540 milljónir. Á þessu ári er áætlað að 300 milljónir fari til gjafar- og skipulagskostnaður bygginga hér á landi væri um 15-20% af kostnaðarverði. Dæmi væru og til um að kostnaður þessi væri 25% af heildarkostnaði, sér- staklega þegar um gamlar bygging- ar væri að ræða. „Sá kostnaður sem áfallinn er vegna hönnunar Þjóðleikhússins til þessa er er hins vegar milli 8-9% af kostnaðarverði þessa verkefnis sem hér er verið að tala um, eða samtals 48 milljónir 906 þúsund og 199 krónur." I máli Svavars kom fram að hann telur hönnunarkostnað almennt vera kominn algerlega úr böndun- um hérlendis; sé þar um að ræða einokunarkostnað arkitekta og fleiri viðkomandi aðila. ' Þingsályktunartillagan er svo- hljóðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjóminni að gefa gjaldeyris- viðskipti frjáls í samræmi við al- þjóðlega þróun í þeim efnum og tryggja þannig að Island taki þátt í sókn nágrannalandanna til aukinnar hagsældar og framfara. Jafnframt er ríkisstjórninni falið að falla frá sérstökum fyrirvara sem gerður var af íslands hálfu við Efnahagsáætlun Norðurlanda 1989-1992 sem hamlar á móti því að eðlileg tengsl skapist við viðskipta- og fjármálalíf í nálæg- um löndum." í greinargerð með tillögunni kem- ur meðal annars fram að við ákvörð- un Efnahagsbandalagsins um sam- einaðan markað 1992 standi íslend- ingar frammi fyrir nýjum aðstæðum sem kalli á viðbrögð af hálfu stjórn- valda og atvinnulífs. „Óskiptur fjár- magnsmarkaður í Evrópu mun stuðla að því að fjármagnið rennur þangáð sem arðsemi þess er mest. Eigendum þess bjóðast fjölbreyttari og betri ávöxtunarkostir. Notkun fjármagns er mikil í fjölmörgum greinum at- vinnurekstrar. Samkeppnisaðstaða fyrirtækja getur af þeim sökum ráð- ist af því hversu greiðan aðgang þau hafa að fjármagni og á hvaða kjör- um. Það er því þýðingarmikið hags- munamál íslenskra atvinnufyrir- tækja að þau hafí í þessu efni ekki lakari aðstöðu en keppinautar þeirra í Evrópu. Margt þarf að breytast til að svo verði. Flutningsmenn tillögunnar em Þorsteinn Pálsson (S/Sl), Eyjólfur Konráð Jónsson (S/Rvk), Ingi Björn Albertsson (FH/Vl), Friðrik Soph- usson (S/Rvk), Halldór Blöndal (S/Ne), Ragnhildur Helgadóttir (S/Rvk), Kristinn Pétursson (S/Al) og Ólafur G. Einarsson (S/Rns). Ekki miklar breytingar fyrirhug- aðar á Islenskum aðalverktökum Vogum. „ENGAR grundvallarbreytingar eru fyrirhugaðar á starfsemi ís- lenskra aðalverktaka," sagði Stefán Friðfinnsson, stjórnarformaður íslenskra aðalverktaka, á ljölmennum fundi með starfsmönnum fyrirtækisins á dögunum. Hann sagði að ýmsu mætti breyta og það væri frekast með aukinni undirverktöku. Stefán sagði ennfremur að ekki Þá sagði Stefán það flóknara stæði til að leggja fyrirtækið nið- mál að bjóða í verk hjá hemum ur. Nú færu fram viðræður við eigendur fyrirtækisins og ríkisins um að ríkið kaupi 27% eignarhluta af öðrum eignaraðilum, og eignist þar með meirihluta í fyrirtækinu. en margir héldu. Mörg verkefni væru flókin og nefndi sem dæmi byggingu stjómstöðvar sem verður afhent á næstunni, en það væru tæpast til flóknari framkvæmdir og samanburð á verði skrifstofu- húsnæðis fyrir Varnarliðið og í Reykjavík á fermetra algjörlega óraunhæfan. Mál íslenskra aðalverktaka væru í góðu lagi, þar þyrfti ekkert að fela. Fyrirtækið stæði í skilum með alla skatta og gjöld vegna starfseminnar og starfsmanna. Ennfremur að íslenskir aðalverk- takar hafi fengið ótal viðurkenn- ingar fyrir góð störf. - E.G. Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson Stefán Friðfinnsson, stjórnarformaður íslenskra aðalverktaka, ræðir við starfsmenn fyrirtækisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.