Morgunblaðið - 09.03.1990, Side 38

Morgunblaðið - 09.03.1990, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1990 nmmm /JiAaðtz. Pingur er þe.ttct'? " I • I | l| 1 TAlt"' Með morgimkaffinu Það er ekkert í sjónvarp- inu í kvöld ... HÖGNI HREKKVtSI Yl HUWP . BARa hunoafanöar^SEöiP þiÐ, HA?! " , /V)ÉR TÓKST VBL UPP i PAG// " Vel heppn- uð sólarferð Til Velvakanda. Við hjónin og dóttir okkar vorum á Benidorm í febrúar sl. þrátt fyrir fortölur margra fróðra manna og kvenna um sólarlandaferðir. Allir sögðu að veðráttan á Benidorm væri ekki nógu góð á þessum tíma. Til Kanaríeyja hafði verð hækkað svo mikið að það munaði tæplega helming. Jæja, við erum komin aftur og ekki sjáum við eftir þeiri ferð. Veðrið var alveg ljómandi gott að okkar mati. En meiningin með þessum orðum er að hrósa farar- stjórunum sem voru með okkur. Það voru Kjartan Trausti Sigurðs- son og María Perello. Þau voru einu orði sagt alveg dásamlegy Það var viðtalstími fararstjóra milli kl. 11 og 12 daglega á hótel- Fararstjórarnir Kjartan Trausti Sigurðsson og María Perelló. inu Residencial Parasio, þar seip allur hópurinn var, en þau voru megnið af deginum að stjana við okkur Islendingana. Við höfðum farið nokkrar sólar- landaferðir en aldrei kynnst annarri eins fararstjórn og umhyggjusemi. Við vitum að fleiri taka undir með okkur. Vonandi eiga Samvinnuferð- ir/Landsýn eftir að njóta þeirra Kjartans Trausta og Maríu sem lengst. Helga Vala Isaksdóttir, Ekki fleiri sjónvarpsstöðvar Til Velvakanda. Um leið og hriktir í atvinnulífi landsmanna og fleiri og fleiri fyrir- tæki gefast upp, er í blákaldri alvöru talað um að koma upp enn einni sjónvarpsstöð. Það er talað um spamað. Er þetta einn liður- inn? Það virðist nægilegt Qármagn þegar stofnun nýrra fjölmiðla er til umræðu. Á þessu ári eru 60 ár síðan Ríkisútvarpið hóf starfsemi sína. Það hefir verið farsæl stofnun og þjónað landinu vel. Og afnotagjald í lágmarki. Ný stöð krefst afnota- gjalda eins og Stöð 2. Útvarpið hefir jafnan kappkost- að að hafa eitthvað fyrir alla og nú er það lifandi allan sólarhring- inn. Hvað vilja menn meira? Samkeppni? Jú, en hún getur líka orðið til bölvunar. Gát skyldi á öllu. Þá skal ekki því gleymt að Ríkisútvarpið tekur ekki afnota- gjald af ellihrumum, lömuðum og fötluðum. Geri aðrir betur. Við eigum heldur að standa vörð um Ríkisútvarpið og gera það eins gott og hægt er, en fjölga stöðvum. Þeir peningar sem spar- ast við að hafa eina stöð gætu svo runnið til atvinnuveganna sem allt þjóðlífíð byggist á. Nei, okkur vantar ekki fleiri Vélvakandi góður. Ég vil taka heilshugar undir þær óskir, sem birtust í dálkum þínum laugardaginn 3. mars, að ríkissjónvarpið auki kristilegt efni í dagskránni. Sjónvarpið á þakkir skildar fyrir margan góðan þátt og gæða- mynd, að ekki sé talað um snjalla fréttatíma. En á mínu heimili söknum við þess sárlega hversu kristilegt efni skipar lítið rúm á skjánum. Það er engu líkara en ráðamenn sjónvarpsins forðist það eins og heitan eldinn. Slík afstaða minnir satt að segja á fyrri tíð í löndum austan járntjalds — en þar eru menn sem óðast að hverfa frá afturhaldsstefnu af þessu tagi, eins og kunnugt er. sjónvarpsstöðvar, í það minnsta ekki á meðan atvinnuvegirnir hanga á horriminni. Kristindómurinn er ein af máttarstoðum vestrænnar menn- ingar. Kristin trú og siðgæði eru grundvöllur farsæls mannlífs. Það sýnir reynsla kynslóðanna. Margir íslendingar gera sér þetta ljóst, enda kjósa þeir flestir að tilheyra kristinni kirkju. Því er það í hæsta máta eðlilegt, að jákvætt, kristi- legt efni sé áberandi í dagskránni í þessum sameiginlega fjölmiðli þjóðarinnar. Vil ég nú skora á sjónvarpið að taka þessi mál til rækilegrar endurskoðunar. Ég óska fjölmiðla- fólki gæfu og gengis. Es. Kærar þakkir til sjónvarps- ins fyrir þátt í Kastljósi sunnudag, frá starfi íslenskra kristniboða í Eþíópíu. Jórunn Halla Jósteinsdóttir Arm Helgason Meira kristilegt efhi Víkverji skrifar Hvort ísland og íslendingar skipta í reynd einhverju máli meðal þjóða er kannski ekki Ijóst af fréttum fjölmiðla og máli stjórnmálamanna. Við fáum svo oft að heyra fallegar fréttir af því, að eftir okkur hafi verið tek- ið. Nú síðast fór meira að segja Bretadrottning að skoða mál- verkasýningu ofan af íslandi. En, hve mikil stórþjóð erum vér? Víkverji heimsótti síðastliðið haust fyrirtæki í sunnanverðu Þýskalandi og ræddi við einn af framkvæmdastjórum þess. Það vekti athygli Víkverja, að maður þessi kallaði fyrirtæki sitt lítið fyrirtæki. Fjárhagsáætlun þess fyrir árið 1989 hljóðaði upp á um tíföld fjárlög íslenska ríkisins! XXX Islendingar eru smáþjóð í þeim skilningi að hér er fátt fólk og lítill auður í garði á mælikvarða stórþjóðanna. Talað er um að virkja gjörvileik þjóðarinnar og er það vel. Víkveija finnst þó að þeim orðum mætti fylgja meiri alvara, að ekkí sé í sömu andránni lagt blátt bann við að menn virki sinn gjörvileik með eigin frumkvæði, á þann veg að banna þeim að flytja út vörur sínar eða selja hér þjón- ustu síng. Og banna þeim að leita sér bjargar hjá erlendum fyrir- tækjum, sem hér vilja starfa. Sagt er að draugarnir og tröllin, sem þjóðsögurnar segja frá, hafi horfið með raflýsingunni. Víkveija finnst að í viðhorfum til annarra þjóða sé trölla- og draugatrúin enn vel lifandi, einkum hjá stjórnvöldum. í handboltanum verðum við enn að bíta í það súra, að vera B-þjóð. Til þess að verða ekki B-þjóð í sérhveijum skilningi, þurfum við að kasta draugatrúnni og hefja til vegs raunsæið og bjartsýnina, vera reiðubúnir til að kanna nýja stigu og umbylta kerfi sem reyn- ist illa, þótt það komi við rótgróin setlög gamalla hagsmuna. xxx Osjaldan er skammast yfir að við íslendingar högum okkur ekki eins og við séum orðnir stór- ir, en þá fara menn stundum of- fari, því að ekki þarf nú ávallt að vera gott að ná þroska stórþjóð- anna. Þetta finnst Víkveija eiga við þegar kvartað er undan um- ferðarmenningunni hér af því að við séum eftirbátar annarra þjóða í þeim efnum. Víkverji hefur á undanförnum árum ekið nokkuð um Evrópu í ýmsum löndum álf- unnar og er hæstánægður með J-Sím,*:4» i -t i í. 1 4 tiiltliiu ír a S.II samanburðínn, séum við van- þroskaðir á þessu sviði, þá er ekki gott að þróast Iengra. Hvergi í þessari álfu hefur Víkverji orðið var meiri tillitssemi í umferðinni en hér. Til dæmis að taka, er gjör- ólíkt að aka í Vestur Þýskalandi. Þjóðverjarnir eru gallharðir á regl- unum, nema þegar þeir reiðast. Þá eiga þeir allt til. Víkveiji hefur orðið fyrir því að á hraðbraut í Þýskalandi kom óþolinmóður öku- maður aftan að honum á vinstri akrein, þótti ekki nógu vel ganga að taka fram úr. Þegar það tókst, eftir um hálfa mínútu, þá skellti hann sér fram fyrir og snarbrems- aði, svona til að veita Víkverja verðuga ráðningu. í Þýskalandi lærðist sú umferðarmenning, að ef þú ert ekki frekari en náung- inn, þá er voðinn vís. í Frakklandi er þetta með svolítið öðrum brag. Til dæmis í París. Þar er ein um- ferðarregla að því er virðist öllum öðrum æðri: Gættu þín á þeim sem er fyrir framan og hugsaðu ekkert um þann sem er fyrir aftan. ís- lendingar eru kannski tregir til að halda sig stíft við reglur, en þeir eru tillitssamari í umferðinni en Víkverji hefur kynnst annars staðar í Evrópu. Sé þetta að vera eftirbátur stórþjóðanna í umferð- armenningu, þá er vel að svo verði áfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.